Morgunblaðið - 11.02.2022, Síða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2022
gest sem engu eirir. Allan tímann
var tvísýnt um niðurstöðu og það
gerði hann sér ljóst. Að endingu
varð hann að lúta í gras og játa sig
sigraðan, en hafði sem betur fer
átt dýrmætar gæðastundir með
sínu fólki áður en yfir lauk. Ef til
stæði að skrifa nýja Íslendinga-
sögu væri mannlýsing Davíðs
eitthvað á þá leið að hann hefði
verið einstakur vinur og félagi,
hrekklaus, traustur, heiðarlegur
og alveg með eindæmum glað-
lyndur.
Leiðir okkar lágu saman fyrir
tuttugu árum þegar hann þekkt-
ist boð um að ganga til samstarfs
við okkur. Hann var yngstur eig-
enda og tók að sér að veita fyr-
irtækjum okkar forstöðu. Við-
fangsefnin kölluðu á lipurð og
lagni enda oft óhægt um vik að
halda svo á málum að allir gengju
sáttir frá borði. En þannig gekk
það æði oft fyrir sig hjá vini okkar
að aðilar sem hann hafði sótt mál
gegn leituðu til hans síðar þegar
þeir þurftu á lögfræðiaðstoð að
halda. Þeim datt bara enginn ann-
ar í hug. Þetta sýnir vel þá mann-
kosti sem Davíð hafði til að bera.
Fastur fyrir en ávallt sanngjarn
og hafði alltaf rétt við. Þá þótti
Davíð góður og farsæll stjórnandi
og þeir sem hófu störf hjá honum
kusu að fylgja honum til langs
tíma.
Á árunum eftir hrun bætti
Davíð við sig verkefnum og tók að
sér störf í slitastjórn eins hinna
föllnu banka. Það var þrotlaus
vinna sem varði í nokkur ár. Verk-
efnin þar voru þroskandi en
óvægin og slítandi enda álagið
mikið.
En sem betur fer er lífið ekki
bara eintómt brauðstrit. Davíð og
Brynhildur áttu stóra fjölskyldu
og þau voru sérstaklega samhent,
lifðu fyrir fjölskylduna og börnin
og uppvöxtur þeirra var þeim allt.
Það kom þó ekki í veg fyrir að
annarra lystisemda lífsins yrði
notið. Handboltinn átti alltaf stór-
an stað í hjarta hans og sama gilti
um enska sparkliðið Tottenham.
Það tók oft á að fylgja því liði að
málum og því stofnaði hann sálu-
sorgarklúbb, fyrir sig og nokkra
aðra með sama heilkennið, sem
svo skemmtilega vildi til að voru
oft annað tveggja samstarfsmenn
eða nánir viðskiptafélagar.
Litli eigendahópurinn átti líka
sínar ánægjustundir. Ótrúlega oft
við fallega á og í góðra vina hópi.
Davíð var viðvaningur þegar við
hittumst fyrst í fluguveiðinni, en
útskrifaðist með láði á skömmum
tíma. Aðventuferðir til Kaup-
mannahafnar voru líka árviss við-
burður, ef ekki var horft eitthvað
annað og lengra, eins og stundum
gerðist.
Nú er Davíð lagður af stað í
sína hinstu ferð. Miklu fyrr en við
máttum vænta, sem undirstrikar
hvað oft er vitlaust gefið í lífsins
spili. Við höfum þá trú að nú sé
hann loksins kominn með fastan
miða á White Hart Lane og það er
sem okkur heyrist einhver kalla
hljómríkri röddu, að gefnu tilefni:
Where are you Spurs?
Að leiðarlokum viljum þakka
Davíð fyrir allt og sendum Bryn-
hildi, börnum þeirra og tengda-
börnum, barnabarni, móður, syst-
ur og öðrum aðstandendum okkar
dýpstu samúðarkveðjur.
Kristinn Hallgrímsson
Óskar Norðmann.
Nú eru bráðum 33 ár síðan 6.Y
skundaði til móts við lífið við út-
skrift úr MR vorið 1989. Að baki
voru bernskubrekin að mestu.
Allir héldu til frekara náms og
Davíð valdi lögfræði, varð síðar
héraðsdómslögmaður og átti far-
sælan starfsferil. Stofnaði fjöl-
skyldu, átti fjögur börn og orðinn
afi að auki. Árangur hans og vel-
gengni voru uppskera mikils
dugnaðar og heilinda.
