Morgunblaðið - 17.02.2022, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 17.02.2022, Qupperneq 47
MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022 Elsku mamma mín, mikið á ég nú eftir að sakna þín. Ég veit ekki hversu oft ég hef ætlað mér að hringja í þig í vikunni til að segja þér eitt- hvað eða spyrja þig ráða. Nú sit ég hérna í eldhúsinu þínu og horfi út á Norðfjörðinn sem var þér svo kær og fjallahringinn sem umvefur fallega bæinn okk- ar. Þú varst einstök kona með svo fallegt hjartalag og fallegt bros, þú varst glaðlynd og mikil fé- lagsvera og alltaf til í eitthvað skemmtilegt. Þú vildir alltaf líta vel út, klæddir þig smart og þér fannst skipta máli að hárið á þér væri fínt og flott. Þú varst ein af fyrirmyndum mínum í lífinu og styrkur þinn og æðruleysi kom svo berlega í ljós í veikindum þínum og þá ekki síst seinustu vikuna sem þú dvaldir á spítalan- um. Þar áttir þú samtal við okkur öll og lagðir línurnar fyrir útför- ina þína. Við áttum yndislegan tíma með þér því að við vissum að hverju stefndi. Við vildum taka inn sérhvert orð, bros, tár og andardrátt. Ég verð ævinlega þakklát fyrir þennan tíma og það verður gott að ylja sér við þær minningar þegar söknuðurinn og sorgin lætur á sér kræla. Lilja Hulda Auðunsdóttir ✝ Lilja Hulda Auðunsdóttir fæddist 27. maí 1944. Hún lést 15. janúar 2022. Lilja Hulda var jarðsungin 4. febr- úar 2022. Mamma mín, þú varst orðin þreytt og varst tilbúin að fara enda búin að skipuleggja flest sem var í þínu valdi. Þú huggaðir okkur og hughreystir og vildir hafa okkur hjá þér helst allan sólarhringinn en það veitti þér styrk og okkur líka. Þú kvaddir á friðsælan hátt hinn 15. janúar síðastliðinn með okkur börnin þín og Elsu systur þér við hlið, þú varst svo falleg eins og alltaf. Kærar þakkir vil ég send starfsfólki sjúkradeildar Fjórðungssjúkrahússins í Nes- kaupstað fyrir einstaka um- hyggju og velvilja, þið eruð ein- stök og reyndust okkur svo vel. Elsku mamma, þó að þú sért búin að yfirgefa þessa jarðvist þá veit ég að þú ert alltaf með okkur. Margs er að sakna en líka að þakka. Strákarnir mínir Egill og Kristinn eiga góðar minning- ar um yndislega ömmu sem var umhugað um velferð þeirra. Elsku mamma, nú er komið að leiðarlokum, við ráðum ekki okk- ar tíma hér á jörð. Með djúpu þakklæti og mikilli elsku vil ég þakka þér fyrir að standa við hlið mér og allt sem þú varst mér elsku mamma. Guð blessi þig og okkur öll sem syrgjum og söknum. Takk fyrir allt og allt. Þeir segja mig látna, ég lifi samt og í ljósinu fæ ég að dafna. Því ljósi var úthlutað öllum jafnt og engum bar þar að hafna. Frá litlu hjarta berst lítil rós, því lífið ég þurfti að kveðja. Í sorg og í gleði ég senda mun ljós, sem að mun ykkur gleðja. (Höf. ók.) Þín dóttir, Kristín. Elsku hjartans mamma mín. Besta mamma í heimi eins og ég sagði þér svo oft. Nú ertu far- in frá okkur. Þú varst svo góð mamma og amma. Ég fékk alltaf að fara mínar leiðir og þú reyndir ekki að stjórnast neitt í mér en varst alltaf til staðar, ég gat alltaf leit- að til þín með alla