Morgunblaðið - 11.02.2022, Qupperneq 34
34 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2022
Reykjavíkurmót kvenna
Fjölnir – Þróttur R................................... 1:6
_ Þróttur R. 16, Valur 12, Víkingur R. 10,
Fjölnir 9, KR 6, Fylkir 0, Fram 0.
_ Þróttur er Reykjavíkurmeistari.
England
Liverpool – Leicester............................... 2:0
Wolves – Arsenal...................................... 0:1
Staðan:
Manch. City 24 19 3 2 57:14 60
Liverpool 23 15 6 2 60:19 51
Chelsea 24 13 8 3 48:18 47
West Ham 24 12 4 8 42:31 40
Arsenal 22 12 3 7 34:25 39
Manch. Utd 23 11 6 6 37:31 39
Tottenham 21 11 3 7 28:27 36
Wolves 22 10 4 8 19:17 34
Brighton 22 6 12 4 23:23 30
Southampton 23 6 10 7 29:36 28
Aston Villa 22 8 3 11 31:35 27
Leicester 21 7 5 9 34:39 26
Crystal Palace 23 5 10 8 32:35 25
Brentford 24 6 5 13 26:40 23
Leeds 22 5 8 9 27:43 23
Everton 21 5 4 12 25:38 19
Newcastle 22 3 9 10 24:44 18
Norwich City 23 4 5 14 14:46 17
Watford 22 4 3 15 23:41 15
Burnley 20 1 11 8 17:28 14
Ítalía
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Atalanta – Fiorentina............................... 2:3
Juventus – Sassuolo ................................. 2:1
Tyrkland
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
Alanyaspor – Adana Demirspor ... (1:1) 5:3
- Birkir Bjarnason var varamaður hjá Ad-
ana sem tapaði 4:2 í vítaspyrnukeppni.
Katar
Al-Arabi – Al Ahli .................................... 2:3
- Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
með Al-Arabi.
Skotland
Glasgow City – Celtic.............................. 2:0
- María Ólafsdóttir Gros kom inn á sem
varamaður hjá Celtic á 65 mínútu.
4.$--3795.$
Grill 66-deild kvenna
Fjölnir/Fylkir – FH ............................. 23:29
Staðan:
FH 15 11 2 2 399:320 24
Selfoss 13 11 1 1 384:314 23
ÍR 13 10 1 2 347:277 21
Grótta 13 7 1 5 330:303 15
Víkingur 14 7 0 7 338:362 14
Fram U 13 5 0 8 354:375 10
Valur U 12 4 1 7 309:349 9
HK U 11 4 1 6 283:287 9
Stjarnan U 13 4 0 9 339:405 8
ÍBV U 11 3 1 7 259:263 7
Fjölnir/Fylkir 14 1 0 13 300:387 2
Þýskaland
Füchse Berlín – RN Löwen ................ 23:20
- Ýmir Örn Gíslason skoraði ekki fyrir Lö-
wen.
Wetzlar – Flensburg ........................... 29:29
- Teitur Örn Einarsson skoraði fjögur
mörk fyrir Flensburg.
Lemgo – N-Lübbecke.......................... 27:22
- Bjarki Már Elísson skoraði þrjú mörk
fyrir Lemgo.
Stuttgart – Kiel.................................... 29:42
- Viggó Kristjánsson skoraði eitt mark
fyrir Stuttgart og Andri Már Rúnarsson
eitt.
_ Efstu lið: Magdeburg 34, Kiel 30, Flens-
burg 29, Füchse Berlín 27, Wetzlar 24,
Göppingen 21, Melsungen 20.
Svíþjóð
Lugi – Guif............................................ 28:29
- Aron Dagur Pálsson skoraði eitt mark
fyrir Guif og Daníel Freyr Ágústsson varði
8 skot í marki liðsins.
%$.62)0-#
Subway-deild karla
Tindastóll – Njarðvík ........................... 84:96
Þór Ak. – ÍR ........................................ 71:108
KR – Vestri ......................................... 106:79
Valur – Stjarnan ................................... 74:78
Staðan:
Njarðvík 15 11 4 1405:1237 22
Þór Þ. 15 11 4 1434:1317 22
Keflavík 14 10 4 1221:1155 20
Valur 15 9 6 1215:1177 18
Stjarnan 16 9 7 1433:1385 18
Grindavík 14 8 6 1177:1157 16
Tindastóll 15 7 8 1301:1359 14
ÍR 16 7 9 1440:1421 14
KR 14 7 7 1261:1296 14
Breiðablik 14 6 8 1501:1449 12
Vestri 15 3 12 1175:1328 6
Þór Ak. 15 1 14 1128:1410 2
NBA-deildin
Cleveland – San Antonio.................... 105:92
Charlotte – Chicago ......................... 109:121
Oklahoma City – Toronto .................. 98:117
Utah – Golden State........................... 111:85
Portland – LA Lakers...................... 107:105
Sacramento – Minnesota ................. 132:119
4"5'*2)0-#
KÖRFUBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Stjarnan gerði góða ferð á Hlíð-
arenda þegar liðið heimsótti Val í úr-
valsdeild karla í körfuknattleik,
Subway-deildinni, í Origo-höllina á
Hlíðarenda í 16. umferð deildarinnar
í gær.
