Morgunblaðið - 15.02.2022, Síða 18

Morgunblaðið - 15.02.2022, Síða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2022 upp á fjórðu hæð íbú- um fjötur um fót, til lausnar hafi Reykja- víkurborg ráðist í dýra breytingu á deiliskipu- lagi þar sem gert er ráð fyrir að hækka megi húsin um eina hæð og muni hún greiða fyrir lyftuna og gott betur. Þegar sé lokið við deiliskipu- lagsbreytingu í Árbæj- arhverfi og sams kon- ar breyting verði gerð fyrir Breiðholt. Enda sé bætt aðgengi að fleiri íbúðum markmið sem Reykjavík vilji vinna að. Formaðurinn minnist ekki á önnur hverfi borgarinnar en víðar er að finna fjögurra og fimm hæða fjölbýlishús en í fyrrnefndum hverfum, Háaleiti, og Melar sem dæmi. En er þá kálið sopið þegar í ausuna er komið? Því fer fjarri, enda segir formaðurinn að frumkvæði verði að koma frá íbúunum sjálfum, annars gerist ekkert. Um eignarrétt Deiliskipulagsbreyting sem leiðir af sér aukinn byggingarrétt er í eigu allra eigenda eftir hlutfallstölum þeirra í viðkomandi eign og allir eig- endur verða að samþykkja fjölgun eigna. Hver er vilji eigenda á fyrstu hæð til þess að taka á sig kostnað við breytingar og rekstur á lyftu? Um burðarvirki Efsta plata í umræddum húsum ber uppi létt þak og er hönnuð til þess að bera eigin þunga og snjó- álag, slíkar plötur uppfylla því ekki kröfur um burðarþol og hljóðvist, úr þessu má bæta með ýmsum hætti, en það kostar sitt. Um lagnakerfi Inndregin fjórða hæð mun varla hafa sömu grunnmynd og aðrar hæðir viðkomandi byggingar og hef- ur það áhrif á lagnaleiðir, hita- og fráveitulagnir. Þá ber að hafa í huga að lagnakerfi bygginganna eru kom- in á lífaldur og gætu haft verulegan kostnaðarauka í för sé svo. Um félagslega þætti Því fer fjarri að aðgengi að íbúð- Fyrir nokkru birtist hér í blaðinu grein eftir Pawel Bartoszek, borg- arfulltrúa Viðreisnar og formann skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar. Inntak grein- arinnar er að á þeim tíma sem Breiðholtshverfi voru í byggingu hafi verið krafist lyftu í hús sem voru fimm hæðir eða meira og því hafi flestöll hús verið byggð fjögurra hæða. Með þessu hafi mátt lækka byggingarkostnað og ungir íbúar hafi gert sér stigana að góðu. Nú hafi lífaldur hækkað og stigarnir um sé heimatilbúinn vandi bundinn við Ís- land. Víða er leitað lausna á því að bæta aðgengið og er þar hægt að líta til ná- grannalanda, en á Norðurlöndum hefur verið unnið að úrbótum um langt skeið. Af hag- kvæmnisástæðum hafa yfirvöld þar styrkt breytingar sem þessar enda munu þær nýtast áfram og draga úr þörf á byggingu dýrra vist- heimila. En að fleiru þarf að hyggja en lyft- um einum en flestar umræddar íbúðir eru með baðkörum sem henta illa eldra fólki. Er inndregin fjórða hæð eina lausnin? Inndregin hæð hefur í för með sér breytt yfirbragð hverfis og skuggavarp og fjölgun íbúða getur kallað á fleiri bílastæði, þessi atriði koma ekki fram í grein formannsins. Þar kann að ráða öfgafull stefna nú- verandi borgaryfirvalda um þétt- ingu byggðar. En fleira er í boði til lausnar, má þar benda á að Félags- bústaðir settu lyftu í stigahús á Meistaravöllum, í þeirra eigu, með því að mjókka stigahlaup og koma fyrir lítilli lyftu sem eftir því sem best er vitað hefur vel þjónað til- gangi sínum. En áður höfðu skipu- lagsyfirvöld neitað Félagsbústöðum um leyfi til þess að byggja inn- dregna fjórðu hæð. Skoða verður mismunandi lausnir vegna hverrar húsagerðar og finna þá hagkvæm- ustu m.t.t. til kostnaðar og fagur- fræðilegra sjónarmiða. Ekkert verð- ur að gert