Morgunblaðið - 17.02.2022, Síða 53
DÆGRADVÖL 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2022
Mikið úrval af
hálkubroddum
Verð frá Kr. 6.990.-
Vinir
fá sérkjör
Skráning á icewear.is
HVÍTANES merino peysa
Kr. 13.990.-
Þín útivist - þín ánægja
HVÍTANES Merínó hálsklútur
Kr. 4.990.-
HVÍTANES Merínó ennisband
Kr. 2.990.-
BRIMNE
meðalþykk
göngusok
Kr. 2.15
S
ir
kar
0.-
HVÍTANES merino buxur
Kr. 11.990.-
HVÍTANES
Merínó lambhúshetta
Kr. 4.990.-
ASOLO Falcon
Kr. 29.990.-
HVÍTANES Merino peysa
Kr. 13.990.-
HVÍTANES merino buxur
Kr. 11.990.-
SANDEY Flíshanskar
Kr. 2.990.-
MISTÖKIN VORU SMÁVÆGILEG – EN
YFIRMAÐURINN HAFÐI EINSTAKT LAG Á
AÐ LÁTA ÞAU VIRÐAST MUN ALVARLEGRI.
„NÁGRANNARNIR ERU ALLIR MJÖG
VINGJARNLEGIR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fá blóm þó tilefnið
sé ekkert.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞAÐ EINA SEM ER
VERRA EN TÓFÚ-
BORGARI…
ROOP ER TÓFÚ-ROP
ÞÚ KEMUR AFTUR SEINT HEIM!
VILTU HEYRA HVERS VEGNA?
NEI, TAKK. ÉG ER EKKI Í STUÐI
FYRIR SKÁLDSÖGU Í KVÖLD.
FUGLA
R
FUGLA
R
TIL
SÖLU
mennri útivist, veiðum, hlaupum
og siglingum og er ég meðlimur í
siglingaklúbbnum Ými. Við fjöl-
skyldan erum dugleg að ferðast og
fara á skíði og töluvert umstang er
oft í kringum íþróttaiðkun krakk-
anna. Þar sem við búum ekki í
næsta nágrenni við fjölskyldur
okkar förum við reglulega í frí
bæði til Egilsstaða og til Quebec í
Kanada.“
Fjölskylda
Eiginkona Óla Grétars er Anne-
Andrée Bois, f. 12.3. 1977, graf-
ískur hönnuður. Þau eru búsett í
Vesturbænum í Reykjavík. For-
eldrar Anne-Andrée: Hjónin
André Bois, f. 20.5. 1943, d. 14.11.
2017, lögfræðingur og Suzanne
Christine Beauchemin, f. 3.2. 1947,
enskukennari. Þau voru búsett í
Quebec-borg í Quebec, Kanada,
þar sem Suzanne býr enn.
Börn Óla Grétars og Anne-
Andrée eru Lilja Kristín Óladóttir,
f. 2.7. 2009, og Lúkas André Óla-
son, f. 2.11. 2011.
Systkini Óla Grétars eru Þór-
arinn Sveinsson, f. 26.6. 1967,
verkfræðingur, fjárfestir og tón-
listarmaður í Reykjavík; Sveinn
Snorri Sveinsson, f. 28.10. 1973,
rithöfundur á Egilsstöðum; Rósa
Björk Sveinsdóttir, f. 7.5. 1980,
hagfræðingur hjá Seðlabanka Ís-
lands, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Óla Grétars eru hjón-
in Sveinn Þórarinsson, f. 23.7.
1940, verkfræðingur á Egils-
stöðum, og Ólöf Birna Blöndal, f.
11.11. 1942, píanókennari og
myndlistarmaður. Þau eru búsett
á Egilsstöðum.
