Morgunblaðið - 11.02.2022, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 11.02.2022, Blaðsíða 29
sem plötusnúður á árshátíðum og þar sem hann var mikill dansmað- ur og zumba-aðdáandi dansaði hann allt kvöldið og á slíku kvöldi dugði ekkert minna en þrír bolir. Davíð taldi ekki eftir sér að skipu- leggja og aka með okkur út í óvissuna og var hann hrókur alls fagnaðar í þeim ferðum sem eru okkur ógleymanlegar. Davíð stóð einnig fyrir vinnustaðakeppni í slönguspili sem hann skipulagði í þaula enda mikill keppnismaður. Hann var einnig ákveðinn, raun- sær og hafði sterkar skoðanir en fann til samkenndar með náung- anum. Við kveðjum vin okkar með söknuði og þessu ljóði eftir Ingi- björgu Sigurðardóttur og sendum elsku Brynhildi og fjölskyldu inni- legustu samúðarkveðjur. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Fyrir hönd starfsfólks Gjald- heimtunnar og Momentum, Sigríður Karlsdóttir. Davíð fór einhvern veginn dansandi í gegnum lífið. Jákvæð- ur, drífandi, hafði húmor fyrir sjálfum sér og alltaf tilbúinn að taka þátt í einhverju skemmti- legu. Hann stóð til dæmis gjarnan fyrir óvæntum dansatriðum og dró með sér alls konar fólk í það, allt í einu var maður bara mættur niður í Bankastræti að dansa með einhverjum hópi eins og ekkert væri sjálfsagðara. Fyrir tæpum tveimur árum fórum við í Laugavegsgöngu þar sem hann skipulagði allt í þaula. Skemmtilegur hópur sem Davíð hóaði saman gekk í dásemdar- veðri þessa fallegu leið á tveimur dögum. Slegið var upp lúxusgrill- veislu á áningarstað þar sem ekk- ert var til sparað og var Davíð í essinu sínu að grilla ofan í mann- skapinn, nóg af orku eftir á meðan við hin vorum flest tilbúin leggjast í koju eftir langan göngudag. Strax var farið að huga að næstu ferð og var Davíð sjálfkjörinn í að leiða það verkefni, sem ég veit að hann var alsæll með enda löngu kominn með hugmyndir að skemmtilegri göngu. Hann hélt þessu áfram í veik- indum sínum, vildi hafa eitthvað skipulagt fram í tímann til að hlakka til og lét ekkert stoppa sig, hann fór klárlega langt á hugar- farinu. Í dag áttum við til dæmis að vera í London. Hugmyndin var að ná tveimur Tottenham-leikj- um, hann og Brynhildur ætluðu að vera frá miðvikudegi til sunnu- dags en aðrir gætu svo ýmist ver- ið allan tímann eða dottið inn fyrr eða seinna, tekið einn leik eða tvo, eftir því sem hentaði. Það hefði sannarlega verið skemmtileg ferð. Veikindin voru mikið áfall, en Davíð tókst á við þau af miklu æðruleysi og jákvæðum hug. Brynhildur og hann voru fullkom- lega samstiga í þessu verkefni, það er ekki gefist upp í miðjum leik og þau fóru hönd í hönd í gegnum þetta með jákvæðni og baráttuvilja. Davíð var allt til hinsta dags að grínast og slá á létta strengi, var svo þakklátur fyrir allt og kvaddi svo í faðmi fjölskyldu sinnar sem var honum svo dýrmæt. Elsku Brynhildur, Eva Björk, Þorgeir Bjarki, Anna Lára, Bene- dikt Arnar, Eva og María, stund- um er lífið ósanngjarnt og erfitt að skilja. Missir ykkar er mikill, en minningin mun lifa. Elísabet. - Fleiri minningargreinar um Davíð Benedikt Gíslason bíða birtingar og munu birt- ast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2022 ✝ Áslaug Krist- jánsdóttir fæddist á Akureyri 14. september 1927. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Hlíð 29. janúar 2022. Foreldrar henn- ar voru Kristján Lárusson, f. 11. júlí 1905, d. 5. desem- ber 1973, og Anna Guðrún Halldórs- dóttir, f. 31. október 1901, d. 3. júní 1933. Áslaug ólst upp í Hlíð í Kalda- kinn hjá Dagrúnu Jakobsdóttur og Alfreð Ásmundssyni ásamt dætrum þeirra, þeim Bryndísi, Steingerði, Guðrúnu, Ástu og Kristínu. Fósturforeldrar Ás- laugar voru Kristín Halldórs- dóttir, sem var móðursystir Ás- laugar, og Jakob Kristjánsson. Amma Áslaugar, Anna Pálína Benediktsdóttir, tók einnig drjúgan þátt í uppeldi hennar. Systkini Áslaugar í föðurætt: Díana, f. 30. ágúst 1928, d. 14. apríl 2020. Hennar maður Ari G. Þórðarson; Auður, f. 7. ágúst vini Jónssyni, f. 24. nóvember 1930, d. 16. desember 1979. Synir þeirra: Narfi, f. 27. desember 1959. Hans kona Hanna Hauks- dóttir. Teitur, f. 26. júlí 1961. Hans kona Theodóra Kristjáns- dóttir. Barnabörnin eru 16 og barna- barnabörnin 35. Áslaug fékk hefðbundna menntun þess tíma, gekk í far- skóla og síðar í Héraðsskólann á Laugum, Húsmæðraskólann í Reykjavík og lauk landsprófi frá Reykholti í Borgarfirði. Stundaði síðar nám við öldungadeild Menntaskólans á Akureyri. Áslaug var í kaupavinnu í sveit á unglingsárunum og stundaði síðan húsmóðurstörf og vann skrifstofustörf hjá KEA. Áslaug var alla tíð mjög virk í fé- lagsmálum, má þar nefna ung- mennafélög, kvenfélag, Nátt- úrulækningafélag Akureyrar, SUNN, slysavarnadeild Hrís- eyjar ásamt Oddfellow. Áslaug bjó í Hrísey á árunum 1960-1978, eftir það bjó hún á Akureyri til hinstu stundar. Útför Áslaugar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 11. febr- úar 2022, kl. 13. Athöfninni verð- ur streymt á facebooksíðunni Jarðarfarir í Akureyrarkirkju - beinar útsendingar. Hlekk á streymi má nálgast á: https:// www.mbl.is/andlat 1930. Hennar maður Jón A. Stefánsson. Látinn; Birgir Stein- dór, f. 9. ágúst 1931, d. 6. júlí 1999. Hans kona Sigríður Einarsdóttir. Systir Áslaugar sammæðra: Hjördís Kristjánsdóttir, f. 28. febrúar 1930. Hennar maður Sig- urgeir Sigurðsson. Látinn. Áslaug giftist Sigurbirni Krist- jánssyni, f. 20. desember 1917, d. 2. október 1973. Þau skildu. Synir þeirra: Kristján, f. 11. janúar 1950, d. 24. apríl 2011. Hans kona Ólöf S. Valdimarsdóttir. Valtýr, f. 22. maí 1951. Hans kona Pálína Dagbjört Björnsdóttir. Þau skildu. Núverandi vinkona Valtýs er Olga Stefánsdóttir. Áslaug giftist Jóni G. Stef- ánssyni, f. 20. janúar 1926, d. 7. desember 1956. Sonur þeirra: Kormákur, f. 13. júní 1954, d. 12. febrúar 2021. Hans kona Hólm- fríður Jónsdóttir. Látin. Áslaug giftist Siguróla Björg- Áslaugu kynntist ég 17. ágúst 1976. Deginum áður höfðum við flutt til Hríseyjar og ég var að labba frá húsinu okkar og í búð- ina. Þegar ég labba fram hjá húsi hennar og Olla kemur hún út og heilsar mér með virktum og kynn- ir sig. Hún var í gallabuxum, brúnleitri blússu og gallavesti