Morgunblaðið - 11.02.2022, Qupperneq 35
ÍÞRÓTTIR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2022
Vetrarólympíuleikar eru
alla jafna ekki vettvangur þar
sem gerðar eru miklar væntingar
til íslenskra keppenda. Helst er
vonast til þess að þeir skili sér
yfir marklínuna og fái sinn ár-
angur skráðan á spjöld sög-
unnar. Nái þeir að komast fram
fyrir miðjan hóp í sinni grein þyk-
ir það afar vel gert.
Með einni undantekningu.
Eftir að Kristinn Björnsson varð
tvisvar í öðru sæti á heimsbik-
armótum í svigi veturinn 1997-
98 ríkti mikil spenna hér á landi
fyrir Vetrarólympíuleikana í Nag-
ano í Japan í febrúar 1998.
Miklar vonir voru bundnar
við að Kristinn yrði fyrstur Ís-
lendinga á verðlaunapall því
hann hafði sýnt að hann væri til
alls vís í keppni gegn þeim bestu
í íþróttinni.
Kristinn náði hins vegar ekki
að ljúka fyrri ferð í sviginu og þar
með voru vonirnar um íslenskan
verðlaunahafa úr sögunni. Eng-
inn Íslendingur hefur frá þeim
tíma náð að skipa sér í hóp tutt-
ugu bestu í sinni grein á leik-
unum.
Sjálfur varð Kristinn í 21.
sæti í svigi á leikunum í Salt
Lake City fjórum árum síðar og
tókst aldrei að fylgja eftir æv-
intýravetrinum úr heimsbik-
arnum sem áður er getið.
Kristinn bjó og æfði í Noregi
mestallan sinn feril. Þar var hann
kallaður „norski Íslendingurinn“
þegar best gekk og norskir fjöl-
miðlar voru spenntir fyrir gengi
hans í Nagano.
Íslenskt afreksfólk á skíðum,
sérstaklega í alpagreinum, þarf
að búa erlendis og stunda sína
íþrótt þar allan veturinn til að
eiga möguleika á að standa jafn-
fætis erlendum keppinautum.
Aðstaða og veðurfar á Íslandi
hentar einfaldlega ekki, stuðn-
ingur við afreksfólk er lítill og ís-
lenskt skíðafólk gefst upp á
harkinu á meðan það er á besta
aldri og fer að sinna öðru.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Þróttur úr Reykjavík varð Reykja-
víkurmeistari kvenna í knattspyrnu
í fyrsta sinn í sögu félagsins í gær.
Þróttarar unnu öruggan 6:1-
sigur gegn Fjölni í lokaleik sínum í
mótinu í Egilshöll í Grafarvogi.
Þróttarar ljúka keppni með 16 stig
en liðið vann fimm af sex leikjum
sínum í mótinu og gerði aðeins eitt
jafntefli. Þá skoraði liðið 25 mörk í
mótinu og fékk einungis fimm
mörk á sig. Val dugar jafntefli gegn
Fylki hinn 18. febrúar til að tryggja
sér annað sætið en liðið er með 12
stig eftir fimm leiki.
Meistarar í
fyrsta sinn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fyrirliði Álfhildur Rósa Kjart-
ansdóttir lék fimm leiki í mótinu.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir lands-
liðskona í knattspyrnu hefur fram-
lengt samning sinn við þýska meist-
araliðið Bayern München og er nú
samningsbundin til hálfs fjórða árs,
eða til sumarsins 2025. Karólína er
tvítug og kom til Bayern frá
Breiðabliki í árslok 2020. Hún hef-
ur leikið níu leiki með liðinu í efstu
deild og sex leiki í Meistaradeild
Evrópu þar sem hún hefur skorað
tvö mörk. Karólína hefur unnið sér
fast sæti í íslenska landsliðinu og
skorað fimm mörk í fyrstu þrettán
A-landsleikjum sínum.
Hjá Bayern til
ársins 2025
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bayern Karólína Lea Vilhjálms-
dóttir varð þýskur meistari í fyrra.
