Morgunblaðið - 11.02.2022, Side 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 2022
FAXAFENI 14, 108 REYKJAVÍK
WWW.Z.IS
ALLT AÐ 70%
AFSLÁTTUR
AF VÖLDUM
VÖRUM
Christian Gether hættir sem safn-
stjóri nútímalistasafnsins Arken í
Danmörku eftir 25 ára starf, en
hann var ráðinn ári eftir opnun
safnsins 1996. „Ég hef ekki farið
leynt með það
gagnvart stjórn-
inni að 25 ára
starfsafmælið
fæli í sér ákveðin
tímamót og því
væri orðið tíma-
bært að láta af
störfum,“ er haft
eftir Gether í
fréttatilkynn-
ingu frá safninu.
Samkvæmt
frétt Politiken eiga starfslokin sér
hins vegar margra mánaða aðdrag-
anda. Í nóvember rituðu 20 starfs-
menn safnsins stjórn þess bréf þar
sem kvartað var undan heilsuspill-
andi vinnuumhverfi sem einkennd-
ist af ógnarstjórnun. Það leiddi til
starfsloka annars yfirmanns. Í
framhaldinu kom það fram að
stjórn safnsins hefði árið 2009 gert
framvirkan lánasamning sem ætlað
var að verja safnið gegn hækkandi
vöxtum, sem þess í stað lækkuðu
með tilheyrandi kostnaði fyrir safn-
ið. Stjórnin sá sig að lokum nauð-
beygða til að losa sig út úr samn-
ingnum árið 2020 þótt það þýddi
tap upp á 211 milljónir íslenskra
króna, eða sem nam öllu eigin fé
safnsins. Það leiddi til þess að Ole
Bjørstorp var neyddur til að láta af
störfum sem stjórnarformaður
Arken eftir 15 ára starf og hætti
jafnframt sem borgarstjóri í Ishøj
eftir 21 ár í starfi.
Fyrir nokkrum vikum kom fram
að 20 starfsmenn hefðu skrifað
stjórninni bréf þar sem kvartað var
undan stjórnunarstíl Gethers þar
sem hann var sagður ráðríkur og
markalaus. Í síðustu viku var safn-
stjórinn síðan harðlega gagnrýndur
fyrir að hygla fjölskyldu sinni fjár-
hagslega þegar hann lét safnið
kaupa þrjú verk af galleríi sonar
síns. Í framhaldinu af þeirri gagn-
rýni sagðist Gether ætla að upp-
færa reglur safnsins um hæfi.
Í frétt Politiken kemur fram að
Gether hafi ekki viljað veita blaðinu
viðtal vegna starfsloka sinna. Hann
mun starfa áfram sem safnstjóri
þar til eftirmanneskja hans hefur
verið fundin. Eva Hofman-Bang,
nýr stjórnarformaður Arken, hafn-
ar því að Gether hafi verið rekinn
heldur hafi hann sjálfur kosið að
fara á eftirlaun.
Safnstjóri Arken hætt-
ir í kjölfar kvartana
- Ráðinn til safnsins ári eftir opnun
Christian
Gether
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Ljóslistahátíðin List í ljósi verður
haldin í sjöunda sinn nú um
helgina, 11. og 12. febrúar, á Seyð-
isfirði og taka nær 30 listamenn
þátt í henni og verkin 27 talsins, að
sögn Sesselju Jónasardóttur sem
er hátíðarstjóri sem fyrr ásamt
Celiu Harrison. Þær búa báðar og
starfa í firðinum og var undirbún-
ingur í fullum gangi þegar blaða-
maður sló á þráðinn til Sesselju í
fyrradag.
Hlíðin í öðru ljósi
Verkin verða sýnd um allan bæ
og ná upp í fjallshlíðar því fossinn
þar sem aurskriðan féll í desember
2020 verður upplýstur með falleg-
um litum, til að varpa öðru ljósi á
hlíðina, eins og Sesselja orðar það.
Hún er beðin að nefna dæmi um
verk á hátíðnni og segir hún mörg
þeirra varpanir á hús, húsin kort-
lögð þannig að verkin falli inn í
húsið og verði lifandi. „Síðan verð-
um við með verk sem heitir „Living
Forest“ sem var líka á Vetrarhátíð
og með því er peningum safnað fyr-
ir Votlendissjóð,“ segir Sesselja en
gestir setja hundraðkall í rauf og
þá fer verkið í gang og tré lifna við.
„Síðan erum við með risastóran
óróa sem hangir niður úr krana,
hann er úr plexígleri sem skín í
gegnum og er rosa fallegt,“ segir
Sesselja. Hún nefnir líka lítið kvik-
myndahús sem verður í rútu og í
því sýndar kvikmyndir á vegum
Flat Earth Film Festival. „Það er
alls konar í boði,“ segir Sesselja.
