Morgunblaðið - 17.01.2022, Síða 28

Morgunblaðið - 17.01.2022, Síða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2022 Gos í Heimaey Í dagbók sína ritar Sigurður 23. janúar 1973: „Kl. ca. 2:15 í nótt vakti Árni Johnsen mig – það skal ég hon- um lengi muna – og sagði að það væri farið að gjósa í Heimaey.“ Tæpum tveim tímum síðar var Sigurður kom- inn í loftið með Birni Pálssyni og fleirum. Þeir sveimuðu yfir gosinu til um klukkan fimm. Blaðamaður Þjóð- viljans náði í Sigurð um sexleytið um morguninn. Þá var hann að stíga út úr útvarpshúsinu, nýkominn frá Eyj- um og á leið þangað aftur. Hann hafði lítinn tíma til að tala við blaðamann- inn svo að Þjóðviljinn endursagði frá- sögn hans úr útvarpinu: Gosið væri dæmigert sprungugos en mest á þurru svo að það mætti heita hreint flæðigos. Sprungan væri um einn og hálfur kílómetri að lengd austan í Helgafelli og lægi í svipaðri stefnu og í Surtsey. Hún gæti tæplega haft heppilegri stefnu með tilliti til byggðarinnar úr því að svona væri komið á annað borð. Bærinn væri ekki í bráðri hættu, rennsli ekki hraðara en það að fólk ætti að geta forðað sér undan því. Engu væri hægt að spá um hvað gosið stæði lengi, Surts- eyjargosið hefði staðið í fjögur ár en það hefði reyndar verið eitt lengsta gos á sögulegum tíma hér á landi. Sigurður taldi að flytja ætti fólk frá Vestmannaeyjum, það þyrfti ekki mikið að gerast til þess að flugvöll- urinn og jafnvel höfnin lokuðust. Hætt væri við að hraunið breytti um stefnu um leið og það færi að storkna og færi þá tiltölulega fljótt að teygja sig í átt að höfninni. Hann sagðist ekki hafa neinar sérstakar ráðlegg- ingar að gefa fólki aðrar en þær að taka hlutunum rólega. Í Eyjum Enn var Sigurður kominn í eldlín- una. Aðstæður hans voru að ýmsu leyti breyttar frá því í Surtseyjar- gosinu. Ekki bara að hann væri tíu árum eldri, kominn á sjötugsaldur og heilsan sífellt verri, heldur var hann nú prófessor við Háskólann og bund- inn í kennslu. Hann stóð þó sína vakt við gosið, sérstaklega fyrstu dagana þegar gosið var mest. Í lok febrúar, þegar gosið hafði í Heimaey í um fimm vikur, fór Sigurður í löngu skipulagða fyrirlestraferð til Skot- lands. Þá var hann búinn að fara tíu ferðir til Eyja. Fyrir kom að hann var þar samfellt í tvo til þrjá daga, sér- staklega um helgar, og varð jafnvel að fara sjóleiðis á milli ef ekki gaf til flugs. Íslenskum jarðfræðingum hafði fjölgað en samt sem áður vildu fréttamenn gjarnan tala við Sigurð og í hann vitna. Athuganir vísindamanna á gosinu beindust eðlilega mjög að því að reyna að sjá fyrir framgang gossins og leitast við að gefa ráð um viðbrögð og aðgerðir sem gætu dregið úr tjóni af því. Þá kom sér vel hve gjörla hafði verið fylgst með öðrum gosum, ekki síst Surtseyjargosinu, og ætla má að þær grunnrannsóknir hafi strax sannað gildi sitt. Vindur var norðvestlægur við upp- haf gossins þegar gjóska þess var mest svo að hún barst frá bænum og á haf út. Sama var að segja um hraunið, það leitaði einnig í austur og til sjávar. Strax á fyrsta degi benti Sigurður á að ef vindátt breyttist yrðu austustu hús byggðarinnar í hættu og því yrði strax að tæma þau. Og þannig varð það, vindáttin snerist 25. janúar og kom „helvíta mikið bomburegn“, eins og Sigurður orðaði það í dagbók sinni og fyrstu húsin brunnu. Einnig lagðist þykk gjóska yfir bæinn og kaffærði mörg hús. Í dagbók sinni gat Sigurður ekki stillt sig um að slá á létta strengi þótt aðstæður væru alvarlegar: „Náttúr- an hefur sannarlega bætt upp það mikla magn ofaníburðar sem grafið hefur verið úr Helgafelli til að bera á flugbrautirnar, en verst er ef hún ætlar að bera á götur alls bæjarins.“ Þarna vísaði Sigurður til þess að í mörg ár hafði hann barist gegn því að útlit Helgafells yrði eyðilagt með malartöku en úr hlíðum fjallsins hafði verið tekið mikið magn vikurs til að setja undir flugvöllinn og í götur bæj- arins. Náttúruverndarráð hafði farið fram á að Helgafell yrði ekki skert meira en orðið var og tveim dögum áður en gosið hófst hafði Sigurður verið í Eyjum til að kanna hvort ekki væri hægt að finna annan stað í Heimaey þar sem nægilegt vikur- magn væri til að undirbyggja nýja flugbraut. „En nú þurfa Vestmanna- eyingar, síst af öllu að óttast, að þeir fái ekki nægan vikur til allra þeirra framkvæmda, sem þeir þarfnast hans í.