Morgunblaðið - 25.02.2022, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2022
>;(//24)3;(
She Believes Cup
Bandaríkin – Ísland................................. 5:0
Catarina Macário 37., 45., Mallory Pugh
60., 75., Kristen Mewis 88.
Tékkland – Nýja-Sjáland ........................ 0:0
Lokastaðan:
Bandaríkin 3 2 1 0 10:0 7
Ísland 3 2 0 1 3:6 6
Tékkland 3 0 2 1 1:2 2
Nýja-Sjáland 3 0 1 2 0:6 1
Lengjubikar karla
A-deild, riðill 1:
Valur – Víkingur R................................... 1:3
Staðan:
Víkingur R. 3 3 0 0 10:2 9
Valur 4 2 1 1 10:4 7
ÍBV 2 1 1 0 3:2 4
Grótta 2 0 1 1 2:5 1
Þróttur V. 3 0 1 2 2:11 1
HK 2 0 0 2 2:5 0
A-deild, riðill 3:
Leiknir R. – Kórdrengir .......................... 4:2
Staðan:
Leiknir R. 3 2 1 0 9:6 7
KR 2 2 0 0 11:1 6
Kórdrengir 3 1 1 1 5:5 4
Vestri 2 0 1 1 3:8 1
Afturelding 2 0 1 1 1:6 1
Keflavík 2 0 0 2 2:5 0
A-deild, riðill 4:
Fylkir – Selfoss......................................... 4:0
Staðan:
Fylkir 3 2 1 0 7:1 7
Fram 2 1 1 0 7:3 4
FH 2 1 1 0 3:1 4
KA 2 1 1 0 3:1 4
Grindavík 2 0 0 2 0:4 0
Selfoss 3 0 0 3 2:12 0
England
Arsenal – Wolves...................................... 2:1
Staða efstu liða:
Manch. City 26 20 3 3 63:17 63
Liverpool 26 18 6 2 70:20 60
Chelsea 25 14 8 3 49:18 50
Manch. Utd 26 13 7 6 44:34 46
Arsenal 24 14 3 7 38:27 45
West Ham 26 12 6 8 45:34 42
Wolves 25 12 4 9 24:20 40
Evrópudeild karla
24-liða úrslit, seinni leikir:
Olympiacos – Atalanta ................... 0:3 (1:5)
- Ögmundur Kristinsson var ekki í leik-
mannahóp Olympiacos.
Dinamo Zagreb – Sevilla................. 1:0 (2:3)
Lazio – Porto .................................... 2:2 (3:4)
Real Sociedad – RB Leipzig ........... 1:3 (3:5)
Napoli – Barcelona .......................... 2:4 (3:5)
Rangers – Dortmund....................... 2:2 (6:4)
Real Betis – Zenit Pétursborg........ 0:0 (3:2)
Braga – Sheriff................................. 2:0 (2:2)
_ Braga vann í vítakeppni, 3:2.
Sambandsdeild karla
24-liða úrslit, seinni leikir:
Bodö/Glimt – Celtic ........................ 2:0 (5:1)
- Alfons Sampsted lék allan leikinn með
Bodö/Glimt.
PAOK – Midtjylland ....................... 2:1 (2:2)
_ PAOK vann í vítakeppni, 5:3.
- Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
með PAOK.
- Elías Rafn Ólafsson varði mark Midtjyll-
and.
Macc.Tel Aviv – PSV Eindhoven ... 1:1 (1:2)
Partizan Belgrad – Sparta Prag..... 2:1 (3:1)
Qarabag – Marseille ........................ 0:3 (1:6)
Randers – Leicester ........................ 1:3 (2:7)
Slavia Prag – Fenerbahce............... 3:2 (6:4)
Vitesse – Rapid Vín ......................... 2:0 (3:2)
Katar
Al-Arabi – Al Khor .................................. 1:1
- Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
með Al-Arabi.
Undankeppni HM karla
H-riðill:
Rússland – Holland .............................. 80:69
Ísland – Ítalía ........................ (2xfrl.)107:105
Staðan:
Rússland 3 3 0 261:212 6
Ísland 3 2 1 251:271 4
Ítalía 3 1 2 258:272 2
Holland 3 0 3 219:234 0
_ Ítalía og Ísland mætast á sunnudag og
einnig Holland og Rússland.
