Morgunblaðið - 17.01.2022, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2022
Álft spókaði sig fyrir utan Ráðhús Reykjavíkur á dögunum. Hún virtist spennt fyrir komandi borgarstjórnarkosningum, ætli hún kjósi Dag?
Eggert
Við stöndum
frammi fyrir alvar-
legri vanda en virtist
vera í upphafi. Sem
lögmanni forsjáraðila
barns, sem sl. jól
hafði setið vikum
saman í stofufangelsi,
ósmitað af kórónu-
veirunni (C19), birtist
undirrituðum við-
fangsefnið í návígi.
. Sóttvarnalæknir
gerir tillögur að þeim reglum sem
hér gilda og er því í reynd með
hönd á löggjafarvaldinu. Sjálfur
fer hann svo með framkvæmda-
valdið þegar hann ákveður hvernig
– og gagnvart hverjum – þessum
reglum er beitt. Þegar borgararnir
reyna að verjast með því að leita
til dómstóla gefur sóttvarnalæknir
skýrslu fyrir dómi og niðurstaða
dómstóla látin ráðast af túlkun
hans! Í reynd er sóttvarnalæknir
því einráður og hugsjónin um þrí-
greiningu valdsins orðin að inn-
antómri skurn. Með þessu er í
framkvæmd brotið gegn kröfum
stjórnarskrár um temprað rík-
isvald og stjórnað undir fána
falsks öryggis.
. Ef ekkert temprar fámennis-
stjórn (e. oligarchy), þ.m.t. tækni-
hyggju (e. technocracy) og/eða
auðræði (e. plutocracy), þá gætir
falsks öryggis í öllu stjórnarfari.
. Af góðum hug byggðum við
upp heilbrigðiskerfi til að verja líf
og heilsu. Kerfið varð m.ö.o. til
mannsins vegna en ekki maðurinn
vegna kerfisins. Ef nota á hags-
muni kerfisins til að réttlæta frels-
isskerðingar gefur það tilefni til
alvarlegrar lýðræðis-
legrar umræðu, ekki
ofríkistilburða. Kerfið
má því ekki verða
sjálfstæð ógn sem
býður okkur aðeins
falskt öryggi.
. Bóluefnin koma
ekki í veg fyrir að
menn smitist og held-
ur ekki að menn smiti
aðra. Bóluefnin veita
að þessu leyti falskt
öryggi.
. Grímur eru sagð-
ar öflug vörn gegn því
að vírusinn berist á milli manna.
Engin rannsókn hefur sannað að
þetta sé rétt. Ekkert ríki sem
beitt hefur grímuskyldu hefur sýnt
fram á lægri smittölur í kjölfarið.
Samanburðartölur undirstrika
þetta. Samt eru viðkvæmir hópar
hvattir til að nota grímur og al-
menningur er hvattur til að trúa
því að grímur verji okkur og að
við getum ferðast um/verið í fjöl-
menni ef allir eru með grímur.
Grímurnar veita falskt öryggi.
. Engar rannsóknir hafa sýnt
fram á að Comirnaty-bóluefnið frá
Pfizer skili 5-11 ára börnum meiri
ávinningi en áhættu. Sprautu-
herferð gegn þessum hópi barna
er farin undir flaggi falsks örygg-
is.
. Bóluefnin sem nú eru notuð
gegn C19 virðast ekki mynda
ónæmi gegn sjúkdómnum. Þau
valda hins vegar fjölda alvarlegra
aukaverkana miðað við hefðbundin
bóluefni. Munurinn getur hlaupið á
tugum og jafnvel hundruðum pró-
senta. Samt hafa þau ekki verið
tekin úr umferð. Í þessu opinber-
ast falskt öryggi.
. Ríkisvaldinu er ætlað að vera
þjónn okkar, ekki yfirboðari. Það á
að setja mörk æskilegrar hegð-
unar, en ekki skipa fyrir. Ef þessa
er ekki gætt er hætt við fölsku ör-
yggi.
. Getur verið að eftirlitsstofn-
anir, fjölmiðlar o.fl. sem falið hefur
verið það hlutverk að vera „varð-
hundar“ lýðræðisins hafi snúist í
hollustu sinni og gengist, meðvit-
undar- og gagnrýnislaust, valdinu
á hönd? Hvað réttlætir að fjórða
valdið gelti á almenning fremur en
stjórnvöld? Er ekki enn leyfilegt
að efast og spyrja spurninga um
raunverulega gagnsemi nýrra
lyfja, gagnrýna stefnumörkun
stjórnvalda, áhrif alþjóðastofnana
og lyfjafyrirtækja? Hér vaknar
klassísk spurning um falskt ör-
yggi: Hver á að hafa eftirlit með
eftirlitsmönnunum?
. Stefnumörkun sem miðast að-
eins við eitt svið en vakir ekki yfir
heildarsýn, er ávísun á falskt ör-
yggi.
. Í þjóðfélagi þar sem stjórn-
málamenn afsala hlutverki sínu í
hendur „sérfræðinga“ er sofið á
verðinum og þar með grafið undan
lýðræðislegum stjórnarháttum og
ýtt undir falskt öryggi.
. Í samfélagi þar sem frjáls og
ígrunduð umræða fær ekki að
njóta sín er grafið undan gagnrýn-
inni hugsun og búin til samstaða
um falskt öryggi.
. Ef gera á borgaralegt frelsi
háð opinberum leyfum; ef við eig-
um aðeins að teljast frjáls þegar
ríkið heimilar það; þá er það ávís-
un á falskt öryggi.