Þau válegu tíðindi bárust fyrir
um ári að okkar glaðlyndi og
bjartsýni bekkjarfélagi hefði
greinst með alvarlegt krabba-
mein. Við blasti frá byrjun að leið-
in til mögulegs bata yrði óvissuför
og mikið yrði á hann lagt. Hið öm-
urlega vírusfár setti allri um-
gengni þröngar skorður og náði
þessi hópur ekki að koma saman
og hitta Davíð. Það er sárt. Svo
kom harmafregnin hin versta í lok
janúar og alla setur hljóða.
Það er ósanngjarnt fyrir fjöl-
skyldu og vini að sjá öflugum leik-
manni kippt af velli snemma í síð-
ari hálfleik. Það er huggun harmi
gegn að geta minnst með hlýju
hláturs hans og kímnigáfu, stríðni
og snjallra tilsvara, að ekki sé
minnst á stórkostlega hæfileika á
dansgólfinu. Það er ekki feiminn
eða hlédrægur strákur sem fer úr
að ofan á MR-balli og dansar þar til
ljósin kvikna – og það án nokkurs
söngvatns sem flestir þurftu á
þeim tíma til þess eins að þora inn í
kvöldið.
Það sem hjálpar í sorginni er
við kveðjum okkar fjórða bekkj-
arsystkini er að finna til þakklætis
fyrir að þessi bekkur skyldi koma
saman árin 1987-1989. Á þeim
grunni varð til ævilöng vinátta og
ógleymanlegar samverustundir.
Lærdómurinn sem við drögum er
að lífið er núna, við eigum að stíga
óhikað inn á dansgólfið og njóta
hverrar stundar eins Davíð gerði.
Hafðu þökk fyrir allt kæri bekkj-
arbróðir.
Fjölskyldu Davíðs vottum við
okkar dýpstu samúð, minningin
um góðan og traustan dreng lifir.
F.h. 6. bekkjar Y úr MR 1989,
Egill Tryggvason,
Finnur Stefánsson.
Það er ekki sjálfgefið að tæp-
lega fertugur fjögurra barna faðir
hafi trú á og treysti tuttugu árum
yngri fótboltaþjálfara barna
sinna, og komi fram við viðkom-
andi eins og jafningja. En þannig
var Davíð. Hinn trausti, drífandi,
úrræðagóði og skemmtilegi vinur
minn Davíð sem hefur nú verið
hrifsaður grimmilega frá okkur
aðeins 52 ára gamall.
Davíð var sá sem gekk í málin.
Hann stýrði fjáröflunum fyrir
keppnisferðir og tók að sér hlut-
verk fararstjóra. Davíð nálgaðist
hlutina af jákvæðni og hann leit á
samstöðu innan hópsins sem al-
gjört skilyrði. Vandamál voru
leyst og ferðirnar snerust um að
krakkarnir hefðu vettvang til að
búa til góðar minningar með vin-
um sínum og liðsfélögum.
Ég held að Davíð hafi smitað
mig af allri þeirri góðu orku sem
honum fylgdi. Hann varð í það
minnsta ákveðin fyrirmynd í mínu
lífi fljótlega eftir að leiðir okkur
lágu fyrst saman. Ég þjálfaði
krakkana hans hjá Gróttu og um
tíma starfaði ég undir stjórn Dav-
íðs hjá Momentum. Honum tókst
oftar en einu sinni að plata mig til
að taka þátt í óvæntum „flash
mob“-dansatriðum þar sem gald-
urinn var einn af mörgum mann-
kostum Davíðs: Að hafa ekki
áhyggjur af því hvað aðrir voru að
hugsa. Það var sama hver vett-
vangurinn var, það var aldrei
neitt hálfkák hjá Davíð heldur
nálgaðist hann verkefnin af ein-
lægni og krafti.
Veikindi Davíðs eru áminning
um hve lífið er í raun óútreikn-
anlegt og óréttlátt. Það er
kannski eins gott að sýna æðru-
leysi, því þessi örlög get ég ekki
skilið. Að maður á besta aldri sem
gaf umhverfi sínu svo fallegan lit
fái þetta óleysanlega verkefni í
fangið. En Davíð átti góða ævi.
Hann átti traust og fallegt sam-
band með samheldinni fjölskyldu
sinni, vinafólki, vinnufélögum og
mörgum úr íþróttahreyfingunni.
Davíð lifði lífinu í stað þess að láta
það þjóta hjá. Það ættum við öll að
gera.
Ég kveð góðan félaga og frá-
bæran mann með sorg í hjarta.
