Morgunblaðið - 15.02.2022, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2022
Antwerp Giants þarf á góðri
frammistöðu að halda í síðari leikn-
um í undanúrslitum belgísku bik-
arkeppninnar í körfuknattleik eftir
tap fyrir Oostende á útivelli í fyrri
leiknum í gær 90:78.
Antwerp á síðari leikinn til góða
á heimavelli til að komast í bikar-
úrslitaleikinn í Belgíu.
Leikstjórnandinn Elvar Már
Friðriksson gerði það sem hann gat
fyrir Antwerp. Skoraði 17 stig en
gaf að auki sjö stoðsendingar á
samherjana. Elvar var með 43%
hittni fyrir utan 3-stiga línuna.
Verk að vinna
hjá Antwerp
Ljósmynd/FIBA
Hittinn Elvar Már Friðriksson er
skæður fyrir utan 3-stiga línuna.
Knattspyrnudeild Selfoss hefur sam-
ið við taílensku landsliðskonuna Mi-
röndu Nild. Hún er 25 ára sókn-
armaður sem var síðast á mála hjá
Kristianstad í Svíþjóð. Nild lék með
Kristianstad sem lánsmaður frá
bandaríska úrvalsdeildarliðinu OL
Reign en hún hóf atvinnumannsfer-
ilinn með FC Gintra í Litháen árið
2019. Björn Sigurbjörnsson, nýráð-
inn þjálfari Selfyssinga, var aðstoð-
arþjálfari hjá Kristianstad og ætti
því að þekkja Nild vel. Sif Atladóttir
er einnig komin til Selfoss frá Kristi-
anstad. sport@mbl.is
Ljósmynd/Selfoss
Landsliðskona Miranda Nild leikur
á Íslandi á næsta keppnistímabili.
Frá Kristianstad
til Selfyssinga
Í LOS ANGELES
Gunnar Valgeirsson
gval@mbl.is
Forráðamenn Los Angeles Rams
höfðu lagt allt í sölurnar til að vinna
NFL-titilinn í ár eins og bent hefur
verið á í þessum pistlum á undan-
förnum vikum, en eftir að kantmað-
urinn Odell Beckham Jr meiddist í
fyrri hálfleik úrslitaleiks Rams og
Cincinnati Bengals á SoFi-
leikvanginum hér í Los Angeles á
sunnudagskvöldið, riðlaðist sókn-
arleikur Rams nokkuð.
Beckham var þriðji kantmaðurinn
í sóknarliði Rams sem meiddist á síð-
ustu vikum og þar var ljóst að án
þeirra yrði þetta erfiðara fyrir
heimamenn en ætlað var.
Varnarlið Bengals, sem talið var
veikleiki liðsins, gekk á lagið í seinni
hálfleiknum og lokaði á ruðnings-
tilraunir Rams. Eini kantmaðurinn
sem eftir var hjá Rams, Cooper
Kupp, reyndist hins vegar nóg á end-
anum. Hann var tvívaldaður af varn-
armönnum Cincinnati eftir að Beck-
ham meiddist og öll pressan var á
Kupp – sem var kosinn sóknar-
leikmaður ársins í deildinni – að gera
eitthvað sérstakt.
Gerðu út um leikinn
með snertimarki
Hann hélt síðustu sóknartilraun
Rams á lífi með frábæru hlaupi með
boltann þegar svo virtist sem vörn
Cincinnati ætlaði að taka vald á bolt-
anum þegar tvær mínútur voru eftir.
Kupp var síðan ólöglega „haldið“ af
varnarmönnum Bengals á síðustu
mínútunni, sem gaf leikstjórnand-
anum Matthew Stafford tækifæri á
að róa sóknarliðið niður. Stafford og
Kupp gerðu svo út um leikinn með
snertimarki tveimur tilraunum
seinna til að gera út um leikinn.
Lokatölur urðu 23:20 fyrir Rams eft-
ir að Bengals hafði komist í 20:13.
Stafford var hissa á að vörn Cinc-
innati tvívaldaði Kupp ekki í lokin.
„Þegar ég sá að það voru ekki tveir
menn á Cooper [Kupp] var ég ekki í
vafa um hvert ég átti að senda bolt-
ann. Ég kom honum á minn mann.
Stjörnur Rams tóku yfir í lokin
Cooper Kupp var kosinn maður
leiksins, enda öll pressan á honum
eftir að Beckham meiddist og hann
skoraði tvö mikilvæg snertimörk eft-
ir sendingar Stafford í leik þar sem
hvert stig var dýrmætt.
