Morgunblaðið - 17.01.2022, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2022
Aðalfundur ÍSTEX hf. verður haldinn
fimmtudaginn 20. janúar 2022, kl. 16:00.
DAGSKRÁ
1. Almenn aðalfundarstörf samkvæmt
15. grein samþykkta félagsins.
2. Heimild aðalfundar fyrir félagsstjórn
til kaupa á eigin hlutabréfum.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Ársreikningur er til sýnis á skrifstofu í Mosfellsbæ og er
sendur hverjum þeim hlutahafa sem þess óskar.
Í samræmi við fyrirmæli stjórnvalda til að
stemma stigu við útbreiðslu kórónuveiru verður
fyllstu varúðar gætt.
Hægt verður að skrá sig á istex.hf@istex.is eða
í 566 6300 til að fylgjast með fundinum rafrænt.
Umboðsmenn þurfa að leggja fram dagsett og
skriflegt umboð.
Aðgöngumiðar, fundargögn og hlekkur á fundinn
verða afhent eftir skráningu á fundardag.
Mosfellsbæ, janúar 2022.
Stjórn ÍSTEX hf.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Alþingi kemur saman klukkan 15 í
dag að loknu jólaleyfi þingmanna.
Þinginu var frestað 28. desember.
Ýtrustu sóttvarna er áfram gætt,
segir Ragna Árnadóttir, skrifstofu-
stjóri Alþingis. Þingmenn og starfs-
fólk fara í sýnatökur fyrir hádegi í
dag og gert er ráð fyrir að þær
verði framkvæmdar tvisvar í viku.
Nefndafundir fara fram í fjar-
fundi, gestakomur eru ekki leyfðar
og starfsfólk sem það getur vinnur
heima. „Við erum í samstarfi og
samráði við embætti sóttvarna-
læknis og almannavarna um fyrir-
komulagið hér,“ segir Ragna.
Þingmenn hafa ekki sótt fundi
erlendis frá því í nóvember. Fund-
arsókn erlendis fer eftir ákvörð-
unum alþjóðlegra þingmannasam-
taka um hvort fundir fari fram sem
staðfundir eða í fjarfundarformi og
ríkir óvissa um slíkt fundarhald á
næstu vikum og mánuðum að sögn
Rögnu.
Á þingfundinum í dag eru átta
mál á dagskrá. Hann hefst á óund-
irbúnum fyrirspurnum en þar verða
til svara forsætisráðherra, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra,
heilbrigðisráðherra, utanríkis- og
þróunarsamvinnuráðherra, ferða-
mála-, viðskipta- og menningar-
málaráðherra og félagsmála- og
vinnumarkaðsráðherra.
Samkvæmt starfsáætlun Alþingis
mun 152. löggjafarþingið sitja til
10. júní nk. Kjördæmadagar verða
8.-10. febrúar og eldhúsdagsum-
ræður eru á dagskrá 7. júní.
Þúsundasti fundurinn
Forsætisnefnd Alþingis hélt á
föstudag sinn þúsundasta fund.
Vegna kórónuveirufaraldursins var
fundurinn fjarfundur. Á fundinum
var m.a. rætt um skipulag þing-
starfanna, fjárhag og rekstur Al-
þingis, þátttöku í alþjóðlegu þing-
mannastarfi og stöðuna í
kórónuveirufaraldrinum, að því er
fram kemur í tilkynningu á vef Al-
þingis.
Forsætisnefnd kom fyrst saman
árið 1991 þegar deildaskipting Al-
þingis féll brott við breytingar á
stjórnarskrá og hefur þingið starfað
í einni málstofu alla tíð síðan. For-
sætisnefnd hefur frá upphafi verið
skipuð forseta Alþingis og varafor-
setum. Við breytingar á þingsköp-
um, sem tóku gildi í byrjun árs
2008, var veitt heimild fyrir setu
áheyrnarfulltrúa þeirra þingflokka
sem ekki hafa þingstyrk til að
hljóta kjörinn varaforseta.
Núverandi forsætisnefnd skipa
Birgir Ármannsson, forseti Alþing-
is, og varaforsetarnir: Oddný G.
Harðardóttir, 1. varaforseti, Líneik
Anna Sævarsdóttir, 2. varaforseti,
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, 3. vara-
forseti, Diljá Mist Einarsdóttir, 4.
varaforseti, Björn Leví Gunnars-
son, 5. varaforseti, og Jódís Skúla-
dóttir, 6. varaforseti. Þá eiga nú
sæti í nefndinni tveir áheyrnar-
fulltrúar, Þorbjörg Sigríður Gunn-
laugsdóttir og Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson.
