Morgunblaðið - 11.02.2022, Síða 32

Morgunblaðið - 11.02.2022, Síða 32
32 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2022 40 ÁRA Sigríður er Reykvíkingur en býr á Breiðdalsvík. Hún er með MA-gráðu í félags- ráðgjöf frá Háskóla Íslands og starfar sem fé- lagsráðgjafi á fjölskyldusviði Fjarðabyggðar á Reyðarfirði. Áhugamál hennar eru skíði, ferða- lög og útivist. FJÖLSKYLDA Eiginmaður Sigríðar er Árni Björn Guðmundarson, f. 1977, á og rekur með fjölskyldu sinni verktakafyrirtækið Dal-Björg ehf. Börn þeirra eru Unnar Karl, f. 2004, og Heiðbjörg Helga, f. 2012. Foreldrar Sigríðar eru Páll Ægir Pétursson, f. 1959, fyrrverandi skipstjóri, vinnur nú hjá Félagi skipstjórnar- manna, búsettur í Reykjavík, og Helga Bára Karlsdóttir, 1960, stöðvarstjóri á Orkunni Fitjum, búsett í Reykjanesbæ. Sigríður Stephensen Pálsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Einhver eða eitthvað veldur þér vonbrigðum í dag. Náðu valdi á lífi þínu í dag með því að hugleiða næstu skref. Þú stendur á krossgötum. 20. apríl - 20. maí + Naut Vinur þinn getur haft mikil áhrif á þig í dag með því að fá þig til að skoða hlutina í nýju ljósi. Þú ferð á kostum í vinahópnum. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Það er eitthvað sem ekki geng- ur upp hjá þér. Eitthvað í undirmeðvit- und þinni setur þig í varnarstöðu. Ekki kaupa neitt sem er gallað. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú sérð fram á minni vinnu og betri og meiri tíma til að stunda áhuga- málin. Ekki leita langt yfir skammt. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Allt hefur sinn tíma. Þú réttir úr kútnum fljótlega og allt fer upp á við hjá þér. Ekki segja neitt sem þú gætir séð eftir. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Nú getur þú ekki lengur skotið því á frest að taka ákvörðun í viðkvæmu máli. Það er að koma mynd á fram- kvæmdirnar hjá þér. 23. sept. - 22. okt. k Vog Settu mál þitt fram af skynsemi og sanngirni og þá munu aðrir veita því at- hygli og taka afstöðu. Hlauptu undir bagga með vini. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þú ert að glíma við vanda- mál sem veldur þér miklum heilabrotum. Ekki dæma aðra. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú hefur of miklar áhyggjur af hlutunum. Gakktu ekki fram af þér, það er allt í lagi að verkefni taki nokkra daga. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Leitaðu leiða til að breyta því sem þú ert ekki ánægð/ur með í þínu lífi. Safnaðu upplýsingum um hlutina og taktu svo ákvarðanir á grundvelli stað- reynda. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú ættir að nota daginn til að velta langtímamarkmiðum þínum fyrir þér. Forðastu umfram allt árekstra við samstarfsmenn þína. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Það gerist ekkert, ef þú ert nei- kvæðnin uppmáluð. Stilltu væntingum þínum í hóf, þú getur ekki fengið allt. kom heim frá Bandaríkjunum og var á Orkustofnun í um 12 ár. Enda hafði Þorkell alveg rétt fyrir sér.“ Á Orkustofnun sinnti Ágústa orku- skiptum og eldsneytismálum. Hún vann við stefnumótun í vistvænu eldsneyti og orkuskiptum, safnaði tölfræði um eldsneytisnotkun og hafði umsjón með gerð eldsneyt- isspáa. Jafnframt sá hún um eftirlit með endurnýjanlegu eldsneyti þegar það komst á, þ.e. að tryggja að end- urnýjanlegt eldsneyti uppfylli þær sjálfbærnikröfur sem til þess eru gerðar. Síðla árs 2017 flutti Ágústa sig yfir til Eflu. Þar sinnir hún orkumála- atvinnuumsóknina þar til þess að æfa mig í að sækja um vinnu. Gera flott CV, æfa mig í viðtölum og allt það. Nema hvað, ég gleymdi því að at- vinnuumsókn er samtal, þar sem það er ekki bara umsækjandinn sem er að reyna að sannfæra væntanlegan atvinnuveitanda um það hversu góð- ur umsækjandinn er, heldur er það líka atvinnuveitandinn sem reynir að sannfæra umsækjandann um hvað starfið sé frábært. Þáverandi orku- málastjóri, Þorkell Helgason, sann- færði mig algjörlega um það að Orku- stofnun væri frábær vinnustaður og að starfið væri gríðarlega áhugavert! Svo ég fór að vinna þar strax og ég Á gústa Steinunn Lofts- dóttir fæddist 11. febr- úar 1972. „Á fæðingar- vottorðinu mínu stendur að ég hafi fæðst í Hafn- arfirði, en það er rangt. Í rauninni fæddist ég á bílastæðinu fyrir utan