Morgunblaðið - 15.02.2022, Side 27

Morgunblaðið - 15.02.2022, Side 27
sóknirnar eru stuttar. Mikið hefur verið skorað í mörgum leikjum liðs- ins fyrir vikið. Breiðablik hefur unn- ið góða sigra undanfarið en að þessu sinni var útkoman ekki góð. Segja má að Blikum hafi verið kippt niður á jörðina en á undanförnum vikum hafa þeir unnið KR, Tindastól og Grindavík. Breiðablik er með 14 stig eins og Tindastóll, ÍR og KR í 7.-10. sæti. Hrukku í gang með látum Grindavík fór upp að hlið Vals með sigri, 99:92, þegar liðin mættust í fjörugum leik í Grindavík. Liðin eru bæði með 18 stig í 4.-6. sæti deildarinnar eftir 16 leiki rétt eins og Stjarnan. Valsmenn voru ferskari framan af leiknum í Grindavík. Að loknum fyrri hálfleik voru þeir yfir, 51:39, en í þriðja leikhluta hrukku heimamenn í gang með látum. Þá settu þeir nið- ur hvert þriggja stiga skotið á fætur öðru og komust yfir fyrir síðasta leikhlutann. Grindavík skoraði 37 stig í þriðja leikhlutanum og slökkti nánast í Valsliðinu um leið sem skoraði að- eins 17 stig í síðasta leikhlutanum. Grindvíkingar eru skæðir í þriggja stiga skotunum á góðum degi og í gær settu þær niður nítján slík og voru með 55% hittni fyrir utan þriggja stiga línuna. Það munar um minna í jöfnum leikjum. Elbert Matthews skoraði 27 stig fyrir Grindavík, Naor Sharabanien 23 og Kristinn Pálsson 17 stig. Þeir settu niður fimmtán þriggja stiga skot. Kári Jónsson skoraði 19 stig fyrir Val en hann setti niður fjóra þrista í sex tilraunum. Pablo Ber- tone skoraði einnig 19 fyrir Val. _ Tveimur leikjum sem fram áttu að fara í gærkvöld var frestað vegna veðurs og ófærðar. KR-ingar kom- ust ekki til Sauðárkróks þar sem þeir áttu að mæta Tindastóli og Vestramenn komust ekki til Akur- eyrar þar sem þeir áttu að mæta Þór í uppgjöri neðstu liða deildarinnar. Þessum leikjum, og hinum tveimur sem fram fóru í gærkvöld, hafði áður verið frestað vegna kórónuveirus- mita, þannig að enn verður bið á því að búið verði að hreinsa upp allar frestanir síðustu vikna og mánaða í deildinni. Meistararnir fá gott aðhald - Keflvíkingar til alls líklegir eins og í fyrra - 19 þristar hjá Grindvíkingum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Leikstjórnandinn Hörður Axel Vilhjálmsson gaf 12 stoðsendingar á liðs- félaga sína í Keflavík. Hann vantaði eitt stig og eitt frákast til að ná þrennu. KÖRFUBOLTINN Kristján Jónsson kris@mbl.is Keflvíkingar sýndu hvers þeir eru megnuðir í Subway-deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og rót- burstuðu Blika 126:80 í Keflavík. Í öðrum leikhluta skildi leiðir þeg- ar Keflavík skoraði 39 stig en Breiðablik 22. Að loknum fyrri hálf- leik hafði Keflavík skorað 74 stig en Breiðablik 49 stig. Reykjanesbæjarliðin sigursælu, Njarðvík og Keflavík, veita Íslands- meisturunum í Þór Þorlákshöfn gott aðhald í toppbaráttu deildarinnar. Þór er með 24 stig á toppnum en Njarðvík og Keflavík eru með 22 stig. Næstu lið eru með 18 stig. Keflvíkingar urðu fyrir von- brigðum á síðasta tímabili þegar þeir töpuðu fyrir Þórsurum í úr- slitarimmunni og eru til alls líklegir í vor ef fram heldur sem horfir. Dom- inykas Milka skoraði 30 stig og þeg- ar hann nær sér á strik er útkoman yfirleitt góð fyrir Keflavík. Everage Lee Richardson skoraði 21 stig fyrir Breiðablik. Blikar spila iðulega mjög hratt og ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2022 Vetrarólympíuleikar eru íþróttaviðburður