Morgunblaðið - 17.02.2022, Síða 60
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022
Þ
að gerist ekki á hverjum degi í leik-
húsinu að ákveðið er að setja höf-
undinn á plakötin og forsíðu leik-
skránna. Því gleðilegra að mæta
dálítið ráðvilltri og áhyggjufullri Elísabetu
Jökulsdóttur í hreint stórkostlegu gervi í
kynningarefni Blóðugu kanínunnar. Heyra
svo rödd hennar leggja línurnar um meðferð
snjalltækja fyrir sýningu og reka fólk úr saln-
um í hléi.
Allt er þetta hluti af sérlega sterkum heild-
arsvip og þeirri alúð sem hefur verið lögð við
ásýnd sýningarinnar. Leikmynd, búningar og
gervi Þórunnar Maríu Jónsdóttur er feikigott
verk, sem tekst að draga saman í heildstæða
mynd helstu atriðin í burðarvirki verksins:
sirkus, kaffihús og stríð. Eru þetta sessur eða
sandpokar, þessir marglitu púðar sem mynda
vegg – eða skotgröf – í upphafi sýningar?
Svarið er já, þetta eru sessur eða sandpokar.
Allt er myndbreytingum háð í ljóðrænni texta-
veröld Elísabetar Jökulsdóttur.
Blóðuga kanínan sver sig í fornar hefðir
táknsæis með viðkomu í öllu yngri nálgun
absúrdleikhússins. Heimurinn sem vígvöllur,
mannlífið sem sirkus, og manneskjan sem per-
sónugerðir eiginleikar sínir. Í Blóðugu kanín-
unni taka þættir í persónuleika Dísu á sig
sjálfstætt form sem varnarviðbragð við áfalli.
Fáráðlingurinn, Skrímslið, Barnið, Píslar-
votturinn, Hetjan og Trúðurinn reyna öll að
komast af í stríðinu, leita skjóls á kaffihúsinu,
reyna að finna sér stað í sirkusnum. Reyna að
muna, reyna að gleyma. Berjast innbyrðis,
glíma við Dísu „sjálfa“.
Útkoman er spennuþrungin kvöldstund, full
af sláandi textamyndum sem úrvinnsla Guð-
mundar Inga Þorvaldssonar magnar upp og
mótar. Að sönnu ekki „dramatísk“ í hefð-
bundnum skilningi, það er varla hægt að tala
um framvindu, alveg örugglega ekki um fléttu
og þau átök milli persóna sem þó eiga sér stað
eiga sér enga úrlausn. Áhorfandanum er boðið
inn í óreiðukenndan en sjálfum sér sam-
kvæman heim ljóðmynda sem birta mynd af
sálarlífi á barmi upplausnar. Það reynist full-
komlega nóg. Meira en nóg, mætti jafnvel
segja – það má velta því fyrir sér hvort upplif-
unin væri ekki sterkari ef verkið væri stytt
þannig að hlé væri óþarft. Það er sérkennilegt
að stíga út úr jafn sterkum og fast mótuðum
heimi og svo inn í hann aftur.
Guðmundur Ingi hefur unnið hreint frábært
verk við að móta og forma framsetningu efnis-
ins. Sviðsetningin er verulega áhrifarík, stað-
setningar og nýting rýmisins alltaf áhrifarík,
sviðshreyfingar Völu Ómarsdóttur sterkar og
flæðið sérlega gott. Andrúmsloftið sem útlits-
hönnun Þórunnar Maríu er forsendan fyrir er
síðan rækilega stutt af stemmingsríkri lýsingu
Friðþjófs Þorsteinssonar og þó öllu fremur
hreint frábærri og viðeigandi hljóðmynd
Borgars Ao, sem er mikið til flutt af honum á
sviðinu, leikin á píanó og gítara.
