Morgunblaðið - 25.02.2022, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2022
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
HEITIRPOTTAR.IS
Sími 777 2000
Saltvatnspottar,
klórpottar og
hitaveitupottar
Eigum til á lager
alla tegundir potta
Sendum hvert
á land sem er
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Boðinn Línudans fellur niður. Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11.
Opin Listasmiðja kl. 9-12. Morgunleikfimi með Halldóru á RÚV kl.
9.45-10. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Opin Listasmiðja kl. 13-15.45.
Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30.
Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkullulaut kl. 8.30-13, heitt á könn-
unni. Leikfimihópur frá kl. 10. Prjónakaffi frá kl. 10. Kóræfing kl.13.
Allir velkomnir í Gerðuberg.
Gjábakki Kl. 8.30-11.30 opin handavinnustofa. Kl. 9-11.30 0Postulíns-
málun. Kl. 9-11 botsía-æfing. Kl. 13-15.30 tréskurður. Kl. 14-15 Sögur
og fræði. Kl. 20 félagsvist.
Grafarvogskirkja Þriðjudaginn 1. mars verður opið hús fyrir eldri
borgara í Grafarvogskirkju. Opna húsið er kl. 13-15. Margt er sér til
gamans gert s.s. spilað, spjallað og sungið. Að opna húsinu loknu er
boðið upp á kaffi og meðlæti. Umsjón hefur Sigrún Eggertsdóttir.
Kyrrðarstund er kl. 12. Að henni lokinni er boðið upp á léttan hádegis-
verð gegn vægu gjaldi. Verið öll hjartanlega velkomin!
Gullsmári 13 Opin handavinnustofa kl. 9-12. Qi-gong heilsueflandi
æfingar kl. 10. Fluguhnýtingar kl. 13
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi milli
kl. 9-11. Útskurður kl. 9-12. Bíó kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Handa-
vinna, opin vinnustofa frá kl. 10. Brids kl. 13. Hádegismatur kl. 11.30–
12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður.
Korpúlfar Morgunleikfimi útvarpsins kl. 9.45. Styrktar- og jafnvægis-
leikfimi í Borgum kl. 10. Pútt á Korpúlfsstöðum kl. 10. Skákhópur í
Borgum kl. 12.30. Vilborg Davíðsdóttir kynnir bókina Auði, sem fjallar
um Auði Djúpúðgu kl. 13.Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13. Sund-
leikfimi í Grafarvogslaug kl. 14. Leiklestur með Sigurði Skúlasyni í
Borgum kl. 14. Gleðin býr í Borgum.
Seltjarnarnes Útskurður og tálgun í Valhúsaskóla kl. 9. Kaffikrókur á
Skólabraut milli kl. 9 og 11.30. Syngjum saman í salnum á Skólabraut
við undirleik Bjarma kl. 13. Allir velkomnir. Kaffisopi á eftir.
Elskulega mamma mín
mjúk er alltaf höndin
þín
tárin þorna sérhvert
sinn
sem þú strýkur vanga minn.
Þegar stór ég orðinn er
allt það skal ég launa þér.
(Sigurður Júlíus Jóhannesson)
Magnús Jón.
Amma Didda var engin venju-
leg amma. Hún bakaði aldrei
pönnukökur og prjónaði ekki
neitt. Hún var fín dama – alltaf
smart í tauinu og gekk helst ekki
í lágbotna skóm, enda voru þeir
lummulegir. Hún fór aldrei nokk-
urn tímann út úr húsi nema með
varalit og fór reglulega í lagningu
fram á síðasta dag. Hún var bara
44 ára þegar hún varð fyrst
amma og 81 þegar síðasta barna-
barnið fæddist.
Amma elskaði að vera innan
um fólk og halda partí og það var
alltaf mikið líf og fjör í kringum
hana og margar vinkonur sem
annaðhvort voru í símanum eða í
eldhúsinu í Hvassaleitinu. Hún
stjórnaði kvenfélaginu Keðjunni
til margra ára og stóð fyrir bygg-
Sigríður Erla
Smith
✝
Sigríður Erla
(Þórðardóttir)
Smith fæddist 4.
nóvember 1930.
Hún lést 8. febrúar
2022. Útför fór fram
24. febrúar 2022.
ingu sumarhúss
Keðjunnar á Laug-
arvatni. Þaðan eig-
um við öll góðar
minningar. Keðju-
kofinn var pínulítið
50 fermetra hús en
það virtist enda-
laust vera hægt að
troða inn í hann
fólki og þegar best
lét var bara sofið á
flatsæng í stofunni
eða tjaldað fyrir utan. Í seinni tíð
fengu systkinin Keðjukofann lán-
aðan og stundum vélstjóra-
bústaðinn við hliðina samtímis og
nutu þess að vera á staðnum.