með hvítum smellum. Þetta dress hafði hún að sjálfsögðu saumað sjálf. Rauða hárið hennar fór vel og strax þarna fékk ég þessa til- finningu að hennar litir væru haustið. Síðar meir komst ég að því að hún væri fædd í september og þá fannst mér haustið smell- passa við hana og það hefur verið mín tilfinning síðan þá. Leiðir okkar Áslaugar lágu oft saman sem nágrannar og síðar sem hálfgerð vinkona sem til dæmis lánaði mér ritvél þegar ég fór í 10. bekk. Áslaug var alltaf einhvern veginn svo nálæg og vissulega var hún áberandi í okk- ar litla samfélagi, hörkudugleg, hnyttin, sposk og ákveðin. Nokkrum árum síðar varð Ás- laug tengdamóðir mín þegar við Teitur hófum okkar ferðalag. Það ferðalag stendur enn, 42 árum, fimm börnum, fimm tengdabörn- um og átta barnabörnum síðar. Áslaug hefur auðvitað komið mik- ið við sögu í okkar lífi, stundum með góð og gefandi ráð, stundum stjórnsöm en alltaf vel meint þótt ég hafi kannski ekki komið auga á það þá. Áslaug var „öðruvísi“ amma. Hún leyfði krökkunum ýmislegt sem ekki hefði verið leyft heima. Það var til dæmis búningaleikurinn sem barst um alla íbúð og jafnvel fram á stiga- gang og endaði gjarna á því að vökva blómin í stigahúsinu ótæpi- lega. Ekki endaði allt það vatn í blómapottunum, svo mikið er víst. Ég hef reyndar aldrei skilið hvernig blómin í stigahúsinu í Tjarnarlundi 10 lifðu alla þessa vökvun af. Áslaug var alltaf útsjónarsöm kona og ekki síst sem húsmóðir. Fræg er sagan af henni þegar hún var með kostgangara í mat og labbaði glaðleg að borðinu og bauð þeim endilega að fá sér meira. Til allrar hamingju höfðu allir fengið nóg í fyrstu umferð því í pottinum var bara ein bolla og tel ég víst að okkar konu hafi verið létt. Þetta atvik lýsir Áslaugu vel, hugrökk og sjálfstæð, útsjónar- söm og nýtin. Ekki er hægt að minnast Áslaugar án þess að nefna handavinnuna hennar. Því- líkt handverk og þvílík gæði. Ég veit ekki annað en að allir í fjöl- skyldunni eigi eftir hana verk. Bútasaumsteppi, púða, prjónaðar dúkkur, snyrtipunga, dúka, saum- aðar eða prjónaðar fígúrur og svo mætti lengi telja. Það sem að mínu mati einkennir allt hand- verk Áslaugar er vandvirknin og nýtnin. Hver spotti og pjatla skyldu notuð og þeim var fundinn staður. Áslaug hefði ekki viljað að hennar áföll í lífinu yrðu rakin hér né annars staðar og þess vegna ætla ég að láta það ógert en leyfi mér að segja að ríflegur var sá skammtur sem henni var úthlut- aður. Ég kýs að minnast Áslaugar eins og hún var, hress og glöð og lét ekki smámuni slá sig út af lag- inu. Ég kýs líka að trúa því að nú sé Áslaug á betri stað eftir erfiðar síðustu vikurnar í sínu lífi. Það mætti segja mér að í blómabrekk- unni væri líf og fjör þar sem Ás- laug lætur ekki sitt eftir liggja til að hafa gaman. Theódóra Kristjánsdóttir. Það ættu allir að kynnast konu eins og Áslaugu Kristjánsdóttur. Við vorum svo heppnir að hún var amma okkar, Ása amma. Óvenju- leg amma á margan hátt og gekk undir mörgum nöfnum. Amma randafluga er líklega það sem lýs- ir henni best. Falleg, skrautleg, alltaf á iði og gat sannarlega