“ Gjóska mæld Sigurður hafði varið drjúgum hluta ævi sinnar í að mæla öskulög. Flest höfðu þau legið í jarðvegi um aldir, jafnvel árþúsundir og mældust í sentímetrum eða millímetrum. Í eld- gosum lagði hann mikla áherslu á að kanna dreifingu öskunnar, gerð hennar og þykkt og fékk gjarnan þjóðina í lið með sér. Nú stóð gjósku- lagafræðingurinn sjálfur í þéttri gjóskuhríð sem nánast á örskots- stund þakti landið umhverfis hann með nokkurra metra þykku lagi. Hér þurfti sannarlega að mæla og taka sýni. Verkfærin gátu þó ekki verið þau hefðbundnu, reka, hnífur og tommustokkur, og skráning öskulaga hlaut að verða önnur en að teikna öskulagasnið með blýanti í litla vasa- bók. Allt var hulið, götur og fjölmörg hús. Sigurður og samstarfsmenn hans gengu um bæinn. Uppi á einum hólnum féll Sigurður við þegar annar fótur hans hvarf ofan í holu. Við nán- ari eftirgrennslan kom í ljós að hann hafi stigið ofan í stromp á húsi. Víðast mátti sjá efsta hluta ljósastauranna standa upp úr gjóskunni. Á bæjar- skrifstofunni fengust kort af bænum og líka upplýsingar um ýmis mann- virki og hæð þeirra og þar á meðal ljósastauranna. Og nú var hafist handa. Menn bösluðu um í gjóskunni, gengu á milli staura og mældu hve stór hluti þeirra stóð upp úr vikr- inum. Þá var auðvelt að meta dýpt gjóskunnar á þeim stað. Þeir söfnuðu líka sýnum til að sjá kornastærð vik- ursins og breytileika hennar á mis- munandi stöðum. Sigurður færði upplýsingar inn á kort til að teikna á það jafnþykktarlínur, nokkuð sem hann hafði gert svo óteljandi sinnum fyrir flest öskulög landsins, gömul og ný. Á kvöldin fóru þeir með vinnu- gögn sín á bæjarskrifstofuna til að geyma þau þar. Bæjarskrifstofan var miðpunktur, þangað kom fjöldi manns og þar var ys og þys allan dag- inn. Svo undarlega brá við að einn daginn voru öll gögn jarðfræðing- anna og afrakstur vinnu þeirra horfin og fundust hvergi. Það var mikill missir en ekkert hægt að fjargviðrast út af því, í Vestmannaeyjum var fólk að missa aleigu sína og lífsviðurværi. Gögn hverfa Búast má við að Vestmanna- eyingum hafi sumum þótt það undar- leg iðja að ganga um og mæla ljósa- staura. Í frétt Vísis frá 27. janúar 1973 er vitnað í heimamann: „Enginn Vestmannaeyingur fær að stíga fæti sínum á land í Heimaey í dag, og eru litlar líkur til að þeir fái leyfi til þess á næstunni. … Þeir Vestmanna- eyingar, sem eru á Heimaey láta sér þetta illa líka og bölva í sand og ösku mönnum sem bera á maga sér myndavélar og öðrum, sem hafa doktorsnafnbót fyrir framan nafn sitt og fá því leyfi til að stíga á land.“ Meðal þeirra „doktora“ sem fengu að fara í land á Heimaey var breskur prófessor sem hafði lengi stundað rannsóknir á Íslandi. Hann sendi í fyrstu tvo doktorsnema sína á vett- vang, sem voru þar 31. janúar til 1. febrúar. Síðan kom prófessorinn sjálfur 15. febrúar ásamt aðstoðar- manni og var til 20. febrúar. Ári síðar birtist grein í bresku tímariti eftir þessa fjóra menn. Greinin var byggð á upplýsingunum sem Sigurður, Halldór, aðstoðarmaður hans, og fleiri höfðu safnað og þar voru kortin sem Sigurður hafði teiknað. Engar skýringar fylgdu kortunum og þess ekki getið hvernig dýptarmælingar á gjóskunni voru gerðar. Nú var þó sannarlega ástæða til að fjargviðrast og Sigurður varð reiður, sem sjaldan gerðist. Í ljós mun hafa komið að það voru stúdentarnir tveir sem höfðu nappað gögnunum á bæjarskrifstof- unni. Prófessorinn taldi sig ekkert hafa vitað. Sigurður ákvað að láta kyrrt liggja enda jafnan seinþreyttur til vandræða. Stúdentarnir tveir eru nú heimsþekktir jarðfræðingar og á þeim tíma sem liðinn er síðan grein þeirra birtist hefur verið vitnað í hana í vel yfir hundrað fræðigreinum. „… það væri farið að gjósa í Heimaey“ Bókarkafli | Í bókinni Mynd af manni rekur Sigrún Helgadóttir ævisögu Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings. Sigurður varð þjóðkunnur fyrir vísindastörf sín og ötula fræðslu til almennings um jarðfræði og náttúruvísindi auk þess að vera vinsælt söngvaskáld. Hann var án efa einn merkasti vísindamaður á alþjóðavísu sem þjóðin hefur átt og eftir honum er til að mynda nefndur fjallstindur á Suðurskautslandinu. Ljósmynd/Ulf Sundquist Ljósmynd/Páll Jónsson Sigurður Þórarinsson á Heklutindi í lok Heklugoss 1947-48. Þremur dögum eftir að myndin var tekin, 21. apríl 1948, sást síðast glóð í eldstöðinni. Eldgos Sigurður Þórarinsson í Gjástykki við Kröflu, 10. júlí 1980.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.