Það var mikið ævintýri að læð-
ast í kompuna hennar ömmu –
fyrst þurfti maður að fara í skúff-
una undir bakarofninum og finna
lykilinn – svo laumaðist maður
niður kjallaratröppurnar og opn-
aði kompuna – þar blasti við alls-
konar matarkyns eins og súpu-
dósir frá Campbells sem afi hafði
keypt á ferðum sínum og það var
oftast hægt að finna fjólublátt
Cadburys-súkkulaði og Smartís
ef vel var að gáð.
Amma fór á hverju ári með afa
í siglingu þegar hann var enn að
vinna – þau sigldu á allar helstu
hafnarborgirnar og það mátti
treysta því að hún kom með eitt-
hvað handa öllum þegar hún kom
heim. Henni var mikið í mun að
velja allar gjafir af kostgæfni og
helst af öllu urðu þær að vera
smart og móðins.
Amma var líka ótrúlega minn-
ug og gat rifjað upp í smáatriðum
það sem gerðist í Viðey áður en
hún flutti þaðan 9 ára gömul en
hún gat líka sagt okkur nákvæm-
lega hvað stóð í Mogganum í gær
eða hvað var rætt í síðasta Silfri.
Hún fylgdist vel með, var vel
upplýst og gaman var að tala við
hana um málefni líðandi stundar
þar sem hún hafði oft á tíðum
sterkar skoðanir á mönnum og
málefnum.
Amma hafði einstaklega já-
kvætt viðhorf til lífsins. Hún
hafði aldrei smakkað betri mat en
þann sem var á disknum hverju
sinni og aldrei fengið betra rauð-
vín en var í glasinu í það skiptið.
Hún hafði áhuga á öllum í kring-
um sig og hvað við vorum að
gera, mætti í allt sem henni var
boðið fram á síðasta dag og vildi
öllum vel. Þó við tökum ekkert
annað frá henni með okkur út í
lífið en þetta jákvæða lífsviðhorf
þá væri það meira en nóg.
Minningin lifir um frábæra
ömmu sem var lífsglöð fram á síð-
asta dag – en ákaflega fegin að fá
að fara þegar að því kom. Von-
andi er hún núna í sumarlandinu
að dansa og syngja fúsa flugu
með afa og öllum vinkonunum
sem farnar voru á undan.
Takk fyrir allt, elsku amma
Didda.
Sigríður (Sigga),
Orri, Magnús, Heiðar,
Ingimar, Íris, Þórhildur,
Elís, Sigþór og
Þórhallur.
Kynni mín af Sigríði Smith má
rekja til sjöunda áratugar liðinn-
ar aldar og hafa því staðið í yfir
50 ár, eða allt frá því ég hóf störf í
Sparisjóði vélstjóra. Sigríður og
Magnús eiginmaður hennar voru
áhugasamir stofnfjáreigendur
sparisjóðsins.
Sigríður var á þessum tíma
formaður kvenfélagsins Keðj-
unnar, sem var félag eiginkvenna
vélstjóra, en þá var óþekkt að
konur störfuðu við vélstjórn. Sig-
ríður var formaður Keðjunnar í
þrjátíu ár og var mikill kraftur í
félagsstarfinu. Meðal annars var
byggt sumarhús í Laugardal til
afnota fyrir félagskonur og fjöl-
skyldur þeirra. Eins stóðu kven-
félagskonur fyrir glæsilegum
dansleikjum, sem lengi verða í
minnum hafðir.
Sigríður var einstaklega kraft-
mikil kona, sannkallaður skör-
ungur, skynsöm og góðhjörtuð.
Hún var félagslynd og vinmörg.
Hún hafði sérstaka ánægju af því
að sinna menningarmálum – fór
oft í leikhús og á hljómleika og
ævinlega mætti hún á tónleika
þar sem frændi hennar Kristinn
Sigmundsson óperusöngvari kom
fram.
Sigríður var kosin í stjórn
Sparisjóðs vélstjóra og gegndi
þar störfum í meira en áratug.
Árið 2003 var hún formaður
stjórnar og var samstarf okkar á
þeim vettvangi einstaklega
ánægjulegt.
Eftir að ég lauk störfum fyrir
sparisjóðinn fór samverustund-
um okkar fækkandi en taugin
okkar á milli slitnaði þó ekki og
höfum við haft samband annað
slagið, síðast á 91 árs afmælisdegi
hennar 4. nóvember sl. Þá var
hún hress í tali, en þó var greini-
legt að heilsa hennar væri farin
að gefa sig.
Það er mikill sjónarsviptir að
minni kæru vinkonu.
Ættingjum hennar færi ég
samúðarkveðjur.
Hallgrímur G. Jónsson.
Elsku amma.
