Morgunblaðið - 02.03.2022, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 02.03.2022, Blaðsíða 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2022 Vetur Það hefur verið kalt í veðri og vindasamt. Gæsir og endur þiggja nú það sem að þeim er rétt en kunna ekki alltaf að þakka fyrir sig. Þessi kona átti fótum fjör að launa í Hafnarfirði. Árni Sæberg Meginþorri til- kynntra nauðgana til lögreglu á sér stað um helgar og þá sér í lagi frá miðnætti til sex um morguninn. Árið 2020 voru sam- komutakmarkanir í tengslum við Covid-19 í hámarki. Það ár fækkaði tilkynningum um nauðganir úr að meðaltali 201 broti árin 2017 til 2019 í 114 brot, sem er um 43% fækkun. Brotum fjölgaði síðan aftur 2021 en reglur um samkomutakmark- anir gengu til baka hluta ársins. Tilkynnt var um 150 nauðganir ár- ið 2021 eða 32% fjölgun tilkynn- inga á milli ára. Breytingar í skemmtanalífinu virðast því hafa einhver áhrif og ekkert lögmál að næturlífið fari aftur í sama horf og fyrir Covid-19. Frá því ég tók við sem dóms- málaráðherra hef ég lagt mikla áherslu á aðgerðir til að sporna við kynferðisofbeldi. Margt hefur gerst í þeim efnum undanfarna mánuði og hæst ber stórauknar fjárheimildir til að efla getu lög- reglunnar til að takast á við þessi mál. Kynferðisbrot eru ólíðandi glæp- ur og samfélagsmein sem berjast þarf gegn með öllum tiltækum ráð- um. Við náum engum tökum á svona stóru samfélagsmeini án þess að virkja samfélagið sjálft. Eins gott og það er að brot séu upplýst, þá er enn betra að gera allt sem hægt er til að koma í veg fyrir þau. Og þar þurfum við öll að vera vakandi gagnvart ofbeldi. Við berum öll ábyrgð á því að uppræta þetta mein í íslensku samfélagi. Því hef ég ákveðið að hefja her- ferð vitundarvakningar í skemmt- analífinu þar sem almenningur er hvattur til þess að vera vakandi gegn ofbeldi. Þessi vitundarvakn- ing er unnin í góðri samvinnu við Neyð- arlínuna, ríkislög- reglustjóra og fjölda annarra samstarfs- aðila og kann ég öllum bestu þakkir fyrir. Nú þegar skemmtanalífið er að fara aftur í gang er gott að nota það sem tækifæri til að ná til almennings og vekja okkur öll til um- hugsunar og ábyrgð- ar. Horfum í eigin barm sem sam- félag og spyrjum okkur: Hvernig getum við gert djammið öruggara? Við berum ekki ábyrgð á hegðun annarra, en við berum þá ábyrgð að láta í okkur heyra þegar félagar okkar haga sér ekki eins og vera ber. Við ætlumst ekki til þess að almenningur fari í lögguleik eða setji sig í hættulegar aðstæður. Við erum ekki að biðja fólk um að vakta hvert annað. En það kostar okkur sem einstaklinga ekkert að vera vakandi á djamminu og spyrja óhikað af einlægni og góð- um hug: Er allt í góðu? Reynist svarið eitthvað annað en skýrt og einfalt já, þá er einfaldast að hringja í 112. Þegar kemur að kynferðis- brotum þá þurfum við sem sam- félag að halda áfram að spyrja þessarar spurningar; Er allt í góðu? Og svo lengi sem svarið er ekki klárt og skýrt já, munum við sem samfélag halda áfram barátt- unni gegn kynferðisofbeldi. Eftir Jón Gunnarsson »Nú er að hefjast her- ferð vitundarvakn- ingar í skemmtanalífinu þar sem almenningur er hvattur til þess að vera vakandi gegn ofbeldi. Jón Gunnarsson Höfundur er dómsmálaráðherra. jon@dmr.is Vitundar- vakning gegn kynferðisbrotumKannski var það blanda af óskhyggju og einfeldningshætti sem fékk okkur flest til að trúa því að Vladimir Pútín myndi aldrei fyr- irskipa rússneska hern- um að gera innrás í Úkraínu – frjálst og full- valda ríki. Við erum oft bláeygð gagnvart of- beldismönnum sem ógna frelsi og friði. Neville Chamberlain, forsætisráðherra Bretlands, lýsti því yfir að friður væri tryggður, eftir að hafa gert samkomulag við Hitler á fundi í München í september 1938. Hann ráðlagði samlöndum sínum að fara heim og sofa rólegir. Á meðan Bretland svaf lagði þýski herinn undir sig Súdetaland í Tékklandi og í mars 1939 lagði Hitler Tékkland undir sig að fullu. Frjálsar