Morgunblaðið - 02.03.2022, Síða 1

Morgunblaðið - 02.03.2022, Síða 1
„Enginnmun fyrirgefa, enginnmun gleyma“ Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu Eldflaugaárás rússneska hersins, sem beint var að helsta sjón- varpsturni Kænugarðs síðdegis í gær, varð fimm manns að bana og særði fimm til viðbótar. Útsendingar úkraínskra sjón- varpsstöðva rofnuðu í kjölfarið en komust aftur á í gærkvöldi. Fleiri en eitt hundrað borgarar hafa látið lífið í landinu frá því Rússar réðust inn í Úkraínu aðfaranótt fimmtudags. Ekki er ljóst hversu margir hermenn hafa látist í styrjöldinni und- anfarna daga, en úkraínsk stjórnvöld fullyrtu í gær að 5.700 manns úr herliði Rússa hefðu fallið. Önnur eldflaug frá rússneska hernum hæfði Frelsistorgið í Karkív í gærmorgun, í miðri annarri stærstu borg Úkraínu, en sú árás varð að minnsta kosti tíu manns að bana. Átta til við- bótar eru sagðir hafa látist í loftárás á íbúðabyggingu í borg- inni. Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í yfirlýsingu að árásin á torgið væri hryðjuverk og að Rússar hefðu enga dul reynt að draga á það. „Eftir þetta er Rússland hryðjuverka- land. Enginn mun fyrirgefa, enginn mun gleyma,“ sagði hann. Undir kvöld hófu Rússar aftur árásir sínar og rigndi sprengjum yfir Kænugarð og fleiri borgir eins og fyrri kvöld. Fyrirhugað er að friðarviðræður ríkjanna tveggja hefjist að nýju í dag, en fyrsta lotan í viðræðunum var haldin við landa- mæri Hvíta-Rússlands og Úkraínu á mánudag og ræddu sendi- nefndirnar saman í sex klukkustundir. Stjórnvöld í Kína hafa boðist til að miðla sáttum. AFP Árás Fimm manns létust eftir að rússnesk eldflaug lenti á Frelsistorgi borgarinnar Karkív síðdegis í gær. Fleiri en eitt hundrað borgarar hafa látið lífið í Úkraínu frá því Rússar réðust inn í landið. MStríð í Evrópu »2, 8, 11, 12 M I Ð V I K U D A G U R 2. M A R S 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 51. tölublað . 110. árgangur . MIKILVÆGUR LEIKUR GEGN TYRKJUM FLOTI ATLANTA HARTNÆR TVÖFALDAST GLÆPASÖGUR EIGA SÉRSTAKAN SESS Í HJARTANU VIÐSKIPTAMOGGINN LILJA FIMMTUG 20SUNNA BJARTSÝN 22 Stefán E. Stefánsson Baldur Arnarson Orkuverð heldur áfram að stíga vegna síharðnandi árása Rússa á helstu borgir Úkraínu. Átökin hafa leitt til þess að bankar og flutningafyrirtæki hafa neitað að höndla með olíu frá Rússlandi. Brent Norðursjávarolían hækkaði um tæp 8% í gær og stendur tunnan nú í 106 dollurum. Hefur verð- ið ekki verið hærra frá árinu 2014. Tilkynnti Alþjóðaorkumálastofn- unin undir kvöldmat í gær að 31 ríki, sem telst til stórnotenda olíu, hefði fallist á að losa 60 milljónir tunna af olíu úr öryggisforða sínum til þess að mæta þeirri röskun sem orðið hefur á framboði á olíu inn á markaði frá Rússlandi. Gildir samkomulagið til 30 daga og losa þjóðirnar samanlagt 2 milljónir tunna á dag yfir það tímabil. Rússar flytja um 5 milljónir tunna af olíu á erlenda markaði á degi hverj- um. Samhliða hækkandi orkuverði hefur heimsmarkaðsverð á áli hækk- að mikið og stendur nú í 3.450 doll- urum á tonnið. Hið hækkandi orkuverð færir heim sanninn um mikilvægi þess að búa við sjálfstæði í orkumálum, að sögn for- stjóra Landsvirkjunar. Forstjóri Orkuveitunnar bendir á að orku- kreppan muni auka eftirspurn eftir ís- lenskri orku. Gylfi Zoëga prófessor bendir á að átökin í Úkraínu geti orðið brodd- urinn sem hleypi loftinu úr upp- þembdum eignamörkuðum víða um heim. Mikill þrýstingur er á mörk- uðum víðast hvar um heim - Olíuverð heldur áfram að hækka - Álverð í hæstu hæðum M ViðskiptaMogginn Þótt gjald sem greiða þarf fyrir að vanrækja að færa ökutæki til skoðunar hafi hækkað á síðasta ári hefur það ekki orðið til þess að færri hafi trassað að færa ökutæki sín til skoðunar. Raunar var van- rækslugjaldið lagt á fleiri eig- endur ökutækja á síðasta ári en gert hafði verið í þrjú ár þar á undan. Heildartekjur ríkisins af vanrækslugjaldi hækkuðu veru- lega vegna þessa og hækkunar gjaldsins og námu 520 milljónum kr. á síðasta ári. »4 Æ fleiri greiða vanrækslugjald - Trassa að færa bíla til skoðunar Morgunblaðið/Ernir Bílaskoðun Þeim virðist fjölga sem trassa að færa bíla sína til skoðunar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.