Morgunblaðið - 15.02.2022, Side 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2022
Töfrar eldamennskunnar
byrja með Eirvík
Eldhúsið er ekki bara
herbergi, heldur upplifun
Við hjá Eirvík trúum því að eldhúsið sé hjarta heimilisins.
Innanhússarkítektar og sérfræðingar í heimilistækjum
keppast við að hanna hágæða eldhús sem standast
tímans tönn, með virkni, gæði og sveigjanleika að
leiðarljósi. Eldhúsið er fjárfesting til framtíðar
– tryggðu þér raunveruleg gæði á hagstæðu verði.
Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is.
Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15
Grágæsargassinn Stefnir fékk nóg
af íslenska vetrinum á fimmtudaginn
var og fór til Skotlands, að því er dr.
Arnór Þórir Sigfússon, dýravist-
fræðingur hjá Verkís, greindi frá á
Facebook. Það er óvenjulegur tími
fyrir farflug frá Íslandi.
Gæsir geta
flogið þessa leið á
einum sólarhring
en Stefnir
hreppti mótvind
og var um tvo sól-
arhringa til Kata-
ness. Hann áði
tvisvar, fyrst í um
sex klukkutíma
suðvestur af
Færeyjum og svo
aftur í um níu
tíma norðvestur af Orkneyjum.
Stefnir var merktur með GPS/
GSM-sendi í þjóðgarðinum á Þing-
völlum sumarið 2019, þá minnst 3-4
ára gamall. „Hann var fjölskyldu-
faðir sumarið sem við merktum
hann, með kerlu og unga,“ skrifar
Arnór. Veturinn eftir kom Stefnir á
óvart og dvaldi um haustið í Land-
eyjum þar sem einna mest er skotið
af gæsum á landinu. Hann varði síð-
an vetrinum í Þykkvabæ og Land-
eyjum. Stefnir var fyrsta GPS/GSM-
merkta gæsin sem það gerði.
Stefnir sneri aftur til Þingvalla
um vorið en var þá einhleypur. Arn-
ór taldi að mögulega hefði kerla
hans og ungar verið skotin en hann
lifað af. Stefnir virtist ekki eiga
hreiður um sumarið og var einn á
ferð þegar til hans sást þá. Hann tók
sig upp í lok júní og flaug vestur í
mynni Hvammsfjarðar þar sem
hann felldi fjaðrir. Þar eru þekktar
fellistöðvar grágæsa.
Veturinn 2020/2021 dvaldi Stefnir
aftur í Þykkvabæ og Landeyjum og
lifði af veiðitímann. Arnór sá hann
aftur á Þingvöllum í fyrrasumar og
var Stefnir þá með kerlingu en enga
unga og virtust þau ekki hafa verið
með hreiður um vorið. Kerlan var
merkt með stálmerki. Þegar Stefnir
var merktur var gæs sem þá var tal-
in vera kerla hans með slíkt merki.
Annaðhvort fann Stefnir sína gömlu
eða tók saman við aðra merkta gæs.
Í haust hélt Stefnir fyrri háttum
og fór á þekktar gæsaveiðilendur í
Landeyjum og á Skeiðum. Það leit
út fyrir að hann ætlaði að dvelja í
Þykkvabæ og Landeyjum í vetur,
þar til hann skellti sér til Skotlands.
„Okkur hefur lengi grunað að
þessar gæsir sem þreyja þorrann á
Suðurlandi og víðar hér á landi yfir
veturinn hefðu þennan möguleika,
að skella sér út til Skotlands ef vet-
urinn er harður og langvarandi jarð-
bönn,“ skrifaði Arnór. Hann sagði að
þetta væri áhættusamt ferðalag því
væntanlega væru gæsirnar ekki í
sínu besta formi hvað varðar nægan
forða til fararinnar á þessum tíma.
gudni@mbl.is
Gafst upp á íslenska vetr-
inum og fór til Skotlands
- Gassinn Stefnir brá sér suður á bóginn í síðustu viku
Flug Stefnis
til Skotlands
Heimild: Arnór Þórir Sigfússon
Stoppar 9 tíma norð-
vestur af Orkneyjum
eftir sólarhrings flug
Stoppar í um 6 tíma
suðvestur af Færeyjum
Landeyjar
10. febrúar
Katanes
12. febrúar
Arnór Þórir
Sigfússon
Lögreglan á Norðurlandi eystra,
sem hefur aðsetur á Akureyri, hefur
boðað þrjá blaðamenn í yfirheyrslu,
hið minnsta, fyrir meint brot á lögum
um friðhelgi einkalífsins í umfjöllun-
um sínum um aðferðir „skæruliða-
deildar Samherja“ gegn blaðamönn-
um.
Þeir sem fengið hafa stöðu sak-
bornings í málinu eru Þórður Snær
Júlíusson ritstjóri Kjarnans og Arn-
ar Þór Ingason blaðamaður miðils-
ins, ásamt Aðalsteini Kjartanssyni
blaðamanni á Stundinni.
Er blaðamönnunum gefið að sök
að hafa skrifað fréttir um „skæru-
liðadeild Samherja“ upp úr sam-
skiptagögnum sem gæti talist brot á
hegningarlögum og varðað allt að
eins árs fangelsisvistun.
„Það er óskiljanlegt og í raun
mjög alvarlegt að lögreglan á Norð-
urlandi hafi ákveðið að kalla þrjá
blaðamenn til yfirheyrslu vegna þess
eins að þeir skrifuðu fréttir upp úr
gögnum sem þeir höfðu undir hönd-
um,“ segir Sigríður Dögg Auðuns-
dóttir, formaður Blaðamannafélags
Íslands.
Hún telur það vera ætlun lögreglu
að krefja blaðamennina um uppgjöf
heimildarmanna sinna. Það sé aftur
á móti frumskylda blaðamanna að
vernda heimildarmenn sína og fram-
ferði lögreglu sé því óverjandi.
unnurfreyja@mbl.is
Yfirheyrsla Þórður, Arnar og Aðalsteinn njóta réttarstöðu sakbornings.
Boða blaðamenn
til yfirheyrslu
- Samherjafrétt varði hegningarlög