>73G,&:=/D
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Austurberg: ÍR – Haukar U................ 19.30
Dalhús: Fjölnir – Vængir Júpíters ..... 20.30
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Dalhús: Fjölnir/Fylkir – Fram U........ 18.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Borgarnes: Skallagrímur – Haukar ... 19.15
Álftanes: Álftanes – ÍA ........................ 19.15
Hveragerði: Hamar – Höttur.............. 19.15
Flúðir: Hrunamenn – Fjölnir .............. 19.15
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Kórinn: HK – Þróttur V............................ 19
Skessan: FH – Grindavík ......................... 19
Egilshöll: Fjölnir – Stjarnan .................... 20
Í KVÖLD!
Á ÁSVÖLLUM
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Ísland vann yfirgengilega sætan
sigur á Ítölum í undankeppni HM
karla í körfuknattleik í Ólafssal á
Ásvöllum í Hafnarfirði í gær,
107:105. Ef mið er tekið af því að
Ítalía hafnaði í 5. sæti á Ólympíu-
leikunum í fyrra þá er augljóslega
um einn stærsta sigur í sögu körfu-
boltalandsliðsins að ræða. Þótt
marga leikmenn vanti í ítalska liðið
þá sýndu Ítalirnir í þriðja og fjórða
leikhluta að í liðinu eru nokkrir frá-
bærir leikmenn.
Fyrsti A-landsleikur karla í Ólafs-
sal reyndist þvílíkur maraþonleikur.
Ekki tókst að knýja fram úrslit eftir
venjulegan leiktíma og ekki heldur
eftir framlengingu. Spennan hélt
áfram í annarri framlengingu þótt
Ísland næði þar sex stiga forskoti.
Þar tókst Íslandi að kreista fram
sérlega sætan sigur gegn sterkum
andstæðingi eftir alls kyns tauga-
spennu og mistök.
Fyrir vikið er Ísland með tvo
sigra eftir fyrstu þrjá leikina í riðl-
inum. Nokkuð sem fáir áttu líklega
von á þar sem allar þrjár þjóðirnar í
riðlinum eru hærra skrifaðar en Ís-
land miðað við árangurinn allra síð-
ustu árin. Um leið eru úrslitin vís-
bending um styrk íslenska
landsliðsins þegar sterkustu at-
vinnumenn okkar geta verið með.
Skoraði 34 stig
Frammistaða Tryggva Snæs
Hlinasonar gegn þessu sterka
ítalska liði hlýtur að vera með þeim
betri sem íslenskur leikmaður hefur
sýnt í körfuboltalandsleik. Alla vega
í mikilvægum mótsleik. Tryggvi
sýndi svo gott sem allar þær hliðar
sem maður óskar sér að sjá hjá hon-
um í landsleikjum og gott betur en
það í þetta skiptið. Tróð ítrekað,
varði sjö skot, skoraði 34 stig og tók
21 frákast.
Tryggvi var drjúgur svo gott sem
allan leikinn. Hann kveikti í áhorf-
endum snemma leiks með troðslu
þar sem hann tók um leið sókn-
arfrákast. Hann kom oft til skjal-
anna á mikilvægum augnablikum, til
dæmis undir lok venjulegs leiktíma
þegar hann fór út á völl og varði
þriggja stiga tilraun frá Nico Mann-
ion. Einnig voru nokkur atvik í fram-
lengingunum þar sem Tryggvi skor-
aði mikilvægar körfur eða tók
mikilvæg fráköst. Annað sem er
mjög athyglisvert er hversu rólegur
Tryggvi er og yfirvegaður. Í gær var
oft tekið hart á honum og hann var í
barningi við menn sem einnig eru
miklir að burðum. Sveitamaðurinn
glotti bara. Hann veit sem er að ekki
er ástæða til að stressa sig um of yfir
þessu öllu saman.
Heldur Elvar dansnámskeið?
Margir fleiri áttu þátt í sigrinum
eins og gefur að skilja. Elvar Már
Friðriksson sýndi hversu hættu-
legur sóknarmaður hann er orðinn á
alþjóðamælikvarða. Ég reikna fast-
lega með því að Elvar verði með
dansnámskeið í Reykjanesbæ í sum-
arfríinu þar sem hann útskýrir þessi
tignarlegu dansspor sem hann tekur
á körfuboltavellinum innan um menn
sem eru nánast hálfum metra hærri.
Jón Axel Guðmundsson var góður
þegar spennan var mest. Það virðist
vera einkennandi fyrir Jón að hann
er sterkur á taugum og missir aldrei
kjartinn. Vinnusemi Ægir Þórs
Steinarssonar var á sínum stað og
Pavel Ermolinskij reyndist mjög
mikilvægur. Í vikunni leyfði ég mér
að kalla hann gamlan ref og það sást
berlega í gær en Pavel skilaði mjög
eigingjörnu hlutverki.
