Morgunblaðið - 17.02.2022, Qupperneq 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022
Augnlyfting
Ve
13
Við to réttu
Pe
21 re
Við
ta 13
• Dregur úr hrukkum og línum
• Hjálpar húðinni að endurnýja sig
Einstökmeðferð til að lyfta
slappri húð á augnsvæði
20%
afsláttur
NÚNA
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
„Þegar ég var lítil var mamma oft
að vinna fram á kvöld og þá tók ég
oft matinn í mínar hendur og fannst
rosalega gaman að prófa mig áfram
í eldhúsinu. Á þessum tíma var ég
oftast bara að elda pastarétti og
blanda saman grænmeti og mis-
munandi pastasósum. Þetta var
ekki mjög sparilegur matur, en
áhuga minn á matreiðslu má rekja
til þessara aðstæðna í æsku,“ segir
Kara, sem er einmitt þessi persóna
sem brettir upp ermarnar og lætur
hlutina ganga í stað þess að fara í
fórnarlambið og hlaupast undan.
Eins og gefur að skilja skiptir
miklu máli fyrir konur á borð við
Köru, sem eru að æfa fyrir erlend
mót í ólympískum hnefaleikum,
hvaða mat þær borða.
„Pakkamatur eins og frosnar
pítsur og tilbúnir réttir sem endast
í tvo mánuði hefur verið eldaður á
miklum hita og er svo skellt beint í
mikið frost sem veldur því að sem
dæmi prótínin breytast í matnum
og getur það haft slæm áhrif á lík-
amann til lengdar. Þetta er ástæða
þess að ég borða hreinan og óunn-
inn mat. Ég get mælt með því við
alla.“
Hefur stjórn á blóðsykrinum
með mataræðinu
„Ég borða prótín í öll mál og fæ
helstu trefjar og kolvetni úr ávöxt-
um og grænmeti. Ég borða rautt
kjöt og vel að borða íslenskt kjöt.“
Hún spáir töluvert í blóðsykurinn
og segir einföldustu leiðina til þess
að halda honum í jafnvægi að passa
upp á að hafa prótín í hverri máltíð.
„Eins er mikilvægt að huga að
því hvaðan kolvetnin koma og að
mataræðið sé trefjaríkt. Ef melt-
ingin starfar ekki rétt þá náum við
ekki nógu góðri nýtingu úr þeim
mat sem við borðum og getur það
haft áhrif á orkuna og heilsuna yf-
irhöfuð.
Varðandi blóðsykurinn er eins
gott að muna að ef við borðum of
mikið af kolvetnum á móti prótínum
eða of mikinn sykur í einu erum við
alltaf að berjast við orkuójafnvægi,
þar sem líkaminn kallar á sykur
þegar hann fær sykurfall.“
Kara er stöðugt að læra eitthvað
nýtt í lífinu og er það ferðalag lífs-
ins sem heillar hana meira en
áfangastaðurinn.
„Lífið hefur kennt mér svo margt
og það heldur áfram að kenna mér
á hverjum degi. Að mínu mati snýst
lífið í raun ekki um hvert þú ert að
fara heldur hver þú ert á leiðinni
þangað sem þú ætlar þér. Því ef þér
líkar ekki við manneskjuna sem þú
ert, þá skiptir í raun ekki máli hvar
þú ert, því hvert sem þú ferð, þar
ert þú!“
Er eitthvað sem þú forðast í líf-
inu?
„Út frá minni reynslu er ekki
gott að forðast neitt, heldur best að
mæta öllu um leið og það birtist en
skal þá kannski forðast það að vera
fórnarlamb. Við takmörkum okkur
svo rosalega þegar við sjáum okkur
sem fórnarlömb. Mitt mottó er að
taka ábyrgð og vera lausnamiðuð.“
Hún er á því að fólkið í kringum
okkur hafi frá mörgu að segja og
hefur fundið fjölmargar fyrirmyndir
í sínu nærumhverfi sem hún lítur
upp til.
„Ég get nefnt sem dæmi pabba
minn sem mér finnst vera klárasti
maður sem ég þekki. Hann kann
mjög margt í tengslum við fyrir-
tæki, viðskipti og er sérstaklega
góður í stærðfræði. Þegar ég er í
vandræðum með eitthvað sem teng-
ist viðskiptum, mikilvægum sam-
skiptum og tölfræði tala ég oft við
hann. Í matreiðslu hefur Garðar
Kári, sá sem kenndi mér þegar ég
byrjaði að læra, verið mikil fyrir-
mynd, hann sem dæmi vann alltaf
vel undir mikilli pressu og það vildi
ég læra. Einnig hvatti hann mig til
að halda áfram að þróa og hugsa
matinn þannig að hann verði alltaf
betri.