Missir Brynhildar, Evu, Þorgeirs,
Önnu Láru og Benna er ómældur.
Hugur minn er hjá þeim. Blessuð
sé minning Davíðs B. Gíslasonar.
Magnús Örn Helgason.
Í dag kveð ég kæran vin og
samstarfsfélaga.
Davíð kynntist ég fljótlega eftir
að ég hóf störf hjá HSÍ 2003. Við
unnum vel saman og með árunum
þróaðist samstarfið yfir í góða
vináttu. Davíð var einn af þessum
traustu, hafði brennandi áhuga á
handbolta og það var sama hvert
verkefnið var, hann var alltaf boð-
inn og búinn til að aðstoða. Við
eyddum ófáum tímum í að skrifa
reglugerðir og velta fyrir okkur
hvernig mætti laga regluverkið í
kringum hreyfinguna og þar var
hann svo sannarlega á heimavelli.
Eftir að vináttuböndin urðu
sterkari fórum við að sinna sam-
eiginlegu áhugamáli okkar, stang-
veiðinni. Davíð var góður veiði-
maður og fannst fátt
skemmtilegra en að slaka á við ár-
bakkann þó að við hefðum
kannski ekki sama skilning á af-
slöppuninni, það iðinn við kolann
var hann. Oftar en ekki hringdi
hann og tilkynnti mér að við vær-
um að fara veiða saman daginn
eftir. Ég þurfti að græja bílinn,
rækjusamlokur, kók í plasti, tvo
bauka og kex en annað væri klárt.
Eina slíka veiðiferð fórum við í
síðasta sumar, þegar við náðum
saman einum degi í veiði. Þrátt
fyrir lítið þrek landaði okkar mað-
ur að sjálfsögðu laxi og skein af
honum gleðin. Sannarlega eftir-
minnilegur dagur og dýrmæt
minning.
En lífið er ekki alltaf sann-
gjarnt, eftir hetjulega baráttu
varð eitthvað að láta undan og er
söknuðurinn mikill.
Við eiginkonu Davíðs, Bryn-
hildi, og börnin þeirra fjögur,
Evu, Þorgeir, Önnu og Benedikt,
og fjölskyldu, vil ég segja að ég
samhryggist innilega. Ykkar
missir er mestur.
Hvíl í friði elsku vinur – með
þökk fyrir allt og allt.
Róbert Geir Gíslason.
Svo óvænt er komið að leiðar-
lokum, fallinn er frá einstakur
Gróttumaður, Davíð B. Gíslason,
eftir harða baráttu við illvígan
sjúkdóm.
Þegar fólk fellur frá í blóma
lífsins, fyrirvaralaust, er okkur
sem eftir lifum oft orða vant. Okk-
ur verður oft starsýnna á það sem
ekki varð fullgert, fremur en það
góða og mikla dagsverk, sem unn-
ið var. Davíð lifði góða ævi og lét
margt gott af sér leiða, bæði með
fjölskyldu sinni og í daglegum
störfum sínum en ekki síður í
margvíslegum félagsstörfum fyr-
ir Gróttu. Davíð var um árabil
óþreytandi í öllu starfi félagsins.
Hann hóf handboltaiðkun tólf ára
gamall og einungis fimmtán ára
var hann farinn að æfa með meist-
araflokki félagsins sem hann lék
með alla tíð ef frá eru talin tvö
keppnistímabil þegar hann lék
með Fram. Lék hann með Gróttu
allt þar til hann varð fertugur.
Davíð spilaði jafnframt með öllum
yngri landsliðum Íslands.
Auk þess að vera leikmaður
Gróttu sinnti hann margvíslegum
félagsstörfum fyrir félagið. Davíð
sat m.a. í stjórn handknattleiks-
deildar Gróttu/KR árin 2003-2004
og aftur í stjórn handknattleiks-
deildar Gróttu 2012-2013. Hann
var handknattleiksdómari á veg-
um HSÍ fyrir Gróttu á árunum
2010-2011. Jafnframt dæmdi Dav-
íð fjölmarga leiki í yngri flokkum
Gróttu, þann síðasta á vormánuð-
um árið 2021. Davíð sat í stjórn
HSÍ sem varaformaður frá árinu
2013 og til dauðadags auk þess að
sinna öðrum trúnaðarstörfum
fyrir HSÍ frá árinu 2007.
