Morgunblaðið - 17.01.2022, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 17.01.2022, Blaðsíða 25
Helstu áhugamál Stefáns eru íþróttir, fótbolti, körfubolti og heilsu- rækt. „Ég mæti á hvern einasta leik með körfuboltaliðinu ef ég get, elti það út um allt og arga fyrir liðið.“ Fjölskylda Eiginkona Stefáns er Hrafnhildur Guðjónsdóttir, f. 29.10. 1971, félags- ráðgjafi hjá sveitarfélaginu Skaga- firði. Þau eru búsett á Hólavegi á Sauðárkróki. Foreldrar Hrafnhildar eru Jóhanna Bryndís Svavarsdóttir, f. 4.11. 1940, húsmóðir og fv. verkakona á Sauðárkróki, og Guðjón Jónsson, f. 27.3. 1941, fv. sjómaður, búsettur á Hellu. Þau skildu 1988. Börn Stefáns og Hrafnhildar eru 1) Sara Líf Stefánsdóttir, f. 4.9. 1993, starfsmaður Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Blönduósi, búsett á Fagranesi í Langadal, unnusti: Hall- dór Skagfjörð húsasmiður. Barn þeirra er Rebekka Lárey, f. 2014; 2) Atli Dagur Stefánsson, f. 28.10. 1999, nemi í London; 3) Sigríður Hrafnhild- ur Stefánsdóttir (Lilla), f. 9.9. 2007, grunnskólanemi. Systkini Stefáns eru Ómar Bragi Stefánsson, f. 2.6. 1957, landsbyggðar- fulltrúi UMFÍ, búsettur á Sauðár- króki, og Hjördís Stefánsdóttir, f. 2.9. 1962, lögfræðingur, búsett í Kópa- vogi. Foreldrar Stefáns voru Hrafnhild- ur Stefánsdóttir, f. 11.6. 1937, d. 15.7. 1998, verslunarmaður, og Stefán Guð- mundsson, f. 24.5. 1932, d. 10.9. 2011, alþingismaður. Þau voru búsett á Sauðárkróki. Stefán Vagn Stefánsson Júlíana Ingibjörg Jónasdóttir húsfreyja á Bakka og Flugumýri Jón Jónasson bóndi á Bakka í Öxnadal og á Flugumýri í Blönduhlíð Helga Jónsdóttir húsmóðir á Hjaltastöðum og Sauðárkróki Stefán Vagnsson bóndi á Hjaltastöðum í Blönduhlíð, síðar skrifstofumaður á Sauðárkróki Hrafnhildur Stefánsdóttir verslunarmaður á Sauðárkróki Þuríður Aðalbjörg Jónsdóttir húskona í Miðhúsum Vagn Eiríksson bóndi í Miðhúsum í Blönduhlíð, Skag. Anna Rósa Pálsdóttir húsfreyja í Utanverðunesi Árni Magnússon bóndi í Utanverðunesi í Hegranesi, Skag. Dýrleif Árnadóttir húsmóðir á Sauðárkróki Guðmundur Sveinsson skrifstofumaður á Sauðárkróki Hallfríður Sigurðardóttir húsfreyja á Hóli Sveinn Jónsson bóndi og oddviti á Hóli í Sæmundarhlíð, Skag. Ætt Stefáns Vagns Stefánssonar Stefán Guðmundsson alþingismaður á Sauðárkróki DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2022 STOFNAÐ 1953Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • Sími: 553 1380 • haaleiti@bjorg.is Lumar þú á herðatrjám? Við tökum vel á móti þeim og endurnýtum. Hreinsum gluggatjöld, áklæði og mottur „ÞETTA ER BARA TÍMABUNDIÐ ÞAR TIL HANN KEMUR UNDIR SIG FÓTUNUM AFTUR.“ „Æ NEI! BLEKIÐ ER AÐ NUDDAST AF SEÐLINUM.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fara til messu saman. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG KEYPTI TALANDI AF- MÆLISKORT HANDA ÞÉR! ÞÚ ERT GAMALL! ÞÚ ERT GAMALL! LÍKAÐI GRETTI KORTIÐ? LÚTUR, ÞÚ ERT INDÆLL EN STUNDUM VIRÐIST ÞÚ VERA MEÐ HÖFUÐIÐ UPPI Í SKÝJUNUM. REYNIRÐU DAGLEGA AÐ BÆTA ÞIG SEM MANNESKJU? ALGERLEGA! ÉGÆFI MIG DAGLEGA Á ÞESSA ELSKU! gervibl óm Ólafur Stefánsson skrifar í Boðn- armjöð: „Í fræðunum er talað um endurtekningu, epifóru, þar sem sama lokaorð er notað í fleiri en einni braglínu. Ekki algengt í hefð- bundnum kveðskap, en varla þarf að spyrja kóng eða prest þótt maður segi sem svo: Vanur er ég vetrarsnjó, vindi’ og skörpum éljasnjó að skefli oft í skafla snjó er skellur á með hríð og snjó.“ Örn Arnarson orti um Stjána bláa: Hann var alinn upp við sjó ungan dreymdi um skip og sjó, stundaði alla ævi sjó, aldurhniginn fórst í sjó. Í Hótel jörð segir Tómas: Þá streymir sú hugsun um oss sem ískaldur foss að allt verði loks upp í dvölina tekið frá oss, er dauðinn, sá mikli rukkari réttir oss, reikninginn yfir það sem var skrifað hjá oss. Jón Arason orti gamanvísu: Latínan er list mæt lögsnar, Böðvar. Í henni eg kann ekki par, Böðvar: Þætti mér þó rétt þitt svar, Böðvar. míns ef væri móðurlands málfar, Böðvar. Vitið þér enn eða hvað Reir frá Drangsnesi yrkir: Skafbylurinn hylur hús handan þúfu er bólið haltrar þangað hagamús heimleiðis í skjólið. Maðurinn með hattinn bætir við: Mér er æ í geði gramt gerist veðrið sligandi. Nú er vetur og vindasamt og varla hundi út sigandi. Karl Benediktsson yrkir um „heilsufarið“: Ég engist nú saman og sundur og svefninn er örstuttur blundur. Andskotans kvef sem angrar mitt nef. Svo hósta ég rétt eins og hundur. Helgi Ingólfsson yrkir um „Ástandið janúar 2022“: Ég fullsaddur er nú af fjúkanda og forðast sko öll þau sem sjúk anda veiru á aðra og væla og þvaðra … … en Ísland hélt jöfnu gegn Úganda. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Sama lokaorðið í hverri braglínu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.