nema til komi fjárframlög og stuðningur yfirvalda eigi árangur að nást. Það er ekki nægjanlegt að gera deiliskipulagsbreytingu og vekja með þeim hætti vonir fólki sem býr við skert aðgengi, slíkt er jafnvel ámælisvert. Sé það raun- verulegt markmið Reykjavíkur- borgar að auka aðgengi að íbúðar- húsnæði á fjórðu hæð verður fleira að koma til en orðagjálfur eitt. Eftir Magnús Sædal Svavarsson »Huga verður að fleiru en deiliskipulagi einu. Magnús Sædal Svavarsson Höfundur er húsasmíðameistari og byggingatæknifræðingur. magnusssva@gmail.com Borgar aukahæðin lyftu? Hinn 10. febrúar sl. birtist í Morgunblaðinu grein eftir Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrver- andi dómara við Hæstarétt Íslands, sem bar nafnið „Minna en hálf sagan sögð“. Er Jón Steinar þar enn við sama heygarðshornið að niðra einstaka dóm- ara Hæstaréttar og fyrrverandi vinnufélaga sína, eins og hann hefur gert árum saman og verið honum til vansæmdar. Ekki hefur það verið að mínu mati eini ljóðurinn á skrifum hans, heldur þessi sjálfbirgingsháttur og hroki, sem oftar en ekki má greina í skrifum hans, þegar hann hefur tjáð sig um lögfræðileg málefni eða gagnrýnt skoðanir annarra. Er eins og hann telji stundum að varla nokkur annar lögfræðingur en hann hafi vit á lög- fræði eða þeir standi í vegi hans á þeim vettvangi. Þeir sem hafa haft aðra skoðun á málum en Jón Steinar hafa oftast dregið við sig að tjá sig eða standa í ritdeilum við hann, þar sem Jón Steinar telur sig alltaf þurfa að eiga síðasta orðið. Þessa aðila brestur yfirleitt úthaldið til að standa í löngum ritdeilum við hann. Ekki á ég von á því, að það breytist nú frekar en áður. Rétt þykir mér að nefna hér, að kynni mín af Jóni Steinari eru ekki önnur en þau, að við sátum sam- an í lagadeildinni á sínum tíma, höfum heilsast á götu, en leiðir okkar hafa ekki legið saman á lífs- leiðinni svo ég muni eftir. Fyrir allmörgum árum birtist í DV viðtal við bar- áttumann einn og báta- smið að atvinnu, sem ég hef oft rýnt í síðan. Af einhverjum ástæðum dettur mér oftast Jón Steinar í hug eftir lesturinn, þótt ég viti fullvel, að hann hefði aldrei sjálfur tekið nákvæmlega svona til orða. Til- efni viðtalsins við þennan baráttu- mann var það, að hann hafði barið lög- mann, sem ekki þótti orð á gerandi, en þegar hann sagði síðar ljótt um annan lögmann, þá fékk hann á sig refsidóm, sem hann var síður en svo sáttur við. Fyrirsögn blaðsins var þessi: „Segist of gáfaður fyrir Hæsta- rétt“. Í upphafi viðtalsins var þetta haft eftir honum: „Ég er of mikil- vægur maður á heimsvísu til að láta svona smámál stöðva mig.“ Í lok við- talsins vandaði hann ekki dómurum landsins kveðjurnar og sagði: „Þetta eru menn sem skortir greind. Ég bið fyrir þessum mönnum. Sjálfur hef ég verið rannsakaður og kom í ljós, að ég væri langt fyrir ofan meðalgreind. Ég er of klár til að láta svona treggáfaða menn hafa slæm áhrif á mig.“ Sjálfur hef ég aldrei verið greind- arprófaður, enda vafalaust því miður efir litlu að slægjast hjá mér í þeim efnum. Skiljast þar með leiðir með mér og þessum áður nefndu tvímenn- ingum. Á hinn bóginn hef ég þó reynt að taka þennan baráttumann mér til fyrirmyndar, hvernig hann reyndi að láta aldrei deigan síga, þrátt fyrir mótlæti, og reynir að finna jákvæðar hliðar á málum. Þetta ætti Jón Stein- ar einnig að prófa, þegar hann telur að vondu kallarnir, sem starfa eða hafa starfað í Hæstarétti Íslands eða „grínistar í Dómarafélagi Íslands“ (sbr. grein hans í Mbl. 6.5. 