Að auki sinnti Davíð margvís-
legum störfum fyrir íþróttafélagið
sem foreldri. Þannig fylgdi Davíð
börnum sínum þeim Evu Björk,
Þorgeiri Bjarka, Önnu Láru og
Benedikt Arnari á öll þau mót og
alla þá leiki sem hann frekast gat
komið við bæði í handbolta og fót-
bolta. Var hann oftar en ekki far-
arstjóri í þeim ferðum sem farnar
voru út á land eða utan landsteina
og í nokkrum ferðum var hann yf-
irfararstjóri enda átti hann auð-
velt með að hrífa fólk með sér til
starfa auk þess að vera einstak-
lega dugmikill og ósérhlífinn í fé-
lagsstörfum.
Davíð var árið 2010 sæmdur
bronsmerki Gróttu fyrir óeigin-
gjörn störf í þágu félagsins og árið
2014 fékk hann afhent silfurmerki
Gróttu fyrir áralangt starf fyrir
félagið sem leikmaður, þjálfari,
dómari, stjórnarmaður, farar-
stjóri og stuðningsmaður.
Með Davíð er genginn dreng-
lyndur og heilsteyptur maður
langt um aldur fram. Grótta sakn-
ar vinar í stað og harmar einstakan
liðsmann. Mestur er þó missir fjöl-
skyldu Davíðs, móður, eiginkonu,
barna og annarra aðstandenda.
Stjórn og starfsmenn Gróttu færa
þeim einlægar samúðarkveðjur
með djúpri þökk fyrir ómetanlegt
starf Davíðs á liðnum árum. Megi
hið eilífa ljós lýsa Davíð á nýju og
æðra sviði.
F.h. Íþróttafélagsins Gróttu,
Bragi Björnsson,
formaður aðalstjórnar.
Fallinn er frá á besta aldri kær
vinur minn, Davíð Benedikt Gísla-
son. Krabbameinið sigraði sterk-
an íþróttamanninn sem barðist þó
af krafti þar til yfir lauk. Baráttan
tók aðeins ár.
Davíð var afar vel af guði gerð-
ur, klár drengur, glaðlyndur,
duglegur og mikill keppnismað-
ur. Hann var afreksmaður í
handbolta og lék með Gróttu í
mörg ár. Við kynntumst fyrst í
MR, hann af Nesinu og ég úr
Vesturbænum. Síðan lá leið okk-
ar í lagadeild Háskóla Íslands og
þar urðum við góðir vinir. Lásum
við oft saman og gerðum námið
bærilegra hvor fyrir annan. Við
höfðum kannski engan leiftrandi
áhuga á náminu á þessum árum,
en kláruðum þó og nutum þess að
vera í skemmtilegum bekk, skip-
uðum miklu gæðafólki. Á há-
skólaárunum áttum við strák-
arnir einnig saman margar
gæðastundir í fótbolta. Oftar en
ekki verðlaunuðum við okkur
með gómsætum borgara á eftir
og þá var mikið grínast og hlegið.
Þetta voru góð ár.
Davíð kynntist ungur henni
Brynhildi sinni og var það hans
mesta gæfuspor í lífinu. Við grín-
uðumst stundum með það að við
hefðum báðir unnið í makalóttó-
inu en það var nú ekki bara grín
heldur staðreynd. Við fylgdumst
svo að í gegnum lífið, unnum flest
okkar starfsár í sömu byggingu
og vorum í nær daglegum sam-
skiptum. Eignuðumst báðir fjög-
ur börn og fjölskyldulífið skipti
okkur mestu máli í lífinu. Okkur
leið vel hvorum með öðrum enda
fóru áhugamál okkar saman.
Röbbuðum gjarnan um fjölskyld-
ur okkar, hvað krakkarnir væru
að bralla á hverjum tíma,
skemmtilegar utanferðir og ekki
síst enska boltann sem við höfðum
báðir gríðarlegan áhuga á. Það
dró þó stöku sinnum úr gleði Dav-
íðs að hann var ekki jafn heppinn
með lið í ensku deildinni og með
eiginkonuval. Hann var nefnilega
svo óheppinn að halda með Tott-
enham.
Ég er þess fullviss að Davíð
lifði innihaldsríku og hamingju-
ríku lífi. Hann var gæfumaður í
öllu, heilbrigður og hraustur, allt
þar til höggið kom. Það er því
þyngra en tárum taki að kveðja
hann svo snemma. En minningin
lifir áfram, björt og hlý.
Við Elín sendum Brynhildi,
börnunum, móður, systur og fjöl-
skyldunni allri hugheilar samúð-
arkveðjur.