Í hnefaleikum hefur Valgerður,
góð vinkona, æfingafélagi og fyrsta
atvinnuhnefaleikakona Íslands, ver-
ið fyrirmynd mín ásamt Katie Tayl-
or, sem er talin ein besta
hnefaleikakona heims. Ég get talið
endalaust því ég er með helling af
ótrúlega flottu og kláru fólki í
kringum mig.
Þjálfarinn minn, Davíð Rúnar,
hefur sagt: „Alltaf að vera eins og
svampur.“ Það þýðir að við eigum
alltaf að reyna að læra af því sem
aðrir gera, hver sem það er. Allir
eru góðir á einhverju sviði og það er
hægt að læra af öllum.“
Hefur aldrei getað drukkið gos
Setur þú þér markmið í lífinu í
upphafi ársins?
„Nei, ég set mér markmið í hvert
sinn sem ég klára markmið. Ég er
með markmið sem tengjast boxinu,
vinnunni og geðheilsunni. Ég er
einnig með þriggja ára markmið og
tíu ára markmið.
Það er enginn einn tímapunktur
sem best er að setja sér markmið á.
Að mínu mati er lífið skemmti-
legra og lærdómsríkara þegar við
höfum markmið sem við vinnum að
samfleytt, án þess að vera of ströng
við okkur sjálf. Þetta snýst alltaf
um að hafa eitthvað fyrir stafni.“
Er eitthvað sem enginn veit um
þig?
„Ég hef aldrei getað drukkið gos
eins og Coca-Cola, Sprite, Pepsí og
fleira. Ég ólst mjög mikið upp hjá
ömmu og afa þar sem gos var
hreinlega ekki í boði. Þar var bara
hræringur með blóðmör á morgn-
ana, súrmatur í fötu, svið, rúgbrauð
og síld.
Sex ára gömul safnaði ég kjömm-
um, leggjum og steinum sem ég
málaði og seldi á Laugaveginum
fyrir framan Hjá Magna, spilabúð-
ina hans afa.“
Mælir með að fólk byrji smátt
Hvaða ráð áttu fyrir fólk sem
hreyfir sig lítið en hefur áhuga á að
gera breytingar á því?
„Ég mæli með að fólk byrji
smátt. Sumir ætla að gera allt sam-
an og sigra heiminn á einni viku en
keyra sig svo út og gefast upp á
endanum.
Þegar verið er að gera lífsstíls-
breytingar er best að byrja á litlum
markmiðum eins og að fara út að
ganga í 20 mínútur á dag.
Ef það gengur vel má bæta ein-
hverju við. En það sem er kjarninn
í góðri heilsu er svefninn, sem má
hvorki vera of mikill né of lítill. Ég
mæli með því að fara að sofa og
vakna á svipuðum tíma daglega.“
Uppsker í útlöndum
Hvert stefnir þú í framtíðinni?
„Ég stefni á að vera rík reynslu á
öllum þeim sviðum sem mér þykir
spennandi þar sem ég lifi fyrir það
sem ég elska að gera og mun það
ekki breytast. Ég ætla ekki að
segja frá mínum helstu mark-
miðum, en þau tengjast boxinu sér-
staklega.“
Kara kann að meta að ferðast og
þá aðallega til að keppa erlendis í
hnefaleikum.
„Keppnisferðir eru í uppáhaldi
hjá mér. Ég legg mikið á mig fyrir
slíkar ferðir, meðal annars að vera í
réttri þyngd, að vita hver andstæð-
ingurinn er og svo vil ég þekkja
leiðina á hótelið og í keppnishöllina.
Í þessum ferðum mæti ég mér og
uppsker allt sem ég hef unnið að.
Þarna reynir á að trúa á sjálfa sig
og halda hugarró og athygli meðan
á bardaga stendur. Þjálfari minn
segir stundum að við þurfum að
vera heit í hjartanu en köld í hug-
anum.“
„Forðast að vera fórnarlamb“
Kara Guðmundsdóttir er kokkur á daginn og boxari
á kvöldin. Hún hefur mætt alls konar áskorunum í
lífinu og mælir með því við alla að takast á við hlut-
ina í staðinn fyrir að hlaupast undan þeim.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Vill ekki vera fórnarlamb Kara Guðmundsdóttir boxari er ekki sú týpan
sem forðast átök. Hún telur það afar takmarkandi að horfa á sig sem fórn-
arlamb og reynir að taka ábyrgð þegar hún getur og vera lausnamiðuð.
Ein með mömmu! Kara er alin upp
hjá einstæðri móður og byrjaði ung
að aldri að prófa sig áfram í eldhús-
inu með matargerð.
Ljúffengur og góður Kara gerir
brönsinn á Brút þannig að hann er
bæði ljúffengur en einnig heilsu-
samlegur.