Morgunblaðið - 11.02.2022, Page 1
SMARTLAND
KLÆÐIR
11. febrúar 2022
F Ö S T U D A G U R 1 1. F E B R Ú A R 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 35. tölublað . 110. árgangur .
ALLT SEM ÞÚ ÞARFT
AÐ VITA UM VOR- OG
SUMARTÍSKUNA
SMARTLAND 40 SÍÐUR
Búið er að finna og ná í jarðneskar leifar þeirra
fjögurra sem voru um borð í flugvélinni sem
fannst í Þingvallavatni um síðustu helgi. Aðgerðin
var umfangsmikil og þaulskipulögð, en stefnt er að
því að hífa flugvélina upp úr vatninu í dag.
Stilla var á svæðinu í gær en létt snjókoma inn á
milli, sem hafði þó ekki áhrif á aðgerðir. Fimb-
ulkuldi var við svæðið allan daginn, og var um 19
stiga frost þegar aðgerðir áttu að hefjast um
morguninn.
Þingvallavatnið sjálft var alveg við frostmark
sem gerði aðgerðir flóknari og var um tíma óljóst
hvort hægt yrði að hefja aðgerðir í gær, sem tókst
þó um þrjúleytið.
Mikill erill var á svæðinu en um sextíu manns
aðstoðuðu við leitina í gær og voru það meðal ann-
ars menn frá slökkviliði, lögreglunni, sérsveit lög-
reglu og rannsóknarnefnd samgönguslysa, sem
fer með rannsókn málsins ásamt lögreglunni á
Suðurlandi. Ríflega tuttugu kafarar aðstoðuðu við
aðgerðir, en á endanum var ákveðið að nýta kafbát
með griparm til þess að koma hinum látnu í land.
Líkin voru um 50 til 80 metra frá flakinu sjálfu.
Eins og Morgunblaðið hefur áður greint frá er tal-
ið að hinir látnu hafi komist af sjálfsdáðum úr vél-
inni eftir að hún lenti í vatninu en slysstaðurinn er
um einn kílómetra frá landi þar sem styst er.
Nú í dag verður aðgerðum haldið áfram við
Þingvallavatn þar sem á eftir ná flugvélaflakinu
upp úr vatninu. Hætta er á mengunarslysi og
munu aðgerðir því taka mið af því en olíubrákir
hafa sést í vatninu. Rannsókn á flugslysinu er í
fullum gangi og er mögulegt að hlutar vélarinnar
verði sendir utan í ítarlegri rannsókn.
Aðgerðir áfram í dag
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Flugslysið Aðgerðir við Þingvallavatn halda áfram í dag en stefnt er að því að ná flugvélinni upp úr vatninu í dag. Hún hefur nú verið þar í rúma viku.
- Kalt á Þingvöllum í gær - Hófu aðgerðir um klukkan þrjú í gær - Mikill erill á
svæðinu - Líkin um 50 til 80 metra frá flakinu - Rannsókn á slysinu í fullum gangi
MLík mannanna komin í land »4
_ Samanlagður hagnaður Íslands-
banka, Landsbankans og Arion
banka á síðasta ári nam rúmum 81
milljarði króna, og jókst hann um
152% milli ára. Mestum hagnaði
skilaði Landsbankinn eða 28,9
milljörðum en hagnaður Íslands-
banka var 23,7 milljarðar.
Helsti þátturinn í þessari bættu
afkomu bankanna milli ára er við-
snúningur í virðismati útlánasafna
þeirra, en hann nam samtals 39
milljörðum króna. »2
Högnuðust um rúm-
an 81 milljarð kr.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Viðsnúningur Bankarnir högnuðust um
rúman 81 milljarð á síðasta ári.