Börkur Hrafnsson.
Fallega brosið rammaði inn
persónuleikann. Davíð var hlýr,
vingjarnlegur og hafði góða nánd.
Hann hafði sterkar skoðanir og
var rökfastur. Hann hafði einnig
þann eiginleika að geta hlustað og
skipt um skoðun ef því var að
skipta. Davíð hafði mikla ánægju
af handbolta og var það hans
helsta áhugamál samhliða stang-
veiði.
Hann var einn af burðarásum í
handboltaliði uppeldisfélags síns
Gróttu á sínum tíma en hann spil-
aði einnig tvö keppnistímabil með
Fram. Davíð var mikill fé-
lagsmaður og gaf mikið af sér ut-
an vallar með setu í stjórn í félagi
sínu auk þess sem hann fylgdi
börnum sínum hvert spor í þeirra
íþróttaiðkun.
Ég hafði kynnst Davíð í gegn-
um störf hans í lögmennsku er ég
fékk hann til að starfa í stjórn
HSÍ. Áður eða allt frá árinu 2007
hafði Davíð stýrt laganefnd sam-
bandsins. Davíð var kosinn vara-
formaður HSÍ á árinu 2013 og
varð samstarf okkar náið. Það var
gaman að vinna með Davíð, enda
leysti hann úr málum af einlægum
áhuga og röggsemi. Allar laga-
breytingar og setning reglugerða
voru í hans höndum en samhliða
því var hann í laganefnd ÍSÍ og
varð síðan formaður í þeirri
nefnd. Davíð hafði alla mannkosti
sem prýða góðan dreng. Skipu-
lagður, vinnusamur, með góða
samskiptagreind og einstakan
húmor. Hláturinn og brosið var
aldrei langt undan.
Stangveiði átti hug hans allan á
sumrin og jafnvel mann eins og
mig var farið að langa í veiði eftir
að hafa hlustað á hann tala um
hinar og þessar tökur þó í kulda
og vosbúð væru. Þrátt fyrir að
hann vildi láta verkin tala og drífa
hlutina af þá sýndi hann einstaka
þolinmæði í veiði, sem er eigin-
leiki sem prýðir afburðaveiði-
menn.
Davíð var lánsamur í einkalífi.
Hann var mikill fjölskyldumaður
en fjölskyldan var ávallt númer
eitt í hans lífi enda er samheldnari
fjölskylda vandfundin. Við erum
þakklát fyrir að hafa kynnst og
unnið með Davíð og allt hans
framlag til handboltaíþróttarinn-
ar verður seint fullþakkað. Við
sendum Brynhildi, börnum, móð-
ur,og fjölskyldum þeirra dýpstu
samúðarkveðjur en minning um
góðan dreng lifir.
F.h. Handknattleikssambands
Íslands,
Guðmundur B. Ólafsson
Það er ólýsanlega erfitt og sárt
að skrifa minningarorð um ynd-
islegan vin sem maður hélt að
myndi fylgja manni alla ævina.
Davíð var einn heilsteyptasti og
traustasti vinur sem ég hef átt.
Hann var skemmtilegur og til-
finningaríkur og það var alltaf svo
gaman í kringum hann.
Síðustu mánuði hafa minningar
um okkar vinskap birst mér til
mikillar gleði en þær fylla mig
jafnframt mikilli sorg og söknuði.
Mér er sérstaklega minnisstætt
þegar við skrópuðum í tíma í Val-
húsaskóla og gengum tvö um
tóma ganga skólans syngjandi há-
stöfum lag úr auglýsingu ORA-
niðursuðuvara. Eftir það urðu
söngstundir okkar fjöldamargar
því við Davíð deildum þeirri
ómældu ánægju að dansa. Davíð
tók þátt í mörgum af mínum bestu
stundum í lífinu þar sem við döns-
uðum og sungum fram eftir nóttu
og þá undantekningarlaust af svo
mikilli innlifun og krafti að Davíð
þurfti að skipta alla jafna einu
sinni um bol. En áhugi Davíðs á
dansi takmarkaðist ekki við af-
mælispartí, fermingar eða út-
skriftir. Hann hafði meiri dans-
metnað en það. Að hans
frumkvæði stóðum við fyrir
Thriller flash dance mob á menn-
ingarnótt Reykjavíkur árið 2010.
