Morgunblaðið - 02.03.2022, Síða 12

Morgunblaðið - 02.03.2022, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Innrás Rússa í Úkraínu mark- ar tímamót í ör- yggismálum í Evr- ópu og breytir um leið skipan heims- mála. Eftir lok kalda stríðsins hefur verið reynt að halda í það að um Evrópu lægju ekki lengur víglínur eða að óttast þyrfti árásir og stríð þótt mikið bæri á milli. Þegar Vladimír Pútín, forseti Rússlands, blés til árásar á Úkraínu var ljóst að veru- leikinn er annar. Andrúmsloftið í Evrópu hefur breyst hratt á nokkrum dögum. Í fyrstu var vandræðalegt að fylgj- ast með umræðunni um refsiað- gerðir á hendur Rússum og virtist sem aftur yrði markmiðið að þær yllu þjóðunum, sem til þeirra gripu, sem minnstum óþægindum líkt og þegar Rússar hrifsuðu til sín Krímskaga. Sennilega áttu menn von á því að Rússar myndu ekki mæta mik- illi fyrirstöðu í Úkraínu, en hetju- leg framganga Úkraínumanna, hugrekki og staðfesta gagnvart ofurefli rússneska hersins kæfði hins vegar fljótt úrtöluraddirnar. Ekki aðeins að refsiaðgerðir væru hertar – hverju sem þær síðan munu skila – heldur fóru Úkraínu- mönnum að berast fyrirheit um vopnasendingar. Merkilegri hljóta sinnaskiptin í Þýskalandi að teljast. Þjóðverjar hétu Úkraínumönnum vopnum, en hafa hingað til sagt að slíkt kæmi ekki til greina með vísan í seinni heimsstyrjöldina og arf sögunnar og staðið við það ef frá er talinn stuðningur við kúrdasveitir Íraks- hers í baráttunni við hryðjuverka- sveitir Ríkis íslams. Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, tilkynnti að auki að nú yrðu framlög aukin til varnarmála og herinn efldur. Það er til marks um breytta tíma að þessari yfirlýsingu hans var fagn- að með lófataki í þýska þinginu. Það hefði verið óhugsandi fyrir tveimur vikum. Oft hafa Þjóðverjar verið undir þrýstingi um að leggja meira til varnarmála, um sinn skerf til sam- starfsins í Atlantshafsbandalag- inu. Donald Trump var sér- staklega aðgangsharður í forsetatíð sinni, en hann er síður en svo eini Bandaríkjaforsetinn sem beitt hefur Þjóðverja þrýst- ingi. Þjóðverjar hafa hummað þenn- an þrýsting fram af sér og ávallt verið langt frá að ná því marki að leggja sem samsvarar tveimur hundruðustu af landsframleiðslu Þýskalands til varnarmála. Á næstu árum er allt útlit fyrir að Þjóðverjar muni ná því og gott betur. Þjóðverjar eiga mikil samskipti við Rússa og í Þýskalandi hefur verið tilhneiging til að bera blak af þeim þegar þeir hafa verið með yfirgang. Nú eru þær raddir þagn- aðar. Gerhard Schröder, fyrrverandi kanslari, hefur verið mest áber- andi dæmið um þetta. Hann er ötulasti stuðningsmaður Nord Stream 2-gasleiðslunnar, situr í stjórn fyrirtækisins á bak við hana, er stjórnarformaður í Rosneft og hefur verið skipaður í stjórn rússneska gas- og olíufyrir- tækisins Gasprom. Hann hefur tregðast við að gagnrýna Rússa. Hann gagn- rýndi þó innrásina, en sagði um leið að mistök hefðu verið gerð á báða bóga. Í gær sögðu helstu sam- starfsmenn Schröders til margra ára skilið við hann vegna innrás- arinnar. Ekki er síður sögulegt að Finn- ar hafa ákveðið að senda vopn til Úkraínu til að hjálpa þeim að verj- ast Rússum. Árás Rússa hefur