Morgunblaðið - 15.02.2022, Page 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2022
„HVERS VEGNA ERTU ENN MEÐ ÞENNAN
HATT? ÉG ER BÚIN AÐ HENDA HONUM
ÞRISVAR Í RUSLIÐ.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... það sem fær töfra til
að gerast.
ÓÁHUGAVERÐUR
PAPPÍR
KRUMPI
KRUMPI
KRUMP
SKEMMTILEGT
KATTADÓT
HEYRIR HANN Í ÓBOÐNUM GESTI? ÞAÐ ER KOMIÐ AÐ MIÐNÆTURSNARLINU OKKAR!
NEI
VOFF
VOFF
MAÐURINN MEÐ RÖNTGENAUGUN LÁ
ANDVAKA OG STARÐI Á – OG AÐ ÞVÍ ER
VIRTIST – HRÆDDI NÁGRANNANA UPPI.
HÆTTU AÐ
GLÁPA Á
OKKUR!
sölu- og markaðsstjóri SIF Canada.
„Það starf fól í sér að stýra sölu-
teymi er seldi og dreifði sjávaraf-
urðum í bæði Norður-, Mið- og Suð-
ur-Ameríku og bauð upp á að
kynnast mismunandi kúltúr og
fjölda heimsókna á framandi staði.
Árin 2006-2019 starfaði ég sjálf-
stætt á Íslandi við útflutning og
dreifingu sjávarafurða á ýmsa
erlenda markaði, 2006-2010 með
góðum vinum í félaginu Seafood
Union og svo með Róbert Agnars-
syni hjá Fínfiski ehf. 2011-2019.“
Árið 2018 hóf Björgvin Global
Executive MBA-nám við IE Bus-
iness School í Madrid og útskrif-
aðist í desember 2019. „Hér var enn
lagt inn í reynslubankann og stigið
út fyrir þægindarammann. Fólk af
um 20 þjóðernum með mikla
reynslu bæði úr lífi og starfi kom
þarna saman og var þessi tími bæði
fróðlegur og gefandi.“ Björgvin hóf
störf hjá Íslenskum verðbréfum hf.
samhliða MBA-námi árið 2019 og
starfar þar í dag. „Það er í raun
fyrsta sinn sem ég stíg út úr sjávar-
útveginum sem ég hef átt í miklum
tengslum við frá unga aldri. Að
skipta um starfsvettvang bauð þá
enn og ný upp á að fræðast, takast á
við öðruvísi verkefni og kynnast
nýju fólki.“
Björgvin er stjórnarformaður
Sjótækni ehf. og situr í aðalstjórn
Breiðabliks. Helstu áhugamál hans
eru útivera og hreyfing. „Ég stunda
skíði, golf og léttari veiðiskap, hef
gaman af bæði skot- og stangveiði.
Vegferðin hefur legið víða á þeim
50 árum sem ég hef upplifað. Tel
mig lánsaman að hafa fengið og nýtt
tækifæri til að takast á við marg-
víslegar áskoranir, upplifa margt og
kynnast mörgu skemmtilegu fólki
gegnum tíðina. Vinskapur við æsku-
vini, skólafélaga frá mismunandi
lífsskeiðum, vinnufélaga og annað
fólk af lífsleiðinni eru mér mikil
verðmæti. Úr skóla lífsins finnst
mér standa upp úr mikilvægi þess
að sýna umburðarlyndi og virðingu
fyrir mismunandi kúltúr og sjón-
armiðum. Þá eiga allir skilið tæki-
færi og svo er undir hverjum og ein-
um að nýta þau.“
Fjölskylda
Eiginkona Björgvins er Þuríður
Stefánsdóttir, f. 2.2. 1974, gæða- og
verkefnastjóri hjá Innnes ehf. Þau
búa í Hálsaþingi í Kópavogi. For-
eldrar Þuríðar eru Birna Gunn-
laugsdóttir, f. 28.12. 1950, og Stefán
Benediktsson, f. 2.10. 1950. Fyrri
eiginkona Björgvins er Íris B. Jóns-
dóttir, f. 18.6. 1974, hjúkrunarfræð-
ingur.