Vinnan með leikurunum hefur einnig verið
fyrsta flokks. Þau Aðalbjörg Þóra Árnadóttir,
Borgar Ao, Davíð Freyr Þórunnarson, Íris
Tanja Flygenring, Ólafía Hrönn Jónsdóttir,
Þóra Karítas Árnadóttir og Ævar Þór Bene-
diktsson vinna saman sem einn maður. Sem er
nákvæmlega það sem sýningin krefst af þeim.
Öll eiga þau glansnúmer. Borgar betri í
kommentum sínum af hliðarlínunni en samtal-
inu við Dísu, Davíð Freyr kröftugur í samleik
skrímslisins í einu af lykilatriðum sýningar-
innar. Íris Tanja hæfilega kómískur píslar-
vottur, en ekki er ég viss um að mikilvæg sena
barnsins undir lokin hafi borist aftur á aftasta
bekk þó innileg væri fyrir okkur í fremri hluta
salarins.
Aðalbjörg og Ævar túlka fyrirferðarmestu
þættina í sálarlífi Dísu. Fáráðlingur Aðal-
bjargar er sterk persónumynd og Ævar er
yndislegur sem dálítið dapur trúður, heldur
uppi orkustigi sýningarinnar á köflum, en
dettur aldrei inn í fíflalæti. Almennt er sýn-
ingunni haldið í mjög góðu jafnvægi milli þess
að taka innihald sitt og erindi alvarlega, með
tilfinningalegu sambandi við áhorfendur, og
að glotta varlega út í annað. Það birtist í
kommentum sirkusstjórans, í bernsku atriði
eftir hlé þar sem blóm og fiðrildi eiga óvænta
innkomu og lofsyngja skapara sinn, og í inn-
komu Ólafíu Hrannar í hlutverki társins, sem
persónurnar þrá og tilbiðja. Þar er jafnvægi
háðs og dýpstu alvöru í hárfínu jafnvægi,
nokkuð sem Ólafía Hrönn er meistari í og
bregst ekki hér. Frumsýningarsalurinn var
reyndar nokkuð á báðum áttum hvorum meg-
in lokasöngur hennar félli.
Þóra Karítas fær það verkefni að vera miðj-
an í þessum tilfinningastormi og ferst það
ágætlega úr hendi, vopnuð sterkri nærveru og
fallegri útgeislun, þó hún fái óneitanlega
minni tækifæri til að sýna tilþrif en höfuð-
skepnurnar sem búa innra með henni og aðrir
leikendur túlka.
Blóðuga kanínan er sterk leikhúsupplifun.
Brotakennd mynd af brotinni sál í leit að heil-
un og lausn. Að stríðinu linni og sviðsljós
sirkussins dofni og tárið vinni sitt töfrastarf.
Ljóð- og myndheimur Elísabetar Jökulsdóttur
er fjölbreyttur og margræður en býr yfir innri
rökvísi sem endurspeglast hér í hreint frá-
bærri úrvinnslu leikstjóra, hönnuða og hæfi-
leikaríks, kröftugs og örláts leikhóps.
Stríð og blíða
Ljósmynd/María Kjartansdóttir
Spennuþrungið „Útkoman er spennuþrungin kvöldstund, full af sláandi textamyndum sem
úrvinnsla Guðmundar Inga Þorvaldssonar magnar upp og mótar,“ segir um Blóðugu kanínuna
eftir Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur sem sýnd er í Tjarnarbíói. Á myndinni eru Þóra Karítas
Árnadóttir og Aðalbjörg Þóra Árnadóttir í hlutverkum sínum sem Dísa og Fáráðlingurinn.
Tjarnarbíó
Blóðuga kanínan bbbbn
Eftir Elísabetu Jökulsdóttur. Leikstjórn: Guð-
mundur Ingi Þorvaldsson. Leikmynd, búningar og
gervi: Þórunn María Jónsdóttir. Tónlist og hljóð-
mynd: Borgar Ao. Lýsing: Friðþjófur Þorsteinsson.