orðið til þess að rúmlega 50 þús- und undirskriftir söfnuðust undir kröfu um að ganga í Atlantshafs- bandalagið. Finnska þinginu er því skylt að taka málið fyrir. Pútín hefur því tekist að koma því til leiðar að aðild að NATO er komin á dagskrá í Finnlandi. Sömu sögu er að segja í Svíþjóð. Svíar ætla að senda vopn og þar eru stjórnmálaflokkar farnir að tala um aðild að NATO. Eru Rúss- ar þegar farnir að vara Finna og Svía við því að innganga í NATO gæti haft alvarlegar afleiðingar. Eftir innrás Rússa í Úkraínu blasir við nýr veruleiki. Úkraínu- menn hafa staðið einir og ber- skjaldaðir í átökunum við Rússa. Þótt þeir hafi heft innrás þeirra er því miður ólíklegt að þeim takist það til lengdar. Ljóst var frá upp- hafi að Atlantshafsbandalagið ætl- aði ekki að senda her inn í Úkra- ínu. Joe Biden Bandaríkjaforseti hafði tekið af öll tvímæli um að Bandaríkjamenn myndu ekki skerast í leikinn. Það má spyrja hvort herir Evrópu gætu hrundið árás Rússa þótt þeir vildu. Líklegt er að Þjóðverjar verði ekki einir um að auka framlög til uppbygg- ingar herja sinna á næstunni. Pútín misreiknaði sig þegar hann réðst inn í Úkraínu. Ef til vill hélt hann að það yrði jafn auðvelt að taka Úkraínu og að hernema Krímskaga. Hann hefur ugglaust haldið að refsiaðgerðir yrðu meira í ætt við þær, sem þá fylgdu. Þótt honum takist að leggja undir sig Úkraínu og koma þar fyrir ein- hvers konar leppstjórn verður það í algerri óþökk 40 milljóna íbúa landsins og mun ekki verða til þess að draumur Pútíns um að endurvekja fornt veldi Rússlands og mátt rætist. Pútín hefur hins vegar tekist að skerpa allar átakalínur og hvernig sem hildarleiknum lyktar verður ekkert eins og það var fyrir Rússa. Nú er tortryggnin gegn Rússum ekki aðeins bundin við þau ríki, sem voru hluti af Sovétríkjunum eða undir járnhæl þeirra. Sumir hafa sagt að kalda stríðið sé runn- ið upp á ný, en einnig hefur verið gripið til þess að líkja stöðunni við árin fyrir heimsstyrjöldina síðari þegar halda þurfti tveimur ein- ræðisherrum í skefjum í Evrópu. Í þetta skipti er einræðisherrann einn og það verður að takast betur til nú heldur en þá. Pútín hefur hins vegar tekist að skerpa allar átaka- línur og hvernig sem hildarleiknum lyktar verður ekkert eins og það var fyrir Rússa} Tímamót í Evrópu Þ að má reikna fastlega með að fram- lag lista og menningar til and- legrar og efnahagslegrar við- spyrnu þjóðarinnar verði þýðingarmikið nú þegar sótt- varnatakmörkunum hefur verið aflétt. Manns- andinn nærist meðal annars á menningu, að skemmta sér í góðra vina hópi, sækja tónleika, leiksýningar eða aðra menningarviðburði. Í gegnum faraldurinn einsettu stjórnvöld sér að styðja af miklum myndarskap við menningu og listir til að tryggja þeim kröftugri viðspyrnu að faraldri loknum. Það er ánægjulegt að heyra fregnir af því að uppselt sé á fjölmargar sviðslistasýningar sem glæða fjalir leikhúsanna lífi að nýju við góðan orðstír. Okkur hefur tekist að endurheimta eðlilegt líf okkar með tilheyrandi framboði af úrvalssýningum þar sem allir geta fundið eitthvað fyrir sinn smekk. Góður vitnisburður um þá miklu grósku sem á sér stað í sviðslistaheiminum er nýleg úthlutun