_ HS veitur
þurfa að kynda
hluta af fjar-
varmaveitu sinni
í Vestmanna-
eyjum með olíu
eftir að Lands-
virkjun lokaði á
afhendingu á
skerðanlegri
orku. Ákvörðun-
in tók gildi í
fyrrinótt. Veitan nýtur þess nú að
um það bil helmingur af vatni henn-
ar er hitaður upp með varmadælu
sem nýtir volgan sjó og þrefaldar
orku hans. Rafmagnið til hennar er
forgangsorka frá Landsvirkjun og
HS orku og því ekki skerðanlegt
þótt illa ári í vatnsbúskapnum.
HS orka hefur ákveðið að selja
útgerð Herjólfs áfram raforku til
að knýja skipið þótt ákvæði séu í
samningum að skerða megi orkuna
við þessar aðstæður. »10
Varmadælan í
Eyjum kemur sér vel
Eyjar Ferjan siglir
enn fyrir rafmagni.
Sameiginlegar heræfingar Rússa og
Hvít-Rússa hófust í gær, og eiga þær
að standa í tíu sólarhringa. Æfing-
arnar þykja auka á spennuna, sem
ríkt hefur í Úkraínudeilunni, en
áætlað er að Rússar séu nú komnir
með um 130.000 hermenn að landa-
mærum sínum að Úkraínu.
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, fundaði í gær með Jens
Stoltenberg, framkvæmdastjóra
Atlantshafsbandalagsins, í Brussel
og sagði Johnson að með upphafi
heræfinganna væri að renna upp
„hættulegasta stundin“ í deilunni,
sem væri um leið stærsta ógn við ör-
yggi Evrópu sem sést hefði í marga
áratugi.
Olaf Scholz Þýskalandskanslari
varaði sömuleiðis Rússa við því að
láta reyna á samstöðu vesturveld-
anna, og að þeir ættu ekki að van-
meta einingu og festu bandamanna í
Atlantshafsbandalaginu og í Evr-
ópusambandinu, en Scholz fundaði í
gær með leiðtogum Eystrasaltsríkj-
anna og ræddi ástandið við þá.
Samhliða heræfingum Rússa í
Hvíta-Rússlandi hófu þeir einnig
undirbúning að umfangsmiklum
flotaæfingum á Svartahafi sem eiga
að hefjast eftir helgi. Kvörtuðu
stjórnvöld í Úkraínu undan því að
undirbúningur æfinganna hefði í
raun lokað fyrir umferð almennra
skipa um Azovhaf og að nær ófært
væri um Svartahaf. Sagði Oleksí
Reznikov, varnarmálaráðherra
Úkraínu, að Rússar hefðu lokað al-
þjóðlegu hafsvæði. »14
Heræfingar hafnar
- Úkraína kvartar undan „hafnbanni“ á Svartahafi
AFP
Heræfingar S-400 eldflaugapallar
Rússa taka þátt í heræfingunum.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Gangainnskot á Reykjanesskaga
geta mögulega ógnað mikilvægum
innviðum höfuðborgarsvæðisins og
Suðurnesja, hvort sem þau leiði til
eldgoss eða ekki.
Þetta segir Páll Einarsson, jarð-
eðlisfræðingur og prófessor em-
eritus, í samtali við Morgunblaðið.
Páll segir að slík gangainnskot
gætu haft mikil áhrif á kerfi sem
fæða vatnsveitur, hitaveitur og
jarðvarmavirkjanir. Einhver þeirra
gætu mögulega spilst til frambúðar
yrði gangainnskot á slæmum stað.
Enn fremur segir Páll að hinni
flóknu atburða-
rás á Reykjanes-
skaga sé ekki
lokið og að enn
megi búast við
sterkum jarð-
skjálfta við höf-
uðborg-
arsvæðið.
„Eldgosið í
Geldingadölum
var bara hluti af
flókinni atburðarás á Reykjanes-
skaga,“ segir Páll.
Þegar hafa orðið kvikuinnskot á
3-4 stöðum á skaganum þótt kvikan
hafi til þessa aðeins náð til yf-
irborðs á einum stað. »9
Gangainnskot geti
ógnað innviðum
Páll
Einarsson