Morgunblaðið - 17.01.2022, Page 26

Morgunblaðið - 17.01.2022, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2022 England Manchester City – Chelsea ..................... 1:0 Newcastle – Watford ............................... 1:1 Norwich – Everton................................... 2:1 Wolves – Southampton ............................ 3:1 Aston Villa – Manchester Utd................. 2:2 Liverpool – Brentford.............................. 3:0 West Ham – Leeds................................... 2:3 Staðan: Manch. City 22 18 2 2 54:13 56 Liverpool 21 13 6 2 55:18 45 Chelsea 22 12 7 3 45:17 43 West Ham 22 11 4 7 41:30 37 Arsenal 20 11 2 7 33:25 35 Tottenham 18 10 3 5 23:20 33 Manch. Utd 20 9 5 6 32:29 32 Wolves 20 9 4 7 17:15 31 Brighton 20 6 10 4 21:21 28 Leicester 18 7 4 7 31:33 25 Crystal Palace 21 5 9 7 30:31 24 Southampton 21 5 9 7 25:33 24 Aston Villa 20 7 2 11 27:32 23 Brentford 21 6 5 10 24:33 23 Leeds 20 5 7 8 24:39 22 Everton 19 5 4 10 24:34 19 Watford 19 4 2 13 23:37 14 Norwich City 21 3 4 14 10:45 13 Newcastle 20 1 9 10 20:43 12 Burnley 17 1 8 8 16:27 11 Tottenham – West Ham .......................... 1:1 - Dagný Brynjarsdóttir lék allan leikinn með West Ham og lagði upp mark. Þýskaland Augsburg – Eintracht Frankfurt .......... 1:1 - Alfreð Finnbogason kom inn á sem vara- maður hjá Augsburg á 83. mínútu. Staða efstu liða: Bayern München 19 15 1 3 61:18 46 Dortmund 19 13 1 5 49:29 40 Leverkusen 19 9 5 5 44:31 32 Hoffenheim 19 9 4 6 39:29 31 Union Berlin 19 8 7 4 27:24 31 Freiburg 19 8 6 5 31:23 30 RB Leipzig 19 8 4 7 36:23 28 E. Frankfurt 19 7 7 5 30:28 28 B-deild: Schalke – Holstein Kiel........................... 1:1 - Guðlaugur Victor Pálsson lék fyrstu 85 mínúturnar með Schalke og lagði upp mark. - Hólmbert Aron Friðjónsson var ekki í leikmannahóp Holsten Kiel. Staða efstu liða: St. Pauli 19 11 4 4 39:25 37 Darmstadt 19 11 3 5 43:22 36 Heidenheim 19 10 3 6 25:25 33 Werder Bremen 19 9 5 5 35:25 32 Hamburger SV 19 7 10 2 32:19 31 Schalke 19 9 4 6 35:24 31 Ítalía Venezia – Empoli..................................... 1:1 - Arnór Sigurðsson sat allan tímann á varamannabekk Venezia. Verona – AC Milan .................................. 0:6 - Guðný Árnadóttir lék allan leikinn með AC Milan. Inter Mílanó – Napoli .............................. 1:1 - Anna Björk Kristjánsdóttir sat allan tímann á varamannabekk Inter Mílanó. B-deild: Pordenone – Lecce.................................. 0:1 - Þórir Jóhann Helgason kom inn á sem varamaður hjá Lecce á 83. mínútu. Pisa – Frosinone ...................................... 1:3 - Hjörtur Hermannsson lék fyrstu 62 mín- úturnar með Pisa. SPAL – Benevento .................................. 1:1 - Mikael Egill Ellertsson er frá keppni vegna meiðsla hjá SPAL. Holland Fortuna Sittard – AZ Alkmaar.............. 1:2 - Albert Guðmundsson kom inn á sem varamaður hjá AZ Alkmaar á 80. mínútu. Tyrkland Adana Demirspor – Kayserispor .......... 1:1 - Birkir Bjarnason lék allan leikinn með Adana Demirspor. Grikkland PAOK – OFI Krít ..................................... 3:0 - Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn með PAOK. Panathinaikos – Olympiacos.................. 0:0 - Ögmundur Kristinsson sat allan tímann á varamannabekk Olympiacos. Skotland Hibernian – Celtic ................................... 1:1 - María Ólafsdóttir Gros kom inn á sem varamaður hjá Celtic á 76. mínútu. Portúgal Torreense – Benfica................................ 