Það er sárt að
kveðja en margar
góðar minningar
hlýja á svona stundum.
Þú varst margt í lífinu en fyr-
ir mér varstu fyrst og fremst
amma mín.
Þú hafðir alltaf tíma fyrir
mig þegar ég var lítil. Þegar ég
var fimm ára bjuggum við
mamma og pabbi um tíma
heima hjá þér og afa og ég
minnist þess þegar við tvær fór-
um í feluleik. Það var komið að
mér að leita en þú faldir þig á
svo góðum stað að ég þurfti á
endanum aðstoð frá afa til þess
að finna þig. Þetta var alvöru-
leikur og ekkert gefið eftir. Þú
varst alltaf uppátækjasöm og ég
man svo sterkt eftir því þegar
þú ákvaðst að hrekkja mig og
Aðalheiður Guð-
finna Magnúsdóttir
✝
Aðalheiður
Guðfinna
Magnúsdóttir
fæddist 21. maí
1931. Hún lést 14.
febrúar 2022.
Útför fór fram
24. febrúar 2022.
tókst úr þér fölsku
tennurnar og sýnd-
ir mér. Þú hlóst svo
dátt að þessum
hrekk þínum á
meðan ég horfði á
skelfingu lostin.
Þegar ég var sjö
ára fékk ég að fara
ein með þér og afa
til Kanarí. Þar var
margt skemmtilegt
gert eins og að
hanga í sundlauginni, fara á
ströndina og í tívolí. Oftast
vörðum við tímanum með öðr-
um íslenskum eldri borgurum
og ég naut allrar athyglinnar í
botn. Eins og góðum Íslend-
ingum sæmir vorum við auðvit-
að með SS-pylsur með í för en
þegar átti að elda þær eitt
kvöldið sætti ég mig ekki við
neitt annað en að fá kokteilsósu
á pylsuna mína. Þú fórst þá í
leiðangur til að reyna að finna
kokteilsósu og komst aftur á
hótelið með alls konar sósur,
smurosta og salöt. Ekkert af því
var kokteilsósa. En ég gleymi
því aldrei að þú reyndir.
Alltaf varstu hjálpsöm og
aldrei var neitt tiltökumál að
aðstoða mig. Þegar ég útskrif-
aðist úr menntaskóla vildi ég
klæðast upphlutnum þínum og
auðvitað var ekkert mál fyrir
þig að þrífa búninginn, pússa
gullið og þrengja fötin fyrir
mig. Ég fékk líka að fara í eld-
hússkápana þína og taka leirtau
til eignar þegar ég flutti að
heiman því það var nefnilega al-
ger óþarfi að kaupa nýtt ef eitt-
hvað var þegar til.
Þegar ég gerði heimildar-
mynd í náminu mínu, um afa og
samband hans við bílinn sinn,
þá þótti þér nú skemmtilegt að
fá að taka þátt og vera í viðtali.
Þú fórst líka í gegnum öll
myndaalbúmin þín óumbeðin og
fannst til skemmtilegar myndir
af afa og bílunum hans.
Þótt ég væri í námi eða að
gera hluti sem þú kannski skild-
ir ekki alveg þá studdir þú mig
alltaf í öllu. Svona varst þú
óeigingjörn, hjálpsöm, hvetj-
andi, ástúðleg og elskuleg.
Ég mun ávallt elska þig og
bera nafn þitt með stolti. Takk
fyrir allt elsku amma.
Aðalheiður Dögg
Finnsdóttir Helland.
Elsku Alla amma hefur nú
kvatt þessa jarðvist og dansað
inn í sumarlandið en eftir sitja
minningar sem ylja.
Þessi hörkuduglega og frá-
bæra kona sem vildi allt fyrir
alla gera. Hún stoppaði aldrei í
kaffiboðum, gekk með höfuðið á
undan sér í efsta gír svo að allt
gengi nú smurt og þá breytti
engu hvort hún var mjaðma-,
hæl-, axlarbrotin eða hvort
hryggjarliðir hefðu fallið saman,
alltaf var hún í efsta gír og
kaffiboð skyldi haldið. Hún var
fyrst allra til að mæta í eld-
húsfrágang í veislum hjá öðrum,
svo ótrúlega hjálpsöm. Kaffi-
boðin eru manni ofarlega í huga
og þá helst möndlukakan með
bleika glassúrnum. Amma var
mjög svo verndandi og um-
hyggjusemin var engu lík. Hún
vakti alltaf eftir okkur norðan-
fólkinu þegar við vorum að
koma frá útlöndum og beið þá
ævinlega hlaðborð hjá ömmu,
og breytti þá engu þótt það
væri um miðja nótt, hlaðborð
skyldi það vera.
