Morgunblaðið - 15.02.2022, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 15.02.2022, Qupperneq 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2022 Skafrenningur Landsmenn fengu margir hverjir að kenna á vetri konungi í gær. Ökutæki og vegfarendur lentu í vandræðum á fjallvegum sem og í byggð. Eggert „Ég treysti mér ekki til að setja tölu á bak við það en það er ljóst að með því að stofna nýtt ráðuneyti, fleiri en eitt, þá mun verða kostnaður og hann getur hlaupið á hundruðum milljóna,“ sagði Bjarni Bene- diktsson fjármála- ráðherra spurður á Alþingi um kostnað við að stofna tvö ný ráðuneyti og fjölga ráðherrum í ríkisstjórn. Síð- ar kom í ljós að nýju ráðuneytin munu kosta ríkið að lágmarki 1,8 milljarða þetta kjörtímabilið sam- kvæmt svörum frá fjármálaráðu- neytinu sjálfu. Fjármálaráðuneytið upplýsti þá jafnframt um að nokk- ur óvissa væri og að kostnaðurinn gæti orðið nokkru hærri. Fjölmennasta ríkisstjórn í Íslandssögunni Við afgreiðslu fjárlaga í desem- ber síðastliðnum var gert ráð fyrir að ríkissjóður verði rekinn með tæplega 170 milljarða halla þetta árið. Fram undan er krefjandi tími fyrir ríkið sem og almenning. Komandi kjarasamningar í skugga verðbólgu og vaxta- hækkana. Í tengslum við verðbólgu og vaxtahækkanir talar fjármálaráðherra um að það þurfi að vanda sig í opinberri fjármálagerð og áætlanagerð til næstu ára. Hann hefur minnt á að laun og launakostn- aður hafi í fyrra hækkað um sjö og hálft prósent. Engu að síður komst hann að þeirri niðurstöðu eftir átta vikna stjórnarmyndunarviðræður að skynsamlegt væri að fjölga ráðuneytum og auka hraustlega við launakostnað við Stjórnarráðið en biðla kannski bara til annarra að vanda sig. Ákvörðun formanna ríkisstjórnarflokkanna um að fjölga ráðuneytum virðist hafa verið tekin án þess að fyrir lægi greining á kostnaði. Svari við fyr- irspurn um kostnað við stækkun Stjórnarráðsins var síðan ein- hverra hluta vegna dreift til þing- manna örfáum klukkustundum eft- ir að atkvæði voru greidd um málið. Það er spurning hvort þess- ar tölur hefðu hreyft við þing- mönnum ríkisstjórnarflokkanna eða hvort einhugur sé á milli þeirra um þessa meðferð fjármuna á tímum þar sem skilaboðin eru að það þurfi að vanda sig sérstaklega í opinberum fjármálum. Hvers vegna voru ráðuneyti sameinuð eftir hrun? Ríkisstjórn Katrínar Jakobs- dóttur er með þessari breytingu orðin sú fjölmennasta sem hefur verið við völd í meira en áratug. Ráðherrarnir eru jafn margir og þeir urðu flestir í Íslandssögunni sem var á árunum 1999 til 2010. Ráðherrum var svo fækkað í átta árið 2012 með sameiningu ráðu- neyta. Hvers vegna var farið í að fækka ráðuneytum og stækka eftir hrun? Þar réð kostnaður vissulega miklu en ekki síður sú staðreynd að minni ráðuneyti voru einfald- lega veikari. Einn af lærdómum hrunsins var að ráðuneytin höfðu verið of veik til að standa undir mikilvægum hlutverkum sínum og verkefnum. Starfshópur um við- brögð stjórnsýslunnar við rann- sóknarskýrslu Alþingis skilaði af sér skýrslu þar sem fram kom mat á þeim atriðum sem vörðuðu starfshætti Stjórnarráðsins og stjórnsýsluna sérstaklega. Meg- inniðurstöðurnar voru að hinn fag- legi grundvöllur stjórnsýslunnar væri veikur, ekki bara vegna ómarkvissra pólitískra inngripa í störf hennar heldur ekki síður vegna smæðar eininga hennar. Niðurstaðan var skýr um að stærri ráðuneyti séu undirstaða í að styrkja hinn faglega grundvöll stjórnsýslunnar. Það kallaði á átak í sameiningu ráðuneyta og stofn- ana. Nú, áratug síðar, velur ríkis- stjórnin sér að fara gegn þessum niðurstöðum. Með ráðstöfun sem fer skv. þessu gegn hagsmunum Stjórnarráðsins og almennings í landinu. Stærri ráðuneyti styrkja starf þeirra Að baki fjölgun ráðuneyta býr auðvitað engin knýjandi þörf. Eng- in önnur en að fjölga ráðherrum svo valdahlutföllin milli stjórnar- flokkanna haldist. Milljarðakapall- inn er afleiðing þess að Sjálfstæð- isflokkur og Framsókn samþykktu að Vinstri græn héldu þremur ráð- herrastólum þrátt fyrir töluvert fylgistap VG og gjaldið fyrir að langminnsti flokkurinn í samstarf- inu fái samt að leiða ríkisstjórnina. Þá þurfti að jafna leikinn með því að fjölga ráðherrum. Hér þarf að segja hið augljósa: Fyrir það borg- ar almenningur og fyrirtækin í landinu. Þá liggur jafnframt fyrir að inni í þessum tölum er ekki all- ur kostnaður. Annar kostnaður verður t.d. þegar talsverðar til- færslur eru gerðar á starfs- mönnum, en það rask hefur í för með sér kostnaðarsamar tafir. Nýtt Stjórnarráð tók ekki form- lega til starfa fyrr en 1. febrúar, en kosið var 25. september og rík- isstjórn mynduð 28. nóvember. Aftur og aftur sést að þrátt fyrir tal um ábyrgan ríkisrekstur þá er unnið eftir allt annarri hug- myndafræði. Ríkissjóður var enda orðinn ósjálfbær fyrir efnahags- hremmingar heimsfaraldurs. Þeg- ar allar aðstæður voru í lagi var staða ríkissjóðs langt frá því að vera í lagi. Og í því ljósi kemur kannski ekki á óvart að í stjórn- armyndunarviðræðunum hafi for- menn ríkisstjórnarflokkanna sagt hver við annan: Hvað eru tveir milljarðar á milli vina? Eftir Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttur »Hvers vegna var ráðuneytum fækkað eftir hrun? Þar réð kostnaður vissulega miklu en ekki síður að minni ráðuneyti voru einfaldlega veikari. Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Höfundur er þingmaður Viðreisnar. Hvað eru tveir milljarðar milli vina?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.