FRJÁLSAR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Tvö stórmót eru á dagskrá í frjáls-
um íþróttum næsta sumar. Íslands-
methafinn í kringlukasti, Guðni Val-
ur Guðnason, segir árið 2022 vera
mjög spennandi fyrir vikið.
„Maður vill fara inn á stóru mót-
in. HM verður í júlí og EM í ágúst.
Þetta er því ógeðslega spennandi
ár,“ sagði Guðni Valur þegar Morg-
unblaðið spurði hann út í fyrirsjáan-
lega hápunkta á árinu 2022.
Guðni segir að HM verði mjög
áhugavert því það verður haldið í
Eugene í Oregon. Þar er mikil hefð
fyrir frjálsum enda hefur lokamót
NCAA oft verið haldið þar.
„Þar verður svakaleg stemning
og verður örugglega uppselt,“ sagði
Guðni og hann er bjartsýnn á góðan
árangur. „Ég er mjög spenntur fyr-
ir tímabilinu. Tæknilega er ég mjög
góður í kringlunni eins og er. Ég er
búinn að laga nokkur atriði sem
voru aðeins að þvælast fyrir mér í
fyrra. Þetta lítur vel út og nú er
bara að byggja upp hraðann og
negla almennilega á þetta.“
Guðni Valur kastaði yfir 65 metra
í fyrra en gerði hins vegar ógilt í
öllum þremur tilraunum á stóra
sviðinu á Ólympíuleikunum. Var
hann þá að vinna í breytingum í
tækninni?
„Neinei, en tæknin var að stríða
mér. Í staðinn fyrir að ná átaki á
kringluna þá gerðist eiginlega ekki
neitt og hún fór stutt. Það munar
svo litlu varðandi tæknina að kasta
55 eða 65 metra. Getur verið spurn-
ing um að öxlin sé þrjá sentimetra
aftur eða fram. Það gekk ekki
þarna og var auðvitað hundleið-
inlegt.“
Mót í Portúgal í mars
Guðni Valur æfir hér heima að
mestu leyti en kringlukast er ekki í
boði á innanhússmótum eins og
íþróttaunnendur þekkja. Guðni
keppir stundum í kúluvarpi yfir há-
veturinn og lét sig ekki muna um að
varpa kúlunni tæpa 19 metra á
Reykjavíkurleikunum um síðustu
helgi. Hann keppir fyrir Íslands
hönd í kúluvarpi á NM innanhúss í
Svíþjóð um helgina. Hann segist
búast við því að kasta kringlu í
Portúgal í mars.
„Ég mun keppa á vetrarkastmóti
í Portúgal eftir um það bil mánuð.
Mögulega mun ég keppa einnig
helgina eftir og ná þá auka viku við
æfingar en það er óákveðið. Svo
kemur smá hvíld áður en við förum
á fullt í undirbúninginn fyrir stór-
mótin í sumar,“ sagði Guðni en það
er ekki fyrir neina meðalmenn að
ná lágmörkum á stórmót eins og
Ólympíuleika og heimsmeistaramót
í frjálsum. Lágmörkin hafa verið
þyngt verulega síðasta áratuginn.
„Sama lágmark er fyrir HM og
Ólympíuleikana og lágmarkið fyrir
EM er aðeins fyrir neðan. Maður
þarf að ná góðu kasti helst yfir 66
metrana en lágmarkið er á milli 65
og 66 metrar. Vonandi næ ég lág-
marki sem fyrst og krafturinn er
fyrir hendi,“ sagði Guðni Valur.
Samkeppnin skiptir máli
Í sumar mun Guðni þá væntan-
lega þurfa að keppa á alþjóðlegum
mótum til að vera í góðu keppnis-
formi.
„Já, við veljum einhver góð mót.
Þá fær maður einnig stig á stigalist-
anum í Evrópu sem getur hjálpað
til við að komast inn á stórmótin.
Vonandi verða áhugaverð mót
hérna heima einnig þar sem ein-
hverjir sterkir kastarar koma að ut-
an. Með þeim kemur samkeppni og
þá skapast góður andi á mótinu.