stungið. Minningabanki okkar bræðranna er stútfullur þegar hugsanir hvarfla að Ásu ömmu og þannig er það líklega um flesta sem urðu á vegi hennar. Eftir- minnileg kona í alla staði og hversdagurinn fékk á sig annan brag þegar hún leit inn. Hún hafði lag á að setja hlutina í áhugavert samhengi og í orðum hennar og gjörðum leyndist oft sannleiks- korn sem maður áttaði sig á löngu síðar. Fyrir mörgum árum bjugg- um við á Ólafsfirði og þetta var fyrir tíma ganganna. Múlinn var ekkert lamb að leika sér við og títt vorum við með öndina í hálsinum þegar einhver vogaði sér í heim- sókn. Hugsunin var alltaf þarna, myndi amma lifa Múlann? Auðvit- að gerði hún það eins og annað. Steig brosandi út úr bílnum og sýndi okkur handarbökin á sér. Sagði svo: „Sólin skein svo fallega á Múlann, sjáiði freknurnar sem ég fékk á leiðinni.“ Þessi lífssýn er stærsta gjöf ömmu til okkar strákanna. Að lifa. Að þora að lifa. Amma fékk væn- an skammt af mótlæti á lífsleið- inni, en alltaf lifði hún. Það bjó í henni einhver ótrúlega sterk lífs- þrjóska sem hún miðlaði til okkar með því að vera hún sjálf. Það er mikill munur á að virða manneskj- ur og stjórnast af manneskjum. Amma virti þá sem virtu hana, en stjórnaðist ekki af neinu eða nein- um. Þegar við hugsum um lífs- hlaup ömmu, og þær samfélags- breytingar sem hafa átt sér stað, eins og t.d. aukið jafnrétti, fjöl- breytileiki, virðing fyrir ólíkum menningarheimum og náttúru, fylgdist amma vel með. Hún var opin fyrir nýungum, forvitin, fróð, réttsýn og fyndin. Henni var annt um fjölskyldubönd og það var henni mikilvægt að við þekktum okkar frændgarð. Slíkar samræð- ur urðu reyndar stundum einræð- ur, og þegar hún sá að við fjöru- ðum andlega út, þá stakk hún. Ekki djúpt, en nóg til að við vökn- uðum úr dvalanum. Elsku amma okkar. Heimurinn er fátækari án þín. Viðvera þín markaði okkur djúpt og þú lifir áfram í okkur og öllum sem þú hittir á þinni löngu og hlykkjóttu lífsleið. Hvíldu í friði, amma randafluga. Jörundur, Bjarki, Björn, Kári og Óli Dagur Valtýssynir. Elsku amma. Nú þegar leiðir skilur í hinsta sinn verður okkur hugsað til allra góðu stundanna með þér. Þú varst ávallt til staðar og alltaf til í að rétta okkur hjálp- arhönd. Þú varst dugleg að taka okkur með í alls konar ævintýraferðir á litla rauða bílnum þínum. Ferðir í sveitina þar sem barist var við ljó- nakisur og æðandi vindinn. Vetr- arferðir inn í Vaglaskóg þar sem bíllinn festist í skafli. Prílað upp um holt og hæðir og þrammað yfir gamlar brýr. Oftast skilað með þeim orðum að þetta væri okkar á milli, mamma og pabbi þyrftu ekkert að vita. Okkar leyndarmál. Við dvöldum öll hjá þér í lengri eða skemmri tíma á menntaskóla- árunum. Þar lærðum við að standa á eigin fótum og sjá um okkur sjálf. Þú sagðir hlutina ná- kvæmlega eins og þeir voru og varst ekkert að vefja okkur inn í bómull. Engu að síður studdir þú okkur ávallt í öllu því sem við tók- um okkur fyrir hendur. Minning- ar frá þessum árum eru margar en upp úr standa samverustund- irnar með þér. Sögur af afa. Sögur úr sveitinni. Leikhúsferðir og