Hún var svo mikil fjölskyldu-
kona, sá alltaf til þess að ætt-
fólkið hittist. Þá vildi hún alltaf
halda öllum upplýstum um alla
mögulega hluti og fyrir tíma fa-
cebook gat maður stólað á að
amma væri fyrst með fréttirnar.
Amma tók alltaf eftir því ef
maður mætti í nýjum fatnaði
enda fylgdist hún mikið með
tískunni og hafði unun af því að
klæða sig upp á. Í hvert skipti
sem við komum við hjá þeim
hjónum leið ekki á löngu þar til
komin var tískusýning í stofunni
og allir skyldu taka út nýjasta
dressið hennar.
Ég mun sakna þess að fá
ekki símtalið frá þér á afmæl-
isdeginum mínum, að skrifa
ekki oftar í gestabókina sem þú
eltir alla uppi með í hvert sinn
sem einhver leit inn í heimsókn,
að dansa ekki með þér þar til
ballinu lýkur eins og þér einni
var lagið.
Ég er svo glöð að ég dreif
mig í heimsókn til þín í síðustu
borgarferð minni og þrátt fyrir
hrakandi heilsu þína leið ör-
skotsstund frá því að ég heilsaði
þér og þar til þú bauðst mér
konfekt og appelsín, sem ég
auðvitað þáði því ég vissi að það
þýddi ekkert fyrir mig að af-
þakka.
Þegar maður kveður mann-
eskju eins og þig, amma, þá sé
ég svo skýrt hvað það er sem
situr mest eftir. Það eru ekki
veraldlegir dauðir hlutir, heldur
eru það minningarnar, samver-
an, viðhorfin, umhyggjan og öll
gleðin sem tifa innra með okkur
og veita hlýju í hjartasárin.
Ég er virkilega þakklát fyrir
að börnin mín hafi fengið að
kynnast þér. Mér finnst það fal-
leg tilhugsun að afi hafi sótt þig
á degi ástarinnar og miðað við
það hversu næm þú varst, þá
veit ég það fyrir víst að þú fylg-
ist með okkur sem eftir lifum og
verndar okkur rétt eins og þú
gerðir í lifandi lífi, elsku amma.
Þar til við dönsum næst,
Helga Hrönn og fjölskylda.
Jökull var einn
af þessum „alt mu-
lig“-mönnum sem
óðum fer fækk-
andi. Hann hóf störf hjá
Áhaldahúsi Kópavogsbæjar ár-
ið 2002 en kom til garðyrkju-
deildarinnar árið 2004. Jökull
bjó að fjölþættri reynslu sem
nýttist starfsemi garðyrkju-
deildarinnar vel í þeim störfum
sem hann fékkst við. Í garð-
yrkjudeildinni gegndi hann
nýrri stöðu umsjónarmanns
leiksvæða og fólst starf hans í
því að sinna viðhaldi á leik-
tækjum og leiksvæðum bæjar-
ins. Jökull var góður félagi og
Jökull Eyfells
Sigurðsson
✝
Jökull Eyfells
Sigurðsson
fæddist 2. maí
1950. Hann lést 30.
janúar 2022.
Bálför hans fór
fram 14. febrúar
2022.
samstarfsmaður og
honum var umhug-
að um að sinna vel
þeim verkefnum
sem hann hafði
hverju sinni. Það
skipti Jökul máli
að leiksvæði leik-
og grunnskólanna
væru örugg og vel
við haldið og að
starfsfólkið þar
fengi góða þjón-
ustu. Starfi sínu sinnti hann af
natni og samviskusemi sem
kom börnum bæjarins til góða.
Jökull lét af störfum hjá Kópa-
vogsbæ árið 2020 vegna veik-
inda. Við samstarfsmenn Jök-
uls viljum með þessum fáu
orðum þakka samfylgdina og
votta eiginkonu hans og börn-
um samúð okkar.
F.h. starfsmanna garðyrkju-
deildar Kópavogs,
Stefán
Gunnarsson.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar
Yndislegi pabbi minn, ástkær sonur okkar,
bróðir, mágur og frændi,
GUNNAR SIGURBJÖRN INDRIÐASON,
lést miðvikudaginn 16. febrúar.
Ljúfar minningar okkar um ástríkan pabba,
son og kærleiksríkan bróður munu ávallt lifa
í hjörtum okkar. Yndislegur, hlýr og umfram allt umhyggjusamur
fjölskyldumaður.
Rakel Mist Gunnarsdóttir
Kolbrún Ævarsdóttir Jón Pétursson
Sigurrós Yrja Jónsdóttir Elmar Þór Björnsson
Ævar Indriðason
Pétur Jónsson
Kara Mist Jónsdóttir Jonas Nørskov
Darri, Máni, Rökkvi, Bastían Björn og Birnir Sölvi