Morgunblaðið - 15.02.2022, Blaðsíða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2022
Kúbansk-bandaríska myndlistar-
konan Carmen Herrera er látin, 106
ára að aldri. Saga hennar er afar
óvenjuleg því hún vann markvisst að
listsköpun sinni og málaði öll sín
fullorðinsár naumhyggjuleg ab-
straktverk en sló ekki í gegn og fór
að selja verk fyrr en hún var orðin
89 ára gömul. Síðan hefur hún verið
meðal vinsælustu og eftirsóttustu
myndlistarmanna Bandaríkjanna og
verk hennar verið keypt af og sýnd í
helstu söfnum þar í landi.
Herrera fæddist á Kúbu árið 1915
og ólst upp á miklu menningarheim-
ili. Faðir hennar var ritsjóri dag-
blaðs og móðir hennar blaðamaður.
Hún nam tungumál og myndlist og
hélt til framhaldsnáms í París, þar
sem hún var í deiglu abstrakt mynd-
listar og vöktu verk hennar þar
nokkra athygli.
Herrera giftist bandarískum
enskukennara og flutti með honum
til New York árið 1954. Herrera
vann alla tíð að myndlist sinni og afl-
aði eiginmaðurinn heimilinu tekna.
Herrera sýndi verk sín reglulega á
samsýningum og í litlum sjálf-
stæðum galleríum, þar sem þau
fengu góða umsögn og jafnvel var
minnst á þau í gagnrýni, en engin
seldust.
Eiginmaður Herrera lést árið
2000 og fjórum árum seinna slógu
verk hennar loks í gegn. Nokkur
voru valin á gallerísýningu með
verkum listakvenna frá Mið- og Suð-
ur-Ameríku. Gagnrýnandi The New
York Times bar lofsorð á málverk
Herrera, sem hafði þá búið í borg-
inni í hálfa öld. Og viðbrögðin voru
sterk: Safnarar tóku að kaupa verk
eftir hana og einnig listasöfn, og
verð málverkanna rauk upp. Í fram-
haldinu voru settar upp einkasýn-
ingar í söfnum og Herrera gat ráðið
aðstoðarmenn sem aðstoðuðu hana
svo hún gat, þótt bundin væri hjóla-
stól, málað nánast til æviloka.
Ljósmynd/Lisson Gallery
Stjarna Carmen Herrera rúmlega aldargömul við eitt málverka sinna.
Málari sem sló í gegn
níræð er látin 106 ára
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Berlín
hófst 10. febrúar og stendur yfir til
20. febrúar. Fjögur íslensk verk eru á
aðaldagskrá hátíðarinnar, fleiri en
nokkru sinni áður, skv. tilkynningu
frá Kvikmyndamiðstöð Íslands.
Kvikmyndin Berdreymi eftir leik-
stjórann Guðmund Arnar Guðmunds-
son var heimsfrumsýnd föstudaginn
11. febrúar í flokki sem nefnist Pano-
rama. Í myndinni segir af unglings-
pilti, Adda, sem alinn er upp af móður
með skyggnigáfu og dag einn ákveð-
ur hann að taka eineltisfórnarlamb
undir sinn verndarvæng og inn í vina-
hóp slagsmálahunda. Þegar hegðun
strákanna stigmagnast yfir í lífs-
hættulega atburði fer Addi að upplifa
eigin skynjanir og kviknar þá sú
spurning hvort innsæi hans muni
beina vinunum á öruggari braut eða
sökkva þeim lengra inn í heim ofbeld-
is. Berdreymi verður frumsýnd hér á
landi 22. apríl.
Stuttmyndin Hreiður eftir Hlyn
Pálmason er sýnd í þeim hluta hátíð-
arinnar sem nefnist Berlinale Special
og var sérvalin af Carlo Chatrian,
listrænum stjórnanda hátíðarinnar.
Hún var frumsýnd í gær og fjallar um
systkini sem byggja saman trjákofa.
„Við fylgjumst með lífi þeirra og ferli
í heilt ár í gegnum hamingju og þján-
ingu, vetur og sumar, ljós og myrk-
ur,“ segir í tilkynningu.
