Morgunblaðið - 25.02.2022, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2022
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú þarft að tala þínu máli og veist
að enginn getur gert það fyrir þig. Batnandi
fólki er best að lifa.
20. apríl - 20. maí +
Naut Það er mikil spenna í gangi milli þín
og kunningja þíns og þú þarft að komast að
því hvað veldur henni. Gakktu úr skugga
um að allir hafi lesið smáa letrið þegar
skrifað er undir pappíra.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Láttu þig dreyma í dag. Sumir
draumar rætast nefnilega. Veðrið setur
strik í reikninginn hjá þér. Þú færð óvænta
heimsókn.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Á degi sem þessum er gott að
staldra við og líta fram á veginn. Hafðu í
huga að það er erfitt að heyra sannleikann
en betra er að hreinsa loftið.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þér finnst öll spjót standa á þér. Sú
tilfinning hverfur þó fljótt. Komdu mak-
anum á óvart á einhvern hátt.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Forvitni þín um mannlegt eðli hefur
alltaf fylgt þér. Þig langar að mennta þig
meira. Skoðaðu alla möguleika.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Sýndu skilning á mistökum annarra.
Þú ferð til útlanda fljótlega og óvænt. Það
er ekki hægt að þjóna tveimur herrum svo
vel fari.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þér finnst mikið hvíla á þér og
þú hefur áhyggjur af fjárhagnum. Einhver
sviptir hulunni af gömlu leyndarmáli og
kemur það mörgum í vandræði.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú átt skemmtilega tíma í
vændum. Félagslífið er fjörugt en farðu
samt varlega. Láttu þig fljóta með
straumnum um tíma.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Ákveddu að hætta því sem
skaðar heilsu þína. Verkefnin klárast á ell-
eftu stundu hjá þér. Þú lendir óvænt í
sviðsljósinu.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Taktu þig nú til og skoðaðu í
hvaða ástandi þú ert andlega sem líkam-
lega og ekki líta undan. Þú getur alveg snú-
ið við á þeirri leið sem þú ert komin/n á.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Haltu þig í mátulegri fjarlægð frá
neikvæðu fólki. Þú ert eitthvað utan við þig
en það verður ekki lengi. Þér vefst ekki oft
tunga um tönn, en það gæti gerst í dag.
„Árið 1970 var ég með vikulega
síðu fyrir ungt fólk í dagblaðinu
Tímanum og um svipað leyti varð
ég einn af stofnendum tímarits
kennari í Breiðagerðisskóla, haust-
ið 1965 og síðan hefur hann kennt
myndmennt við ýmsa skóla og
námsflokka.
Þ
orsteinn Eggertsson
fæddist 25. febrúar
1942 á Túngötu 10 í
Keflavík í heimahúsi
afa hans og ömmu.
Hann ólst upp í Garðinum frá
tveggja ára aldri og fram yfir
fermingu en flutti þá aftur til
Keflavíkur. „Ég var í sveit í
Laxárdal í Dalasýslu sumarið sem
ég fermdist.“
Eftir grunnskóla í Garðinum og
Keflavík lauk Þorsteinn landsprófi
frá Héraðsskólanum að Laugar-
vatni 1958. „Ég stundaði ekki
mikið skólanám eftir það.“
Þorsteinn fór að vinna sem
skiltamálari á Keflavíkurflugvelli
1960 og vann söngvarakeppni
K.K.-sextettsins sama ár. Í kjöl-
farið var hann ráðinn söngvari
þeirrar hljómsveitar. „Ári seinna
stofnaði ég ásamt nokkrum
kunningjum hljómsveitina Beat-
niks í Keflavík. Þar spiluðum við
reglulega á veitingastaðnum Vík
og við komum fram í ameríska
sjónvarpinu á Vellinum.
Sumarið 1963 fór Þorsteinn til
Danmerkur og var þar í tvö ár.