hluti. Þú varst svo dásamlega hreinskilin á svo skemmtilegan hátt. Sem mér fannst dásamlegur eiginleiki. Þegar ég horfi til baka þá átti ég yndislega æsku með þér. Þú kvartaðir aldrei yfir nokkrum hlut. Þú varst algjör nagli, mjög dugleg og horfðir glöð fram á veginn með fallega brosið þitt. Þú varst mikil fé- lagsvera og hafðir mjög gaman af að vera innan um skemmtilegt fólk. Þú hafðir mjög gaman af því að vera fín og áttum við nokkrar búðarferðirnar saman. Þú hugs- aðir alltaf vel um útlitið og hárið á þér var alltaf svo fallegt. Þú ætlaðir sko aldrei að verða grá- hærð. Við vorum mjög nánar og heyrðumst nánast daglega og stundum oft á dag. Við ræddum svo margt skemmtilegt eins og drauma, uppskriftir, mat, bakst- ur, barnabörnin, fiskirí og ekki má gleyma veðrinu. Með alla hluti á hreinu. Við bjuggum of langt hvor frá annarri en gerðum okkar besta til að hittast eins og færi gafst en síminn reddaði öllu. Það var alltaf svo gott að koma heim. Þú tókst alltaf svo vel á móti okkur með endalaus- um veislum. Krakkarnir elskuðu að fara á bryggjuna og veiða, eiga þau svo yndislegar minn- ingar um ömmu Huldu. Síðasta skiptið sem þú komst til okkar á Akranes var í októ- ber. Það var yndislegt fyrir okk- ur fjölskylduna að fá að hafa þig hjá okkur. Við ræddum marga skemmtilega hluti og þar á með- al um nísku. Hún bað mig sér- staklega um að koma því að hérna að hún hefði ekki verið nísk! Sem ég held að allir geti tekið undir. Þetta var svo ekta mamma. Því er hér með komið á framfæri. Það var mjög dýrmætur tími sem við fengum með þér á sjúkrahúsinu í Neskaupstað. Bæði mjög skemmtilegur og erf- iður. Vil ég þakka yndislegu starfsfólki fyrir mikla hlýju á þessum tíma sem mamma dvald- ist þar. Þú saknaðir pabba alltaf mik- ið sem fór allt of snemma frá okkur. En ég veit að hann hefur tekið fast utan um þig þegar þú sveifst yfir í Sumarlandið. Nú getið þið farið saman til Parísar eins og þið ætluðuð alltaf að gera. Við söknum þín svo sárt og erum þakklát fyrir þann tíma sem við höfum fengið að njóta með þér í gegnum þessi ár. Það er alltaf erfitt að kveðja mann- eskju sem maður elskar svona mikið. Það á eftir að taka tíma að átta sig á að ekki er hægt að hringja og spjalla. Það er skrítin tilfinning að eiga ekki foreldra. Við elskum þig endalaust elsku drottningin okkar. Rán, Fannar, Eir, Snær og Ísey. ✝ Þorsteinn Gíslason mat- sveinn fæddist 19. nóvember 1932 á Þorfinnsstöðum í Önundarfirði. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Eir 6. febrúar 2022. Foreldrar Þor- steins voru Guð- rún Jónsdóttir, f. 24. mars 1900, d. 3. júlí 1985, og Gísli Þor- steinsson, f. 29. september 1895, d. 18. desember 1961. Systkini Þorsteins eru: Ís- leifur (látinn), Magnús (látinn), Bjarni (látinn), Guðbjörg (lát- Björnsdóttir, og d) Borgrún Alda. 2) Ingimar, f. 8. maí 1957, fyrrverandi maki Anna María Ríkharðsdóttir, sonur þeirra: a) Heimir, sambýliskona Sunna Björk Skarphéðinsdóttir. 3) Kristín, f. 27 nóvember 1961. 