Börn Björgvins og Írisar eru
Bjarki, f. 23.1. 1998, Birta Margrét,
f. 15.6. 2000, og Benedikt Ísar, f. 2.7.
2006. Stjúpbörn Björgvins og börn
Þuríðar eru Þorgils Sigurðsson, f.
29.9. 1997, og Sigurjóna Sigurðar-
dóttir, f. 12.8. 2001.
Systir Björgvins er Ósk Ágústs-
dóttir, f. 20.4. 1983, snyrtifræðingur
og nemi í félagsfræði við HÍ.
Móðir Björgvins er Margrét
Sigríður Guðmundsdóttir, f. 19.11.
1948, verkakona, húsmóðir og hetja,
búsett í Kópavogi. Stjúpfaðir
Björgvins er Ágúst H Guðjónsson,
f. 15.4. 1948, verktaki, búsettur á
Hólmavík.
Björgvin
Gestsson
Bjarney Þórðardóttir
húsmóðir á Siglufirði
Kristinn Andrés Meyvantsson
beykir á Siglufirði
Karólína Kristinsdóttir
húsmóðir í Kópavogi
Guðmundur Björgvin Guðmundsson
málarameistari í Kópavogi
Margrét Sakaríasdóttir
húsmóðir á Ísafirði
Guðmundur Guðjónsson
skipasmiður á Ísafirði
Ætt Björgvins Gestssonar
Margrét Sigríður
Guðmundsdóttir
húsmóðir í Kópavogi og
fv. verkakona
Á laugardag skrifaði Gunnar J.
Straumland í Boðnarmjöð:
„Í hvassviðrinu um daginn tók ég
á það ráð að kveða fjandvin okkar
hann Kára niður. Í dag er stillt og
fallegt veður. – Ekkert að þakka“:
Lamist bárur, lygni á ný,
lurða á Kára skíti.
Byljafjári farðu í
fjandansáravíti.
Kristjana Sigríður Vagnsdóttir
svaraði:
Bylgjan ekki bað um frý
byltist um og krefur:
Upp hún brýst hér aftur ný
uns í logni sefur.
„Ýmsar afléttingar“ verða Sig-
urlín Hermannsdóttur að yrkisefni:
Hænufetum fjölgar, met ég, frekar bratt.
Bráðum getum grímur kvatt,
glóey vetur styttir hratt.
Ólafur Stefánsson hugsar til eyði-
staða á Vestfjörðum þar sem langa-
langafi var bóndi og prestur á
nítjándu öld:
Eytt er flest í alda rás,
af er hurð og kengur.
Bóndi sem var burðarás
býr þar ekki lengur.
Höskuldur Búi Jónsson kveður
„vetrarhækur“:
Þraut er þorratíð
þekur gróður fönnin köld
frostið bítur fast.
Fuglar kroppa fræ
flögra um og dusta snjó
kalda grípa grein.
Brimið hefur hátt
hávellurnar kallast á
sígur vetrarsól.
Maðurinn með hattinn kvað:
Lífsins kvöld er langt í burt
þó lítt þig um það varði,
ég er frísk og fögur jurt
í frjóum lystigarði.
„Appelsínugular viðvaranir“ verða
Bjarna Sigtryggssyni að yrkisefni:
Á Boðnarmiði býðst manni að yrkja
og bestu stöðvar heila síns að virkja.
En sífellt háir anda
og setur mann í vanda
er vetrarstormar vilja hugans kyrkja.
Hallmundur Guðmundsson spyr:
Nú sólin hjá mér sýnir prjál,
sindrar innum glugga.
Hvurt er farið kul og bál,
kafaldshríð og mugga?
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Afléttingar, veðrið
og vetrarhækur