Það er svolítið erfitt að vera alltaf
einn og adrenalínið fer af stað þeg-
ar maður fær samkeppni. Ég vona
það besta,“ sagði Guðni Valur sem
segir útlitið gott varðandi líkamann
og meiðsli hafi ekki plagað hann að
neinu ráði síðustu mánuði.
„Ég var í mikilvægum æf-
ingabúðum í kringum jólin á Te-
nerife. Þá fékk maður tækifæri til
að kasta en ég fæ ekki tækifæri til
þess hérna heima. Það er of kalt til
að kasta utandyra á Íslandi á vet-
urna: Það er bara of mikil áhætta,
sérstaklega þar sem maður hefur
verið meiðslapési undanfarin ár. Við
fáum ekki að kasta neins staðar inn-
anhúss hérna á Íslandi. Þeir hafa
neitað okkur um það í Egilshöllinni
og Kórnum en það væri gaman ef
þeir myndu leyfa okkur það,“ sagði
Guðni Valur Guðnason enn fremur í
samtali við Morgunblaðið.
Gæti keppt á tveimur
stórmótum á árinu
- Guðni Valur þarf helst að kasta 66 metra - HM í Eugene verður áhugavert
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Stórmótaár Guðni Valur Guðnason stefnir að því að keppa á heimsmeistaramótinu í Eugene í júlí og á Evr-
ópumótinu í München í ágúst en vonast eftir því að geta kastað kringlu fyrst í Portúgal í næsta mánuði.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Subway-deildin:
Smárinn: Breiðablik – Grindavík........ 18.15
Þorlákshöfn: Þór Þ. – Keflavík............ 20.15
1. deild karla:
Borgarnes: Skallagrímur – Fjölnir..... 19.15
Álftanes: Álftanes – Hamar................. 19.15
Vallaskóli: Selfoss – Höttur................. 19.15
Flúðir: Hrunamenn – ÍA...................... 19.15
Ásvellir: Haukar – Sindri..................... 19.30
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Digranes: Kórdrengir – Valur U ........ 19.30
Selfoss: Selfoss U – Berserkir............. 19.30
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Varmá: Afturelding – KR ......................... 18
Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn:
Miðgarður: Stjarnan – Selfoss ................. 19
Í KVÖLD!
iel sem skoraði sigurmark leiksins
á 25. mínútu af stuttu færi eftir
hornspyrnu.
Arsenal er með 39 stig í fimmta
sætinu, stigi minna en West Ham,
en Arsenal á tvo leiki til góða á
West Ham.
_ Þetta var fyrsti sigurleikur
Arsenal í öllum keppnum síðan 26.
desember.
Diogo Jota reyndist hetja Liverpool
þegar vann 2:0-sigur gegn Leicest-
er í ensku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu á Anfield í Liverpool í gær.
Jota kom Liverpool yfir á 34.
mínútu af stuttu færi í teignum þeg-
ar hann fylgdi eftir föstum skalla
Virgil van Dijk eftir hornspyrnu.
Portúgalinn var svo aftur á ferð-
inni á 87. mínútu þegar Joel Matip
stakk boltanum snyrtilega inn á
hann og Jota skoraði frá vítateigs-
punktinum, fram hjá Kasper
Schmeichel í marki Leicester.
Með sigrinum minnkaði Liver-
pool forskot Manchester City í 9
stig en Liverpool er með 51 stig í
öðru sæti úrvalsdeildarinnar.
_ Diogo Jota hefur skorað 17
mörk fyrir Liverpool á leiktíðinni
og hefur hann aldrei skorað jafn
mikið síðan hann kom til Englands
frá Atlético Madrid árið 2017 en
hann lék áður með Wolves.
Þá er Arsenal komið í fimmta
sætið eftir nauman sigur gegn
Wolves á Molineux-vellinum í Wolv-
erhampton.
Leiknum lauk með 1:0-sigri Ars-
enal en það var miðvörðurinn Gabr-
Liverpool minnkaði forskot City í 9 stig
AFP
Tvenna Diogo Jota var allt í öllu í
sigri Liverpool gegn Leicester.