Morgunblaðið - 17.01.2022, Blaðsíða 24
dag og mun sitja út kjörtímabilið.
„Það sem ber hæst á þessum tíma er
að Skagafjörður er orðinn mjög
stöndugt sveitarfélag, en þegar ég
byrjaði þá vorum við að koma út úr
kreppu og ástandið var mjög slæmt.
Okkur tókst með samstilltu átaki að
Háskóla Íslands 2005-2008 samhliða
vinnu.
Stefán var kosinn í sveitarstjórn
Sveitarfélagsins Skagafjarðar árið
2010 og var formaður byggðarráðs frá
þeim tíma til ársins 2020 og forseti
sveitarstjórnar frá 2020 til dagsins í
S
tefán Vagn Stefánsson
fæddist 17. janúar 1972 í
Reykjavík en ólst upp og
bjó alla barnæsku sína á
Sauðárkróki.
„Ég spilaði fótbolta og körfubolta
með Tindastól alla mína bernsku, en
þegar ég var 15-16 ára ákvað ég að
einbeita mér að fótboltanum.“ Stefán
var markmaður með Tindastól til
1996, en félagið komst hæst í næst-
efstu deild meðan hann lék með því.
Hann fluttist til Reykjavíkur árið
1997 og bjó þar til 2008 þegar hann
fluttist aftur til Sauðárkróks og hefur
búið þar síðan.
Stefán fór í Grunnskóla Sauðár-
króks og þaðan í Fjölbrautaskóla
Norðurlands vesta á Sauðárkróki og
lauk stúdentsprófi árið 1995. Árið
1997 hóf hann störf í lögreglunni á
Sauðárkróki og sama ár flutti fjöl-
skyldan til Reykjavíkur og hóf hann
störf í lögreglunni í Reykjavík sama
ár. Hann fór í Lögregluskóla ríkisins
árið 1998 og lauk þaðan námi árið
2000. Stefán hóf þá störf í lögreglunni
í Reykjavík. Fór á nýliðanámskeið
sérsveitar ríkislögreglustjóra um
haustið 2000 og hóf störf í framhald-
inu í sérsveit ríkislögreglustjóra og
starfaði þar til ársins 2007. Árið 2004
fór hann í nám hjá breska hernum og
útskrifaðist sem sprengju-
sérfræðingur, IEDD-sérfræðingur,
um haustið það ár. „Ég þurfti að fara í
nokkur slík verkefni, að aftengja
sprengjur, en sem betur fer eru þau
ekki mörg hér á landi.“
Árið 2006 fór Stefán út sem hóp-
stjóri friðargæslusveitar íslensku frið-
argæslunnar og starfaði frá hausti
2006 til ársins 2007 í Ghore-héraði í
Afganistan undir stjórn alþjóðaliðs
NATO. Árið 2007 tók hann til starfa í
greiningardeild ríkislögreglustjóra og
starfaði þar til ársins 2008 þegar hann
tók við starfi sem yfirlögregluþjónn
hjá lögreglunni á Sauðárkróki og lög-
reglunni á Norðurlandi vestra frá
2015. „Einhvern veginn átti lögreglu-
starfið vel við mig og sérstaklega var
tíminn hjá sérsveitinni skemmtilegur.
Starfið reyndi á en þá skiptir máli að
vera með góðan hóp í kringum sig,
bæði heima fyrir og í vinnu.“ Stefán
stundaði nám í stjórnmálafræði við
koma sveitarfélaginu í rekstrarhæft
ástand og núna er orðin mikil upp-
bygging hérna og fólksfjölgun. Við
höfum farið í mörg stór verkefni á
Sauðárkróki, öðrum þéttbýlisstöðum
og dreifbýlinu, eins og með hitaveitu
og ljósleiðara.“
Stefán sat í stjórn Samtaka sveitar-
félaga á Norðurlandi vestra 2014-2018
og var formaður stjórnar 2016-2018.
Hann hefur setið í skólanefnd Fjöl-
brautaskóla Norðurlands vestra frá
2021. Hann var varaþingmaður kjör-
tímabilið 2017-2021 og kjörinn 1. þing-
maður Norðvesturkjördæmis 2021
fyrir Framsóknarflokkinn. „Ég er
mjög ánægður á þessum nýja vinnu-
stað og þetta byrjar vel þótt það taki
alltaf smátíma að komast inn í málin
og kúltúrinn. Maður þarf að gefa sér
tíma í það, en ég er mjög spenntur
fyrir þeim verkefnum sem bíða.“
Stefán hefur starfað sem formaður
flóttamannaráðs frá 2018. „Árið 2021
var mjög krefjandi en þá vorum við að
taka á móti flóttamönnum frá Afgan-
istan, en það tókst og þessi 70 manns
sem við áttum að sjá um eru komin í
öruggt skjól, bæði hér á Íslandi og
annars staðar. Það er mjög sérstakt
að sjá um þetta verkefni og að hafa
starfað með alþjóðaliðinu í Afganist-
an. Við vorum þar allir með vænt-
ingar um að koma landinu á réttan
kjöl, en það er ljóst að það tókst engan
veginn, því miður.“
Stefán Vagn Stefánsson alþingismaður – 50 ára
Fjölskyldan Stefán, Hrafnhildur og börn í landi Steinsstaða í gamla Lýt-
ingsstaðahreppi þar sem er sumarbústaður stórfjölskyldunnar, Steinahlíð.
