Morgunblaðið - 17.02.2022, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 17.02.2022, Blaðsíða 60
60 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022 Þ að gerist ekki á hverjum degi í leik- húsinu að ákveðið er að setja höf- undinn á plakötin og forsíðu leik- skránna. Því gleðilegra að mæta dálítið ráðvilltri og áhyggjufullri Elísabetu Jökulsdóttur í hreint stórkostlegu gervi í kynningarefni Blóðugu kanínunnar. Heyra svo rödd hennar leggja línurnar um meðferð snjalltækja fyrir sýningu og reka fólk úr saln- um í hléi. Allt er þetta hluti af sérlega sterkum heild- arsvip og þeirri alúð sem hefur verið lögð við ásýnd sýningarinnar. Leikmynd, búningar og gervi Þórunnar Maríu Jónsdóttur er feikigott verk, sem tekst að draga saman í heildstæða mynd helstu atriðin í burðarvirki verksins: sirkus, kaffihús og stríð. Eru þetta sessur eða sandpokar, þessir marglitu púðar sem mynda vegg – eða skotgröf – í upphafi sýningar? Svarið er já, þetta eru sessur eða sandpokar. Allt er myndbreytingum háð í ljóðrænni texta- veröld Elísabetar Jökulsdóttur. Blóðuga kanínan sver sig í fornar hefðir táknsæis með viðkomu í öllu yngri nálgun absúrdleikhússins. Heimurinn sem vígvöllur, mannlífið sem sirkus, og manneskjan sem per- sónugerðir eiginleikar sínir. Í Blóðugu kanín- unni taka þættir í persónuleika Dísu á sig sjálfstætt form sem varnarviðbragð við áfalli. Fáráðlingurinn, Skrímslið, Barnið, Píslar- votturinn, Hetjan og Trúðurinn reyna öll að komast af í stríðinu, leita skjóls á kaffihúsinu, reyna að finna sér stað í sirkusnum. Reyna að muna, reyna að gleyma. Berjast innbyrðis, glíma við Dísu „sjálfa“. Útkoman er spennuþrungin kvöldstund, full af sláandi textamyndum sem úrvinnsla Guð- mundar Inga Þorvaldssonar magnar upp og mótar. Að sönnu ekki „dramatísk“ í hefð- bundnum skilningi, það er varla hægt að tala um framvindu, alveg örugglega ekki um fléttu og þau átök milli persóna sem þó eiga sér stað eiga sér enga úrlausn. Áhorfandanum er boðið inn í óreiðukenndan en sjálfum sér sam- kvæman heim ljóðmynda sem birta mynd af sálarlífi á barmi upplausnar. Það reynist full- komlega nóg. Meira en nóg, mætti jafnvel segja – það má velta því fyrir sér hvort upplif- unin væri ekki sterkari ef verkið væri stytt þannig að hlé væri óþarft. Það er sérkennilegt að stíga út úr jafn sterkum og fast mótuðum heimi og svo inn í hann aftur. Guðmundur Ingi hefur unnið hreint frábært verk við að móta og forma framsetningu efnis- ins. Sviðsetningin er verulega áhrifarík, stað- setningar og nýting rýmisins alltaf áhrifarík, sviðshreyfingar Völu Ómarsdóttur sterkar og flæðið sérlega gott. Andrúmsloftið sem útlits- hönnun Þórunnar Maríu er forsendan fyrir er síðan rækilega stutt af stemmingsríkri lýsingu Friðþjófs Þorsteinssonar og þó öllu fremur hreint frábærri og viðeigandi hljóðmynd Borgars Ao, sem er mikið til flutt af honum á sviðinu, leikin á píanó og gítara. Vinnan með leikurunum hefur einnig verið fyrsta flokks. Þau Aðalbjörg Þóra Árnadóttir, Borgar Ao, Davíð Freyr Þórunnarson, Íris Tanja Flygenring, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Þóra Karítas Árnadóttir og Ævar Þór Bene- diktsson vinna saman sem einn maður. Sem er nákvæmlega það sem sýningin krefst af þeim. Öll eiga þau glansnúmer. Borgar betri í kommentum sínum af hliðarlínunni en samtal- inu við Dísu, Davíð Freyr kröftugur í samleik skrímslisins í einu af lykilatriðum sýningar- innar. Íris Tanja hæfilega kómískur píslar- vottur, en ekki er ég viss um að mikilvæg sena barnsins undir lokin hafi borist aftur á aftasta bekk þó innileg væri fyrir okkur í fremri hluta salarins. Aðalbjörg og Ævar túlka fyrirferðarmestu þættina í sálarlífi Dísu. Fáráðlingur Aðal- bjargar er sterk persónumynd og Ævar er yndislegur sem dálítið dapur trúður, heldur uppi orkustigi sýningarinnar á köflum, en dettur aldrei inn í fíflalæti. Almennt er sýn- ingunni haldið í mjög góðu jafnvægi milli þess að taka innihald sitt og erindi alvarlega, með tilfinningalegu sambandi við áhorfendur, og að glotta varlega út í annað. Það birtist í kommentum sirkusstjórans, í bernsku atriði eftir hlé þar sem blóm og fiðrildi eiga óvænta innkomu og lofsyngja skapara sinn, og í inn- komu Ólafíu Hrannar í hlutverki társins, sem persónurnar þrá og tilbiðja. Þar er jafnvægi háðs og dýpstu alvöru í hárfínu jafnvægi, nokkuð sem Ólafía Hrönn er