Sviðshreyfingar: Vala Ómarsdóttir. Listrænn ráðu-
nautur: Matthías Tryggvi Haraldsson. Hljóð-
hönnun: Þórður Gunnar Þorvaldsson. Leikarar:
Aðalbjörg Árnadóttir, Borgar Magnason, Davíð
Freyr Þórunnarson, Íris Tanja Flygenring, Ólafía
Hrönn Jónsdóttir, Þóra Karítas Árnadóttir og Ævar
Þór Benediktsson. Fimbulvetur í samstarfi við
Murmur frumsýndi í Tjarnarbíói föstudaginn 11.
febrúar 2022.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
Sönglög Þórunnar Guðmunds-
dóttur verða flutt á fernum tón-
leikum á jafn mörgum dögum á
Austur- og Norðurlandi næstu daga
undir yfirskriftinni „Eyrnakon-
fekt“. Flytjendur eru Björk Níels-
dóttir sópran, Erla Dóra Vogler
mezzósópran, Eyjólfur Eyjólfsson
tenór, Hafsteinn Þórólfsson bari-
tónn og Eva Þyri Hilmarsdóttir pí-
anóleikari. „Hér er um að ræða
bráðfyndna tónleika með nýjum
íslenskum samsöngslögum, dúett-
um, tríóum og kvartettum. Lögin
eru fyrir söngvara og píanó og
skiptast í þrjá flokka eftir efni:
Sumarlög, Matarlög og Lög um ást-
ina,“ segir í tilkynningu frá hópn-
um. Þar kemur
fram að Þórunn
sé „hugleikari,
söngkona,
deildarstjóri
söngdeildar
klassísku deildar
MÍT, leikskáld,
skáld og tón-
skáld auk þess að
vera doktor í
söng og söngfræðum“. Fyrstu tón-
leikarnir eru í Tónlistarmiðstöð
Austurlands á Eskifirði í kvöld kl.
20. Á morgun kemur hópurinn
fram í Egilsstaðakirkju kl. 20, á
laugardag í Bergi á Dalvík kl. 16 og
á sunnudag í Hofi á Akureyri kl. 16.
Eyrnakonfekt á fernum tónleikum
Erla Dóra Vogler
„„Replasera kvenfólkið með litlum
sætum strákum“: Megas, hinseg-
inleiki og friðhelgi listamannsins“
nefnist fyrirlestur Þorsteins
Vlhjálmssonar sem hann flytur í
fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Ís-
lands í dag kl. 12. Fyrirlesturinn
er hluti af fyrirlestraröðinni Hin-
segin Ísland í alþjóðlegu samhengi
og einnig á dagskrá Jafnrétt-
isdaga. Hann er sýndur í beinu
streymi á YouTube-rás Þjóðminja-
safnsins.
„Í fyrirlestrinum verður gerð
tilraun til að orðræðugreina ekki
aðeins texta og tónlist Megasar á
[plötunum Loftmynd, Höfuðlausnir
og Bláir draumar] heldur líka
þögnina sem
mætti þeim og
ríkir um þær
enn í dag. Sam-
anburðar verður
leitað í erlendri
umræðu eftir
#MeToo-
byltinguna um
þá friðhelgi sem
listamenn njóta
gagnvart op-
inberum siðferðislegum viðmiðum
í kynferðismálum. Þá verður því
velt upp hvað þögnin um verk
Megasar þýði fyrir íslenska hin-
segin sögu og sögu kynverundar
hér á landi,“ segir í kynningu.
Hinseginleiki og friðhelgi listamannsins
Þorsteinn
Vilhjálmsson
Fermingarblaðið er eitt af
vinsælustu sérblöðum
Morgunblaðsins.
Fjallað verður um allt
sem tengist fermingunni.
Fermingarblað
Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn 11. mars
AUGLÝSENDUR ATHUGIÐ!
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
SÉRBLAÐ