Morgunblaðið - 17.01.2022, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 17.01.2022, Qupperneq 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2022 Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Á minningar- og andlátsvef mbl.is getur þú lesið minningargreinar, fengið upplýsingar úr þjónustuskrá auk þess að fá greiðari aðgang að þeirri þjónustu sem Morgunblaðið hefur veitt í áratugi þegar andlát ber að höndum. Andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar eru aðgengilegar öllum. www.mbl.is/andlát Minningargreinar Hægt er að lesa minningargreinar, skrifa minningargrein og æviágrip. Þjónustuskrá Listi yfir aðila og fyrirtæki sem aðstoða þegar andlát ber að höndum. Gagnlegar upplýsingar Upplýsingar og gátlisti fyrir aðstandendur við fráfall ástvina. Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins var lögfestur með lögum nr. 19/2013. Hann hefur lagagildi hér á landi og bein rétt- aráhrif. Sáttmálinn hefur ekki verið inn- leiddur í Reykjavík líkt og gert hefur verið í Kópavogi. Flokkur fólksins leggur til á fundi borgarstjórnar 18. janúar að skipaður verði stýri- hópur sem greini og leggi mat á hvað vanti upp á til að hægt sé að innleiða Barnasáttmálann í Reykjavík. Þar með verði Reykjavík komin í hóp Barnvænna sveitarfélaga, en hug- myndafræði þeirra byggist á al- þjóðlegu verkefni UNICEF. Barn- væn sveitarfélög vinna markvisst að því að uppfylla réttindi barna og UNICEF á Íslandi styður sveitar- félögin í innleiðingu sinni á Barna- sáttmálanum. Verkefnið er sam- starfsverkefni UNICEF og félagsmálaráðuneytisins. Innleiðing Barnasáttmálans skipt- ir sköpum um málefni barna, sér- staklega nú þegar fátækt fer vaxandi og kannanir sýna aukna vanlíðan barna. Til að unnt sé að innleiða Barna- sáttmálann þarf fyrst að vinna ítar- lega greiningarvinnu á högum og að- stæðum barna í Reykjavík. Nokkur brýn mál sem snúa m.a. að aðbúnaði barna og öryggi í leik- og grunn- skólum og rétti barna til sálfræði- og talmeinaþjónustu þarfnast úrbóta. Börn eiga einnig rétt á að taka þátt í ákvörðunum er varða þau sjálf þar sem þess er kostur. Það er ekki síst á vettvangi sveitarfélaga, sem sinna fjölþættri þjón- ustu við börn, sem tryggja þarf að réttur barna til þátttöku í ákvörðunum er varða þau sjálf sé virtur í hví- vetna. Fossvogsskóli, ákvæði Barnasátt- málans brotin Ástandið vegna myglu í Fossvogsskóla og fleiri leik- og grunnskólum hefur valdið nemendum og foreldrum þeirra streitu og áhyggjum með til- heyrandi neikvæðum afleiðingum. Í tilviki Fossvogsskóla reyndu for- eldrar ítrekað að ná eyrum yfirvalda og Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur vegna mygluástandsins en skellt var skollaeyrum við ákalli þeirra. Nú hafa borgaryfirvöld viðurkennt að bregðast hefði átt við fyrr og hlusta betur. Það er fagnaðarefni að um- boðsmaður barna hefur kallað eftir því að Reykjavíkurborg láti fram- kvæma óháða úttekt á viðbrögðum og aðgerðum skóla- og borgaryfir- valda vegna ástands húsnæðis Foss- vogsskóla. Foreldrar í vanskilum óöruggir um vistun barna sinna á leikskóla Nokkur fjöldi barna, sem búsett eru í Reykjavíkurborg, á á hættu að fá ekki boðaða vist í leikskóla vegna vanskila foreldra við sveitarfélagið. Dæmi eru einnig um að foreldrar hafi fengið tilkynningar um uppsögn á vistunarsamningi við leikskóla af sömu ástæðum. Ákvörðun sveitarfélags um að synja foreldrum í erfiðri stöðu um vistun fyrir barn í leikskóla er ein- göngu til þess fallin að auka á erfið- leika viðkomandi heimilis með því að gera foreldrum síður kleift að stunda vinnu utan heimilis og framfæra börn sín. Erfið skuldastaða foreldra getur haft alvarleg áhrif á mörg börn. Samkvæmt Barnasáttmálanum ber að tryggja að börn fái, óháð að- stæðum foreldra þeirra, notið réttar síns til framfærslu, menntunar og þroska. Hlúa á sérstaklega að börn- um, sem búa við fátækt á heimili sínu, á öllum sviðum daglegs líf. Í þessu sambandi má einnig nefna afgreiðslu vanskilamála vegna skóla- máltíða. Af 9.514 útgefnum reikn- ingum í hverjum mánuði fóru 4,2% til innheimtufyrirtækisins og voru 1,5% ennþá ógreidd 1. nóvember 2021. Ef foreldrar geta ekki greitt skuldina safnast dráttarvextir sem elta fátæka foreldra næstu árin. Engu barni er þó sagt upp mat- aráskrift eftir því sem næst verður komist. Biðlistar rótgróið mein í Reykjavík Á heildarbiðlista eru nú 1.680 börn og bíða flest eftir sálfræðingi. Börn eiga rétt á sálfræðiþjónustu á vegum Skólaþjónustunnar en gengið hefur hægt að grynnka á biðlistanum. Hinn 1. nóvember 2021 voru 400 börn á biðlista eftir þjónustu tal- meinafræðings. Ábyrgð borgarinnar er mikil og byggist m.a. á samkomu- lagi ráðuneytisins og Sambands ís- lenskra sveitarfélaga um skiptingu ábyrgðar vegna talmeinaþjónustu við börn frá árinu 2014. Reykjavík- urborg á samkvæmt samkomulaginu að veita börnum með vægari frávik þjónustu innan leik- og grunnskóla sveitarfélaga. Tugir barna bíða þess utan eftir annars konar fagþjónustu sem borg- inni er skylt að veita þeim sam- kvæmt sveitarstjórnarlögum. Reykjavíkurborg á hraða snigilsins Af ofangreindu má sjá að brýnt er að hefja vinnu til að komast að raun um hvað þarf að bæta í aðstæðum barna og réttindamálum þeirra með það fyrir augum að innleiða Barna- sáttmálann í Reykjavík. Daglega eru ákvæði hans brotin. Eftir því sem næst verður komist liggur nú fyrir borgarráði erindi frá UNICEF þar sem Reykjavíkurborg er boðið að taka þátt í verkefninu sem hér hefur verið lýst, Barnvæn sveitarfélög. Það erindi var sent til umsagnar skóla- og frístundasviðs og fleiri sviða. Ekki er vitað hvar í kerfinu erindið liggur. Málið liggur í láginni. Fulltrúi Flokks fólksins fer fram á að nauðsynlegar umsagnir frá fagsviðunum berist hið snarasta svo að taka megi ákvörðun um þátttöku í verkefninu sem leiðir til innleiðingar Barnasáttmálans í Reykjavík. Innleiðing Barnasáttmálans í Reykjavík Eftir Kolbrúnu Baldursdóttur » Innleiðing Barna- sáttmálans skiptir sköpum um málefni barna, sérstaklega nú þegar fátækt fer vax- andi og kannanir sýna aukna vanlíðan barna. Kolbrún Baldursdóttir Höfundur er oddviti Flokks fólksins í borgarstjórn Reykjavíkur. Íslensku þjónustufyrirtækin eru á finna.is ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VEISTU UM GÓÐAN RAFVIRKJA?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.