heimsóknir á söfn. Yfirlestur fyrir próf. Að aðstoða þig fyrir fundi. Að passa upp á hárið. Við kveðjum þig með söknuð í hjarta en vitum að þú ert komin í faðm góðra vina á ný. Komin heim. Ó, Jesús bróðir besti og barnavinur mesti, æ breið þú blessun þína á barnæskuna mína. Mér gott barn gef að vera og góðan ávöxt bera, en forðast allt hið illa, svo ei mér nái’ að spilla. (Páll Jónsson) María, Björgvin Haukur og Narfi Freyr. Kæra Ása amma. Það er margt sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa til baka á þessum tímamót- um. Allar heimsóknirnar til þín í Tjarnarlundinn, Álfabyggðina og Skálateiginn. Þegar við vorum lít- il voru til sérstök sullföt svo við myndum ekki rennbleyta fötin okkar meðan mamma skrapp í búð eða eitthvað annað. Við spil- uðum gömlu plöturnar og lékum okkur með allt dótið. Þegar ég varð eldri kenndir þú mér svo margt í handavinnu. Við gerðum fyrsta bútasaumsteppið mitt í fullri stærð saman, það tók sinn tíma í sumar- og jólafríum en tókst. Þú hlóst að vettlingunum sem ég prjónaði í 10. bekk því ég prjóna svo fast að þeir urðu bæði vind- og vatnsheldir. Þegar þú hjálpaðir mér að prjóna þurftirðu alltaf að nota töluvert minni prjóna en ég svo að þetta kæmi allt eins út. En einhverra hluta vegna er það Parísarferðin okkar tveggja 2008 sem stendur upp úr. Við systkinin höfðum gefið þér flugmiða á áttræðisafmælinu þínu. Ódýra miða sem var bara hægt að bóka á sérstökum dögum og þess vegna varð ferðin 11 dag- ar. Ég hafði pínu samviskubit fyrsta kvöldið þegar ég var búin að drösla þér frá flugvellinum nið- ur í Latínuhverfið í metrónum. Í París á þessum tíma voru ekki rúllustigar eða lyftur á metró- stöðvunum en þú fórst þetta eins og ekkert væri. Við vorum fljótar að koma okkur upp rútínu; gerð- um eitthvað skemmtilegt alla daga, síðdegis blundur hjá þér meðan ég horfði á EM í sjónvarp- inu á kaffihúsinu á móti. Seinni- partinn fórum við svo aftur á stjá og skemmtum okkur fram yfir kvöldmat. Það hefði ekki öllum dottið í hug að fara í ferð til Par- ísar með áttræðri ömmu sinni en í mínum huga var fátt eðlilegra. Við skruppum til Brussel og heimsóttum Jörund, fórum til Versala (líka í litla þorpið hennar Marie Antoinette!), heimsóttum au-pair-fjölskylduna mína, fórum í siglingu á Signu, hannyrðabúðir, listasöfn og svo margt fleira. Eitt það eftirminnilegasta var þegar þú vildir komast í lagningu og við gengum fram hjá hárgreiðslu- stofu og pöntuðum tíma daginn eftir. Við mættum með rúllurnar þínar og hárgreiðslumaðurinn skildi auðvitað til hvers var ætlað. Þið sögðuð mér bara að fara og þegar ég kom einhverju seinna varst þú svo fín og hann búinn að finna Hríseyjarvita á Google Earth sem var alveg nýtt þá. Hvernig þið fóruð að því veit ég ekki, en þetta var svo dæmigerð Ása amma. Hvíldu í friði kæra amma og skemmtu þér vel uppi á himnum. Dröfn Teitsdóttir. Ása frænka er farin í ferð, það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir það að þetta verður hennar síðasta ferðalag. Hún hafði reyndar áður lagt af stað í þessa ferð. Á síðasta ári lá hún fárveik af