Morgunblaðið - 17.02.2022, Side 16

Morgunblaðið - 17.02.2022, Side 16
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022 Króatía, Bosnía / Herzegovenia, Serbía, Svartfjallaland Glæsileg menning, mikil saga, stórkostleg , náttúrufegurð og brosandi heimamenn. Við förum aftur í tíma og rúmi, sjáum gömul þorp, kirkjur, klaustur, og söfn svo eitthvað sé nefnt. Við förum upp í Mokra Gora fjöllinn, siglum um Drina gilið og skoðum töfrandi umhverfið. Þá verða á vegi okkar glæsilegar menningarborgir eins Sarajevo höfuðborg Bosniu og Herzegoviniu, svo Potgorica höfuðborg Svart- fjallalands sem rekja má til ársins 1326, svo og miðaldabærinn Herceg Novi í Svartfjallalandi sem staðsettur er á einstökum stað við Adríahafið, sjón er sögu ríkari. Þá munum við kynnast miðalda- borginni Riga frá 12 öld, sem ekki á sinn líka. Síðumúli 29 - 108 Reykjavík | Sími 588 8900 info@transatlantic.is | www.transatlantic.is Balkanskaginn og miðaldaborgin Riga 1.-13. júni INNIFALIÐ • Flug með sköttum og tösku • Hótel með morgunmat 4 og 5 stjörnu • Fullt fæði á Balkanskaganum • Isl farastjóri • Innlendur enskumælandi farastjóri (local) • Allar skoðunarferðir skv. ferðaplani • Aðgangur þar sem við á • Allur flutningur skv. ferðaplani, rúta, bátur og lest VERÐ 409.500 kr per mann í 2ja manna herbergi „Eins og gefur að skilja hefur þetta verið nokkuð þungur róður en nú sjáum við fram á mjög bjarta tíma,“ segir Brynhildur Guð- jónsdóttir, leikhússtjóri Borgarleik- hússins. Hún kveðst fagna því að starf- semi leikhússins sé aftur að fær- ast í eðlilegt horf nú þegar farið er að aflétta samkomutakmörkunum. Forsenda þess hafi verið að regla um að metri þyrfti að vera á milli ótengdra aðila í sitjandi sal hafi verið felld úr gildi fyrir skemmstu. „Það hefur verið stórkostlegt að geta tekið á móti fullum sal af gestum eftir þetta og að veitingar hafi verið leyfðar,“ segir Brynhild- ur. Hún segist vona að fyrirheit um afléttingar muni nú standa. „Við vonum að þetta sé nú eitthvað sem má treysta á. Við erum auð- vitað meðvituð um að það er enn álag á mörgum stöðum og það er líka álag hjá okkur. Það verða ef- laust einhverjar hraðahindranir næstu vikurnar en hópurinn okkar er ótrúlega samstiga og jákvæð- ur.“ Tvær frumsýningar eru fyrirhug- aðar í næstu viku og svo þarf að vinna upp fjölda frestaðra sýninga. „Emil í Kattholti er til dæmis upp- seldur fram í október. Við gerum þetta þannig að sýningarnar eru færðar í heilu lagi svo fólk haldi sætum sínum. Ef dagsetningin hentar ekki þá hefur fólk samband og við leysum það. Við erum gest- um mjög þakklát fyrir þolinmæði og sveigjanleika. Álagið á starfs- fólk í miðasölu hefur verið ómann- eskjulegt en við reynum að brosa í gegnum brotsjóinn.“ hdm@mbl.is Uppselt á Emil í Kattholti fram í október GLEÐI Í BORGARLEIKHÚSINU AÐ GETA SÝNT FYRIR FULLU HÚSI Á NÝ Ljósmynd/Grímur Bjarnason Vinsæll Emil í Kattholti er nú sýndur í Borgarleikhúsinu og bið er eftir miðum. SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það eru allir að koma sér í gírinn. Ég held að flestir leyfi sér að vera bjartsýnir á að nú verði ákveðinn vendipunktur, ekki endilega að vírus- inn sé að fara að hverfa heldur að inngripum og hömlum fari að ljúka,“ segir Ísleifur B. Þórhallsson, tón- leikahaldari