Sjónvarpsþáttaröðin Svörtu sand-
ar í leikstjórn Baldvins Z tekur þátt í
Berlinale Series sem er flokkur á há-
tíðinni helgaður sjónvarpsþáttaröð-
um og er hún ein af sjö seríum sem
voru valdar þar inn.
Í fjórða lagi er það svo kvikmyndin
Against the Ice eftir Peter Flinth,
sem verður frumsýnd í dag, 15. febr-
úar, í flokknum Berlinale Special
Gala. Baltasar Kormákur og RVK
Studios framleiddu myndina fyrir
Netflix, í samstarfi við leikarann
Nikolaj Coster-Waldau sem fer einn-
ig með eitt aðalhlutverkanna. Myndin
er byggð á sannsögulegum atburðum
og segir af þrekraun tveggja pólfara
á Grænlandi. Fleiri Íslendingar koma
að myndinni, m.a. Heiða Rún Sigurð-
ardóttir og Gísli Örn Garðarsson sem
leika í henni og eftirvinnsla mynd-
arinnar fór alfarið fram á Íslandi.
Fjögur íslensk í Berlín
Ljósmynd/Brigitte Dummer
Frumsýning Frá frumsýningu á Berdreymi í Berlín, Guðmundur Arnar Guðmundsson leikstjóri með leikurunum
Davíð Guðbrandssyni, Kristínu Ísold Jóhannesdóttur, Anitu Briem og Ólafi Darra Ólafssyni.
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hið nýstofnaða forlag Bókaútgáfan
Asía gaf í árslok í fyrra út bók með
ævintýrum frá Kóreu og Japan sem
þýðingafræðingurinn Unnur Bjarna-
dóttir sá um að þýða og endursegja.
Bókin heitir einmitt Ævintýri frá
Kóreu og Japan
og er þetta í
fyrsta sinn sem
ævintýri frá lönd-
unum eru gefin
út á íslensku,
fimm frá hvoru.
Með hverju ævin-
týri er stutt um-
fjöllun og auk
þess gerð grein
fyrir sögu og menningu landanna.
Bókin er 96 bls. að lengd og er skipt í
tvennt, kóresk ævintýri fyrst og svo
japönsk og eru ævintýrin myndlýst
af Elísabetu Rún.
Talar bæði tungumál
„Ég les útgáfur bæði á kóresku og
japönsku og líka aðrar þýðingar og
skrifa svo niður á íslensku,“ segir
Unnur um þýðingar sínar á ævintýr-
unum og blaðamaður furðar sig á því
að hún tali bæði tungumál. Hvernig
skyldi nú standa á því? „Ég fór í jap-
önsku í háskólanum hér og bjó svo í
Japan í eitt ár. Svo var ég í háskóla í
Þýskalandi og fór í gegnum hann til
Kóreu og lærði kóresku þar. Þannig
að ég hef búið í báðum löndum,“
svarar Unnur.
– Hvernig kom þetta verkefni til,
útgáfa þessara ævintýra?
„Þetta er bara mín hugmynd, í
rauninni, ég hef alltaf haft mikinn
áhuga á bókmenntum og ævintýrum
og svo þegar ég fór að læra meira um
Austur-Asíu fór ég líka að kynna mér
ævintýri, goðsögur og trúarbrögð
þessa svæðis og langaði til að gefa
eitthvað út á íslensku, fyrst það var
ekkert komið,“ svarar Unnur en auk
þess að vera þýðingafræðingur er
hún líka með gráðu í menningarfræði
frá þýskum háskóla.
Virkar fyrir alla
– Er bókin hugsuð fyrir börn eða
frekar fullorðna?
„Þetta virkar í rauninni fyrir alla,
ævintýrin sjálf eru skrifuð þannig að
hægt sé að lesa þau fyrir börn og
ættu ekki að vera of hræðileg, ekkert
verri en Rauðhetta, Mjallhvít eða slík
ævintýri. Umfjöllunin er kannski fyr-
ir eldri markhóp, fyrir þá sem vilja
grafa aðeins dýpra, en ævintýrin
standa samt alveg ein og sér,“ svarar
Unnur. Eldri lesendur geti kynnt sér
trúarbrögð og menningu landanna
og það sem var að gerast á hverjum
tíma þegar ævintýrin komu út.