„Ég er orðlaus núna,“ sagði hann
við fréttamann NBC-sjónvarpsstöðv-
arinnar strax eftir lok leiksins. „Ég
er svo þakklátur samherjum mínum
fyrir að leggja grunninn að því sem
ég náði að gera í kvöld. Varnarmenn
Bengals spiluðu vel í kvöld, en ég
náði að skapa smá pláss í endamark-
inu í lokin og Matt [Stafford] kom
boltanum hárfínt á réttan stað fyrir
mig að ná valdi á honum.“
Þótt Stafford og Kupp hefðu náð
að fara í gang á réttum tíma í lokin til
að vinna leikinn, hefði sú leiklota
heimamanna aldrei orðið jafn mik-
ilvæg ef varnarlið Rams hefði ekki
staðið við þær væntingar sem til þess
voru gerðar fyrir þennan leik. Varn-
arlið Rams gaf hinum unga leik-
stjórnanda Bengals, Joe Burrows,
aldrei nægan frið í seinni hálfleiknum
til að gera út um leikinn þegar þeir
náðu forystunni. Varnarmenn Rams
tækluðu hann sjö sinnum í grasið og
settu mikla pressu á Burrows í 18 af
33 sendingatilraunum hans í leikn-
um.
Það var við hæfi að besti varn-
armaður Rams, Aaron Donald í sókn-
arlínunni, tæklaði síðan Burrows í
leikslok til að gera út um leikinn.
Stuðningsfólk Bengals
fjölmennara
Þótt þetta hafi kannski ekki verið
eins skemmtileg sýning sóknarlið-
anna og margir höfðu vonað, var leik-
urinn mjög spennandi og í seinni
hálfleiknum var það bara spurning
um hvort sóknar- eða varnarliðið
myndi taka af skarið. Stjörnum
prýdd liðin hjá Rams gerðu það í lok-
in.
Mikil stemning var á áhorf-
endastæðunum í seinni hálfleiknum í
þessum leik, enda leikurinn jafn og
mikið í húfi. Mun fleiri áhorfendur á
leikvanginum voru á bandi gestanna
og augljóst var að margt stuðnings-
fólk Bengals, sem beðið hafði í 31 ár
eftir að komast í þennan úrslitaleik,
hafði farið á endursölumarkaðinn í
miðasölunni og fórnað miklu til að
styðja liðið.
Ég talaði við nokkurt af þessu fólki
fyrir leikinn, enda mætti ég þremur
tímum fyrir leikinn á SoFi-
leikvanginn þar sem ég vissi að um-
ferðin í kringum leikvöllinn yrði
sturluð eftir það. Fólkið frá Ohio var
allt yfir sig hrifið af leikvanginum, en
yfirgaf hann þó vonsvikið.
Cincinnati átti hins vegar frábært
keppnistímabil og hér er lið á upp-
leið.
Stafford og
Kupp sáu
um Bengals
AFP
Aðalmenn Matthew Stafford og Cooper Kupp tryggðu Rams meistara-
titilinn eftir að liðið var komið með bakið upp við vegg á lokakaflanum.
- Varnarlið Rams stóðst væntingar og
NFL-titillinn er kominn til Los Angeles
_ Danski knattspyrnumaðurinn
Christian Eriksen lék sinn fyrsta leik í
átta mánuði í gær, eða síðan hann
hneig niður í leik Dana og Finna á EM
síðasta sumar. Hann lék æfingaleik
með Brentford gegn Southend, fyrir
luktum dyrum, og lagði upp mark í 3:2
sigri. Dagurinn var líka merkilegur fyr-
ir Eriksen að öðru leyti því hann átti
þrítugsafmæli í gær. Thomas Frank
knattspyrnustjóri Brentford sagði um
helgina að hann væri bjartsýnn á að
Eriksen myndi spila með liðinu í deild-
inni áður en febrúar væri úti hann er
samningsbundinn út þetta tímabil.
_ Knattspyrnumaðurinn Óttar Magn-
ús Karlsson er að ganga til liðs við
Oakland Roots sem leikur í bandarísku
B-deildinni eða USL-deildinni sam-
kvæmt Fótbolta.net. Óttar er samn-
ingsbundinn Venezia í ítölsku A-
deildinni. Hann lék fyrri hluta yfir-
standandi tímabils á láni hjá Siena í
ítölsku C-deildinni.
_ Enska knattspyrnuliðið Newcastle
varð fyrir áfalli þegar bakvörðurinn
Kieran Trippier fótbrotnaði í sigur-
leiknum gegn West Ham á sunnudag.
Trippier var keyptur frá Atlético Mad-
rid í janúar og kom sterkur inn í lið
Newcastle sem hefur bætt stöðu sína
verulega og er komið fjórum stigum
upp fyrir fallsæti. Myndataka leiddi í
ljós brot í beini í ristinni og hann verð-
ur frá keppni um óákveðinn tíma.
_ Enski landsliðsmaðurinn Jack
Grealish verður ekki með enska meist-
araliðinu Manchester City þegar þráð-
urinn verður tekinn upp að nýju í
Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í
kvöld vegna meiðsla. City mætir
Sporting frá Lissabon í kvöld þegar 16-
liða úrslitin hefjast.
Eitt
ogannað
Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna verða formlega endurvakin með
stofnfundi í Iðnó í Reykjavík föstudaginn 25. febrúar. Þau voru áður stofn-
uð árið 1990 en hafa legið í dvala um nokkurt skeið.
