Morgunblaðið - 25.02.2022, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2022
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Hugmyndin að verkinu fæddist út
frá fyrri sýningu okkar og snýr að
hugmyndinni um falda hagkerfið hér
á Íslandi,“ segir Ólafur Ásgeirsson
um sýninguna Tu jest za drogo (Úff
hvað allt er dýrt hérna) í leikstjórn
Salvarar Gullbrár Þórarinsdóttur
sem frumsýnd er á Litla sviði Borg-
arleikhússins í kvöld kl. 20. Sýningin
er samstarfsverkefni Borgarleik-
hússins og Leikhópsins PóliS sem
hlaut Grímuverðlaunin sem sproti
ársins árið 2021 fyrir leiksýninguna
Co za poroniony pomysł (Úff hvað
þetta er slæm hugmynd) sem sýnd
var við góðar viðtökur í Tjarnarbíói.
Fyrri sýningin var unnin í sam-
sköpun leikhópsins, en að þessu
sinni skrifar Ólafur handritið. „Okk-
ur langaði til að prófa að æfa með
tilbúið handrit, þó vissulega hafi það
tekið ákveðnum breytingum á
æfingatímanum. Ég skrifaði verkið á
íslensku og síðan þýddum við það
yfir á ensku og unnum sýninguna.
Loks var textinn þýddur á pólsku,
enda leikum við sýninguna á
pólsku,“ segir Ólafur og tekur fram
að lokaútgáfa verksins hafi aftur
verið þýdd á bæði íslensku og ensku,
enda sé textun í boði fyrir íslensku-
og enskumælandi áhorfendur í
gegnum appið Thea.
Getum hlegið að okkur
„Í sýningunni er sögð ferðasaga
tveggja ungra Pólverja sem koma til
landsins til þess að vinna í fisk-
vinnslu á Eskifirði og safna pen-
ingum fyrir brúðkaup sitt heima í
Póllandi. Á ferðalaginu hitta þau
fyrir furðulegt fólk og lenda í ýms-
um ævintýrum sem reyna á sam-
band þeirra. Hér er kærkomið tæki-
færi til að hlæja að samskiptum og
samskiptaörðugleikum en ekki síst
að okkur sjálfum,“ segir Ólafur sem
fer með ýmis hlutverk í uppfærsl-
unni og leikur bæði Íslendinga og
Pólverja, en hann lærði pólsku til að
geta leikið í fyrri sýningu hópsins.
Með hlutverk parsins fara Aleks-
andra Skolozynska og Jakub Ziem-
ann, en þau léku einnig í fyrri sýn-
ingu leikhópsins. „Verkið er skrifað
með þau í huga og þau höfðu mikið
um persónur sínar að segja,“ segir
Ólafur, en Aleksandra og Jakub
þýddu verkið á pólsku. „Leikstjór-
inn hafði líka mikið um það að segja
hvernig handritið þróaðist,“ segir
Ólafur og bendir á að á lokametr-
unum hafi tveir leikarar bæst í hóp-
inn, þ.e. þau Sylwia Zajkowska og
Andrés Pétur Þorvaldsson.
„Svo skemmtilega vildi til að við
kynntumst Sylwiu þegar við sýndum
Co za poroniony pomysł (Úff hvað
þetta er slæm hugmynd) á Eskifirði
í haust sem leið. Þar var hún með
vinnusmiðjur í tengslum við pólska
daga fyrir austan. Sylwia er með 15
ára reynslu í pólsku leikhúsi þar sem
hún hefur meðal annars unnið í
brúðuleikhúsi. Hún flutti til Íslands
fyrir ári að ósk sonar síns þar sem
hann langaði að búa á Íslandi. Þetta
er fyrsta hlutverk hennar hérlendis,
en hún hefur unnið við þrif hér á
landi. Andrés, sem lærði leiklist í
Liverpool, á ættir að rekja til bæjar-
ins Starejuchy í Póllandi, sem er
mjög merkilegt þorp. Það hefur ver-
ið gerð heimildarmynd um þorpið og
þá staðreynd að helmingur íbúa þess
hefur flust til Íslands til að freista
hér gæfunnar,“ segir Ólafur og tek-
ur fram að Sylwia og Andrés hafi
komið inn á lokametrum uppfærsl-
unnar, sem hafi verið mikill fengur.