Martin Hermannsson var sterkur
þegar Íslandi tókst að halda for-
skotinu í síðari hálfleik. Hann skor-
aði góðar körfur og gaf góðar stoð-
sendingar á Tryggva. En Martin
gerði einnig óvenjumörg mistök í
leiknum enda með mjög góða varn-
armenn á sér. Það undirstrikar að
Ísland getur unnið erfiða leiki þótt
Martin eigi ekki stjörnuleik.
Stórbrotin
frammistaða
Tryggva
- Kom sá og sigraði í mögnuðum sigri
á Ítölum eftir maraþonleik á Ásvöllum
Stjörnuleikur Leikmenn íslenska liðs-
ins fagna Tryggva Snæ Hlinasyni eftir
frækinn sigur gegn Ítalíu en Tryggvi
átti sannkallaðan stórleik í Ólafssal í
gær, skoraði 34 stig og tók 21 frákast.
Sjálfsmark réð úrslitum þegar Ars-
enal vann ótrúlegan 2:1-sigur gegn
Wolves í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu á Emirates-vellinum í
Lundúnum í gær. Hee-Chan Hwang
kom Wolves yfir á 10. mínútu áður
en Nicolas Pepé jafnaði metin fyrir
Arsenal á 82. mínútu. Jose Sá,
markvörður Wolves, varði svo bolt-
ann í eigið net í uppbótartíma og
Arsenal fagnaði sigri. Arsenal er
með 43 stig í fimmta sætinu, þrem-
ur stigum minna en Manchester
United, en Arsenal á tvo leiki til
góða á United.
Sigurmark í
uppbótartíma
AFP
Gleði Alexandre Lacazette og Nicol-
as Pépé fagna sigurmarki Arsenal.
Alfons Sampsted og liðsfélagar hans
í Bodö/Glimt eru komnir áfram í 16-
liða úrslit Sambandsdeildar UEFA í
knattspyrnu eftir 2:0-sigur gegn
Celtic í síðari leik liðanna í Noregi í
gær. Alfons lék allan leikinn með
Noregsmeisturunum sem unnu ein-
vígið sannfærandi, 5:1. Þá eru
Sverrir Ingi Ingason og liðsfélagar
hans í PAOK einnig komnir áfram
eftir sigur í vítakeppni gegn Íslend-
ingaliði Midtjylland í Grikklandi en
Sverrir Ingi lék allan leikinn með
PAOK, líkt og Elías Rafn Ólafsson
gerði með Midtjylland.
Tvö Íslendingalið
komust áfram
Ljósmynd/Bodö/Glimt
Sigur Alfons Sampsted fagnar
ásamt liðsfélögum sínum.
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu hefur ekki tapað með meiri
mun í tuttugu ár en í Frisco í Texas í
fyrrinótt þegar það steinlá gegn
heimsmeistaraliði Bandaríkjanna,
5:0, í úrslitaleik alþjóðlega mótsins
She Believes Cup.
Ísland tapaði 6:0 fyrir Svíþjóð árið
2002 en hefur þrívegis áður tapað
með fimm marka mun eftir það, 7:2
gegn Noregi árið 2004, 6:1 gegn Sví-
þjóð árið 2013 og 5:0 gegn Þýska-
landi árið 2014.
Um leið var sex leikja sigurganga
íslenska liðsins stöðvuð auk þess
sem liðið hafði fengið samtals fimm
mörk á sig í síðustu níu leikjum, eða
jafnmörg og á 90 mínútum í Frisco.
_ Hallbera Guðný Gísladóttir lék
sinn 125. landsleik og er nú ein í
þriðja sæti yfir þær leikjahæstu frá
upphafi.
_ Berglind Björg Þorvaldsdóttir
lék sinn 60. landsleik og Sandra Sig-
urðardóttir sinn 40. landsleik.
_ Þetta var 14. sigur Bandaríkj-
anna í 16 landsleikjum gegn Íslandi
en tvisvar hafa þjóðirnar gert jafn-
tefli.
_ Dagný Brynjarsdóttir var í
leikslok tilnefnd sem ein af fjórum
bestu leikmönnum mótsins. Cat-
arina Macário, Bandaríkjunum, var
valin leikmaður mótsins.
_ Næstu leikir Íslands eru í
Hvíta-Rússlandi 7. apríl og í Tékk-
landi 12. apríl, í undankeppni HM.
Tuttugu ár liðin
frá stærra tapi
- Bandaríkin unnu úrslitaleikinn 5:0
AFP
Frisco Sandra Sigurðardóttir ver skot frá Kristie Mewis og Guðrún Arn-
ardóttir er einnig til varnar í viðureign þjóðanna í fyrrinótt.