Morgunblaðið - 15.02.2022, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 15.02.2022, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2022 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Morgunblaðið/Eggert Röð Mikið álag hefur verið á heilsugæslunni vegna kórónuveirufaraldurs. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Nokkurra vikna bið getur verið eftir viðtali við heimilislækni á heilsu- gæslustöð á höfuðborgarsvæðinu, ef beðið er um ein- hvern sérstakan lækni. Biðin er styttri ef fólki vill hitta hvaða lækni sem er. Sú breyt- ing hefur hins vegar orðið á þjónustu heilsu- gæslunnar að fólk getur komið hve- nær sem er dags- ins og fengið við- tal við hjúkrunarfræðing og eftir atvikum lækni. Lesandi sem skráður hefur verið hjá heilsugæslunni í Árbæ í áratugi fær þau svör, þegar hann vill bóka tíma hjá heimilislækninum sínum, að hann komist að eftir mánuð. Hann heyrir að sama bið sé hjá öðrum heilsugæslustöðvum í nágrenninu. Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæð- inu, segir stjórnendur vita af bið þótt ekki hafi verið gerð könnun á biðlist- um alveg nýlega. Hún segir að vel geti verið að fólk þurfi að bíða í ein- hverjar vikur ef það óskar eftir tíma hjá „sínum lækni“. Spurð um skýr- ingar á því nefnir hún skort á heim- ilislæknum, miklar pestir um þessar mundir og kórónuveirufaraldurinn. Á sama tíma og miklar annir séu, meðal annars við eftirfylgd með Co- vid-sýktum, sé Heilsugæslan sjálf að missa fólk í frátafir vegna Covid. Ef fólk er til í viðtal við hvaða lækni sem er, þá sé ekki bið í mánuð. Gott aðgengi á dagvaktinni Sigríður segir að reynt sé að mæta þessu með góðum aðgangi fólks á daginn. Þar geti fólk hitt hjúkrunar- fræðing og sagt frá sínum vanda- málum og eftir atvikum einnig hitt lækni. Opið sé á milli klukkan 8 og 5 á daginn. Tveir til þrír hjúkrunar- fræðingar eru á vakt og þeir hafa, að hennar sögn, ýmis úrræði ef vísa þarf fólki áfram. Svo eru alltaf einn eða tveir læknar á vakt. Þá megi ekki gleyma öðrum úrræðum, að hennar sögn, svo sem að senda fyrirspurnir á „mínar síður“ á Heilsuveru. Segir Sigríður að fólk sé ekki farið að átta sig á umræddum breytingum á þjónustunni. Eigi að síður sé þeim að fjölga sem komi á dagvaktinni. Taka nú á móti fólki allan daginn - Fólk getur þurft að bíða í vikur eftir viðtali við „sinn heimilislækni“ - Ýmis úrræði á dagvaktinni Sigríður Dóra Magnúsdóttir Andrés Magnússon andresmbl.is Siðanefnd Háskóla Íslands (HÍ) hef- ur sagt af sér eftir að Jón Atli Bene- diktsson háskólarektor greindi frá þeim skilningi, að hún hefði enga lögsögu í máli Bergsveins Birg- issonar rithöf- undar gegn dr. Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra. Nefndin segir í yfirlýsingu, sem Morgunblaðið hefur undir hönd- um, að trúnaðarbrestur hafi orðið milli sín og rektors, og að hann hafi lýst eigin skoðun á málavöxtum. „Þetta er alrangt og ég vísa þessu alfarið á bug. Ég hef ekki haft nein afskipti af þessu máli og það er ekki á mínu borði,“ segir Jón Atli rektor í samtali við Morgunblaðið og stað- festir afsögn siðanefndarinnar. „Hins vegar fékk ég fyrirspurn frá öðrum aðilanum, sem er í launa- lausu leyfi frá Háskólanum, um réttarstöðu hans og að sjálfsögðu verð ég að svara slíku bréfi. Í því felst ekki að ég hafi nein efnisleg af- skipti af málinu; ég svara aðeins einfaldri fyrirspurn, líkt og mér ber að gera sem forstöðumaður stofn- unar.