Markmiðið að opna leikhúsið
„Lengi vel vissum við ekki hvort
við hefðum efni á að hafa þau með,
en síðan fengum við nýverið styrk
frá Reykjavíkurborg sem gerði okk-
ur kleift að hafa þau með. Þau þjóna
hlutverki eins konar „chorus“ og sjá
um að kynna persónur verksins til
sögunnar. Þess utan hjálpa þau til
við að fylla upp í allar þessar kring-
umstæður sem við erum að leika og
koma með góða orku inn í verkið.“
Að sögn Ólafs er það markmið
leikhópsins PóliS að búa til leikandi
léttar sýningar þar sem samskipti
Íslendinga og Pólverja eru til skoð-
unar. „Okkur finnst spennandi að
gera sýningar þar sem samskipti
þessara tveggja vinaþjóða eru í
brennidepli. Svo skemmtilega vill til
að eftir því sem ég kemst næst þá er
þetta fyrsta frumsýningin á pólsku í
íslensku stofnanaleikhúsi,“ segir
Ólafur og bætir við: „Markmið okk-
ar að opna leikhúsin fyrir Pólverjum
sem búa á Íslandi, jafnt gestum sem
listafólki sem vinnur hér.“
Reynir á sambandið
Úff Úr sýningunni Tu jest za drogo eða Úff hvað allt er dýrt hérna.
- PóliS frumsýnir
nýtt leikverk í
Borgarleikhúsinu
Sýningin Harmljóð um hest verður
opnuð kl. 16 á morgun, laugardag, í
Svavarssafni á Höfn í Hornafirði og
er Ástríður Magnúsdóttir sýningar-
stjóri. Þar sýnir Hlynur Pálmason,
myndlistarmaður og kvikmynda-
leikstjóri en hann lærði ljósmyndun
og kvikmyndagerð í Kaupmanna-
höfn og býr nú og starfar á Höfn.
Hlynur vinnur jöfnum höndum að
myndlist og kvikmyndagerð og sýn-
ir nú syrpu samtímaljósmynda sem
hann hefur unnið að undanfarin ár
samhliða kvikmyndagerð.
Ljósmyndaverkið Harmljóð um
hest varpar sjónrænu og grafísku
ljósi á rotnunarferli hests í síbreyti-
legri náttúru Íslands, að því er fram
kemur í tilkynningu og er verkið
sjónrænn sorgarsálmur, eins og
Hlynur orðar það, „eins konar virð-
ingarvottur til íslenska hestsins sem
spilað hefur veigamikið hlutverk í
mótun og sögu Íslands“.
Í tilkynningu segir að Hlynur hafi
lengi haft áhuga á að kanna hvernig
umhverfið móti okkur, hversu ná-
tengd við séum náttúrunni og hvern-
ig hún endurspegli hugsanir okkar
og tilfinningalíf.
„Í verkinu kannar Hlynur hið
mannlega og hið náttúrulega,
hvernig ólík blæbrigði veðráttu og
tilfinninga birtast og breytast frá
einni árstíð til annarrar, og hvernig
andstæðir pólar eins og birta og
myrkur, mýkt og harðneskja, fegurð
og ljótleiki móta bæði náttúru og
einstaklinga,“ segir í tilkynningu.
Hlynur lærði ljósmyndun og kvik-
myndagerð við Evrópska kvik-
myndaskólann og Den Danske Film-
skole í Kaupmannahöfn og bjó þar
og starfaði í tólf ár. Hann hefur hlot-
ið lof og verðlaun fyrir kvikmyndir
sínar, Vetrarbræður (2017) og Hvít-
ur, hvítur dagur (2019) og er nú að
leggja lokahönd á nýja kvikmynd í
fullri lengd, Volaða land, sem til
stendur að frumsýna í sumar.