sem ég fylgist alla jafna mjög vel með. Þetta var í raun fyrsti stóri íþrótta- viðburðurinn sem ég horfði al- mennilega á í sjónvarpi en leik- arnir í Lillehammer árið 1994 fóru fram í febrúar, heimsmeist- aramótið í knattspyrnu fór aftur á móti fram í júní og júlí sama ár. Það er eitthvað við vetrar- íþróttir sem heillar mig. Ég hef alltaf átt mjög auðvelt með það að renna mér á bæði skíðum og snjóbretti og það er ákveðið frelsi sem fylgir þessu sporti sem erfitt er að festa í orð. Ís- land á fimm keppendur á Vetr- arólympíuleikunum í Peking í ár og ég hef fylgst vel með þeim öllum í sínum greinum. Að sjá þetta frábæra íþróttafólk á stærsta sviðinu fyllir mig ótrú- legu stolti. Allir sem stunda vetrar- íþróttir á Íslandi vita hversu erf- itt það er sökum veðurfars og það að við eigum alvöru íþrótta- fólk á stærsta sviðinu er eitt og sér stórkostlegt afrek. Þau eiga í raun öll skilið verðlaun fyrir að nenna að standa í þessu. Ég kynntist bæði skíðagöngumann- inum Snorra Einarssyni og skíðamanninum Sturlu Snæ Snorrasyni ágætlega þegar þeir komu til mín í Dagmál en þeir áttu það báðir sameiginlegt að vera frábærir viðmælendur. Þeir voru okkar helstu vonar- stjörnur fyrir leikana í ár og eiga báðir eftir að keppa í sínum sterkustu greinum á leikunum, sem er uppörvandi hugsun. Báð- ir koma þeir til dyranna í við- tölum nákvæmlega eins og þeir eru klæddir og þeir eru lítið í því að rífa upp frasabókina. Nokkuð sem margir íþrótta- menn, sem eru eflaust orðnir hundleiðir á því að mæta í viðtöl, mættu tileinka sér. BAKVÖRÐUR Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Subway-deild karla Grindavík – Valur ................................. 99:92 Keflavík – Breiðablik ......................... 126:80 Staðan: Þór Þ. 16 12 4 1548:1406 24 Njarðvík 15 11 4 1405:1237 22 Keflavík 16 11 5 1436:1349 22 Grindavík 16 9 7 1368:1353 18 Valur 16 9 7 1307:1276 18 Stjarnan 16 9 7 1433:1385 18 Breiðablik 16 7 9 1685:1667 14 Tindastóll 15 7 8 1301:1359 14 ÍR 16 7 9 1440:1421 14 KR 14 7 7 1261:1296 14 Vestri 15 3 12 1175:1328 6 Þór Ak. 15 1 14 1128:1410 2 Belgía Bikarinn, undanúrslit, fyrri leikur: Oostende – Antwerp Giants............... 90:78 - Elvar Már Friðriksson skoraði 17 stig, gaf sjö stoðsendingar og tók fjögur fráköst fyrir Antwerp Giants. NBA-deildin Boston – Atlanta................................. 105:95 Indiana – Minnesota ........................ 120:129 >73G,&:=/D Knattspyrnumaðurinn Emil Páls- son er byrjaður að æfa með liði sínu, Sarpsborg frá Noregi, eftir að hafa farið í hjartastopp í leik í byrj- un nóvember. Hann var þá í láni hjá Sogndal og var endurlífgaður á vellinum í leik liðsins við Stjördals- Blink. Lið Sarpsborg er við æfingar á Spáni um þessar mundir og í gær voru birtar myndir af Emil á sam- félagsmiðlum félagsins þar sem hann hleypur og sparkar bolta í fyrsta sinn eftir atvikið á æfingu liðsins og segir að sér líði bara mjög vel. Emil byrjaður að æfa á ný Ljósmynd/Sarpsborg Byrjaður Emil Pálsson æfir með liði Sarpsborg á Spáni þessa dagana. Andri Adolpsson, knattspyrnumað- ur úr Val, sér fram á að missa af heilu tímabili í annað sinn á þremur árum. Andri staðfesti við fótbolt- i.net að hann væri með slitið kross- band í hné og þar með verður hann frá keppni næstu 8-10 mánuðina en gæti hugsanlega spilað í blálok Ís- landsmótsins í október. Andri missti af tímabilinu 2020, nema hvað hann lék síðasta leik Vals