Komst ekki hjá því að hafa
hátíðina stóra og góða
Hún er spurð hvort listamenn
sækist í miklum mæli eftir því að
taka þátt í hátíðinni og segir hún
svo vera. „Ég ætlaði í rauninni, út
af Covid og aðstæðum í fyrra, að
starta hátíðinni rólega aftur og
hafa í mesta lagi 15 verk en ég bara
komst ekki hjá því að hafa hana
stóra og góða,“ segir Sesselja.
Markmiðið með hátíðinni er að
fagna endurkomu sólar í fjörðinn
og unnendur samtímalistar, fjöl-
skyldur og aðrir gestir fjarðarins
eru hvattir til að láta hana ekki
fram hjá sér fara.
Ljósmynd/Jessica Auer
Augu Verkið „Heiðný’s Eyes“ eftir listamanninn Rafael Vázquez sem sýnt var á hátíðinni í fyrra.
Endurkomu sólar
fagnað með 27 verkum
- Ljóslistaverk lýsa upp Seyðisfjörð í sjöunda sinn
Hátíðarstjórar Sesselja og Celia.
Tilkynnt hefur verið að handhafar
hinna virtu alþjóðlegu Polar-tón-
listarverðlauna séu í ár söngvarinn
Iggy Pop og ein þekktasta hljóm-
sveit sem sérhæft hefur sig í flutn-
ingi nútímatónlistar, Ensemble
intercontemporain. Nemur verð-
launaféð tæplega 14 milljónum
króna.
Iggy Pop hefur oft verið kallaður
guðfaðir pönksins í Bandaríkjunum
en Ensemble intercontemporain
hefur þótt túlka hin ólíkustu krefj-
andi samtímatónverk með snilldar-
legum hætti.
Polar-verðlaunin hafa verið veitt
frá árinu 1989 ólíkum tónlistar-
mönnum og hljómsveitum sem
þykja vera í fremstu röð, og í hvert
sinn eru verðlaunaðir fulltrúar
dægurtónlistar og klassískrar tón-
listar. Til þeirra var stofnað af Stig
Andersson, fyrrverandi umboðs-
manni ABBA. Meðal fyrri verð-
launahafa má nefna Björk, Paul
McCartney, Sting, Yo-Yo Ma, Önnu
Netrebko, Evelyn Glennie, Metall-
ica, Patti Smith, Pink Floyd, Keith
Jarret, Bob Dylan og B.B. King.
Iggy Pop hlýtur Polar-verðlaunin
Ljósmynd/Rob Baker Ashton
Pönkafi Iggy Pop og Ensemble inter-
contemporain hljóta Polar-verðlaunin.
Lionsgate hyggst
dreifa á heims-
vísu væntanlegri
kvikmynd um
Michael Jackson
sem Graham
King framleiðir.
Þessu greinir
Variety frá.
Myndin, sem
nefnist einfald-
lega Michael, verður unnin í sam-
starfi við dánarbú Michaels Jack-
sons, sem gæti haft áhrif á það
hvernig fjallað verður um ásakanir
á hendur tónlistarmanninum þess
efnis að hann hafi misnotað fjölda
barna kynferðislega. Jackson hélt
fram sakleysi sínu allt til dauða-
dags 2009, en hann lést fimmtugur
að aldri.
John Logan, sem þrisvar hefur
verið tilnefndur til Óskarsverð-
launa, skrifar handritið. King og
Logan unnu síðast saman að The
Aviator í leikstjórn Martins Scor-
seses. Stutt er síðan söngleikurinn
MJ var settur upp á Broadway við
misjafnar viðtökur, en í því verki er
fjallað um ævi og tónlist Jacksons
fram til 1992, áður en tónlistarmað-
urinn var fyrst sakaður um kyn-
ferðisofbeldi. Ekki liggur fyrir hve-
nær myndin verður frumsýnd.
Kvikmynd um Michael Jackson í vinnslu
Graham King
Tónlistarfólkið Ed Sheeran og
Taylor Swift hefur loks staðfest
margra vikna orðróm þess efnis að
þau hyggist senda frá sér lag, en
það er væntanlegt í dag. Sheeran
staðfesti útgáfuna þegar hann var
spurður út í orðróminn þegar Brit-
tónlistarverðlaunin voru afhent
fyrr í vikunni og á samfélagsmiðl-
um upplýsir hann að um sé að ræða
endurhljóðblöndun á laginu „The
joker and the Queen“ sem finna má
á seinustu plötu hans sem út kom í
fyrra. Sheeran og Swift, sem eru
bæði meðal söluhæsta tónlistar-
fólks heims, hafa unnið saman
nokkrum sinnum áður, meðal ann-
ars í laginu „Run“ eftir Swift í
fyrra, „End Game“ 2017 og „Every-
thing Has Changed“ 2012.
Von á nýju lagi frá Sheeran og Swift
Ed SheeranTaylor Swift