Sýnatökur á fyrsta degi
þingsins eftir jólaleyfi
- Ýtrustu sóttvarna verður áfram gætt við þingstörfin
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alþingi Sóttvarnir og grímuskylda
hafa haft sín áhrif á þingstörf.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Að geta fengið sér aðeins í tána
ætti að auka á upplifun fólks sem
kemur í fjallið,“ segir Sölvi Ant-
onsson veitinga-
maður. Undir
merkjum fyrir-
tækisins Ghost
Mountains ehf.
tók hann nú um
áramótin við
veitingarekstri á
skíðasvæði Akur-
eyringa í Hlíðar-
fjalli. Á tveimur
stöðum þar eru
seldar hefð-
bundnar veiting-
ar og nú vill
Sölvi bæta veig-
unum við. Óskaði
á dögunum eftir
leyfi hjá bæjar-
ráði Akureyrar,
sem tók jákvætt í
erindið. Óskað
hefur verið eftir
umsögnum og
áliti á hugsan-
legri áfengissölu hjá lögreglu,
slökkviliði, heilbrigðiseftirliti og
fleiri slíkum stofnunum. Að því leyti
er málið komið í farveg í stjórnkerfi
bæjarins.
Skapa evrópska stemningu
Áfengissalan yrði bæði í skíða-
hótelinu í Hlíðarfjalli og svonefnd-
um Strýtuskála. Yrði opin frá há-
degi fram til kl. 20:30 á veturna, en
til kl. 22:00 á sumrin. Þannig stend-
ur til að nýta frábæra aðstöðuna í
fjallinu árið um kring til að taka á
móti gestum, enda er umhverfið
þar einstakt og útsýnið frábært og
skapar mikla möguleika í ferða-
þjónustu.
„Við viljum skapa góða stemn-
ingu í Hlíðarfjalli, líka því sem
þekkist til dæmis á skíðasvæðunum
í Evrópu þangað sem Íslendingar
fara mikið,“ segir Sölvi. „Bjórkolla
með kröfugri kryddpylsu gefur líf-
inu gildi. Sé áfengi eða bjór seldur í
plastglösum í fjallinu verða ekki
dósir og flöskur út um allt ef fólk
kemur með veigarnar með sér á
svæðið. En ég ítreka líka að við
munum ef til þess kemur að leyfi til
áfengissölu fáist verða með arn-
araugu á því að fólk sé ekki ölvað í
skíðabrekkunum, með allri þeirri
slysahættu sem því kann að fylgja.“
Ekki með fulla
stjórn á hreyfingum
Við umfjöllun í bæjarráði Akur-
eyrar í sl. viku um leyfi til áfeng-
issölu í Hlíðarfjalli lagði Sóley
Björk Stefánsdóttir, áheyrnar-
fulltrúi Vinstri grænna, fram bókun
um andstöðu sína. Segir að sér þyki
sala áfengis í Hlíðarfjalli ganga
harðlega gegn forvarnastefnu
Akureyrarbæjar. Sé á engan hátt
viðeigandi á svæði þar sem ungt
fólk, börn og fjölskyldur njóti úti-
vistar og samveru. „Satt að segja
finnst mér þessi hugmynd alveg út
í hött og andstaða mín er alveg
skýr,“ sagði Sóley í samtali við
Morgunblaðið. Minnir einnig á að
hætta geti skapast sé skíðafólk
undir áhrifum áfengis og því ekki
með fulla stjórn á hreyfingum sín-
um. Umsögn bæjarins um málið
hefði að sínu mati átt að vera nei-
kvæð.
Andri Teitsson bæjarfulltrúi var
einn þeirra sem studdu málið í bæj-
arráði. Hann segir Hlíðarfjall vera
vinsælan ferðamannastað sem
styrkja þurfi í sessi. Viðleitni til
þess hafi verið ráðandi í afstöðu
bæjarstjórnar þegar tekið var já-
kvætt í erindi um áfengisveitingar
þar. Einnig megi benda á að nokk-
uð hafi verið um að fólk sem kemur
í fjallið hafi með sér til dæmis létt-
vín og bjór, sem neytt sé til dæmis
í brekkum og á bílastæðum. Vera
kunna þá að betur fari á því að fólk
neyti veiganna og kaupi á viður-
kenndum veitingastað í fjallinu.
Vilja opna áfengissölu í Hlíðarfjalli
- Skapa stemningu á skíðasvæði Akureyringa - Fá sér í tána - Arnaraugu svo fólk sé ekki ölvað í
brekkunum - Gegn forvarnastefnu, segir bæjarfulltrúi - Léttvín og bjór í brekkum og á bílastæðum
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hlíðarfjall Fjöldi fólks og frábært veður á fallegum vetrardegi nyrðra. Vínveitingar eru taldar geta styrkt ferðaþjónustuna á skíðasvæðinu í sessi.
Sóley Björk
Stefánsdóttir
Andri
Teitsson