Morgunblaðið - 15.02.2022, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 15.02.2022, Blaðsíða 32
refafóður, hunda- og kattamat, hafi lengi keypt sláturafurðir frá slátur- húsum á meginlandi Evrópu til að nota í framleiðsluna. Eftir að fulltrúi þess hafi margsinnis komið til Ís- lands og kynnt sér stöðuna í slátur- húsum hafi komist á viðskipti sem hafi eflst með hverju árinu. „Það er ekki mér að þakka heldur hef ég ver- ið þátttakandi í þessari þróun.“ Auk sláturafurðanna selur Jóhann meðal annars saltaðar gærur og stórgripahúðir. Fyrsta söluferð hans vegna útfutnings var til Færeyja 1963 og síðan hefur hann heimsótt viðskiptavinina reglulega. „Góð per- sónuleg tengsl í viðskiptum eru mikilvæg,“ segir hann og bendir á að Færeyingar kaupi árlega mikið magn af kjötvörum frá Íslandi. Jóhann er í góðum tengslum við japanskt fyrirtæki, sem kaupir 100 til 150 tonn af íslensku lambakjöti á ári. „Ólíkt öðrum kaupendum vilja eigendur þessa fyrirtækis bara kaupa akfeitt lambakjöt og þunga skrokka með þeirri skýringu að það sé besta kjötið. Það er eflaust rétt hjá þeim.“ Fyrir um einu og hálfu ári seldu Jóhann og Pétur Guðmundsson í Ófeigsfirði dúnhreinsistöð sem þeir stofnuðu um aldamótin. „Við hreins- uðum dún frá æðarbændum víðast hvar af landinu í um 20 ár og ég sá um útflutninginn, en við hættum vegna þess að við erum báðir orðnir nokkuð gamlir og fannst tími til kominn að breyta til.“ Jóhann hefur verið í Lionsklúbbi Kópavogs í um 40 ár. Hann segir að starfið þar sé gefandi og sem betur fer hafi gengið vel að fá yngri menn til að taka þátt í störfum klúbbsins. „Þessi starfsemi hjálpar samfélag- inu heilmikið, auk þess að vera góður félagsskapur,“ segir hann. Bætir við að heilsan sé góð og gott sé að hafa eitthvað fyrir stafni auk þess sem einhverjar tekjur komi sér alltaf vel, en hann njóti líka aðstoðar fjölskyld- unnar við rekstur JBS Export. „Þetta er bara lítið fjölskyldufyrir- tæki,“ segir hann lítillátur. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Jóhann B. Steinsson sölustjóri á ára- tuga atvinnuferil í afurðasölu að baki hjá Sambandi íslenskra samvinnu- félaga og reynslan kemur sér vel í því sem hann er önnum kafinn við rúmlega áttræður. Um aldamótin stofnaði hann þjónustufyrir- tækið JBS Ex- port og hefur síð- an starfað fyrir mörg sláturhús, unnið við mark- aðssetningu og séð um skjala- gerð fyrir þau vegna útflutnings á afurðum. Þar á meðal vegna út- flutnings á sláturúrgangi, sem hefur aukist til muna á nýliðnum árum. „Mikilvægt er að fólk, sem hefur heilsu og vilja, fái tækifæri til að vinna lengur en hefðbundin vinnulok segja til um,“ segir hann. Í afurðasölu í áratugi Jóhann er ættaður úr Hvolhreppi í Rangárvallasýslu, ólst þar upp og bjó fram yfir tvítugt. „Ég er sveita- strákur og þegar ég kom í bæinn fór ég að vinna hjá búvörudeild Sam- bandsins og vann þar hátt í 40 ár.“ Þegar SÍS hafi liðið undir lok hafi nokkur sláturhús viljað nýta reynsl- una og hann hafi þekkst boð frá þeim um að halda áfram á sömu braut. Það hafi hann gert og leggur áherslu á að hann hafi ekki fundið upp hjólið heldur hafi viðskiptin dafnað á hans vakt. Á árum áður hafi sláturúrgangi úr sauðfé, nautgripum og hrossum verið hent, hann jafnvel grafinn í jörðu, sem nú er harðbannað, en nýt- ingin hafi aukist til muna og útflutn- ingurinn þar með. „Það er gott að geta komið sláturúrgangi í verð.“ Stærsti hluti þessara sláturafurða er seldur til Danmerkur og þá eink- um lambalungu, rollulifur, hálsæðar, vambir og fita. Jóhann segir að danskt fyrirtæki, sem búi til dýra- fóður í verksmiðju sinni, einkum Rúmlega áttræður og gefur ekkert eftir - Jóhann B. Steinsson kemur að útflutningi á sláturúrgangi Morgunblaðið/RAX Hjá SS á Selfossi Skrokkurinn er gjörnýttur og aukaafurðirnar fluttar út. Jóhann B. Steinsson • Gist er á hinu glæsilega Hótel Brandan 4* Morgunverður og kvöldverður innifalinn • Skoðunarferðir til Klaksvíkur, Gásadals, Götu, Kirkjubæjar og víðar um eyjarnar • Hádegisverður í Kirkjubæ, í elsta timburhúsi sem búið er í innan Evrópu • Flogið frá Keflavík á aðeins 70 mín- útum með Atlantic Airways Fararstjóri: Gísli Jafetsson Eldri borgarar Bókanir í gegnum netfangið hotel@hotelbokanir.is eða í símum 783-9300/01 Allar nánari upplýsingar á www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is 10.000 kr. afsláttur til netklúbsfélaga. Skráðu þig í klúbbinn á heimasíðu okkar FÆREYJAR 4.–8. apríl Verð 199.900á mann í tvíbýli* *aukagjald fyrir einbýli kr. 39.500 Heillandi eyjar með stórbrotnu landslagi Veðurskeyti frá Ásgarði nefnist listaverkabók um söng- verkið Elsku Borga mín eftir Atla Ingólfsson sem komin er út. Tónverkið, sem er fyrir 24 raddir, byggir Atli á textabrotum upp úr sendibréfum frá 1950. Þar skrifar Lilja Magnúsdóttir, Ásgarði í Dölum, fimmtán ára dótt- ur sinni Guðborgu fréttir úr sveitinni. Samhliða útgáfu verksins var ráðist í gerð ítarefnis, efnis sem gæfi hlustandanum nánari aðgang að textum og hugarheimi verksins, undir ritstjórn Margrétar Elísabetar Ólafs- dóttur. Veðurskeyti frá Ásgarði skoðar allar mögulegar hliðar tónverksins og sendibréfanna, textar birtir, ljósmyndir og nótur, og nokkrir fræðimenn skoða bréfin í ljósi sagnfræði, guðfræði, málfræði, veðurfræði eða bók- menntafræði auk þess sem tónskáldið fjallar um eigið verk. Enn frekari viðbót er í vídeóverki sem Jeannette Castioni gerði við tónverkið og fjallað er um í bókinni. Útgáfunni verður fagnað í Dynjanda, sal tónlistardeildar LHÍ í Skipholti 31, í dag klukkan 17.30. Veðurskeyti frá Ásgarði komið út ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 46. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Öflugt varnarlið Los Angeles Rams lagði grunninn að sigri liðsins á Cincinnati Bengals í úrslitaleik NFL- deildarinnar, Ofurskálarleiknum, sem fram fór í Los Angeles í fyrrinótt. Gunnar Valgeirsson var á leiknum fyrir hönd Morgunblaðsins og fer yfir það helsta í pistli í blaðinu í dag. »26 Varnarlið Rams var í aðalhlutverki ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.