. Þeir sem telja að ríkisvaldið
sé alltaf óskeikult, reiða sig til
lengdar á falskt öryggi.
. Ef ríkisvaldið á að takast á við
langtímavanda með skammtíma-
lausnum, þá skapa lausnirnar ný
vandamál og öryggið verður falskt.
. Ef beita á einni samræmdri
„ríkislausn“ gegn veiru sem er
margfalt hættulegri gömlum og
veikum en ungum og hraustum, þá
felur það í sér vanvirðingu við fjöl-
breytileika mannlífsins og ýtir
undir falskt öryggi.
. Þegar stjórnvöld gerast sek
um að ýta undir ótta til að auka
vinsældir sínar og áhrifamátt, þá
skapast alræðisógn og falskt ör-
yggi, sem afhjúpast fyrr eða síðar.
. Er krafa um „samstöðu“ svo
mikilvæg að menn megi ekki
freista þess að verja sig fyrir dómi
eða leita endurskoðunar á ákvörð-
unum stjórnvalda? Er öryggi í því
fólgið að borgararnir hlýði án efa-
semda og að allir flokkar aðhyllist
sömu stefnu? Nei, slíkt fyr-
irkomulag er ólýðræðislegt, dregur
úr skapandi, greinandi hugsun –
og veitir fátt annað en falskt ör-
yggi.
. Jú, við skulum sannarlega
hlusta á sérfræðingana, að því
gefnu að þeir séu að vinna í þágu
almannahagsmuna. En ef þeir eru
í raun að vinna í þágu sérhags-
muna, þá er slík ráðgjöf ávísun á
falskt öryggi.
. Þegar vísindamenn gera tilkall
til kennivalds til að berja niður
gagnrýni er grafið undan hinni vís-
indalegu aðferð til lengri tíma.
Slíkt leiðir aðeins til falsks öryggi.
. Harðar aðgerðir stjórnvalda
hafa yfirstigið mörk meðalhófs,
valdið umfangsmiklu, óafturkræfu
og langvarandi tjóni, laskað
lýðræðislegt stjórnarfar og borg-
araleg réttindi til lengri tíma litið.
Aðgerðirnar hafa skapað falskt ör-
yggi.
. Svimandi útgjöld ríkissjóðs í
baráttunni við veiru sem 99,7% al-
mennings lifa af, eru til þess fallin
að skapa falskt öryggi.
. Þegar nýjustu tölur benda til
að þríbólusettir séu líklegri til að
smitast af Ómíkron-afbrigðinu en
þeir sem eru óbólusettir og tví-
bólusettir, er þá örvunarskammt-
urinn ekki ávísun á falskt öryggi?
. Þegar grundvallarréttindum
og borgaralegu frelsi er fórnað í
skiptum fyrir tímabundna og
óvissa vernd, hvað er það annað en
falskt öryggi?
. Ef menn vilja svipta hluta
þjóðfélagsins almennum mannrétt-
indum í skiptum fyrir bóluefna-
passa munu þeir hinir sömu fljót-
lega átta sig á að slíkir passar
veita falskt öryggi.
. Lífið er ekki öruggt. Frelsið
gefur lífinu gildi og lífið verður
innantómt án þess. Öryggi er okk-
ur öllum vissulega mikilvægt, en
fleira hefur vægi. Mannleg nánd,
samtal, samvera, samkennd, skiln-
ingur, sameiginlegur tilgangur,
kærleikur, fjölbreytni einstakling-
anna, margradda kór sem saman
flytur tónverk lífsins í allri sinni
dýrð, háska og fegurð. Það er
ómanneskjulegt og hættulegt og
niðurlægjandi að ætla að skipta
þessu öllu út fyrir falskt öryggi.
Eftir Arnar Þór
Jónsson »Ríkisvaldinu er ætl-
að að vera þjónn
okkar, ekki yfirboðari.
Það á að setja mörk
æskilegrar hegðunar,
en ekki skipa fyrir.
Arnar Þór
Jónsson
Höfundur er sjálfstætt starfandi lög-
maður.
Falskt öryggi er ávísun á ófarir
Hafa menn áttað sig á hvers konar
ástandi hefur verið komið á hér á landi
um þessar mundir?
Stjórnvöld í landinu reyna að hefta út-
breiðslu veiru með því að fyrirskipa
mönnum að fara í svokallaða sóttkví eða
einangrun og
er þá ekki
skilyrði að við-
komandi mað-
ur beri í sér
veiruna; nóg
er að hann
hafi hitt ein-
hvern sem
gerir það.
Fyrir liggur
að veiran sem
um ræðir veld-
ur ekki veik-
indum, eða svo
litlum og hjá
svo fáum að
engu máli
skiptir.
En sótt-
varnalæknir
tekur ákvarð-
anir um þetta
og stjórn-
málamennirnir
sem við höfum
kosið yfir okk-
ur þora ekki
annað en að
hlýða.
Engu máli skiptir við þessar tilgangs-
lausu ákvarðanir að fjöldi manna verður
fyrir alvarlegu tjóni vegna þeirra. Þar
eru drykkjuskapur, heimilisofbeldi,
sjálfsvíg og gjaldþrot ofarlega á blaði.
Og ef þú hlýðir ekki þessum fyrir-
mælum stjórnvaldanna verður þú sekt-
aður.
Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson
»… er þá ekki
skilyrði að
viðkomandi
maður beri í sér
veiruna; nóg er
að hann hafi hitt
einhvern sem
gerir það.
Jón Steinar
Gunnlaugsson
Höfundur er lögmaður og er andvígur ofríki
valdamanna.
Ofríki án
tilefnis