Morgunblaðið - 15.02.2022, Side 13

Morgunblaðið - 15.02.2022, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2022 vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is Eigum úrval af miðstöðvar- og handklæðaofnum hafðu það notalegt Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær að enn væri nægur tími fyrir Vladimír Pútín Rússlandsforseta til þess að stíga skref til baka frá „bjargbrúninni“, á sama tíma og Johnson varaði við að staðan væri mjög alvarleg í ljósi þess gríðarlega fjölda hermanna, sem Rússar hafa nú safnað saman við landamærin að Úkraínu. Sagði Johnson að styrjöld gæti haf- ist innan tveggja sólarhringa og að merki væru um að Rússar væru farn- ir að undirbúa innrásina af fullri al- vöru. Hvatti Johnson jafnframt ríki Evrópu til þess að læra af reynslunni frá innlimun Krímskagans og reyna að losa sig undan því að vera háð jarð- gasi frá Rússum. Þá væri nú tíminn til þess að standa saman. Þjóðaröryggisráð Breta, COBR, fundaði í gær um brottflutning Breta frá Úkraínu ef til innrásar kæmi, en Johnson ræddi einnig síðdegis við Joe Biden Bandaríkjaforseta um ástandið í deilunni. Munu áfram sækjast eftir aðild Volodymyr Zelenskí, forseti Úkra- ínu, sagði í gær að landið myndi áfram sækjast eftir aðild að Atlantshafs- bandalaginu, þrátt fyrir andstöðu Rússa og efasemdir nokkurra leið- toga á Vesturlöndum. „Ég trúi því að við eigum að halda áfram eftir þeirri braut sem við höf- um valið,“ sagði Zelenskí eftir fund sinn með Olaf Scholz Þýskalands- kanslara, sem heimsótti Kænugarð í dag. Ummæli Zelenskís féllu eftir að sendiherra Úkraínu í Bretlandi gaf í skyn að Úkraínumenn gætu verið „sveigjanlegir“ varðandi það mark- mið að sækjast eftir aðild að Atlants- hafsbandalaginu. Sendiherrann dró ummælin síðar til baka. Scholz sagði að það væri engin rök- rétt réttlæting fyrir þeim fjölda her- manna sem Rússar hefðu komið upp við landamæri sín að Úkraínu, og hvatti hann stjórnvöld í Moskvu til þess að taka aftur upp þráðinn í þeim viðræðum sem hefðu verið haldnar undanfarnar vikur. Sagði Scholz að hann væri staðráð- inn í að veita Úkraínumönnum áfram efnahagsaðstoð, og sagði að ekkert ríki hefði veitt Úkraínu meiri slíka að- stoð en Þýskaland. Þjóðverjar hafa mátt sæta ámæli frá sumum banda- mönnum sínum síðustu vikur, þar sem þeir hafa ekki viljað senda her- gögn til Úkraínu. Zelenskí hvatti Scholz á fundi þeirra til þess að hætta endanlega við Nord Stream 2-jarðgasleiðsluna milli Þýskalands og Rússlands, og sagði hann Rússa hafa nýtt leiðsluna sem „vopn“ í alþjóðasamskiptum sínum. Sagði Zelenskí eftir fundinn að hann og Scholz litu stöðuna á sumum svið- um ekki sömu augum. Scholz hefur til þessa ekki viljað taka af skarið með örlög Nord Stream 2-leiðslunnar, komi til innrásar. „Alltaf möguleiki“ á sáttum Scholz mun í dag halda til fundar við Pútín í Moskvu og reyna að finna lausn á deilunni sem muni afstýra stríði. Vonir á mörkuðum glæddust örlítið eftir að Sergei Lavrov, utanrík- isráðherra Rússlands, sagði í gær á fundi með Pútín sem sýndur var í beinni útsendingu að það væri „alltaf möguleiki“ á sáttum við vesturveldin í Úkraínudeilunni, og að viðræður hans