Rotnandi hestur
í íslenskri náttúru
- Harmljóð um hest í Svavarssafni
Í sveit Hlynur Pálmason, myndlist-
armaður og kvikmyndaleikstjóri.
Franska myndlistarkonan Claire Paugam verður með
listamannsspjall á sýningu sinni Anywhere but Here í
Listasal Mosfellsbæjar á morgun, laugardag, kl. 14.
Hugmyndin að verkunum á sýningunni er byggð á
athugunum Paugam á undirmeðvitundinni og þá
sérstaklega hvort þar ríki regla eða óregla, eins og segir
í tilkynningu. Einnig liggja að baki verkunum vanga-
veltur um hvert hugurinn fari þegar hann er ekki á
sama stað og líkaminn. Listasalur Mosfellsbæjar er inn
af Bókasafni Mosfellsbæjar í Kjarna, Þverholti 2.
Paugam segir frá verkum sínum
Claire Paugam
Gagnrýnandi klassískrar tónlistar í
dagblaðinu Los Angeles Times fer
fögrum orðum um píanóskonsert
tónskáldsins Daníels Bjarnasonar,
„FEAST“, sem var frumfluttur af á
tónleikum Fílharmóníunnar í Los
Angeles um síðustu helgi í Walt
Disney Concert Hall. Segir rýnirinn
þar fara skínandi myrkan dauða-
dans sem innblásinn sé af ljóði
Edgar Allan Poe, The Masque of
the Red Death eða Gríma hins
rauða dauða. Verkið samdi Daníel
fyrir Víking Heiðar Ólafsson sem
flutti það á tónleikunum og var það
aðalverkið á efnisskrá hins virta
hljómsveitarstjóra Esa-Pekka
Salonen sem hélt um tónsprotann.
Konsertinn var frumfluttur á
sunnudag og talar rýnir um að í
honum megi heyra blöndu dep-
urðar og undurs sem einkenni svo
oft íslenska tónlist. Ber hann mikið
lof á leik Víkings sem hann segir
hafa skilað vel léttleika og ógn
verksins. „Ekkert getur dregið úr
fallegum tóni hans,“ skrifar rýnir
m.a. um leik Víkings sem hélt frá
Los Angeles til New York og lék í
Carnegie Hall. Umfjöllun um tón-
leika Víkings þar verður í blaðinu á
morgun.
Daníel og Víkingur hljóta lof í LA Times
Morgunblaðið/Einar Falur
Í Bandaríkjunum Víkingur Heiðar lék í
Los Angeles og New York í vikunni.
Gary Brooker, forsprakki hljómsveitarinnar Procol
Harum, er látinn, 76 ára. Þekktasta lag hljómsveitar-
innar er án efa „A Whiter Shade of Pale“ frá árinu 1967
sem naut gífurlegra vinsælda. Brooker stofnaði hljóm-
sveitina og var aðalsöngvari hennar auk þess að leika á
hljómborð og semja lög og texta. Hann lést af völdum
krabbameins á heimili sínu um síðustu helgi og var
hans minnst á vef hljómsveitarinnar í byrjun vikunnar
með þeim orðum að persónutöfrar hans hafi verið
alþekktir og þá ekki bara á sviði með Procol Harum
heldur einnig í daglegu lífi. Segir í minningarorðum að
Brooker hafi verið skilningsríkur og hjartahlýr.
Gary Brooker úr Procol Harum látinn
Gary Brooker
HR TULEIK
UR
vogue
fyrir h
eimilið
, ergom
tion o
g K100
z
z
z
Sendu okkur hrotu frá maka, vini eða
… á hrotur@k100.is og þú gætir unnið
geggjað Ergomotion Smart rúm að
verðmæti
988.000,-
Drögum út
4. mars
í ísland vaknar