„Þar heyrði ég fyrst um The Beat-
les og upplifði svokallað bítlaæði. Í
Danmörku fór ég m.a. að skrifa
greinar fyrir Alþýðublaðið og tók
viðtöl við bæði The Beatles 1964
og The Rolling Stones 1965. Í
Danmörku fór ég líka að syngja
sem skemmtikraftur á vegum
Skandinavisk Musik Buro. Ég
söng í Kaupmannahöfn, Sjálandi
og nágrenni, m.a. í Hróarskeldu.“
Þegar Þorsteinn kom heim til
Íslands, sumarið 1965, fór hann að
vinna sem teiknari á auglýsinga-
stofu og varð blaðamaður á ung-
lingatímaritunum Húrra sem
Haukur Morthens ritstýrði og
Póstinum sem Ólafur Gaukur rit-
stýrði. Þá fór hann líka að semja
söngtexta fyrir hljómsveitir. Síðan
þá hafa um 700 textar eftir Þor-
stein verið hljóðritaðir af hinum og
þessum söngvurum og hljóm-
sveitum. Árið 1968 var Þorsteinn
kosinn textahöfundur ársins af
Morgunblaðinu.
Þorsteinn gerðist myndmennta-
sem ég gaf nafnið Samúel. Ég hef
einnig leikið, sett upp leikrit og
næturklúbbasýningar, verið með
útvarpsþætti á RÚV og Aðalstöð-
inni og ég stjórnaði þáttaseríunni
Bítlar og blómabörn fyrir Stöð 2
árið 1987.“ Árið 1991 kom út
skáldsagan The Paper King’s
Subjects eftir Þorstein í London.
Árin 1995-1996 bjó Þorsteinn
ásamt Jóhönnu Fjólu í Dublin.
„Þar var hún við framhaldsnám en
ég var fréttaritari fyrir útvarps-
stöðina Bylgjuna. Árið 1999 var
mér boðið að sýna skopmyndir á
alþjóðlegri listahátíð skopteiknara
í Ankara, Tyrklandi, og ári síðar
sýndi ég aftur skopteikningar og
þá einnig eftir níu aðra íslenska
teiknara. Það ár opnuðum við
Jóhanna Fjóla formlega alþjóðlega
listahátíð skopteiknara þar í borg.“
Þorsteinn og Jóhanna Fjóla gáfu
út hljómplötu með 12 lögum og
textum eftir þau árið 2019. „Vil-
Þorsteinn Eggertsson, rithöfundur og söngtextahöfundur – 80 ára
Morgunblaðið/Frikki
Afmælisbarnið Þorsteinn hefur stundað myndmenntakennslu frá því á sjöunda áratugnum.
Tók viðtöl við Bítlana og Stones
Hjónin Jóhanna Fjóla og Þorsteinn í
Ankara í Tyrklandi árið 2000.
Tónleikar Þorsteinn, Helena Eyjólfs
og Jóhanna Fjóla í Salnum 2015.
Snæbjörn Gíslason varð 104 ára 22. febrúar síðastlið-
inn. Hann er elstur núlifandi karlmanna á Íslandi.
Snæbjörn er fæddur á Litla-Lambhaga í Skilmanna-
hreppi 22. febrúar 1918, sonur Gísla Gíslasonar,
bónda og kennara, og Þóru Sigurðardóttur. Hann átti
sjö systkini sem sum náðu háum aldri. Kristín systir
hans náði 100 ára aldri, Elísa varð 96 ára og Þórður
97 ára. Snæbjörn giftist ekki og á ekki börn, en systk-
inabörn hans fylgjast með honum. Snæbjörn starfaði
við byggingarvinnu en var lengst af í fiskvinnslu hjá
HB&Co. Síðastliðin átta ár hefur Snæbjörn búið á
Hjúkrunarheimilinu Höfða á Akranesi.
Það eru ekki margir Íslendingar sem hafa lifað jafnmarga stórviðburði á ævi sinni.
Snæbjörn er fæddur frostaveturinn mikla, nokkrum mánuðum áður en Ísland fékk
fullveldi. Hann hefur lifað tvær heimsstyrjaldir svo ekki sé talað um allar þær miklu
breytingar á lifnaðarháttum Íslendinga á þessum 104 árum.
Snæbjörn fagnaði deginum með afmælisköku og kaffi á dvalarheimilinu Höfða á
Akranesi þar sem hann býr.
Árnað heilla
104 ára
Bræður Þórður (t.v.) og Snæbjörn Gíslasynir að undirbúa síldarsöltun árið 1965.
104 ára Snæbjörn á afmæl-
isdeginum 22.2.2022.
Ljósmynd/Haraldarhús
lokadagur, 25
. febrúar!
Hlustaðu
til að vinn
a!
Ef þú heyr
ir í
K100 þotun
ni
þá hringir
þú í