Leiknum lauk með fjögurra stiga
sigri Stjörnunnar, 78:74, en Hilmar
Smári Henningsson var stigahæstur
Garðbæinga í leiknum með 19 stig,
þrjú fráköst og tvær stoðsendingar.
Þetta var annar sigur Garðbæinga
í röð en liðið jafnaði Val að stigum
með sigrinum og er komið í fimmta
sæti deildarinnar í 18 stig á meðan
Valsmenn eru með 18 stig í fjórða
sætinu. Það stefnir því í harða bar-
áttu milli liðanna um heimavall-
arréttinn í úrslitakeppninni en
Grindavík fylgir fast á hæla þeirra
með 16 stig í sjötta sætinu. Grinda-
vík á hins vegar leik til góða á Vals-
menn og tvo leiki til góða á Stjörn-
una.
Robert Turner skoraði 18 stig fyr-
ir Stjörnuna og gaf fimm stoðsend-
ingar en Kári Jónsson átti stórleik
fyrir Val, skoraði 29 stig og tók þrjú
fráköst, en það dugði ekki til.
_ Dedrick Basile átti frábæran
leik fyrir Njarðvík þegar liðið heim-
sótti Tindastól í Síkið á Sauðárkróki.
Leiknum lauk með 96:84-sigri
Njarðvíkur en Basile skoraði 20 stig
í leiknum ásamt því að gefa 10 stoð-
sendingar.
Njarðvíkingar tylltu sér á topp
deildarinnar með sigrinum þar sem
þeir eru með 22 stig en þetta var
fjórði sigurleikur liðsins í röð. Á
sama tíma var Tindastóll að tapa sín-
um fjórða leik í röð og eiga Stólarnir
það á hættu að missa af sæti í úr-
slitakeppninni en liðið er með 14 stig
í sjöunda sætinu.
Fotios Lampropoulos skoraði 17
stig og tók níu fráköst en Javon Bess
var stigahæstur í liði Tindastóls með
25 stig og sex fráköst.
_ Carl Lindbom var stigahæstur
KR þegar liðið vann öruggan sigur
gegn Vestra á Meistaravöllum í
Vesturbæ.
Leiknum lauk með 106:79-sigri
KR en Lindbom skoraði 29 stig,
ásamt því að taka níu fráköst og gefa
sex stoðsendingar.
Með sigrinum fjarlægðust KR-
ingar botnsvæðið verulega og blönd-
uðu sér aftur í baráttuna um sæti í
úrslitakeppninni en liðið er með 14
stig í níunda sætinu. Á sama tíma
eru Vestramenn í slæmum málum
með 6 stig í ellefta og næst neðsta
sætinu, 8 stigum frá öruggu sæti þar
sem Blikar eru með betri innbyrð-
isviðureign á Vestra.
Dani Koljanin skoraði 21 stig fyrir
KR, ásamt því að taka níu fráköst, en
Nemanja Knezevic var stigahæstur
Vestra með 20 stig og tólf fráköst.
_ Sigvaldi Eggertsson fór mikinn
fyrir ÍR þegar liðið vann stórsigur
gegn Þór frá Akureyri í Höllinni á
Akureyri.
Sigvaldi skoraði 21 stig og tók tólf
fráköst en leiknum lauk með 108:71-
sigri ÍR.
ÍR-ingar hafa verið á miklu skriði
síðan Friðrik Ingi Rúnarsson tók við
þjálfun liðsins í byrjun nóvember
þegar liðið sat í tíunda sætinu með 2
stig. ÍR-ingar hafa unnið sex leiki
undir stjórn Friðriks og eru í harði
baráttu um sæti í úrslitakeppninni í
áttunda sætinu. Á sama tíma þurfa
Þórsarar á kraftaverki að halda til
þess að halda sæti sínu í deildinni en
liðið er með 2 stig í neðsta sætinu.
Jprdan Semple skoraði 20 stig og
tók níu fráköst fyrir ÍR en Reginald
Keely var stigahæstur Þórsara með
13 stig og fimm fráköst.
