Morgunblaðið - 25.02.2022, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2022
HIN ÁRLEGA SPORTPRJÓNAKEPPNI.
„ÉG GERI RÁÐ FYRIR AÐ ÞÚ HAFIR FRÉTT
AF FLÓÐUNUM Á MARS?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... besta byrjunin á degi.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
FLOTT AÐ BJÓÐA
UPP Á PÍTSU MEÐ
SVIÐAKJÖMMUM
HÉLT ÉG FRÁBÆRAR
AFMÆLISVEISLUR…
ÞEGAR ÉG VAR YNGRI
OG BJÓ Í SVEIT…
SJÁÐU
ÞETTA …
HAH! OG ÞÚ KALLAR ÞIG
VÍKING? ÞÚ GETUR EKKI
REIMAÐ SKÓNA MÍNA!
BEINDU ORÐUM ÞÍNUM AÐ
MÉR! ÉG ER FORINGINN!
HEYRÐU!
hjálmur Guðjónsson hljóðritaði og
sá um undirleik en við hjónin
sungum; ýmist saman eða til
skiptis.“
Aðaláhugamál Þorsteins hafa
alltaf verið tónlist, bókmenntir og
myndlist.
Fjölskylda
Eiginkona Þorsteins er Jóhanna
Fjóla Ólafsdóttir, fyrrverandi lekt-
or við Háskóla Íslands, f. 9.7. 1941.
„Við fórum að vera saman 1990 og
giftum okkur í Salnum, Kópavogi,
í október 2010. Við höfum alltaf
búið í Reykjavík, skammt frá
Hlemmi.“ Foreldrar Jóhönnu voru
hjónin Ólafur Jakobsson, f. 27.10.
1892, d. 5.1. 1963, skósmiður á Ísa-
firði, og Anna Filippía Bjarnadótir,
f. 9.7. 1899, d. 15.4. 1992, hús-
freyja. Fyrri eiginkona Þorsteins
var Þóra Hreinsdóttir, f. 29.6.
1954, d. 31.3. 2016, myndlistar-
maður.
Börn Þorsteins með Þóru eru 1),
Valgerður, sölumaður, f. 29.8.
1977, býr í Reykjavík. Sonur henn-
ar er Emil, f. 25.4. 2008; 2), Soffía,
blaðafulltrúi, f. 4.8. 1980, býr í Sal-
isbury á Englandi. Hún er gift
Josh Pugh veitingastjóra. Börn
þeirra eru Ísabella María, f. 3.3.
2004, Emilía Sara, f. 8.12. 2005 og
Leo Borealis, f. 3.10. 2014. Börn
Jóhönnu Fjólu eru Hrönn, Ólafur
og Anna Hera.
Systkini Þorsteins: Guðfinna
Jóna Eggertsdóttir, f. 21.9. 1944,
býr í Reykjavík; Jón Þorkels Egg-
ertsson, , f. 29.9. 1945, d. 26.5.
2018, netagerðarmaður í Keflavík,
og Guðrún Eggertsdóttir, f. 27.4.
1961, sérfræðingur hjá Ríkis-
endurskoðun.
Foreldrar Þorsteins voru Egg-
ert Jónsson pípulagningamaður, f.
29.5. 1921, d. 8.9. 2005, og Guðrún
Jónsdóttir matráðskona, f. 12.7.
1924, d. 2.6. 2016.
Þorsteinn
Eggertsson
Sesselja Jónatansdóttir
húsfreyja á Breiðabóli
Benedikt Jónsson
bóndi á Breiðabóli á
Svalbarðsströnd, S-Þing.
Guðfinna Sesselja Benediktsdóttir
Húsfreyja á Túngötu 10 í Keflavík
Jón Eyjólfsson
bátsformaður, útgerðarmaður og
skipstjóri, Túngötu 10 í Keflavík
Guðrún Jónsdóttir
matráðskona, Suðurgötu 8 í Keflavík
Guðrún Egilsdóttir
húsfreyja í Garðshorni
Eyjólfur Þórarinsson
útvegsbóndi í Garðshorni í Keflavík
Guðríður Árnadóttir
húsfreyja í Kothúsum
Eggert Gíslason
óðalsbóndi og formaður
í Kothúsum
Guðrún Eggertsdóttir
húsfreyja í Kothúsum
Jón Þorkelsson
bóndi og vélamaður í Kothúsum í Gerðahr., Gull.
Guðríður Jónsdóttir
húsfreyja í Káravík
Þorkell Þorkelsson
sjómaður og bóndi í Káravík á Seltjarnarnesi
Ætt Þorsteins Eggertssonar
Eggert Jónsson
stýrimaður og síðar pípulagningamaður,
Suðurgötu 8 í Keflavík
Eysteinn Pétursson sendi mér
stöku á miðvikudag:
Kuldi víst má kallast þor.
Kuldahúfan yljar mey.
Kulda lítt ég kenni um vor.
Kuldi í svörum hugnast ei.
Sigurlín Hermannsdóttir dregur
ljóðið „Góuveðrið“ úr safnabing og
setur á Boðnarmjöð:
Góa oft er illileg og örg að líta.
Marga á hún kjóla hvíta.
Kerlingin er sér að flýta.
Er djúpar lægðir landið nálgast lifnar
Góa.
Fær hún regn og nepju nóga.
Nú skal enn þá meira snjóa.
Aðra daga klæðist kjólum kolasvörtum.
Ekki finnst mér kyn við kvörtum
kjólana hún skiptir ört um.
Hverflynd er og ýmsum líkist öðrum
skjátum.
Þegar skrúða skessu mátum
hún skolar kjóla burt með látum.
Þræsinginn og þytinn pilsa þreyja
hljótum.
Með kuldahroll í kýttum fótum
kveður Góa og vors við njótum.
Hér er „Skjálftalimra“ eftir Guð-
mund Arnfinnsson:
Farvegir fylltust af drullu,
er flekarnir saman skullu,
jörðin fram skreið,
yfir Jarþrúði leið,
sem jarðskjálfti reið að fullu.
Maðurinn Með Hattinn kveður:
Þrautfúll er Þorri – og Góa,
þurfa þau mikið að snjóa.
Með framkomu æstri
og organdi blæstri
þau valda mér angri og óa.
Limran „Lækning“ eftir Jónas
Árnason:
Ég var hræddur um hundinn minn
Lubba.
Hann var sífellt að sífra og gubba.
En hann heill orðinn er
síðan hann skrapp með mér
hérna um kvöldið á konsert hjá Bubba.
Kristján Karlsson kvað:
Eitt sinn var kerling á KEA
hafði komið til landsins með BEA.
Hún sat þar við borð
og sagði ekki orð
en saup þess á milli af tea.
Páll í Hlíð orti og kallar
„Strandalimru“:
Eftir langhlaup á Látraströndinni
stóð Lalli alveg á öndinni,
en Andrés minn Önd
var austur á Strönd,
og stóð þar allur á öndinni.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Kuldahúfa og góuveðrið
8.990
6.990
5.490
5.490 2.990
KASTARADAGAR
RAFVÖRUMARKAÐURINN
Við Fellsmúla Reykjavík / Sími: 585 2888 / www.rafmark.is
Opið virka daga kl. 09 - 18
Laugardaga kl. 10 - 16
Sunnudaga kl. 12 - 16
ALLT AÐ
70%
AFSLÁTT
UR AF
KÖSTUR
UM