úr Sviðslistasjóði. Í vikunni var tilkynnt um 160 milljóna kr. úthlutun úr sjóðn- um til 23 atvinnusviðslistahópa leikárið 2022/23 sem fylgja 170 listamannalaunamánuðir. Tuttugu mánuðir voru veitt- ir einstaklingum utan sviðslistahópa. Á vormánuðum verð- ur einnig kynntur aukaumsóknarfrestur í Sviðslistasjóð og launasjóð sviðslistafólks vegna viðspyrnuaðgerða ríkis- stjórnarinnar. Þá verða til úthlutunar 25 milljónir úr Sviðslistasjóði og 50 mánuðir úr launasjóði sviðslistafólks með áherslu á umsóknir frá ungu sviðs- listafólki, 35 ára og yngra – sem er nýlunda. Samhliða auknum fjármunum í sviðslistir hefur umgjörð þeirra einnig verið efld und- anfarin ár. Árið 2019 voru fyrstu heildarlögin um sviðslistir sett hér á landi sem hafa það að markmiði búa leiklist, danslist, óperuflutningi, brúðuleik eða skyldri liststarfsemi hagstæð skilyrði. Á þeim grunni var meðal annars sviðslistaráð sett á laggirnar og fyrir skemmstu tók ný Sviðslistamiðstöð formlega til starfa – en sambærilegar miðstöðvar hafa lengi verið starfræktar fyrir aðrar listgreinar. Með Sviðslistamiðstöð skapast fleiri sókn- arfæri fyrir sviðslistafólk innanlands sem utan, meðal annars með stuðningi í formi ráðgjafar, tengslamyndunar, kynningar og miðlunar. Samhliða þessu hafa fleiri hópum verið tryggð- ir kjarasamningar og vinna við þarfagreiningu vegna óp- erustarfsemi í landinu sem heldur áfram með það að markmiði að setja á laggirnar Þjóðaróperu. Allt ofantalið eru atriði sem skipta máli í öflugu menn- ingarlífi þjóðarinnar. Við getum verið ótrúlega stolt af þeirri miklu frumsköpun og framleiðslu á menningu sem okkar frábæra listafólk drífur áfram. Stjórnvöld munu halda áfram að skapa menningu í landinu góð skilyrði og styðja þannig við fjalir fullar af lífi. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Fjalir fullar af lífi Höfundur er menningarmálaráðherra og varaformaður Framsóknar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Ó hætt er að segja að Olaf Scholz, hinn nýi kanslari Þýskalands, hafi komið mönnum mjög á óvart síðustu daga. Sú mynd sem fjöl- miðlar hafa lengi dregið upp af hon- um sem litlausum stjórnmálamanni, fyrirsjáanlegum á öllum sviðum og nánast vélrænum í viðbrögðum, ólíkum ýmsum skörungum sem set- ið hafa á kanslarastól landsins, hef- ur reynst alröng. Eftir aðeins þrjá mánuði í embætti er jafnaðar- mannaforinginn Scholz nú að marka sér stöðu sem tímamótaleiðtogi í þýskri sögu síðustu áratuga og hasla Þýskalandi nýjan völl í alþjóð- legum stjórnmálum. Það er Úkraínumálið sem öllu hefur breytt. Það hefur opnað augu Scholz og leiðandi stjórnmálamanna í vestrænum löndum fyrir því að forsendurnar sem samskiptin við Rússland hafa byggst á standast ekki. Rússlandi Pútíns er ekki treystandi. Vestrænt lýðræði og mannréttindi eru meira virði en friðkaup við Rússa. Stefnubreyting Þjóðverja Á sunnudaginn flutti Scholz ræðu í þýska þinginu sem mikla at- hygli hefur vakið. Þar kom skýrt fram stefnubreyting Þjóðverja í varnar- og öryggismálum. Scholz sagði að ríkisstjórn jafnaðarmanna, frjálslyndra og græningja ætlaði að verja 100 milljörðum evra í hern- aðarlegan búnað á þessu ári. Það er meira en tvö prósent