hjá Senu Live. Stjórnvöld eru byrjuð að aflétta samkomutak- mörkunum vegna kórónuveirunnar og boðað er að síðar í mán- uðinum verði þeim aflétt að fullu. Þá er viðbú- ið að ýmsar skemmtanir og viðburðir sem hefur þurft að fresta vegna takmark- ana verði loks haldnar og fólk geti farið að leyfa sér að njóta lífsins með eðlilegum hætti á ný. „Ég held að ef fólk getur loks farið á tónleika án þess að gera sérstakar ráðstafanir eins og að fara í hraðpróf eða bera grímu og ef loksins verður hætt að tala viðburði niður og fólk fer að upplifa að það sé með öllu óhætt að fara á viðburði þá verði alger sprengja í eftirspurn. Og því verður auðvitað mætt með góðu framboði,“ segir Ísleifur. Tvennir stórtónleikar haldnir sama kvöld Viðburðahaldarar hafa ítrekað þurft að fresta viðburðum síðustu tvö ár vegna samkomutakmarkana. Tón- leikum Andrea Bocelli hefur til dæm- is verið frestað fjórum eða fimm sinnum. Þá hefur popparinn Páll Óskar Hjálmtýsson ekki getað haldið stórtónleika í tilefni fimmtugs- afmælis síns en ef að líkum lætur verða þeir haldnir í næsta mánuði, skömmu eftir að hann verður 52 ára. Nóg verður að gera hjá Ísleifi og hans fólki í Senu Live á næstunni. Í mars eru áætlaðar tvær uppistands- sýningar Jimmy Carr, tónleikar með Damon Albarn og 75 ára afmælissýn- ing Ladda. Í maí kemur Trevor Noah hingað til lands og stórtónleikar með Andrea Bocelli og Khalid verða haldnir sama kvöldið, þeir fyrri í Kórnum og þeir seinni í Laugardals- höll. „Það er ekkert sérstaklega heppilegt en við verðum bara að láta það ganga,“ segir Ísleifur. Í viðræðum við umboðsmenn Tónleikahaldarinn segir að næstu vikur og mánuðir fari í að koma frá þeim viðburðum sem frestað var og öðrum sem þegar hafa verið skipu- lagðir. Hann neitar því þó ekki að viðburðahaldarar séu farnir að horfa fram á veginn. „Já, samtölin við um- boðsmenn eru komin af stað en það er ekkert enn að frétta. Það skulda allir tónleika og sjálfsagt tekur það út þetta ár að hreinsa það upp. Eitt- hvað nýtt og stórt frá útlöndum mun því líklega aldrei fara fram fyrr en á næsta ári, en mögulega verður eitt- hvað tilkynnt fyrir lok árs. Við erum farin að vinna að skipulagningu Ice- land Airwaves og stefnum á að gefa út tilkynningu með hátíðina um miðj- an mars. Í mars má einnig reikna með að við tilkynnum eitthvað af ís- lenskum stórtónleikum og minni er- lenda tónleika sem mun fara fram síðar á árinu.“ Engar sértækar aðgerðir Viðburðahaldarar hafa kvartað yf- ir skilningsleysi stjórnvalda á síðustu misserum. Því hefur verið haldið fram að fáir ef nokkrir geirar hafi farið verr út úr faraldrinum enda taki undirbúningur viðburða langan tíma og ekki hafi verið á vísan að róa síð- ustu tvö árin þegar skellt hefur verið í lás með litlum fyrirvara. „Í blábyrjun faraldursins brugðust yfirvöld við af ansi miklum krafti með almennum aðgerðum sem náðu ágætlega yfir aðila í viðburðahaldi, en eftir því sem lengra hefur liðið á finnst manni eins og þessi læv-geiri hafi gleymst eða að yfirvöld eigi erf- itt með að skilja hann,“ segir Ísleifur. „Það hefur verið ráðist í stórar og flottar sértækar aðgerðir fyrir veit- ingageirann, sviðlistir og tónlist- arheiminn sem er auðvitað hið besta mál. En það hefur ekki ein króna far- ið