“ Ekki undir stjórn HÍ Þegar málinu var skotið til siða- nefndar HÍ leit hún svo á að það væri á sínu forræði, þar sem seðla- bankastjóri væri í „virku ráðning- arsambandi“ við Háskólann, þótt hann væri í launalausu langtímaleyfi þaðan. Þegar háskólarektor komst að öndverðri niðurstöðu taldi hún sér ekki sætt lengur. Rektor rökstuddi niðurstöðuna með því að þeir, sem veitt hefði ver- ið launalaust leyfi á grundvelli verk- lagsreglna HÍ til þess að taka að sér launuð störf annars staðar, væru ekki lengur undir stjórn Háskólans eða boðvaldi rektors og hefðu ekki þær skyldur, sem þeir höfðu meðan þeir störfuðu við Háskólann. Meðal annarra háskólamanna í sams konar leyfi frá HÍ og dr. Ásgeir má nefna Guðna Th. Jóhannesson forseta og Róbert Spanó, dómara við Mann- réttindadómstól Evrópu. Siðanefndin samþykkti afsögnina samhljóða á fundi hinn 7. febrúar síðastliðinn og sendi þremur dögum síðar frá sér yfirlýsingu um hana til skipunaraðila í Háskólanum og málsaðila. Hún hefur ekki komið fram annars staðar og nefndarmenn eru enn tilgreindir á vef HÍ. Siðanefnd HÍ lögsögulaus og sagði af sér - Rektor segir málið ekki á sínu borði - Svara þurfi erindum um réttarstöðu Morgunblaðið/Ómar Háskólinn Umfjöllun málsins bíður skipunar nýrrar siðanefndar. Siðanefnd HÍ » Nefndin er skipuð þremur mönnum. » Formaður er skipaður af há- skólaráði samkvæmt tilnefn- ingu rektors, en Félag háskóla- kennara og Félag prófessora skipa sinn manninn hvort. » Í nefndinni sátu þau Skúli Skúlason formaður, Henry Alexander Henrysson og Sól- veig Anna Bóasdóttir. Jón Atli Benediktsson Björgunarsveitirnar sinntu 214 út- köllum í gær, einkum vegna fastra bíla. Vel tókst að leysa verkefnin, sem flest voru í efri byggðum, en 120 manns tóku þátt í aðgerðunum. Snjómokstursmenn á vegum Reykjavíkurborgar höfðu ekki und- an að reyna að halda götum borg- arinnar opnum þegar snjónum kyngdi niður. Hjalti J. Guðmunds- son, skrifstofustjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, telur líklegt að einhverjar húsagötur verði ekki færar fyrr en seinna í dag eða jafnvel á morgun. Mokstur byrj- aði klukkan þrjú um nóttina og tókst að halda stofn- og tengibrautum að mestu opnum. „Þetta er alvöruvetur í fyrsta skipti í tvö til þrjú ár. Við er- um með öll tæki og mannskap úti. Við reynum að vinna þetta eins vel og hratt og við getum.“ Mikið var um veglokanir og var fólk á illa útbúnum bílum beðið að halda sig heima. Vegirnir um Kjal- arnes, Hellisheiði, Þrengsli og Mos- fellsheiði lokuðust allir vegna veðurs og eru á óvissustigi til klukkan átta í dag. Fylgdarakstur fór fram frá Esjumelum að Hvalfjarðargöngum og til baka á meðan veður leyfði en það stóð stutt. Fjöldi fólks er því veð- urtepptur enn í dag. Þrátt fyrir vonskuveður varð minniháttar röskun á flugi íslensku flugfélaganna í gær. Þetta staðfesta Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsinga- fulltrúi Icelandair, og Nadine Guð- rún Yaghi, upplýsingafulltrúi Play. Útlit er fyrir þokkalegt veður í dag þótt færðin verði til trafala fyrst um sinn. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ófærð Flest útköll björgunarsveitanna voru vegna bíla sem festust í snjónum og ekkert annað að gera en moka. Snjórinn bauð bílaflota borgarbúa birginn - Vegalokanir - Björgunarsveitir sinntu 214 útköllum Morgunblaðið/Eggert Lokað Vegurinn um Kjalarnesið lokaðist vegna snjóþungans. Mörgum þótti mikið til snjósins koma í gær sem hindraði ferðir fólks ýmist beint eða óbeint. Athuganir Veðurstofu Íslands sýndu fram á að snjódýptin hefði náð 25 sentimetrum í Reykjavík klukkan átta um morguninn. Frá þeim tíma- punkti hélt þó áfram að snjóa svo búast má við að sú tala gefi nokkuð hógværa mynd. Önnur snjómælingin fer fram klukkan átta í dag. 25 sentimetra snjór er mikið á reykvískan mæli- kvarða en það eru þó ekki nema fimm ár síðan snjórinn náði 51 sentimetra dýpt. Árið 2015 mældist mesta snjódýptin 44 sentimetrar. 25 senti- metra djúpur SNJÓR MÆLDIST TVÖFALT MEIRI Í REYKJAVÍK 2017

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.