Stjarnan kom
til baka gegn
Val á Hlíðarenda
- Njarðvíkingar tylltu sér á toppinn
með öruggum sigri á Sauðárkróki
Morgunblaðið/Unnur Karen
Sókn Garðbæingurinn Shawn Hopkins sækir að Valsmanninum Callum
Lawson í leik Vals og Stjörnunnar í Origo-höllinni á Hlíðarenda í gær.
Skíðamaðurinn Sturla Snær
Snorrason hefur dvalið í einangrun
á kórónuveirusjúkrahúsi í Peking
frá því á laugardaginn eftir að hann
greindist smitaður á Vetrarólymp-
íuleikunum í Kína. „Ég er innilok-
aður í einhverjum gámi sem er
sirka átta fermetrar,“ sagði Sturla í
samtali við Morgunblaðið í gær en
hann keppir í stórsvigi 13. febrúar
og svigi 16. febrúar á leikunum í ár.
Sturla vonast til þess að losna úr
einangrun í dag en ítarlegt viðtal
við hann má lesa á mbl.is/sport/
adrar.
Ósáttur í
einangrun
Ljósmynd/ÍSÍ
Peking Sturla Snær var annar fána-
beri Íslands á setningarathöfninni.
Atvinnukylfingurinn Haraldur
Franklín Magnús hóf keppn-
istímabilið í Áskorendamótaröðinni
í gær með því að leika fyrsta hring-
inn á móti í George í Suður-Afríku
á einu höggi undir pari.
Hann var á tímabili ofarlega á
listanum eftir að hafa fengið fjóra
fugla í röð á seinni hringnum og
var þá á þremur höggum undir pari
en tapaði síðan tveimur til baka
með því að fá skolla á sextándu og
átjándu holu. Haraldur er í 75.-100.
sæti af 162 keppendum á mótinu
eftir fyrsta keppnisdag.
Góð byrjun í
Suður-Afríku
Ljósmynd/seth@golf.is
Sveifla Haraldur Franklín er í 75.-
100. sæti eftir fyrsta keppnisdag.
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þótt Hólmfríður Dóra Friðgeirs-
dóttir sé með sjötta besta árangur
íslenskrar konu í sætum talið í svigi
á Vetrarólympíuleikum, eins og
fjallað var um í blaðinu í gær, horf-
ir málið öðruvísi við þegar skoðað
er hversu langt hún var á eftir sig-
urvegaranum í greininni.
Hólmfríður Dóra var aðeins 8,89
sekúndum samanlagt í tveimur um-
ferðum á eftir ólympíumeistar-
anum Petru Vlhová frá Slóvakíu
þótt hún hafi endað í 38. sæti í svig-
inu.
Hún er þar með fyrsta íslenska
konan sem er innan við tíu sek-
úndum á eftir sigurvegara í svigi á
Ólympíuleikum. Föðursystir henn-
ar, Ásta Halldórsdóttir, átti metið
en hún var 10,06 sekúndum á eftir
sigurvegaranum, Petru Kronberg-
er frá Austurríki, þegar hún hafn-
aði í 27. sæti í greininni á leikunum
í Albertville árið 1992.
Steinunn Sæmundsdóttir hefur
hinsvegar náð lengst hvað sæti
varðar en hún varð í 16. sæti í Inns-
bruck árið 1976, þá aðeins fimmtán
ára gömul. Nafn hennar misritaðist
í umfjöllun um svigið í blaðinu í
gær.
Björgvin bestur karlanna
Tveir íslenskir karlar hafa verið
innan við tíu sekúndum á eftir sig-
urvegara í svigkeppni Ólympíu-
leikanna. Björgvin Björgvinsson
var 8,09 sekúndum á eftir sigurveg-
aranum Benjamin Raich frá Aust-
urríki þegar hann hafnaði í 22. sæti
á leikunum í Tórinó árið 2006 og
Kristinn Björnsson var 8,75 sek-
úndum á eftir Jean-Pierre Vidal frá
Frakklandi þegar hann hafnaði í
21. sæti á leikunum í Salt Lake City
árið 2002.
_ Enginn Íslendingur keppti á
leikunum í Peking í gær en í nótt
keppti Hólmfríður Dóra í risasvigi,
sinni þriðju og síðustu grein.
_ Þá keppir Snorri Einarsson í
15 km skíðagöngu í dag. Hann er
ellefti í rásröðinni og lagði (leggur)
af stað klukkan 07.05 í morgun.
Sagt er frá árangri Hólmfríðar
og Snorra á íþróttavefnum mbl.is/
sport.
AFP
Peking Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir hafnaði í 38. sæti í sviginu en var
aðeins rúmum átta sekúndum samanlagt á eftir sigurvegaranum.
Sló föðursystur sinni
við í svigkeppninni
- Hólmfríður styst allra á eftir sigurvegara