4) Steinar, f. 7. október 1964. Langafabörn Þorsteins eru: Sigurður Arnar, Rúrik Freyr, Sóley, Þorsteinn Úlfur og Loki. Sambýliskona Þorsteins var Ólafía Guðrún Hagalínsdóttir, f. 20.8. 1931, hófu þau sambúð 1982 á Flateyri og bjuggu þar til 1995. Eftir snjóflóðið á Flateyri fluttu þau til Reykjavíkur. Börn Ólafíu eru: 1) Hilmar Guðmundsson, maki Sigríður Brynja Sigurðardóttir. Börn þeirra eru: a) Árný Hlín, maki Þorvarður Jóhann Jónsson, börn þeirra eru Hlín, Kolbrún Harpa og Hilmar. b) Arndís Anna, maki Már Wardum, börn þeirra eru Vikt- or, Arnar Már og Brynja Mar- grét. 2) Eyrún Þóra Guðmunds- dóttir, maki Matthías Berg Stefánsson. Börn þeirra eru: a) Guðmunda Björk, maki Garðar Rafn Eyjólfsson, börn þeirra eru Þóra Dís og Eyjólfur Rafn. b) Sigríður Guðný, maki Tryggvi Ölver Tryggvason, börn þeirra eru Matthías Már og Sara Björt. Þorsteinn verður jarðsung- inn frá Grafarvogskirkju í dag, 17. febrúar 2022, kl. 13. in), Gunnar (lát- inn), Sólveig og Guðmundur Helgi. Þorsteinn kvæntist 5. júní 1954 Borgrúnu Öldu Sigurð- ardóttur frá Eski- firði, f. 25. apríl 1935, d. 4. mars 2012, þau skildu. Börn þeirra: 1) Sigurður, f. 18. janúar 1956, d. 26. október 1995, maki Sigrún Magn- úsdóttir, f. 11. desember 1958. Börn þeirra: a) Þorsteinn (látinn), b) Berglind Ósk, c) Atli Már, maki Margrét Elsku afi Við kynnumst þegar ég er 9 ára þegar þið amma takið saman og byrjið að búa saman á Flateyri. Ég var ekki lengi að „ættleiða“ þig og vildi fá að kalla þig afa nánast um leið. Ljúfar minningar koma upp í hugann af sumrum þegar ég fékk að vera hjá ykkur og ferðast með ykkur. Ég man það svo sterkt þegar ég hljóp niður í mötuneyti Hjálms um hádegi til að sækja þig í vinn- una og svo hjólaðir þú með mig á stýrinu upp á Unnar- stíginn heim til ömmu. Alltaf gat maður verið viss um að fá hlýtt faðmlag og bros hjá þér. Þú varst svo ljúfur og þolinmóður við stelpustýri sem gat fundið upp á ýmsu. Seinna meir þegar þið flutt- uð í bæinn eftir snjóflóðið þá var gott að hafa ykkur ná- lægt. Maður kom aldrei að tómum kofunum þegar maður kom í heimsókn til ykkar ömmu og alltaf var boðið upp á hlaðborð. Þegar Þóra Dís mín var um eins árs þá leigð- um við Garðar í sömu blokk og þið um 6 mánaða skeið og það var ansi ljúft að trítla niður á náttfötunum á morgnana og eiga gæða- stund. Geymi í hjarta mínu minn- ingarnar um þig. Núna ertu kominn inn í sumarlandið og ert laus við veikindi og van- líðan. Hvíldu í friði elsku afi. Þín afastelpa, Guðmunda. Þorsteinn Gíslason Nýlega lézt á Landspítalanum góður vinur og fé- lagi okkar í AKÓGES, Hjálmar Hjálmar Th. Ingimundarson ✝ Hjálmar Th. Ingimundarson fæddist 2. nóv- ember 1928. Hann lést 12. janúar 2022. Útför Hjálmars fór fram 9. febrúar 2022. Th. Ingimundarson. Kynni okkar Hjálmars hófust fyrir röskum tutt- ugu árum, þegar ég gekk í AKÓGES. Ég tók strax eftir því, hve glæsilegur maður Hjálmar var. Hann var vörpuleg- ur og bar sig vel. Hávaxinn og beinn í baki og um svip- frítt og góðlegt andlitið lék ávallt vingjarnlegt bros, þegar hann heilsaði af hjartans ein- lægni með kveðjunni: „Sæll, vin- ur minn.