lungnabólgu og þá fannst henni hún vera komin að árbakka, á hinum bakkanum sá hún fólkið sitt sem á undan er far- ið. Enga ferju var að sjá sem gæti flutt hana yfir ána svo ekki var um annað að ræða en að snúa við og fólkið hinum megin veifaði í kveðjuskyni. Hennar fyrsta ferða- lag var þegar hún var kornabarn, en þá flutti amma hennar Anna Pálína hana með sér frá Akureyri þar sem hún var fædd, austur í Kaldakinn enda erfitt fyrir Guð- rúnu móður hennar að hafa barnið hjá sér þar sem einstæð móðir hefur líklega þurft að vinna fyrir sér. Fósturforeldrar Ásu verða síðan hjónin Kristín móðursystir hennar og Jakob sem þá áttu stálpaða dóttur, Dagrúnu móður okkar, og alla tíð leit Ása á þau hjón sem sína foreldra og á Dag- rúnu sem systur sína. Árið 1933 lést móðir Ásu úr berklum, þá var Dagrún gift Alfreð Ásmundssyni og höfðu þau reist sér býlið Hlíð í Kaldakinn og þangað flytja Jakob og Kristín með fósturdótturina og þar elst hún upp á mannmörgu heimili þar sem saman bjuggu þrjár kynslóðir auk frændliðs úr öllum áttum. Uppvaxtarárin voru henni afar kær og þar átti hún að eigin sögn yndisleg ár í hlíðinni undir litla fjallinu þar sem hún þekkti og kunni nöfn á hverjum mel og hverri lág og laut, elskaði fossana fallegu í Gljúfuránni sem allir höfðu sitt nafn. Lífshlaup Ásu verður ekki rak- ið hér, en hún var okkur öllum Hlíðarsystrum bæði systir og frænka en fyrst og fremst stór- brotin kona með mikla lífsreynslu, fyrirmynd, fróðleiksbrunnur og vinkona, sem lét ekki bugast þó stundum gæfi á bátinn. Minning- arnar eru margar á okkar löngu samfylgd, aldrei skorti umræðu- efnið og var þá oft farið út um víð- an völl og margir áratugir undir, enda aldrei komið að tómum kof- unum hjá Ásu frænku, hún var hafsjór af fróðleik um alla hluti og hafði stálminni alveg fram að síð- ustu stundu. Það var gaman að heyra frásagnir hennar frá gömlu tímunum, frá æskuárunum í Hlíð, frá fólkinu okkar á bæjunum, grasaferðum, berjaferðum, jurta- tínslu, heyskap, ullarþvotti og tóvinnu, einnig af ferðalögum inn- anlands sem utan og frá- sagnarlistin svo mikil að það var eins og maður hefði verið á staðn- um. Ása var mikil hannyrðakona, listræn, ljóðelsk og unni fallegri tónlist. Við systur höfum ótal margt að þakka fyrir eftir langa samfylgd. Við þökkum fyrir allar heimsóknirnar til okkar, þökkum fyrir laufabrauðsdagana, gaml- árskvöldin, tónleikaferðirnar, hárgreiðslustundirnar og búðar- ferðirnar að kaupa falleg föt, einn- ig fyrir allar yndislegu stundirnar á hennar fallegu heimilum í Hrís- ey og á Akureyri. Nú er komið að kveðjustund- inni, í þetta sinn var ferjumaður- inn tiltækur og frú Áslaug sigldi yfir ána, þakklát og glöð í grænum kjól með hatt. Elsku Ása frænka, Hlíðarsyst- ur og þeirra fólk þakka fyrir allt, minning þín mun alltaf lifa með okkur. Guð geymi þig. Guðrún, Ásta og Kristín Alfreðsdætur. Áslaug Kristjánsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar föður okkar, afa og langafa, JÓHANNS AXELSSONAR. Axel Jóhannsson Viggó Karl Jóhannsson barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.