2021), eða þá einhverjir enn aðrir, séu að svekkja hann eða þvælast fyrir hon- um með sínar skoðanir eða starfsemi. Að öðrum kosti að bera harm sinn helst í hljóði í stað þess að gagnrýna iðulega með ólund aðra, sem hafa ólíka sýn á málin en hann og eru þar með honum ekki að skapi. Við sama heygarðshornið Eftir Jónas Haraldsson »Er eins og hann telji stundum að varla nokkur annar lögfræðingur en hann hafi vit á lögfræði eða þeir standi í vegi hans á þeim vettvangi. Höfundur er lögfræðingur. Jónas Haraldsson Staða Heilbrigðis- stofnunar Suðurnesja hefur á síðustu miss- erum verið mikið til umræðu. Sveitarstjórn- armenn á svæðinu telja ríkið skammta stofn- uninni of lítið til rekstr- arins og alls ekki taka nægjanlegt tillit til þeirrar miklu íbúafjölg- unar sem hefur orðið á svæðinu síðustu mán- uði. Íbúar hafa svo þús- undum skiptir leitað eftir heilbrigðisþjónustu á Reykjavíkursvæðinu. Það er ekki góð þróun. Það skiptir miklu fyrir íbúa Suðurnesja að hér sé öflug og góð heilbrigðisþjónusta. Öldungaráð Suðurnesja hefur marg- oft rætt þessi mál og sent frá sér samþykktir. Nýlega samþykkti stjórn Öldungaráðs Suðurnesja eft- irfarandi áskorun til heilbrigðis- ráðherra: Stjórn Öldungaráðs Suð- urnesja telur að það gæti verið mjög gott innlegg til að efla starf- semi HSS að skipuð væri sérstök stjórn heimamanna til að fylgjast með rekstrinum. Áskorun til heilbrigðisráðherra Stjórn Öldungaráðs Suðurnesja skorar á heilbrigðisráðherra, Will- um Þór Þórsson, að beita sér fyrir því að sett verði á laggirnar sérstök fimm manna stjórn á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja. Stjórnin verði skipuð tveimur fulltrúum frá Reykjanesbæ og sveit- arfélögin Grindavík, Suðurnesjabær og Vogar tilnefni einn fulltrúa hvert. Hlutverk stjórnarinnar verði að fylgjast með rekstri og móta fram- tíðarstefnu í samráði við yfirstjórn HSS. Staða HSS hefur á síðustu árum verið mjög erfið og mikillar gagnrýni gætt meðal íbúa Suðurnesja í garð stofnunarinnar. Íbúum hefur fjölgað mjög síðustu ár og hefur HSS ekki feng- ið fjárveitingu frá Al- þingi í samræmi við það. Afleiðingarnar eru þær að fjöldi íbúa á Suðurnesjum neyð- ist nú til að leita til höfuðborgarsvæðisins eftir grunnheilbrigð- isþjónustu. Sú þróun hlýtur eðli málsins samkvæmt einnig að hafa slæm áhrif á uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á svæðinu. Styrkja þarf Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Nú boða stjórnvöld að til standi að skipa sérstaka stjórn við Land- spítalann í þeirri trú að það muni styrkja og efla stofnunina. Stjórn Öldungaráðs Suðurnesja telur að sömu rök gildi fyrir skipan sérstakrar stjórnar við HSS. Sam- bærilegt fyrirkomulag var áður um HSS og gaf góða raun enda veitti það heimamönnum tækifæri til að fylgjast með rekstri og gera tillögur um hvað betur mætti fara. Það er nauðsynlegt í jafn fjöl- mennu samfélagi og Suðurnesin eru að starfandi sé öflug og sterk heil- brigðisstofnun, sem þjónusti íbúana vel. Það verður best gert með því að fá fulltrúa heimamanna að stjórnarborðinu. Eftir Sigurð Jónsson »Best gert með því að fá fulltrúa heima- manna að stjórn- arborðinu. Sigurður Jónsson Stjórn heimamanna Höfundur er formaður Öldungaráðs Suðurnesja. Fermingarblaðið er eitt af vinsælustu sérblöðum Morgunblaðsins. Fjallað verður um allt sem tengist fermingunni. Fermingarblað Morgunblaðsins kemur út föstudaginn 11. mars AUGLÝSENDUR ATHUGIÐ! NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is SÉRBLAÐ Fasteignir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.