“ Hjálmar var kurteis maður, gæddur einstökum þokka. Við áttum oft gott tal saman og hann sýndi mér strax vinarþel, hlýhug og áhuga. Spurði oft frétta af mínum hög- um, af einlægni og áhuga, þótt samskiptin væru nær eingöngu bundin við okkar sameiginlega félagsskap. Þessi ljúfa fram- koma átti við um alla aðra í okk- ar ágæta félagi. Hjálmar var heiðursfélagi og ötull liðsmaður AKÓGES. Hann gekk í félagið 7. febrúar 1966 og starfaði í fé- laginu til dauðadags. Hann gegndi formennsku í félaginu árið 1972 með miklum sóma. Framlag hans til húsnæðis- og byggingarmála félagsins verður seint ofþakkað. Ég kveð Hjálmar með sökn- uði. Ég minnist þessa góða drengs með þakklæti fyrir góð kynni. Það eru forréttindi að fá að kynnast manni, sem var mér sjálfum mannbætandi með sinni framgöngu og nærveru. Takk fyrir vináttuna og félagsskapinn, Hjálmar. Ég veit, að ég mæli fyrir hönd allra félaga í AKÓGES, þegar ég segi: „Far þú í friði, Hjálmar, og takk fyrir sam- fylgdina.“ Eftirlifandi eiginkonu, Sigríði V. Árnadóttur, og öllum aðstandendum og vinum sendi ég hugheilar samúðarkveðjur. Þorsteinn Gíslason. Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna Útfararþjónusta í yfir 70 ár Við tökum vel á móti ástvinum í hlýlegu og fallegu umhverfi Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÞORBJÖRG KRISTÍN BERG GUÐNADÓTTIR, Bobba, lést 26. janúar á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum starfsfólki Báruhrauns í Hafnarfirði fyrir hlýja og góða umönnun. Þeim sem hennar vilja minnast er bent á Alzheimersamtökin. Þökkum hlýhug. Agnar Steinn Gunnarsson Bryndís Eyjólfsdóttir Guðrún María Berg Sigríður Erla Berg Júlíusd. Örn Gunnarsson Ingibjörg Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, pabbi okkar og vinur, HLÍÐAR KJARTANSSON, Spóahólum 12, Reykjavík, lést á Landspítalanum mánudaginn 14. febrúar. Útför Hlíðars fer fram í Fella- og Hólakirkju miðvikudaginn 23. febrúar klukkan 13. Útförin verður í beinu streymi: https://www.fellaogholakirkja.is. Sommart Khuadphuthra Mui Suchawalee Panagiwtis Katsaros Pitak Thipanete Alexander Hlíðarsson Anna Jintana Hlíðarsson Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SÆDÍS GUÐRÚN GEIRMUNDSDÓTTIR, Skipalóni 24, Hafnarfirði, lést á Sólvangi sunnudaginn 6. febrúar. Útför fer fram í Fossvogskirkju þriðjudaginn 22. febrúar klukkan 15. Athöfninni verður streymt á slóðinni https://youtu.be/f8hxfAtW8Ig. Snæþór Aðalsteinsson Gudmund Bøndergaard Árni Geir Snæþórsson Áslaug Kristjánsdóttir Aðalsteinn Örn Snæþórsson Sigþrúður Stella Jóhannsd. Sólrún Snæþórsdóttir og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSGERÐUR ÁSGEIRSDÓTTIR, Aflagranda 40, lést á Grund miðvikudaginn 9. febrúar. Útför Ásu fer fram frá Neskirkju við Hagatorg föstudaginn 18. febrúar kl. 13. Útförin verður í beinu streymi á slóðinni www.hljodx.is/index.php/streymi. Sæmi Rokk Arna Sigga Sæmundsdóttir Anna Sigrún Auðunsdóttir Hildur Vera Sæmundsdóttir Bjarni Þór Þórarinsson Theódóra S. Sæmundsdóttir Jóhann Örn Ólafsson barnabörn og barnabarnabörn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.