Morgunblaðið - 11.02.2022, Blaðsíða 17
17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2022
Ísmyndir Það er kalt á landinu þessa dagana og nóg af ís og snjó. Því fögnuðu þessir ferðamenn sem tóku ljósmyndir af ísjökum í fjörunni við Jökulsárlón í vikunni.
Kristinn Magnússon
Oftar en ekki mætti
ætla að það megi alls
ekki hafa heilsu og
hagfræði í sama orð-
inu. Heilsutengda
þjónustu ætti aðeins
að veita á grundvelli
kærleika. Þeir sem
veita þjónustuna ættu
að vera veitendur af
kærleika einum sam-
an.
Að kostnaðargreina veitta þjón-
ustu og að meta ábata af læknis-
verkum væri auðhyggjuhugsun og
kölluð því fyrirlitlega nafni kapítal-
ismi.
Ábatagreining og árangursgrein-
ing á heilbrigðissviði er í raun ekki á
neinn hátt auvirðilegri en útreikn-
ingur á árangri af vegagerð ellegar
útreikningur á arðsemi fiskiskips.
Grunnheilbrigðisþjónusta
Ýmis grunnheilbrigðisþjónusta
kostar lítið. Þannig er ráðlegging til
fólks í þróunarlöndum að ganga í
skóm einföld og arðsöm ráðlegging
fyrir þá sem fara að slíkum ráðum.
Og takmörkun barneigna í þróun-
arlöndum væri árangursrík leið til
þess að auðvelda heilbrigðisþjón-
ustu þar og að draga úr fátækt. Á
sama veg er farið með ónæmis-
aðgerðir. Ónæmisaðgerðir á ung-
börnum draga verulega úr ung-
barnadauða. Kíghósti, rauðir
hundar, mislingar og hettusótt
gengu í faröldrum og höfðu í för
með sér ótímabær dauðsföll.
Þeir, sem eru uppfullir af sam-
særiskenningum um ónæmis-
aðgerðir, mega hafa sínar skoðanir
og þeim er frjáls hegðun, svo fram-
arlega sem þeir eða þau skaða ekki
aðra. Það er hið sanna frelsi. Hverj-
um er frjálst að skapa sér sína ham-
ingju, eða eftir atvik-
um, harm. Aðrir bera
ekki ábyrgð á því.
Læknavísindi
Það er mikil dul að
fullyrða hvar læknavís-
indi byrjuðu. Upphafið
er kennt við Hippó-
krates. Um þúsundir
ára voru vísindin sam-
bland af hindurvitnum
og reynsluvísindum.
Hindurvitnin drápu en
í gagnabanka reynsl-
unnar urðu til gagnleg ráð. Stund-
um finnst mér, ólæknislærðum
manninum, að síðustu tvær aldir
hafi verið aldir læknisfræðinnar.
Auðvitað á það við um önnur fræði
einnig, eins og hagfræðina. Hag-
fræðin er lítið eldri en tvö hundruð
ára.
Adam Smith, annar tveggja höf-
unda nútímahagfræði, var lítið eldri
en Edward Jenner, sem lagði grunn
að ónæmisfræðinni. Adam Smith
var Skoti en Edward Jenner var
Englendingur. Verk þeirra beggja
eru skilgetin afkvæmi upplýsinga-
stefnunnar, þar sem hindurvitnum
var hafnað.
Framfarir
Aðrar framfarir í læknisfræði,
auk ónæmisaðgerða, eru sýklalyf og
skurðlækningar. Sennilega væru
skurðlækningar nútímans ekki
mögulegar nema með aðstoð sýkla-
lyfja. Sama máli gegnir um mynd-
greiningar með röntgentækni og
segulómun.
Þrátt fyrir allar „framfarir“ finnst
mér hver og ein læknisaðgerð til-
raun, sem byggist á viðamikilli
þekkingu reynsluvísinda. Flestar
tilraunirnar í læknavísindum, sem
grundvallast á þekkingu, heppnast.
Þær skapa betra líf og lengra líf en
án tilraunarinnar.
Árangurinn er hverfandi ung-
barnadauði og langlífi en umfram
allt gott mannlíf, nema því sé spillt
með styrjöldum, eða óhóflegu lífi
einstaklings. Blæðandi magasár
þekkist varla og ný geðlyf, sem
fram komu eftir miðja síðustu öld,
hafa fært mörgum gæfuríkt líf.
Einstaklingurinn getur haft áhrif
á eigið líf, með hreyfingu, með mat-
aræði og með því að verða ekki
nautnum að bráð.
Því er eins farið með einstakling-
inn í hagfræðinni. Hann ræður
nokkru um örlög sín með efnahags-
legri hegðun sinni.
Hjá sumum verður veruleikinn
aldrei annað en rústirnar af höll
draumalandsins í óráði.
Árangur
Það þykir mikið hraustleikamerki
að geta lýst íslenskt heilbrigðiskerfi
rústir einar. Sjálfur er ég neytandi
heilbrigðisþjónustu og tel að margt
sé vel gert.