við leiðtoga þeirra hefðu opnað leiðir sem væri þess virði að skoða nánar. Á sama fundi sagði Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra Rússlands, við Pútín að sumum af þeim víðtæku her- æfingum sem Rússar hefðu ráðist í undanfarna daga væri nú að ljúka. John Kirby, talsmaður bandaríska varnarmálaráðuneytisins, sagði hins vegar að Rússar hefðu frekar bætt í liðsafla sinn við landamærin en dregið úr, og sent bæði menn og skriðdreka. M O L D Ó V Í A Ú K R A Í N A Hernaðarlega mikilvæg skotmörk í Úkraínu Flotastöð Herstöð Herflugvöllur Orkuver Kjarnorkuver Brýr yfir Dnjepr-fljót Kænugarður Sevastopol Odesssa 7 herfylki eru í Yelnya 3 herfylki eru í Bryansk 2 herfylki eru í Kursk 17 herfylki eru í Voronezh, Belogorod og Pogonovo Allt að 30.000 rússneskir hermenn eru í Hvíta-rússlandi Allt að 12 her- fylki eru í Rostov 11-12 herfylki eru á Krímskaga 12 herfylki í Transnistríu (Moldóvía) Svartahaf Donetsk Luhansk R Ú M E N Í A R Ú S S L A N D R Ú S S L A N D H V Í TA - R Ú S S L A N D Mögulegar innrásarleiðir Rússa VALKOSTUR 4 Árás meðfram suðurströndinni til að hertaka skurð sem veitir vatni til Krímskaga, sem og að tengja „landbrú“ milli skagans og Rússlands. VALKOSTUR 5 Leiftursókn í gegnum austurhéruðin í átt að Dnípr-ánni. Helstu skotmörk væru stórborgir, raforkuver og herstöðvar. VALKOSTUR 3 Strandhögg frá Krímskaga að Odessa til þess að skera mikilvægar viðskiptaleiðir og dreifa herafla Úkraínumanna. VALKOSTUR 2 Árás frá Hvíta-Rússlandi að Kænugarði, með það markmið að umkringja hana og sitja um borgina í þeirri von að stjórn Zelenskís falli. VALKOSTUR 1 Netárásir og skemmdarverk á helstu innviði (landamæra- stöðvar, raforkuver, stórborgir) til að búa til ringulreið og skapa tylliástæðu til innrásar. 148.000 rússneskir hermenn eru nú við landamæri Úkraínu Pútín stígi frá „bjargbrúninni“ - Johnson segir merki um „alvarlegan innrásarundirbúning“ - Úkraína muni áfram sækjast eftir aðild að Atlantshafsbandalaginu - Scholz heitir efnahagsaðstoð - Lavrov segir enn hægt að finna lausnir Ben Wallace, varnarmálaráðherra Bretlands, tilkynnti í gær að Bretar ætluðu sér að senda hermenn til Litháens á næstunni vegna ástands- ins í Evrópu. Munu hermennirnir taka þátt í ýmsum verkefnum tengdum eftirliti og upplýsinga- öflun, en þeir verða þar ekki á veg- um Atlantshafsbandalagsins. „Bretland og Litháen deila áhyggjum af liðsafnaði Rússa á landamærum Úkraínu og innflytj- endakrísunni á landamærum Lithá- ens og Hvíta-Rússlands,“ sagði Wallace í yfirlýsingu sinni en Bret- ar hafa á síðustu vikum fjölgað nokkuð í herliði sínu í Póllandi og Eystrasaltsríkjunum. Tilkynning Breta kom sama dag og Bandaríkjamenn tilkynntu að átta F-15-þotur væru nú komnar til Póllands til þess að aðstoða við loft- rýmisgæslu þar. Bættust þær þar í hóp átta annarra slíkra, sem komu til Póllands í síðustu viku. Þá til- kynntu Bandaríkjamenn fyrir helgi að þeir myndu senda 3.000 her- menn til viðbótar til Póllands. Bretar senda her- menn til Litháens - Átta F-15-þotur komnar til Póllands AFP Loftrýmisgæsla Átta þotur af gerðinni F-15 komu til Póllands í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.