í sértækar aðgerðir fyrir læv- geirann, til tónleikahaldara, tækja- fyrirtækja og tæknifólksins sem er verktakar, í innviðina í þessum geira sem hefur nær alfarið verið lokaður í tvö ár og er í miklum sárum. Við er- um að tala um staðfest 80% tekjufall og 20% brotthvarf starfsfólks. Ég held að stjórnvöld hafi ekki áttað sig á hvernig þau eiga að styrkja þennan geira en í löndunum í kringum okkur hefur verið farið í nokkuð öflugar sértækar aðgerðir. Það lítur því út fyrir að Ísland verði eina landið af þeim löndum sem við berum okkur saman við, sem fari í gegnum allan faraldurinn án þess að fara nokkurn tíman í sértækar aðgerðir fyrir læv- geirann. Það er nú að verða ár síðan viðburðir fóru aftur í gang í Englandi og Bandaríkjunum og þar á bæ hefur aldrei komið til greina að loka þeim aftur, þrátt fyrir nýjar bylgjur og Ómíkron-afbrigðið. Það er frekar að reynslan frá þessum löndum sýni að hægt er að halda viðburði á öruggan hátt, með öllum þeim tólum og tækj- um, þekkingu og reynslu sem við nú búum yfir. Og nú ætlum að verða langt á eftir Norðurlöndunum með að opna á ný fyrir viðburði,“ segir Ís- leifur. Menningin látin blæða mest „Við búum enn við þá hugsun að allir viðburðir séu alltaf hættulegir og að því stærri, þeim mun hættu- legri og þessu mótmælum við. Því er ákveðið að halda hömlum á þeim í tvær vikur til viðbótar, bara svona til öryggis, á meðan allt annað er í raun opið að fullu leyti. Menningin er allt- af látin blæða mest. Á tveimur árum höfum erum við sem sagt komin í þann hugsunarhátt að aðgerðir og hömlur sem áttu einungis að vera beitt í algjörri neyð eru látnar hang- ar áfram, bara til öryggis, þrátt fyrir að enginn sé að halda því fram að það sé nokkur neyð enn til staðar. Vanda- málin eru fyrir löngu farin að snúast meira um aðgerðirnar en vírusinn sjálfan. Um daginn var til dæmis ákveðið að opna barina en á sama tíma máttum við ekki selja áfengi á viðburðum. Eins og drykkja eða ölv- un sé eitthvert vandamál í leik- húsum, Hörpu eða á tónleikum al- mennt. Við erum löngu búin að missa tökin á öllu er varðar meðalhóf og jafnræði hvað þetta varðar. Það er ekki hægt að fara fram á samstöðu þegar aðgerðir eru órökréttar, ósanngjarnar og tilgangslausar í augum margra. Og það er vond til- finning þegar manni finnst að yf- irvöld líti ekki á það lengur sem stór- mál að hefta frelsi fólks, til að lifa lífinu og stunda sína atvinnu og því liggi ekkert á að aflétta aðgerðum, að nokkrar vikur til eða frá séu ekkert mál.“ Mikil uppsöfnuð skemmtanaþörf - Viðburðahaldarar setja sig í gírinn nú þegar aflétta á samkomutakmörkunum - Búast við mikilli eftirspurn - Stór erlend nöfn bíða næsta árs - Engar sértækar aðgerðir og skilningsleysi yfirvalda Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Langþráð Páll Óskar Hjálmtýsson getur loksins haldið tónleika í tilefni fimmtugsafmælis síns í næsta mánuði, tveimur árum eftir að hann átti afmæli. Tónleikunum hefur margoft verið frestað vegna samkomutakmarkana. Ísleifur Þórhallsson Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Tónleikar Bríet treður upp í Kaupmannahöfn en blindi söngvarinn Andrea Bocelli mætir í Kórinn í Kópavogi. Morgunblaðið/Jón Svavarsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.