Landspítalann. Þannig var, að þegar ég tilkynnti yfirvofandi komu mína í heiminn fengu mamma og pabbi sjúkrabíl til að keyra okkur öll upp á spítala. Þegar bíllinn var kominn af stað fengu sjúkraflutningamennirnir boð um það að allt væri fullt á Land- spítalanum og flytja ætti mömmu upp á fæðingardeild í Hafnarfirði sem þá var. Bíllinn var samt ekki kominn mjög langt þegar mamma kallaði að barnið væri að koma. Þá var aftur snúið við og brunað niður á Landspít- ala, þar sem ljósmóðir mætti okkur fyrir utan. Þá var kollurinn á mér kominn út og ljósmóðirin kippti rest- inni af mér í heiminn. Í framhaldinu var svo okkur öllum ekið á fæðing- ardeildina í Hafnarfirði, sem var svo staðurinn sem færður var til bókar sem fæðingarstaður. Og í sjálfu sér er ekkert að Hafnarfirði sem fæðing- arstað. En rétt skal vera rétt! Móðurforeldrar mínir bjuggu á Torfastöðum í Fljótshlíð, og þegar talað er um æskuslóðir þá er það staðurinn sem kemur upp í hugann. Ég bjó þar um tíma með móður minni, en dvaldi þar oft þess utan á sumrin og um helgar þegar staðurinn var í eigu mömmu og systkina henn- ar. Við vorum með hesta, og sumrin voru frábær. Um leið og ég var farin að geta beislað hestinn minn, hann Lurk, sjálf, líklega um sjö ára ald- urinn, gat ég farið á hestbak hvenær sem ég vildi. Ég laumaðist út úr húsi eldsnemma þegar allt fullorðna fólkið var enn sofandi og fór í ævintýraleið- angra með Lurki niður á Aura eða upp í Haga.“ Ágústa var í grunnskólanum á Hvolsvelli, fór þaðan í Verzlunarskóla Íslands og svo í Háskóla Íslands þar sem hún lauk B.Sc.-gráðu í eðlisfræði. Hún fór svo í framhaldsnám í Kali- forníuháskóla í Davis, UC Davis, og lauk meistaragráðu í eðlisfræði þar. „Ég sótti um starf hjá Orkustofnun fyrir rælni – ætlaði eiginlega að nota ráðgjöf og vinnur í grunninn mjög svipuð verkefni og hún vann á Orku- stofnun, að frátalinni gagnasöfn- uninni og eftirlitinu. Hún hefur t.d. komið að gerð eldsneytisspáa, sem og ýmissa verkefna sem lúta að grein- ingu á orkuskiptum, út frá ýmsum sjónarhólum. „Það er ótrúlega fjöl- breytt og skemmtilegt, enda vita allir sem eitthvað fylgjast með að orku- skipti og loftslagsmál eru mál mál- anna. Þannig var staðan ekki árið 2005 þegar ég fór fyrst að potast í þessu. Það hefur verið ótrúlega gam- an og mikil forréttindi að fá að taka þátt og fylgjast með í framlínunni öllu því sem hefur verið að gerast í þess- um málum, og byltingunni sem hefur orðið á tíðarandanum.“ Ágústa hefur af og til kennt með- fram annarri vinnu, ýmist eðlisfræði og/eða um endurnýjanlegt eldsneyti, en núna síðustu ár er hún alveg hætt því. „Ég kenndi mest þegar ég bjó á Akureyri, og þá við HA og skóla sem hét School of Renewable Energy.“ Ágústa er formaður Eðlisfræðifélags Íslands og er félagi í Konur í orku- málum. „Það er frábær félagsskapur. Við erum duglegar að vera með alls konar viðburði sem tengjast orku- málum og veita okkur konunum tæki- færi á því að eyða tíma saman, skemmta okkur og fræðast.“ Ágústa hefur skrifað greinar í blöð um end- urnýjanlegt eldsneyti eða orkuskipti. Ágústa Steinunn Loftsdóttir eðlisfræðingur – 50 ára Konur í orkumálum „Þarna fórum við í göngutúr upp á Þorbjörn, sem er fjall ekki langt frá Svartsengi, og skoðuðum svo virkjunina og fengum góðgjörðir þegar við komum niður.“ Orkuskipti mál málanna Í réttum Hjónakornin Ágústa og Björn í Undirfellsrétt árið 2017. Brjóstagjöf Ágústa með yngri syninum, Víkingi Mána. 40 ÁRA Harpa Dögg er uppalin í Kópavogi en býr í Reykjavík. Hún er með BA-gráðu í mynd- list frá Listaháskólanum og MA-gráðu í myndlist frá Konstfack í Stokkhólmi. Hún er myndlistar- maður og hefur haldið sýningar bæði hérlendis og erlendis. Hún hannar umbúðirnar fyrir bjór- fyrirtækið Malbygg. Harpa kennir einnig mynd- list við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Harpa æf- ir íshokkí með meistaraflokki kvenna hjá Fjölni. FJÖLSKYLDA Sambýlismaður Hörpu er Finnur Ragnarsson, f. 1981, hljóðmaður. Dætur þeirra eru tvíburarnir Hekla og Lóa, f. 2010. Foreldrar Hörpu eru Kjartan Ágústsson, f. 1957, og Þóra Sigríður Ingimundardóttir, f. 1959. Þau eiga og reka innflutningsverslunina Járn og gler hf. Þau eru búsett í Kópavogi. Harpa Dögg Kjartansdóttir Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.