af þjóðar- framleiðslunni og fer því yfir það mark sem Atlantshafsbandalagið, NATO, hefur lengi stefnt að fyrir aðildarríkin en ekki náð. Í ræðunni gat Scholz þess að stofnaður yrði sérstakur varnar- málasjóður til að tryggja þýska hernum, Bundeswehr, örugga fjár- mögnun og nýjustu hertækni til frambúðar. Lagði hann til að ákvæði um slíkan sjóð yrði sett í stjórnarskrá landsins. Viðtökurnar sem ræða Scholz fékk í þinginu sýna að þver- pólitískur stuðningur er við þessa ákvörðun ríkisstjórnarinnar. Þetta er ekki eina ákvörðun Scholz og samstarfsmanna hans í þýsku ríkisstjórninni sem markar þáttaskil. Stjórnin hefur einnig samþykkt að senda Úkraínumönn- um herbúnað til að verjast innrás Rússa. Allt frá lokum síðari heims- styrjaldar hefur það verið stefna Þjóðverja að taka aldrei með slíkum hætti þátt í hernaðarátökum í öðr- um löndum. En nú þegar Pútín birt- ist okkur sem sá grímulausi ofbeld- ismaður og hrotti sem hann auðvitað alltaf var, er Þjóðverjum ekki lengur stætt á því að taka sér stöðu á hliðarlínunni í átökum um grundvallargildi í samskiptum þjóða og Scholz kanslari hefur haft kjark og styrk til að horfast í augu við það. „Við þessar aðstæður er það skylda okkar að gera okkar besta til að hjálpa Úkraínu að verjast innrás- arher Vladimírs Pútíns. Þýskaland stendur þétt við hlið Úkraínu,“ sagði Scholz þegar hann greindi frá ákvörðuninni. Lokaði á gasleiðsluna Scholz tók einnig af skarið um einn viðkvæmasta þáttinn og efna- hagslega þýðingarmesta í samskipt- unum við Rússa, þegar hann stöðv- aði gangsetningu hinnar risavöxnu Nord Stream 2-gasleiðslu frá Rúss- landi til Þýskalands. Ef leiðslan kemst í notkun tvöfaldar hún gas- útflutning frá Rússlandi til Þýska- lands. Það er einmitt gasið frá Rússlandi og mikilvægi þess fyrir þýskt efnahagslíf sem gert hefur Þjóðverja svo háða duttlungum Moskvuvaldsins. En nú gæti svo farið að þeir muni leysa orkuvanda sinn til framtíðar með því að hefja á ný starfrækslu kjarnorkuvera, en áður höfðu þeir fyrir áhrif Græn- ingjaflokksins ákveðið að hætta notkun kjarnorku. Sumir álíta að Pútín hafi beðið með að láta til skarar skríða gegn Úkraínu þar til Angela Merkel væri horfin úr kanslaraembættinu og eft- irmaður hennar væri enn að fóta sig. Hann hafi skynjað veikleika vegna þeirrar ímyndar sem sköpuð hafði verið af Scholz og ætlað að notfæra sér það. En ef svo er hefur Pútín brugðist illa bogalistin. Þjóðverjar sýna hug sinn Það er ekki bara að Úkraínu- málið hafi opnað augu Scholz og annarra stjórnmálamanna í Þýska- landi fyrir nýjum veruleika evr- ópskra stjórnmála heldur virðist al- menningur þar í landi einnig hafa vaknað til vitundar um að stefna undanfarinna áratuga gangi ekki lengur og skili ekki þeim árangri sem að hefur verið stefnt. Hundruð þúsunda manna hafa undanfarna daga tekið þátt í mótmælum á göt- um þýskra borga gegn árásarstríði Pútíns í Úkraínu. Sýna Þjóðverjar þannig hug sinn. Meiri töggur í Scholz en margir héldu AFP Stefnubreyting Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, ávarpar þýska þingið, Bundestag, á sunnudaginn og kynnir nýja stefnu í öryggismálum landsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.