Morgunblaðið - 11.02.2022, Page 4

Morgunblaðið - 11.02.2022, Page 4
Morgunblaðið/Óttar Geirsson Flugslys Kalt var á Þingvöllum í gær og var vatnið alveg ísilagt sem gerði aðgerðir erfiðari. Hólmfríður María Ragnhildardóttir Inga Þóra Pálsdóttir Köfun að líkum þeirra fjögurra sem voru um borð í flugvélinni sem fannst í Þingvallavatni í síðustu viku hófst um kaffileytið í gær, en að- gerðir frestuðust þar sem vatnið var ísilagt. Þurfti því að brjóta upp ísinn áður en hægt var að senda kafara í vatnið. Ísinn var um einn sentimetri að þykkt. Um sextíu einstaklingar aðstoðuðu við aðgerðirnar í gær, þar af ríflega tuttugu kafarar. Notuðu smákafbát Um níuleytið í gærmorgun þótti ólíklegt að hægt yrði að hefja aðgerðir þar sem ísröst lok- aði fyrir siglingu með pramma út á vatnið. Þeg- ar líða tók á daginn byrjaði ísinn þó að brotna upp og færast upp að landi. Þá gátu leitarmenn sent rörabáta út á vatnið til að greiða leiðina og var þeim siglt með reglulegum hætti til að halda leiðinni opinni. Björgunaraðilar nýttu smákafbát með myndavélabúnaði og griparm til þess að sækja hina látnu niður á botn og færa upp á yfirborðið. Kafbátnum var stýrt af pramma á yfirborði vatnsins. Á yfirborðinu tóku kafarar við og komu hinum látnu um borð í báta sem fluttu þá í land. „Eftir samráðsfund björgunaraðila þar sem farið var yfir aðstæður kom í ljós að aðstæður til köfunar voru verulega hættulegar vegna mikils kulda og ísmyndunar á Þingvallavatni. Var kannað hvort hægt væri að beita öðrum aðferðum en áður höfðu verið planaðar,“ sagði í tilkynningu sem lögreglan á Suður- landi sendi frá sér í gær. Því var smákafbát- urinn fenginn. Klukkan átta í gærkvöldi tilkynnti lögregl- ann á Facebook-síðu sinni að búið væri að finna lík allra þeirra sem voru um borð í vél- inni og ná þeim í land. Rannsókn í fullum gangi Rannsókn á flugslysinu er nú í fullum gangi. Lögreglan á Suðurlandi og rannsókn- arnefnd samgönguslysa fara með rannsókn málsins. Að sögn Odds Árnasonar, yfirlög- regluþjóns á Suðurlandi, er mögulegt að hlut- ar vélarinnar verði sendir út fyrir landstein- ana í ítarlegri rannsókn en ekki verða gefnar frekari upplýsingar um gang málsins að svo stöddu. Ölfus- vatnsvík Þingvallavatn G R A F N I N G U R Úlfljóts- vatn Bann við flugi dróna innan 4 km radíus frá miðju Ölfusvatnsvíkur Dýpi 0-10 m 10-20 m 20-40 m 40-60 m 60-80 m 80-100 m 100-120 m Björgun flugvélarinnar úr Þingvallavatni Vélin sem fórst Þingvallavegur Þin gva llav eg ur Þingvallabær Steingrímsstöð Hellisvík Gerð: Cessna 172N Framleiðsluár: 1977 Hámarksþungi: 1.157 kg Auðkenni: TF-ABB Eigandi: Volcano Air ehf. Um borð var flugmaður og þrír farþegar Vélin verður afhent lögreglunni á Suðurlandi og Rannsóknarnefnd samgönguslysa að björgun lokinni Þingvallavatn 0,5° Hitastig vatnsins er um 0,5 gráður 46m Vélin liggur um 800metra frá landi á 46 metra dýpi 22 Áætlað er að 8 kafarar frá Landhelgisgæslu, 6 frá lögreglu og 8 frá slökkviliði taki þátt í aðgerðinni, 22 alls Þeir eru í þurrgöllum og nota aðflutt loft á mesta dýpinu Kafararnir þurfa að þrýstijafna í tveimur þrepum á leiðinni upp úr vatninu Afþrýstiklefi verður til taks við vatnið ef á þarf að halda Þeir fórust í flugslysinu Spilvír úr pramma verður festur við vélina og hún hífð upp fyrir 15 metra dýpi 5 10 15 20 25 30 35 40 45 Kafari í réttum hlutföllum Vélin í réttum hlutföllum Þar fer fram rannsókn á vélinni, lyftipúðum komið fyrir og hún flutt nær landi Þyrla Landhelgisgæslunnar mun flytja vélina í land Lyftigeta þyrlunnar er um 1,8 tonn Heimild: Landhelgisgæslan Haraldur Diego, 49 ára, flugmaður Josh Neuman, 22 ára, Bandaríkjunum Nicola Bellavia, 32 ára, Belgíu Tim Alings, 27 ára, Hollandi Prammi 36 36 360 Lík mannanna komin í land - Þurfti að fresta aðgerðum - Um sextíu einstaklingar aðstoðuðu - Hættulegar aðstæður fyrir kafara - Notuðu rörabáta til að greiða leiðina - Reyna að hífa flugvélarflakið upp af botni vatnsins í dag 4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2022 Flugslysið á Þingvallavatni Aðgerðum viðbragðsaðila við Þingvallavatn sem staðið hafa yfir síðustu daga verður haldið áfram í dag. Þá verður gerð tilraun til þess að hífa upp flugvélina, sem hafnaði í Þingvallavatni, en þar munu kafarar setja spilvír til að ná henni upp fyrir 15 metra dýpi, en mögulega mun þurfa að taka vél- ina í sundur. Í samtali við Morgunblaðið sagði Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, að áform séu um að vinnan hefjist um klukkan 9 að morgni en lík- lega muni ekkert sjást á yfirborð- inu fyrr en eftir hádegi. Búist er við miklum viðbún- aði á Þingvöllum í dag þar sem um 20 kafarar munu halda áfram störfum. Freista þess að lyfta vélinni úr vatninu - Aðgerðir hefjast um klukkan 9 Oddur Árnason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.