En hvað einkennir ævintýrin frá
þessum löndum? Unnur segir margt
svipað með þeim og ævintýrunum
sem við þekkjum hér á landi, t.d.
galdrar. „Það er kannski helst ákveð-
inn shamanismi eða andatrú sem
kemur oft upp í ævintýrunum. Þarna
eru auðvitað allt önnur trúarbrögð,
engin kristni þarna,“ segir Unnur. Þá
sé búddismi líka áberandi og konfú-
síusismi sem sé hálfgert heimspeki-
kerfi og siðareglur. „Þetta eru ein-
mitt guðir sem eru miklu meira til
staðar fyrir fólkið en hinn kristni guð
sem er svolítið fjarlægur. Þetta eru
guðir sem standa fyrir ákveðna hluti
og hægt er að biðja til, koma með
ákveðnar óskir og þeir eru líka
verndarar þorpa og staða. Það er
mikil andatrú í báðum löndum sem er
samt ólík,“ útskýrir Unnur.
Tryggð hin æðsta dyggð
– Hver er boðskapur ævintýr-
anna?
„Það er svolítið gegnumgangandi
að þeir sem eru góðir fá það launað,
fá það til baka en þeim sem eru illir
eða gera eitthvað slæmt gengur illa
að lokum,“ svarar Unnur. Þá séu
reglur trúarbragðanna líka til staðar,
t.d. í konfúsíusisma þar sem mikil
áhersla er lögð á tryggð við foreldra.
Unnur nefnir sem dæmi að í einu
ævintýrinu fórni dóttir sér fyrir föð-
ur sinn því það sé hin æðsta dyggð.
Unnur er að lokum spurð að því
hvernig hún hafi valið ævintýrin þar
sem hún hafi væntanlega haft úr
mjög mörgum að velja. „Ég valdi þau
sem eru þekktust í Kóreu og Japan
og talaði líka við vini sem hafa verið í
báðum löndum eða eru hver frá sínu
landinu. Það hjálpaði til við valið en
svo veit ég líka mikið sjálf um löndin
og kannaðist við þau öll, í rauninni,“
svarar hún.
Andatrú og önnur trúarbrögð
- Kóresk og japönsk ævintýri gefin út í fyrsta sinn á íslensku - Þýðandi kann
bæði tungumál og hefur búið í báðum löndum - Saga og menning landanna kynnt
Ævintýri Unnur Bjarnadóttir valdi ævintýrin og þýðir úr frummálum.
Höfundurinn Unnur Bjarnadóttir. Myndlýsir Elísabet Rún.
Hækkum rána, heimildarmynd eftir
Guðjón Ragnarsson, vann um
helgina til ECFA-verðlaunanna fyr-
ir bestu evrópsku heimildarmynd-
ina fyrir börn. Verðlaununum er
ætlað að vekja athygli á gæðaefni
sem framleitt er fyrir börn og ung-
menni og voru þau afhent í Berlín.
Margrét Jónasdóttir, framleiðandi
kvikmyndarinnar, tók á móti verð-
laununum en hún framleiddi hana
fyrir Sagafilm og var myndin með-
framleidd af Outi Rousu fyrir
finnska framleiðslufyrirtækið
Pystymetsä Oy.
Myndin hefur verið sýnd víða á
hátíðum allt frá því hún var frum-
sýnd á heimildarmyndahátíðinni
Hot Docs í apríl í fyrra og hlaut
hún m.a. tvenn verðlaun á barna-
kvikmyndahátíðinni Filem’on í
Belgíu, sem besta myndin valin af
8-13 ára dómnefnd og besta
heimildarmyndin valin af faglegri
dómnefnd. Myndin hefur verið sýnd
í kvikmyndahúsum í Finnlandi og
fer brátt í dreifingu í Banda-
ríkjunum.
Hækkum rána var sýnd í Sjón-
varpi Símans Premium í fyrra og
verður fljótlega sýnd á RÚV, að því
er fram kemur í tilkynningu. ECFA
(European Children‘s Film Associa-
tion) eru samtök sem leggja áherslu
á gæða barna- og ungmennaefni og
meðlimir samtakanna eru fyrir-
tæki, stofnanir og einstaklingar í
kvikmyndageiranum.
Hækkum
rána verð-
launuð
Viðurkenning Margrét Jónasdóttir,
framleiðandi myndarinnar, tók við
verðlaununum í Berlín.