„Á Íslandi hafa hlutirnir aðeins staðnað þegar kemur að kvennaknatt-
spyrnunni og því ákváðum við að endurvekja hagsmunasamtökin,“ sagði
Anna Þorsteinsdóttir, talskona samtakanna, við Morgunblaðið í gær.
„Þegar við horfum til Evrópu þá eru mörg lönd að síga fram úr okkur.
Það er verið að setja meiri pening í kvennaboltann og aðsókn á leiki hjá
kvennaliðum hefur aukist til muna. Okkur fannst kominn tími til þess að
taka þátt í því sem er að gerast í Evrópu.
Við höfum fundið fyrir miklum meðbyr undanfarna daga og það er
margt jákvætt að gerast innan knattspyrnuhreyfingarinnar sem snýr að
kvennaboltanum. Í fyrsta sinn í sögu KSÍ er kvenkynsformaður að störfum
og okkur fannst þetta því góður tímapunktur til þess að endurvekja sam-
tökin. Samtökin eru opin öllum og við ákváðum að einskorða þetta ekki
bara við knattspyrnukonur heldur eru allir velkomnir sem vilja vinna að
settum markmiðum, hvort sem það eru leikmenn, fyrrverandi leikmenn,
áhugafólk um fótbolta eða bara foreldrar barna og unglinga sem stunda
eða hafa stundað íþróttina,“ sagði Anna en viðtalið í heild er á mbl.is.
Hagsmunasamtök endurvakin
Bikarmeistarar Vals í karlaflokki í handbolta þurfa að vinna tvö neðstu lið
úrvalsdeildarinnar, HK og Víking, til að komast í undanúrslit Coca Cola-
bikarsins. Bikarmeistarar kvenna þurfa aðeins einn leik, KA/Þór situr hjá
í sextán liða úrslitum og fær svo heimaleik gegn öðru tveggja neðstu liða
úrvalsdeildar, Aftureldingu eða HK. Sextán liða úrslitin hefjast í kvöld en
þó var dregið til átta liða úrslitanna í hádeginu í gær. Í karlaflokki mætast:
Valur eða HK – Vængir Júpíters eða Víkingur
Stjarnan eða KA – Grótta eða Haukar
Hörður eða FH – Þór
ÍR eða Selfoss – Kórdrengir eða ÍBV
Í átta liða úrslitum kvenna mætast þessi lið:
Valur – Selfoss eða Haukar
ÍR eða Grótta – Víkingur eða Fram
Fjölnir/Fylkir eða ÍBV – FH eða Stjarnan
KA/Þór – Afturelding eða HK
Sextán liða úrslitin hefjast í kvöld og lýkur á fimmtudagskvöldið og 8-
liða úrslitin fara svo fram um næstu helgi, 19.-20 febrúar. Úrslitahelgin er
síðan 9.-13. mars á Ásvöllum í Hafnarfirði en Valur á titil að verja í karla-
flokki og KA/Þór er ríkjandi bikarmeistari kvennamegin.
Hagstætt fyrir bikarmeistara
England
B-deild:
WBA – Blackburn .................................... 0:0
Staðan:
Fulham 30 19 7 4 78:26 64
Bournemouth 30 17 7 6 49:26 58
Blackburn 32 15 9 8 45:33 54
QPR 30 15 7 8 46:34 52
Huddersfield 32 13 11 8 40:34 50
Middlesbrough 30 14 7 9 38:29 49
Nottingham F. 31 13 8 10 43:33 47
WBA 31 12 10 9 34:26 46
Sheffield Utd 29 13 7 9 39:33 46
Luton 30 12 9 9 41:36 45
Preston 32 11 12 9 35:35 45
Coventry 29 12 8 9 39:34 44
Stoke City 30 12 7 11 38:32 43
Blackpool 31 11 8 12 34:37 41
Millwall 30 10 10 10 31:33 40
Swansea 30 10 8 12 32:39 38
Bristol City 32 10 7 15 42:58 37
Birmingham 32 9 9 14 37:49 36
Hull City 31 9 5 17 26:36 32
Cardiff 30 9 5 16 36:50 32
Reading 30 8 4 18 36:60 22
Peterborough 29 5 5 19 23:60 20
Derby 31 9 12 10 32:35 18
Barnsley 30 3 8 19 19:45 17
Tyrkland
Adana Demirspor – Besiktas ................. 1:1
- Birkir Bjarnason lék fyrstu 66 mínút-
urnar með Adana Demirspor.
_ Efstu lið: Trabzonspor 60, Konyaspor 48,
Adana Demirspor 41, Istanbul Basaksehir
40, Alanyaspor 40, Fenerebahce 40, Hatay-
spor 39, Besiktas 38.
Katar
Emir-bikarinn, 16-liða úrslit:
Al-Arabi – Al Sailiya ............................... 0:2
- Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
með Al-Arabi.
50$99(/:+0$