Skilar góðu búi í Skagafirði
Skagfirðingurinn Stefán fyrir ofan Sauðárkrók þar sem hann ólst upp og
býr, en Stefán er Skagfirðingur í húð og hár.
Alþingismaðurinn Stefán Vagn.
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2022
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR
um auglýsingapláss:
Berglind Bergmann
Sími: 569 1246
berglindb@mbl.is
fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 18. janúar 2022
Auglýsendur athugið
SÉRBLAÐ
B A
BLAÐ
60 ÁRA Jóna er fædd og uppalin
á Fremra-Nýpi í Vopnafirði en býr
í Hafnarfirði. Hún er viðurkenndur
bókari og er í námi til löggildingar
fasteignasala hjá Endurmenntun
HÍ. Jóna rekur bókhaldsfyrirtækið
Hjá Jónu ehf. „Áhugamálin eru að-
allega fjölskyldan og ferðalög og að
njóta lífsins.
FJÖLSKYLDA Sonur Jónu er
Aron Óttar Traustason, f. 1985.
Kona hans er Agnes Gústafsdóttir.
Barnabörn Jónu eru Stefanía, f.
2011, og Emil Óli, f. 2019. For-
eldrar Jónu eru Stefanía Sigurjóns-
dóttir, f. 1941, d. 2006, bóndi á
Fremra-Nýpi, og Jósep Hjálmar
Þorgeirsson, f. 1934, d. 2011, bóndi
á Fremra-Nýpi, síðar vörubílstjóri
á Vopnafirði.
Jóna Hildur Jósepsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú ert jarðbundinn, hugrakkur og
stórhuga og átt auðvelt með að tileinka þér
nýja hluti. Á árinu mun nánasta samband
þitt verða innilegra og veita þér hamingju.
20. apríl - 20. maí +
Naut Það eru margar hliðar á sömu mál-
um og þú kemst ekki hjá því að kynna þér
þær ef þú vilt komast að réttlátri nið-
urstöðu. Ræddu markmið þín við traustan
vin.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Sýndu öðrum tillitssemi og um-
burðarlyndi og þú munt fá þá framkomu
endurgoldna þúsundfalt. Fólk sem hugsar
sér að vera á móti þér getur það ekki.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Fyrr eða seinna þarftu að mæta
þeim sem þú hefur verið að forðast. Ekki
hafa áhyggjur ef þú ert ekki of sterkur hið
innra.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú hefur lofað upp í ermina á þér og
sérð nú fram á að geta ekki staðið við orð
þín. Ef menn geta ekki tekið þér eins og þú
ert, er það þeirra vandamál.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Forðastu að hrekja aðra út í horn
þar sem lygin er eina björgun þeirra. Haltu
þínu striki varðandi önnur mál.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Það má margt læra af samferða-
mönnum sínum. Eitthvað á eftir að koma
þér á óvart en láttu það ekki trufla þig.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Svo virðist sem ákveðin per-
sóna eigi erfitt með að þiggja aðstoð þína.
Ekki kasta öllu frá þér vegna smávegis
hnökra.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú ert á öndverðum meiði
gagnvart ættingja og þarft að hafa hemil á
skapi þínu ef þú vilt ekki að allt fari úr
böndunum.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Notaðu daginn til þess að sinna
samningaviðræðum eða skrifa undir samn-
inga. Einhvers konar endurnýjun er nauð-
synleg.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þér finnast of margir sækja að
þér í einu og vilt því leita uppi einveruna.
Gerðu það upp við þig með hverjum þú vilt
verja tímanum.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Forgangsraðaðu og settu niður á
blað. Leystu eigin vandamál áður en þú
fæst við vanda annarra.
Til hamingju með daginn
Reykjavík Aron Ragnar Maslanka
fæddist 25. desember 2021 kl. 19.02.
Hann vó 3.970 g og var 54 cm langur.
Foreldrar hans eru Maciej Maslanka
og Malgorzata Kedziora.
Nýr borgari