0:2 - Cloé Lacasse lék fyrstu 90 mínúturnar með Benfica, Heiðdís Lillýjardóttir var ekki í hóp. 50$99(/:+0$ EM 2022 Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í þýska karlalandsliðinu í handknatt- leik eru komnir áfram í milliriðla á Evrópumótinu í Ungverjalandi og Slóvakíu eftir fimm marka sigur gegn Austurríki í D-riðli keppninnar í Bratislava í gær. Leiknum lauk með 34:29-sigri þýska liðsins en austurríska liðið byrjaði leikinn betur og komst í 3:0 snemma leiks. Jafnræði var með liðunum það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og leiddi Austurríki með einu marki í hálfleik, 16:15. Liðin skiptust á að skora í upphafi síðari hálfleiks en þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka náðu Þjóð- verjar þriggja marka forskoti, 25:22. Austurríki tókst ekki að snúa leikn- um sér í vil og Þjóðverjar fögnuðu sigri. Timo Kastening fór á kostum í þýska liðinu og skoraði níu mörk og þá varði TIll Klimpke 14 skot í markinu. Sebastian Frimmel var markahæstur í liði Austurríkis með níu mörk. Þýskaland mætir Póllandi í úr- slitaleik um efsta sæti riðilsins á morgun. Stórsigur Danmerkur Þá er Danmörk komið áfram í milliriðla eftir stórsigur gegn Slóv- eníu í A-riðlinum í Debrecen í Ung- verjalandi á laugardag. Leiknum lauk með 34:23-sigri danska liðsins en jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik þar sem stað- an var 16:14, Dönum í vil. Danir voru hins vegar mun sterk- ari í síðari hálfleik og eftir að þeir náðu fimm marka forskoti, 20:15, þegar fimm mínútur voru liðnar af síðari hálfleik, litu þeir aldrei um öxl. Mikkel Hansen var markahæstur í liði Dana með átta mörk og Mathi- as Gidsel skoraði sjö mörk. Þá varði Niklas Landin fjórtán skot í mark- inu, 38% markvarsla. Hjá Slóvenum var Borut Mackovsek markahæstur með sex mörk. Danir eru með 4 stig í efsta sæti riðilsins en liðið mætir Norður- Makedóníu í lokaleik sínum í riðla- keppninni í kvöld. Úrslitin ráðast í lokaumferðinni Evrópumeistarar Spánverja unnu fjögurra marka sigur gegn Svíþjóð í E-riðli í Bratislava, 32:28, en Spánverjar leiddu 32:28 í hálf- leik, Spánverjar voru sterkari aðilinn í leiknum en Ángel Fernández var markahæstur í spænska liðinu með átta mörk en Hampus Wanne var markahæstur Svía með átta mörk. Spánverjar, sem eru öruggir áfram í milliriðla, mæta Bosníu í lokaleik sínum síðar í dag á meðan Svíþjóð mætir Tékklandi og verða Svíar að vinna. Þá tapaði Noregur nokkuð óvænt gegn Rússlandi í F-riðli með minnsta mun í Kosice, 22:23, en Rússar leiddu með tveimur mörkum í hálfleik, 14:12. Sebastian Barthold var marka- hæstur Norðmanna með sjö mörk en Dimitry Zhitnikov skoraði sjö mörk fyrir Rússa. Norðmenn eru með 2 stig í öðru sæti riðilsins en þeir mæta Litháen í lokaleiknum í dag og þurfa sigur til þess að tryggja sig áfram í milliriðla. Á meðan mætir topplið Rússlands gestgjöfunum í Slóvakíu. Þjóðverjar og Danir í milliriðla - Noregur og Svíþjóð þurfa sigur AFP 9 Austurríkismenn réðu illa við Þjóðverjann Timo Kastening í leik Þýska- lands og Austurríkis í Bratislava í gær en hann skoraði níu mörk í leiknum. Kevin De Bruyne reyndist hetja Manchester City þegar liðið vann afar mikilvægan sigur gegn Chelsea í toppslag ensku úrvals- deildarinnar í knattspyrnu á Eti- had-vellinum í Manchester á laug- ardag. Leiknum lauk með 1:0-sigri City en De Bruyne skoraði sigurmark leiksins á 70. mínútu með frábæru hægrifótarskoti, rétt utan teigs. Þetta var tólfti sigur Englands- meistaranna í röð í deildinni en liðið er með 11 stiga forskot á Liv- erpool á toppi deildarinnar en Liv- erpool á leik til góða á City. _ Þá vann Liverpool sannfær- andi 3:0-sigur gegn nýliðum Brent- ford á Anfield í Liverpool þar sem Fabinho kom Liverpool yfir undir lok fyrri hálfleiks. Þeir Alex Ox- lade-Chamerblain og Takumi Mi- namino bættu svo við sínu markinu hvor í síðari hálfleik og Liverpool fagnaði öruggum sigri. Liverpool er með 45 stig í öðru sætinu. _ Manchester United missti nið- ur tveggja marka forskot þegar liðið heimsótti Aston Villa á Villa Park í Birmingham en Bruno Fernandes kom United yfir strax á 6. mínútu áður en hann bætti við öðru marki sínu og United á 67. mínútu. Jacob Ramsey minnkaði muninn fyrir Aston Villa á 77. mínútu með hnitmiðuðu skoti úr teignum og það var svo Philippe Coutinho sem jafnaði metin fyrir Aston Villa á 82. mínútu og lokatölur í Birming- ham 2:2. Manchester United er með 32 stig í sjöunda sæti