í deildinni, eftir að hafa fengið höf- uðhögg snemma árs. Andri er 29 ára og á að baki 124 leiki með Val og ÍA í úrvalsdeildinni. Missir aftur af heilu tímabili Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fjarvera Andri Adolphsson hefur verið óheppinn síðustu ár. Hin bandaríska Kaillie Humphries skrifaði sig í sögubækurnar í gær þegar hún fagnaði sigri í bobb- sleðakeppni á Vetrarólympíuleik- unum í Peking í Kína. Humphries, sem er 36 ára, er fyrsta konan til þess að vinna til gullverðlauna fyrir tvö ríki á Ólympíuleikunum en hún keppti fyrir Kanada, þar sem hún er fædd og uppalin, til ársins 2018. Nú keppir hún sem sagt fyrir Bandaríkin en vann til tvennra gullverðlauna á Ólympíuleikum fyrir Kanada, í Vancouver 2010 og Sochi í Rússlandi 2014. Þá fékk hún brons í PyeongChang árið 2018 en öll verðlaunin fékk hún í tveggja manna sleðakeppni. Humphries fékk bandarískt ríkisfang fyrir tveimur mánuðum. „Ákvörðunin um að yfirgefa kan- adíska landsliðið var ekki auðveld enda var óvíst hvort ég næði að keppa í Peking. Ég vissi þó að ég hefði tekið rétta ákvörðun,“ sagði Humphries við olympics.com og segist hafa tekið fimleikastjörnuna Simone Biles sér til fyrirmyndar en Biles þurfti að taka erfiða ákvörðun á ÓL í Japan í fyrra. AFP Afrekskona Kaillie Humphries hefur komið sér vel fyrir í sögubókunum. Vann gull fyrir Kan- ada og Bandaríkin Hin fimmtán ára gamla Kamila Val- ieva fær að keppa fyrir hönd Rússa í undankeppninni í listhlaupi kvenna á skautum á Vetrarólymp- íuleikunum í Peking í dag. Eftir liðakeppnina á dögunum, þar sem Valieva átti drjúgan þátt í að tryggja rússneskan sigur, var upplýst að hún hefði fallið á lyfja- prófi í Rússlandi í desember og hún var úrskurðuð í keppnisbann af WADA, Alþjóðlega lyfjaeftirlitinu. Máli hennar var áfrýjað til Al- þjóðaíþróttadómstólsins, CAS, sem úrskurðaði að þar sem Valieva væri undir 16 ára aldri nyti hún verndar samkvæmt reglum WADA, þar sem m.a. hefði átt að gæta nafnleyndar. Að auki hefði niðurstaða lyfja- prófsins ekki borist fyrr en sex vik- um eftir að hún gekkst undir það, og eftir að hún hefði hafið keppni á Vetrarólympíuleikunum. Alþjóðaólympíunefndin sagði áð- ur en úrskurðurinn var birtur að hún myndi virða niðurstöðu CAS, „hvort sem okkur líkar hún eða ekki“. Bandaríska ólympíunefndin lýsti yfir miklum vonbrigðum vegna þeirra skilaboða sem úr- skurðurinn sendi. Rússneska ól- ympíunefndin fagnaði honum að vonum en Rússar mega ekki keppa undir eigin fána á leikunum, né öðr- um stórmótum, vegna lyfjamisferlis á undanförnum árum. Verðlaunaafhending fyrir liða- keppnina hefur ekki enn farið fram og óvíst er hvort verðlaun verði af- hent í greininni vegna málsins. Valieva þykir mjög sigurstrang- leg í einstaklingskeppninni í list- hlaupi á skautum en undankeppni hennar hefst klukkan tíu í dag og úrslitakeppnin er á fimmtudag. Fær að keppa þrátt fyrir fall á lyfjaprófi AFP Fimmtán Kamila Valieva er sigurstrangleg í listhlaupinu. HANDKNATTLEIKUR Coca Cola-bikar kvenna, 16-liða úrslit: Víkin: Víkingur – Fram........................ 19.30 ÍSHOKKÍ Íslandsmót karla, Hertz-deildin: Egilshöll: Fjölnir – SA ......................... 19.45 KNATTSPYRNA Deildabikar karla, Lengjubikarinn: Víkingsv.: Víkingur R. – Þróttur V.......... 19 KÖRFUKNATTLEIKUR 1. deild karla: Höfn: Sindri – Fjölnir .......................... 19.15 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.