Ég hef horft á og notið sóttvarna
vegna Covid-faraldurs, sem gengur
um heimsbyggðina. Þar eru ýmsir
covitar til ráðgjafar.
Í upphafi bað þjóðin um að farið
yrði að ráðum sérfræðinga, en svo
rann óráð raunveruleikans á covita
og þeim snerist hugur og báðu um
að ráðin yrðu tekin af landlækni og
sóttvarnalækni.
Ráð landlæknis og sóttvarna-
læknis, og fleiri í þeirra herbúðum,
hafa leitt til þess að dauðsföll hér á
landi af völdum Covid-19 eru sem
næst 3-5% af því sem gerist í
Bandaríkjunum og Svíþjóð.
Vissulega á sjúkrahúsmeðferð og
göngudeildarmeðferð á þeim, sem
sýkst hafa alvarlega, þátt í lágri
dánartíðni.
Þetta heilbrigðiskerfi á að heita
rústir einar.
Afneitun
Alvarlegasti þátturinn í veitingu
heilbrigðisþjónustu hér á landi
tengist í raun hagfræðinni. Hag-
fræðin fæst við skort, það að ráð-
stafa takmörkuðum gæðum.
Í heilbrigðisþjónustu, sem bygg-
ist á almennum sjúkratryggingum,
er notandi þjónustunnar annar en
greiðandinn. Eftirspurnin eftir
þjónustunni takmarkast því ekki við
verð þjónustunnar, eins og verða
mundi á almennum markaði. Eft-
irspurnin verður mun meiri en ella,
og á mörgum sviðum heilbrigðis-
mála nánast ómettanleg. Framfarir
í læknavísindum og dýr lyf gera
ótrúlega margt tæknilega mögulegt.
Spurningin er hins vegar sú hvað
hlutirnir kosta. Hér koma stjórn-
völd að borðinu og ákveða hve stór
hluti þeirra verðmæta, sem til ráð-
stöfunar eru, geti eða réttara sagt
ásættanlegt sé að fari til heilbrigð-
ismála. Þegar sá rammi hefur verið
settur með fjárlögum er komið að
forgangsröðun aðgerða innan heil-
brigðisþjónustunnar. Í opinberri
umræðu hefur verið býsna hljótt um
þessa forgangsröðun. Hún hlýtur þó
að eiga sér stað og er vafalaust erfið
og vanþakklát en sá sem utan við
stendur og greiðir skattana hlýtur
að geta gert þá kröfu að fyllstu hag-
kvæmni sé gætt og lausna leitað
bæði innan og utan hins opinbera
kerfis.
Valkvæð kvöl
Í eiði Hippókratesar segir:
„Hvar sem ég kann í hús að
koma, þá vil ég vera hinum sjúku til
gagns og hjálpar, en fjarri mér sé
ósanngjarn og vítaverður ásetn-
ingur; sérstaklega vil ég forðast allt
daður við konur og smásveina,
frjálsa og þræla.“
Stjórnmálamenn hafa aldrei unn-
ið Hippókratesareið. Stjórnmála-
menn skuldbinda sig ekki til að
verða til gagns og hjálpar. Þeir geta
gripið til afneitunar við veitingu
þjónustu og ákvarðað ásættanlega
kvöl þegar þeir neita því að láta
vinna „valkvæðar“ aðgerðir utan
ríkissjúkrahúss. EES-samningur
setur efri mörk á kvalartíma. Í raun
á kvöl annarra aldrei að verða val-
kvæð.
Það kann að vera að styrkur hins
opinbera heilbrigðiskerfis aukist við
að hafa öfluga heilbrigðisþjónustu
utan stofnana. Verðlagning slíkrar
þjónustu er ekki geimvísindi. Það er
vitað hvað slík þjónusta kostar á
hinni opinberu stofnun. Það er einn-
ig vitað hvað slík aðgerð kostar þeg-
ar leitað er þjónustu yfir landamæri
á grundvelli ákvæða EES-samnings
um biðtíma.
Á tímamótum í kvöl og pínu
Ekki skal ég kenna fráfarandi
forstjóra Landspítala um valkvæða
kvöl sjúklinga. Hann átti í baráttu
við stjórnmálamenn með fordóma
um heilsu annarra og hagfræði.
Hættum að tala um valkvæðar að-
gerðir, nema í neyðartilvikum vegna
farsótta. Stund aðgerða er runnin
upp. Sennilega skilur enginn kvöl og
pínu nema reyna hana sjálfur. Og
enginn getur sagt öðrum, að hann
verðskuldi kvöl og pínu vegna hug-
myndafræði og fordóma annarra.
Biðlistar eru aldrei ásættanlegir.
Nú er ögurstund. Ég óska nýjum
forstjóra Landspítalans velfarnaðar
í starfi.
Eftir Vilhjálm
Bjarnason » Og enginn getur sagt
öðrum, að hann
verðskuldi kvöl og pínu
vegna hugmyndafræði
og fordóma annarra.
Vilhjálmur Bjarnason
Höfundur var alþingismaður.
Um heilsufræði og hagfræði