deildarinnar, 9 stigum frá Meistaradeildarsæti. Meistararnir með vænlegt forskot AFP Sigurmark Kevin De Bruyne fagnar markinu ásamt liðsfélögum sínum. Sara Oden átti stórleik fyrir Hauka þegar liðið vann frábæran endur- komusigur gegn Val í úrvalsdeild kvenna í handknattleik, Olísdeild- inni, á Ásvöllum í Hafnarfirði í 12. umferð deildarinnar á laugardag- inn. Leiknum lauk með 26:24-sigri Hafnfirðinga en Sara var marka- hæst í liði Hauka með sjö mörk. Valur leiddi 16:11 í hálfleik en Haukum tókst að snúa leiknum sér í vil um miðjan síðari hálfleikinn. Margrét Einarsdóttir átti frábær- an leik í marki Hauka og varði 16 skot en Thea Imani Sturludóttir var markahæst í liði Vals með 12 mörk. Þá vann ÍBV sinn þriðja leik á tímabilinu þegar liðið lagði Stjörn- una að velli í TM-höllinni í Garðabæ, 33:24. Marija Jovanovic og Lina Car- dell skoruðu báðar sjö mörk hvor í liði ÍBV og Marta Wawrzykowska varði 19 skot í markinu. Eva Björk Davíðsdóttir, Elena El- ísabet Birgisdóttir, Helena Rut Örv- arsdóttir og Lena Margrét Valdi- marsdóttir skoruðu fjögur mörk hver fyrir Garðbæinga. Morgunblaðið/Eggert Fyrirliði Karen Helga Díönudóttir sækir að Valskonum um helgina. Lagleg endurkoma Hauka gegn Val _ Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði sitt fyrsta mark fyrir íslenska karla- landsliðið í knattspyrnu í sínum tíunda A-landsleik þegar liðið tapaði gegn Suður-Kóreu í vináttulandsleik í Aksu í Tyrklandi á laugardag. Leiknum lauk með 5:1-sigri Suður- Kóreu en Sveinn Aron skoraði eina mark íslenska liðsins á 54. mínútu í stöðunni 3:0. Davíð Kristján Ólafsson átti þá laglega fyrirgjöf frá vinstri á Svein Aron sem átti skot í varnar- mann. Sveinn Aron náði frákastinu sjálfur og þrumaði boltanum í blá- hornið framhjá Jo- Hyeon-woo í marki Suður- Kóreu. Suðurkóreska liðið var mun sterkari aðilinn í leiknum allan tímann og leiddi 3:0 í hálfleik en Hákon Rafn Valdimarsson í marki íslenska liðsins varði vítaspyrnu í stöðunni 1:0 á 25. mínútu í sínum fyrsta byrjunarliðsleik fyrir landsliðið. Næstu landsleikir Ís- lands verða tveir vináttulandsleikir í mars gegn Finnlandi og Spáni en báðir leikirnir fara fram á Spáni. _ Gylfi Sigurðsson, leikmaður Ever- ton í ensku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu, verður áfram laus gegn trygg- ingu til miðvikudagsins 19. janúar. Þetta er í þriðja sinn sem hann fær slíka framlengingu. Lögreglan í Man- chester staðfesti þetta í samtali við breska miðilinn The Sun. Gylfi var handtekinn í júlí síðasta sumar vegna gruns um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi en hann hefur ekkert spil- að með Everton á þessari leiktíð. _ Spretthlauparinn Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir bætti eigið Íslandsmet í 60 metra hlaupi innanhúss er hún hljóp vegalengdina á 7,43 sekúndum á Helgarmóti Reykjavíkurfélaganna í Laugardalshöllinni á laugardag. Tiana Ósk Whitworth hljóp einnig undir Ís- landsmetstíma Guðbjargar er hún hljóp á 7,45 sekúndum en Íslandsmet Guðbjargar fyrir daginn var 7,45 sekúndur. Guðbjörg og Tiana hlaupa báðar fyrir ÍR og hafa verið fremstu hlaupa- konur landsins síðustu ár. _ Knattspyrnumaðurinn Jón Daði Böðvarsson hefur verið orðaður við enska C-deildarliðið Bolton Wanderers en hann hefur ekkert fengið að spila með Millwall í B-deildinni á leiktíðinni. The Bolton News greinir frá að Bolton hafi áhuga á að fá Jón Daða að láni út yfirstandandi leiktíð og Ian Evatt, knattspyrnustjóri Bolton, viðurkenndi áhugann við miðilinn. Það er ekki nýtt Eitt ogannað KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Subway-deildin: TM-hellirinn: ÍR – Stjarnan................ 18.15 1. deild karla: Borgarnes: Skallagrímur – ÍA ............ 19.15 Hveragerði: Hamar – Fjölnir.............. 19.15 MVA-höllin: Höttur – Sindri ............... 19.15 Vallaskóli: Selfoss – Hrunamenn........ 19.15 Álftanes: Álftanes – Haukar................ 20.15 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.