Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 25.02.2022, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 25.02.2022, Qupperneq 32
FULLKOMIN ÞÆGINDI FALLEG HÖNNUN OG ÞÆGINDI PANDORA HÆGINDASTÓLAR HLEÐSLUSTÓLLMEÐ 3 MÓTORUM STILLANLEG HJÓNARÚM MEÐ BODYPRINT DÝNU – EIN ALLRA BESTA HEILSUDÝNA Í HEIMI ZERO GRAVITY Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu Þorsteinn Eggertsson, einn ástsælasti og af- kastamesti textasmiður íslenskrar dæg- urtónlistar, fagnar áttræðisafmæli í dag og verður því fagnað með tónleikum í Salnum í Kópavogi. Á þeim verða vinsælustu lög við texta hans flutt og mun Þor- steinn sjálfur segja sög- urnar á bak við texta sína og rifja upp gamla tíma. Af lögum sem flutt verða má nefna „Ljúfa líf“, „Glugginn“, „Ég elska alla“, „Heim í Búðardal“ og „Fjólublátt ljós við barinn“. Söngvararnir Matti Matt og Heiða Ólafs flytja lögin með hljómsveit sem skipuð er Helga Reyni Jónssyni, Vigni Þór Stefánssyni, Birgi Kárasyni og Ingólfi Sigurðssyni. Áttræðisafmæli Þorsteins fagnað með tónleikum í Salnum FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 56. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Ísland vann yfirgengilega sætan sigur á Ítölum í und- ankeppni HM karla í körfuknattleik í Ólafssal á Ásvöllum í Hafnarfirði í gær, 107:105, eftir tvíframlengdan leik. Ís- land er nú í öðru sæti H-riðils með 4 stig eftir fyrstu þrjá leiki sína, tveimur stigum minna en Rússland. »26-27 Lygilegur sigur Íslands gegn Ítalíu ÍÞRÓTTIR MENNING mælikvarða sem búa hérna svo það hefur reynst lítið mál að rigga upp svona hátíð með stuttum fyrirvara á síðustu árum. Haldið verður sérstakt pubquiz með hörmungarþema. „Síðan verður viðburður þar sem fólk fær tækifæri til þess að lesa vandræðalegar færslur úr dagbókum frá unglings- árunum. Svo erum við með pöbba- rölt, þar geta menn drekkt sorgum sínum.“ Þrátt fyrir að Hólmavík sé ekki stór bær er þar að finna fjóra bari á litlu svæði. „Pöbbaröltið er ákveðinn hápunktur í þessari dag- skrá,“ segir Jón. „Svo er ljósmyndaleikur í gangi þar sem allir reyna að vera áhrifa- valdar eina helgi og það er svona hálfhörmulegt líka.“ Þá verður einn- ig uppistand á dagskrá. „Svavar Knútur kemur og Andri Ívars, uppi- standari og gítarleikari. En annars eru þetta heimagerð skemmtiatriði að mestu leyti.“ Allt í lagi þótt allt mistakist Þátttakan hefur verið góð undan- farin ár en núna eru komin upp mörg Covid-smit á Hólmavík og ekki enn vitað hvaða áhrif það muni hafa á mætinguna. Allsherjarafléttingar eru boðaðar um helgina og segir Jón það nokkuð viðeigandi. „Fyrsta Covid-smitið á Íslandi varð einmitt þegar Hörm- ungardagar voru haldnir fyrir tveimur árum svo við römmum þetta svona inn.“ Jón hefur ekki miklar áhyggjur af því að eitthvað fari úrskeiðis vegna manneklu eða annars. „Þetta er eina hátíðin þar sem það skiptir engu máli þótt allt mistakist, þó að það falli niður viðburðir og svoleiðis, það er bara í anda hátíðarinnar.“ Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Strandamenn kunna að gera sér dagamun og fagna þeir meira að segja öllu því hörmulega sem getur bjátað á. Hátíðin Hörmungardagar á Hólmavík, sem hefst í dag og stend- ur fram á sunnudag, er nefnilega há- tíð „alls þess ömurlega, ómögulega, neikvæða og niðurdrepandi í heim- inum á versta tíma ársins, í dimmum og köldum febrúar“. Þetta verður í fimmta sinn sem hátíðin er haldin á Hólmavík og í nágrenni. Stjórn lista- og menningarfélags- ins Arnkötlu, sem nær yfir Strandir allar og Reykhólahrepp, er for- sprakki hátíðarinnar. Félagið hefur staðið á bak við ýmsa viðburði og útilistaverk sem sett hafa verið upp á svæðinu á síðustu árum. „Þetta er alveg úthugsað sko. Við erum með Hamingjudaga á sumrin, það er bæjarhátíðin á Hólmavík, og þetta er hugsað sem smá mótvægi við það,“ segir Jón Jónsson, einn stjórnarmeðlimanna. Takast á við erfiðu málefnin „Það er svo margt bæði í menn- ingunni og listalífinu sem snýr að erfiðum málefnum sem þarf að ræða um. Við erum búin að vera með alls konar skemmtilega viðburði í gegn- um árin, eins og sjálfsvorkunnar- námskeið og fyrirlestra um þung- lyndi og kulnun. Alls konar fróðlegt í bland við skemmtiatriði.“ Dagskráin verður fjölbreytt að vanda. „Við verðum með alls konar smáviðburði sem við röðum saman í dagskrá.“ Hin ýmsu fyrirtæki, stofn- anir og fólk af svæðinu hafa tekið höndum saman og hvert um sig nálgast þetta efni, hörmungarnar og erfiðu málin, á ólíka vegu og skipu- lagt hina ýmsu viðburði. „Galdrasýningin og Sauðfjár- safnið eru með okkur í liði sem og menningarfélög og stofnanir á staðnum. Þau gera þetta eiginlega mögulegt með því að skipuleggja hvert sinn viðburð. Það eru mjög margir viðburðastjórar á lands- Fagna öllu því nei- kvæða og ömurlega - Hörmungardagar haldnir hátíðlegir í fimmta sinn Dapurlegt Hjónin Ester Sigfúsdóttir og Jón Jónsson, sem eru félagar í Leikfélagi Hólmavíkur, á sviði á einni af Hörmungarhátíðum fyrri ára.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.