Óli Grétar
Blöndal
Sveinsson
Ólöf Jónsdóttir
húsfreyja á Þverá og á Siglufirði
Björn Jóhannesson
bóndi á Þverá í Hrolleifsdal og
síðar verkamaður á Siglufirði
Margrét Björnsdóttir
starfsmaður sjúkrasamlagsins
á Siglufirði
Óli J. Blöndal
kaupmaður og síðar
bókavörður á Siglufirði
Ólöf Birna Blöndal
BA í ensku og frönsku,
píanókennari og myndlistar
kona á Egilsstöðum
Guðrún Gunnarsdóttir
húsmóðir á Siglufirði
Jósep Lárusson Blöndal
símstöðvarstj. og kaupm. á Siglufirði
Guðrún Sigríður Guðmundsdóttir
húsfreyja á Hóli og Meirahrauni
Júlíus Jón Hjaltason
sjómaður á Hóli í Bolungarvík og
bóndi á Meirahrauni í Skálavík
Stefanía Ósk Júlíusdóttir
húsfreyja og símstöðvarstjóri á Eiðum
Þórarinn Sveinsson
íþróttafrömuður og kennari á Eiðum
Sigríður Þórarinsdóttir
húsfreyja á Kirkjubóli
Sveinn Guðmundsson
bóndi á Kirkjubóli í Norðfirði
Ætt Óla Grétars Blöndal Sveinssonar
Sveinn Þórarinsson
verkfræðingur á
Egilsstöðum
Guðni Ágústsson sendi mér gott
bréf: „Í minni æskusveit
Hraungerðishreppi í Flóa voru
margir snjallir hagyrðingar. Sendi
þér ljóðabréf með nokkrum vísum.
Kristinn Helgason í Halakoti var
skemmtilegur maður og reið glæst-
um gæðingum.
Einn þeirra var Glæsir Matthíasar
Ingibergssonar apótekara og rit-
stjóra Þjóðólfs á Selfossi.
Hér um sveitir heyra má
hrynja björg úr fjöllum
þegar Kristinn þeysir á
Þjóðólfs-Glæsi snjöllum
(Bjarni Ólafsson Króki)
Annan gæðing tamdi Kristinn fyr-
ir Ágúst Þorvaldsson alþm. á Brúna-
stöðum. Kristinn sagði margar sög-
ur af honum, töltið væri undra-
mjúkt, að ríða Þingmannsjarpi væri
eins og að sitja engil.
Fáir líta fegri garp
og fjöllin syngja undir,
þegar Kristinn Þingmannsjarp
þeysir yfir grundir.
(Guðlaug Sveinbjörnsdóttir, Uppsölum)
Guðlaug var einhvern tíma beðin
að yrkja um pilsasíddina:
Mörg er stúlkan mjó og löng,
meiri hæð en víddin.
Held ég best í hálfa stöng
hæfi pilsasíddin.
Oddgeirshólasystkinin voru góðir
hagyrðingar, Sigríður Árnadóttir
hugsaði yfir ána en hún bjó í Arn-
arbæli í Grímsnesi:
Frá því ljúf hér lágu spor,
létt á þessum grundum,
hjartað bæði og hugur vor
hvarfla þangað stundum
Bræður hennar Guðmundur og
Jóhann bændur í Oddgeirshólum
ortu oft vísur:
Engin nóg úr býtum ber
brellin er vor glíma.
Nægjusemi ekki er
aðall vorra tíma.
(Guðmundur Árnason)
Alla tíð það unað veitir
út um víðar landsins jarðir.
Ekkert prýðir okkar sveitir
eins og fríðar sauðahjarðir.
(Jóhann Árnason)
Ásgeir Þórarinsson vörubílstjóri á
Selfossi var alinn upp á Brúnastöð-
um, hann flutti mjólkina að Litlu-
Reykjum en oft heyrði hann hljóma
hina miklu rödd Páls Árnasonar
þegar hann nálgaðist brúsapallinn:
Heyrist glymja hátt við ský
hugur fylgir máli.
Það er fár og ósköp í
orðunum hjá Páli.“
Niðurlagið á bréfi Guðna kemur á
morgun.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Ljóðabréf frá Guðna