meistari í og bregst ekki hér. Frumsýningarsalurinn var reyndar nokkuð á báðum áttum hvorum meg- in lokasöngur hennar félli. Þóra Karítas fær það verkefni að vera miðj- an í þessum tilfinningastormi og ferst það ágætlega úr hendi, vopnuð sterkri nærveru og fallegri útgeislun, þó hún fái óneitanlega minni tækifæri til að sýna tilþrif en höfuð- skepnurnar sem búa innra með henni og aðrir leikendur túlka. Blóðuga kanínan er sterk leikhúsupplifun. Brotakennd mynd af brotinni sál í leit að heil- un og lausn. Að stríðinu linni og sviðsljós sirkussins dofni og tárið vinni sitt töfrastarf. Ljóð- og myndheimur Elísabetar Jökulsdóttur er fjölbreyttur og margræður en býr yfir innri rökvísi sem endurspeglast hér í hreint frá- bærri úrvinnslu leikstjóra, hönnuða og hæfi- leikaríks, kröftugs og örláts leikhóps. Stríð og blíða Ljósmynd/María Kjartansdóttir Spennuþrungið „Útkoman er spennuþrungin kvöldstund, full af sláandi textamyndum sem úrvinnsla Guðmundar Inga Þorvaldssonar magnar upp og mótar,“ segir um Blóðugu kanínuna eftir Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur sem sýnd er í Tjarnarbíói. Á myndinni eru Þóra Karítas Árnadóttir og Aðalbjörg Þóra Árnadóttir í hlutverkum sínum sem Dísa og Fáráðlingurinn. Tjarnarbíó Blóðuga kanínan bbbbn Eftir Elísabetu Jökulsdóttur. Leikstjórn: Guð- mundur Ingi Þorvaldsson. Leikmynd, búningar og gervi: Þórunn María Jónsdóttir. Tónlist og hljóð- mynd: Borgar Ao. Lýsing: Friðþjófur Þorsteinsson. Sviðshreyfingar: Vala Ómarsdóttir. Listrænn ráðu- nautur: Matthías Tryggvi Haraldsson. Hljóð- hönnun: Þórður Gunnar Þorvaldsson. Leikarar: Aðalbjörg Árnadóttir, Borgar Magnason, Davíð Freyr Þórunnarson, Íris Tanja Flygenring, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Þóra Karítas Árnadóttir og Ævar Þór Benediktsson. Fimbulvetur í samstarfi við Murmur frumsýndi í Tjarnarbíói föstudaginn 11. febrúar 2022. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST Sönglög Þórunnar Guðmunds- dóttur verða flutt á fernum tón- leikum á jafn mörgum dögum á Austur- og Norðurlandi næstu daga undir yfirskriftinni „Eyrnakon- fekt“. Flytjendur eru Björk Níels- dóttir sópran, Erla Dóra Vogler mezzósópran, Eyjólfur Eyjólfsson tenór, Hafsteinn Þórólfsson bari- tónn og Eva Þyri Hilmarsdóttir pí- anóleikari. „Hér er um að ræða bráðfyndna tónleika með nýjum íslenskum samsöngslögum, dúett- um, tríóum og kvartettum. Lögin eru fyrir söngvara og píanó og skiptast í þrjá flokka eftir efni: Sumarlög, Matarlög og Lög um ást- ina,“ segir í tilkynningu frá hópn- um. Þar kemur fram að Þórunn sé „hugleikari, söngkona, deildarstjóri söngdeildar klassísku deildar MÍT, leikskáld, skáld og tón- skáld auk þess að vera doktor í söng og söngfræðum“. Fyrstu tón- leikarnir eru í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði í kvöld kl. 20. Á morgun kemur hópurinn fram í Egilsstaðakirkju kl. 20, á laugardag í Bergi á Dalvík kl. 16 og á sunnudag í Hofi á Akureyri kl. 16. Eyrnakonfekt á fernum tónleikum Erla Dóra Vogler „„Replasera kvenfólkið með litlum sætum strákum“: Megas, hinseg- inleiki og friðhelgi listamannsins“ nefnist fyrirlestur Þorsteins Vlhjálmssonar sem hann flytur í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Ís- lands í dag kl. 12. Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestraröðinni Hin- segin Ísland í alþjóðlegu samhengi og einnig á dagskrá Jafnrétt- isdaga. Hann er sýndur í beinu streymi á YouTube-rás Þjóðminja- safnsins. „Í fyrirlestrinum verður gerð tilraun til að orðræðugreina ekki aðeins texta og tónlist Megasar á [plötunum Loftmynd, Höfuðlausnir og Bláir draumar] heldur líka þögnina sem mætti þeim og ríkir um þær enn í dag. Sam- anburðar verður leitað í erlendri umræðu eftir #MeToo- byltinguna um þá friðhelgi sem listamenn njóta gagnvart op- inberum siðferðislegum viðmiðum í kynferðismálum. Þá verður því velt upp hvað þögnin um verk Megasar þýði fyrir íslenska hin- segin sögu og sögu kynverundar hér á landi,“ segir í kynningu. Hinseginleiki og friðhelgi listamannsins Þorsteinn Vilhjálmsson Fermingarblaðið er eitt af vinsælustu sérblöðum Morgunblaðsins. Fjallað verður um allt sem tengist fermingunni. Fermingarblað Morgunblaðsins kemur út föstudaginn 11. mars AUGLÝSENDUR ATHUGIÐ! NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is SÉRBLAÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.