Morgunblaðið - 15.02.2022, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 15.02.2022, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2022 DAGMÁL Karítas Ríkharðsdóttir karitas@mbl.is „Þetta er alvarleg þróun og manni er brugðið,“ segir Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra um nokkur ný- leg skotárásamál á höfuðborgar- svæðinu og fregnir af auknum vopnaburði í undirheimunum. Jón er gestur Karítasar Ríkharðs- dóttur í Dagmálum. Hann segir að málum á borði sérsveitarinnar þar sem vopn koma við sögu hafi fjölgað úr um tvö hundruð á ári í um þrjú hundr- uð. Ennfremur segir Jón að nú virðist fólk tilbúnara að beita vopnum en áður hefur verið. Oftast um uppgjör að ræða „Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að átta okkur á því að í langflestum tilvikum er um að ræða uppgjör á milli glæpagengja eða glæpamanna,“ segir Jón. Engu að síður segir Jón að ör- yggi almennings sé ógnað með aukinni hörku og vopnabeitingu í undirheimunum. Jón segist sannfæður um að ekki sé nauðsynlegt að lögregla gangi almennt um vopnuð skot- vopnum. Fram hafi komið við skoðun mála í ráðuneytinu að reynsla annarra þjóða af notkun lögreglu á rafbyssum hafi gefið góða raun, t.d. í Bretlandi og hjá hinum Norðurlandaþjóðunum. Þetta hafi leitt til þess að dregið hafi úr slysum á brotaþolum og lögreglumönnum um tugi pró- senta. Hann segist vilja skoða upptöku slíkra viðbragða alvar- lega og fyrir liggur að rýna ný- lega skýrslu norsku lögreglunnar um reynslu hennar af rafbyssu- burði lögregluþjóna. „Það sem er undir hér er öryggi borgaranna, sem er algjört grund- vallaratriði,“ segir Jón og bætir við að skýrt sé að hér sé að skjóta rótum aukin skipulögð glæpa- starfsemi. Morgunblaðið/Hallur Dagmál Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra er gestur í Dagmálum. Rafbyssuburður hafi gefið góða raun - Lítur til reynslu Norðurlandanna Guðni Einarsson gudni@mbl.is Stjórn Landssambands lögreglu- manna (LL) ætlar að ræða vopna- burð og öryggi lögreglumanna á fundi sínum í dag. Fjölnir Sæmunds- son, formaður LL, segir að skiptar skoðanir séu um málið. „Almennt held ég að fáir lög- reglumenn vilji vera vopnaðir í vinnunni. Slík vopnavæðing mun kalla á allt annað þjóðfélag en við erum vön og allt aðra nálg- un almennings við lögregluna. Ef lögreglan er vopnuð þá þarf hún að halda fólki í ákveðinni fjarlægð og þá gilda aðrar umgengnisreglur en nú,“ segir Fjölnir.„Við erum með sérsveitina sem er vopnuð. Engir aðrir lögreglu- menn bera vopn að staðaldri. Víða um landið eru skotvopn í læstri hirslu í lögreglubifreiðum. Lögreglu- menn hafa hlotið þjálfun til að nota þau og mega vopnast samkvæmt ákvörðun yfirmanna hverju sinni.“ Auk þess má nefna að lögreglu- menn á Keflavíkurflugvelli hafa stundum borið vopn tímabundið og hefur það þá tengst yfirvofandi hryðjuverkaógn. Fjölnir segir að ef skapast ástand sem krefst vopna sé sérsveitin alltaf kölluð til. Ef langt sé í að aðstoð hennar berist geti al- mennir lögreglumenn vopnvæðst. Það hefur helst gerst úti á landi. „Ég hef áhyggjur af því hvað það virðist vera auðvelt að flytja alls kon- ar skotvopn til Íslands,“ segir Fjöln- ir. „Það virðist vera nóg að segjast vera byssusafnari til að geta flutt hríðskotabyssu til landsins. Mér finnst það vera áhyggjuefni. Ég tel þó að langflestir sem eru með skot- vopnaleyfi passi sínar byssur og læsi þær inni. En það hefur komið fram að skotvopnum hefur verið stolið í innbrotum og þau notuð.