Það að geta horft á hann dansa
Thriller með vinum sínum á You-
Tube er ómetanlegt. En dans-
áhuginn hætti ekki þar heldur
gerðist Davíð zumbakennari og
gleðin og svitinn runnu af honum í
hverjum tíma.
Davíð var einnig kollegi minn í
lögfræði og það var alltaf gott að
geta rætt við hann um ýmis mál á
þeim vettvangi. Þar gat hann ver-
ið fastur fyrir ef á þurfti að halda
en fyrst og fremst var hann sann-
gjarn og raunsær.
Vinátta okkar Davíðs var mér
dýrmæt og það er ómetanlegt að
eiga þessar minningar.
Ég mun dansa til heiðurs Davíð
það sem eftir er ævinnar og minn-
ast hans af þakklæti, væntum-
þykju og gleði.
Úr djúpum geimsins
er dagurinn risinn og slær
dýrlegum roða
á óttuhimininn bláan,
og lof sé þér, blessaða líf,
og þér himneska sól,
og lof sé þér, elskaða jörð,
að ég fékk að sjá hann.
(Guðmundur Böðvarsson)
Elsku Brynhildur, þú varst ást-
in og kletturinn í lífi Davíðs og þið
Eva Björk, Þorgeir Bjarki, Anna
Lára og Benedikt Arnar, og nú
síðast Brynhildur Ýr litla, fylltuð
líf hans stolti, gæfu og gleði. Ég
votta ykkur mína innilegustu
samúð.
Hildur Njarðvík.
Kveðja frá Íþrótta- og Ólymp-
íusambandi Íslands
Það var þungbært að fá þær
fréttir að Davíð B. Gíslason væri
látinn, langt fyrir aldur fram. Við
vissum að baráttan var þung en
héldum sterkt í vonina um bata.
Davíð sat í laganefnd ÍSÍ fá
árinu 2017 og tók við formennsku
í nefndinni árið 2019. For-
mennska í þeirri nefnd krefst
mikillar sjálfboðavinnu við ráð-
gjöf til framkvæmdastjórnar ÍSÍ
og við eftirlit með regluverki
íþróttahreyfingarinnar. Davíð
sinnti þeirri vinnu af ástríðu og
elju, hann hafði einlægan áhuga á
öllu sem viðkom starfi hreyfing-
arinnar og hafði gaman af því að
velta upp ólíkum sviðsmyndum í
málefnum sem höfðu margar birt-
ingarmyndir.
Íþróttahreyfingin er stór og
flókin og verkefni laganefndar oft
snúin og viðkvæm. Það var því
dýrmætt að hafa Davíð þar við
stjórn og vita með vissu að álita-
málin voru í góðum höndum. Í að-
draganda Íþróttaþinga var Davíð
í lykilhlutverki við endurskoðun á
lögum og reglum, alltaf tilbúinn
að leggja sitt af mörkum til að
bæta umhverfi íþróttastarfsem-
innar. Hann hafði mikinn metnað
og vildi láta verkin tala.
Davíð var virkur þátttakandi í
starfi hreyfingarinnar á mörgum
sviðum og hans verður víða sárt
saknað. Mestur er þó missir
Brynhildar, eiginkonu Davíðs,
barna hans og fjölskyldunnar allr-
ar. Stjórn og starfsfólk ÍSÍ vottar
þeim öllum dýpstu samúð.
Við minnumst Davíðs með
þakklæti í huga fyrir hans ómet-
anlega framlag til hreyfingarinn-
ar en ekki síður fyrir góða vináttu
og tryggð í gegnum árin.
Persónulega vil ég einnig
þakka Davíð fyrir öll okkar sam-
skipti í gegnum tíðina sem lengst
af voru á milli okkar sem lög-
manna. Í öllum þeim samskiptum
reyndist hann afar traustur,
áreiðanlegur og drengur góður.
Það eru svo sannarlega eiginleik-
ar sem virkilega skipta máli.
Blessuð sé minning Davíðs B.
Gíslasonar.
Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ.
Það ríkir mikil sorg á vinnu-
staðnum í kjölfar andláts Davíðs
framkvæmdastjóra okkar og vin-
ar sem lést langt um aldur fram.
Davíð var afar frjálslegur í fasi og
heilsaði gjarnan hátt og snjallt
þegar hann mætti til vinnu með
því að kalla HALLÓ yfir svæðið.
Hann var allt í öllu hjá okkur,
gekk í öll verk og vílaði ekki fyrir
sér að elda og grilla fyrir okkur.
Hann naut sín hvergi betur en
Davíð Benedikt
Gíslason