“ Fjölnir minnir á að skotvopnum hafi verið beitt gegn lögreglumönn- um á Egilsstöðum í fyrra. Nokkru áður var byssum beint gegn lögreglu án þess að hleypt væri af. Lögreglumenn klæðast öryggis- vestum, svonefndum hnífavestum. Hægt er að setja í þau hlífðarplötur sem gera þau skotheld og eru plöt- urnar til staðar í lögreglubílum ásamt skotheldum hjálmum. Fjölnir segir það taka tíma að setja plöturn- ar í vestin. Þær séu þungar og menn gangi ekki með þær í vestunum nema aðstæður krefjist þess. „Ég held að staða þessara mála sé almennt í lagi hjá okkur og sérsveitin er yfirleitt fljót á vettvang. En mað- ur óttast það versta og finnst styttast í að það geti gerst. Það er ótrúlegt að tvær manneskjur skuli hafa verið skotnar í Reykjavík á minna en einni viku,“ segir Fjölnir. Ræða öryggi og vopna- burð lögreglumanna - Skiptar skoðanir um hvort lögreglan á að bera vopn Lögreglan telur það vera út úr myndinni að skotárásirnar við Ingólfs- stræti í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags og í Grafarholti að- faranótt föstudags tengist skipulagðri brotastarfsemi. „Við teljum að þetta tengist einhverjum einstaklingum. Við erum líka að skoða hvort það eru tengingar á milli þessara mála,“ sagði Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn við mbl.is í gær. Hann bætti við að verið væri að athuga ástæður árásanna og tengsl árásarmanna og fórn- arlamba. Yfirheyrslur stóðu yfir í gær, gagnaöflun og rætt við vitni. Skoða tengingu milli málanna SKOTÁRÁSIRNAR AÐ UNDANFÖRNU Fjölnir Sæmundsson Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vopnuð Sérsveitin er vopnuð í aðgerðum en almennir lögreglumenn ekki. Kosningu næsta formanns og sjö stjórnarmanna í Eflingu stéttar- félagi lýkur klukkan 20 í kvöld og hefst þá talning atkvæða. Vonast er til að niðurstaða geti legið fyrir á ell- efta tímanum í kvöld. Kosningin hefur staðið yfir í eina viku og er bæði kosið rafrænt og skriflega á kjörstað. Þrír listar eru í framboði og keppa þau Ólöf Helga Adolfsdóttir, Sólveig Anna Jónsdótt- ir og Guðmundur Jónatan Baldurs- son um að verða kjörin næsti for- maður félagsins. Um 25 þúsund félagsmenn í Eflingu eru á kjörskrá en ekki hafa fengist upplýsingar um hver þátttakan hefur verið í kosning- unum til þessa. Halldór Oddsson, formaður kjörstjórnar, segir kosn- ingarnar hafa gengið vel og vandað sé vel til verka. „Það hafa engir hnökrar komið upp og framkvæmdin hefur verið eins og best verður á kos- ið hingað til,“ segir hann. Halldór kveðst gera ráð fyrir að flestir sem taka þátt kjósi rafrænt þótt sumir komi á skrifstofuna til að kjósa. Þeir félagsmenn sem vilja ekki kjósa rafrænt eða hafa ekki raf- ræn skilríki geta greitt atkvæði á skrifstofu Eflingar í Guðrúnartúni 1 í Reykjavík eða á skrifstofu félagsins í Hveragerði í Breiðumörk 19. Standa vonir til að talningin taki styttri tíma en í stjórnarkjörinu árið 2018 þegar eingöngu var hægt að kjósa skriflega á kjörstað. „Talning- in á ekki að þurfa að taka langan tíma núna að því gefnu að flestir hafi kosið rafrænt en við sjáum það ekki fyrr en við opnum kassana,“ segir hann. Eftir að kjörfundi lýkur kl. 20 þarf að flytja kjörkassa frá Hvera- gerði á skrifstofu Eflingar í Reykja- vík en Halldór er bjartsýnn á að úr- slit gætu legið fyrir á ellefta tímanum í kvöld ef allt gengur vel. omfr@mbl.is Von á úrslitum fyrir kl. ellefu - Um 25.000 Eflingarfélagar á kjörskrá Morgunblaðið/Unnur Karen Kosningar Agnieszka Ewa Ziół- kowska formaður Eflingar kýs. Í fyrradag greindust 1.890 með kór- ónuveirusmit innanlands og auk þess 62 á landamærunum. Alls greindust því 1.952, samkvæmt bráðabirgðatölum á vefnum covid.is. Greind voru 3.967 innanlandssýni og 778 landamærasýni. Þá voru 11.465 í einangrun og 47 á sjúkrahúsum landsins, þar af þrír á gjörgæslu. Stærsti hópur þeirra sem voru í einangrun var á aldrinum 18- 29 ára eða 2.536. Í gærmorgun lá 41 sjúklingur á Landspítalanum með Covid-19, sam- kvæmt heimasíðu spítalans. Tveir voru á gjörgæslu og var annar þeirra í öndunarvél. Meðalaldur inn- lagðra var 63 ár. Á Covid-göngudeild spítalans voru 7.347 sjúklingar og þar af 2.264 börn. Þá voru Covid-sýktir starfs- menn Landspítalans í einangrun 302 talsins. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Prófun Margir fara í sýnatöku. 7.347 á Co- vid-göngu- deildinni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.