þjóðir Evrópu vökn- uðu ekki fyrr en 1. september þegar þýski herinn gerði innrás í Pólland. Auðvitað voru þeir til sem höfðu uppi sterk varnaðarorð í aðdraganda seinni heimsstyrjaldarinnar. Winston Churchill sat undir ásökunum um að vera stríðsæsingamaður. Hann sá og mat hrottana undir merkjum nasista rétt. Þá líkt og í aðdraganda innrás- arinnar í Úkraínu féllu varnaðarorðin fyrir daufum eyrum. Þjóðir Evrópu hafa greitt hátt verð- ið fyrir andvaraleysi gagnvart yfir- gangi einræðisherra sem eru tilbúnir til að beita hervaldi gegn nágranna- þjóðum. Enn og aftur kennir sagan okkur erfiða lexíu: Hernaðarlegur styrkur og samstaða lýðræðisþjóða er eina leiðin til að stöðva ofbeldismenn sem virða ekki fullveldi frjálsra þjóða. Og einmitt þess vegna geta lönd Evr- ópu, Bandaríkin og önnur lýðræðisríki ekki setið hjá líkt og áhorfendur þeg- ar hernaðarveldi leggur til atlögu við nágrannaríki. Lýðræðið sjálft er í húfi. Umpólun í öryggis- og varnarmálum Innrásin í Úkraínu í síðustu viku breytti heimsmyndinni til frambúðar. Jafnvel aðdáendur Pútíns á Vest- urlöndum hafa neyðst til að horfast í augu við staðreyndir. Traustustu bandamenn Rússlandsforseta hafa yf- irgefið hann – a.m.k. í bili. Allt frá Milo Zeman forseta Tékklands, til Viktors Orbán í Ungverjalandi, Matteo Salvini, leiðtoga Norðurbandalagsins á Ítalíu, og Marine Le Pen, leiðtoga þjóðern- issinna í Frakklandi. Árum saman hafa þess- ir stjórnmálamenn bor- ið blak af Pútín og end- urómað áróður og lygar sem þjónuðu hags- munum Kremlverja. Sundraðar þjóðir Evrópusambandsins hafa loksins náð að sameinast í umfangsmiklum efna- hagsþvingunum gegn Rússlandi ásamt Bandaríkjunum og öðrum lýð- ræðisþjóðum, þar á meðal Íslandi. Pútín hefur því tekist það sem leiðtog- um Evrópusambandsins hefur reynst ókleift. Forystufólk innan Evrópu- sambandsins er hægt og bítandi að láta af draumórum um að sambandið sjálft hafi bolmagn og pólitískt þrek til að tyggja frið, öryggi og frelsi í Evr- ópu. Stjórnvöld og almenningur um alla Evrópu hafa neyðst til að endurskoða afstöðu og stefnu í öryggis- og varn- armálum – ekki síst þær þjóðir sem standa utan NATO. Vaxandi stuðn- ingur við þátttöku í varnarbandalagi vestrænna þjóða er í Finnlandi og Sví- þjóð. Rússnesk stjórnvöld hafa í hót- unum við þessar frændþjóðir okkar, ef þær hugleiða aðild. Sviss hefur í raun yfirgefið hlutleysisstefnu sína og sömu sögu er að segja af Austurríki. Hans Dahlgren, ESB-ráðherra Sví- þjóðar, segir mikilvægt að grípa til frekari ráðstafana til að einangra Rússland. Í fyrsta skipti frá 1939 hafa Svíar heimilað vopnaflutning til átakasvæðis – Úkraínu. Algjör umpólun hefur átt sér stað í Þýskalandi. Þjóðverjar hafa ákveðið að senda vopn til Úkraínu. Olaf Scholz, kanslari vinstri stjórnar, hefur lýst því yfir að útgjöld til hermála verði aukin í 2% af landsframleiðslu. Þýski herinn verður stórefldur með 100 milljarða evra aukafjárveitingu. Við Íslendingar stöndum einnig frammi fyrir því að endurmeta stefnu okkar í öryggis- og varnarmálum. Við þurfum að styrkja enn frekar sam- vinnu meðal ríkja NATO og við verð- um að tryggja framkvæmd varnar- samningsins við Bandaríkin. Stjórnvöld, en ekki síður stjórn- málaflokkar, komast ekki hjá því að endurskoða stefnu sína í utanríkis- málum og samvinnu frjálsra þjóða í varnarbandalagi. Ekki er hjá því komist að móta nýju stefnu í mál- efnum norðurslóða. Í skjóli veiklyndis Þegar Pútín fyrirskipaði innrásina í Úkraínu var hann greinilega sann- færður um skjótan árangur. Auðvelt yrði að koma Volodimír Selenskí, for- seta Úkraínu, og stjórn hans frá völd- um. Í skjóli veiklyndis og klofnings Vesturlanda taldi Pútín sér óhætt að leggja til atlögu. En fyrirstaðan var meiri og öflugri en Kremlverjar reiknuðu nokkru sinni með. Hetjuleg framganga Úkra- ínumanna, undir forystu forseta með ljónshjarta, gegn ofbeldisfullu her- veldi hefur komið klíkunni í Kreml í opna skjöldu. En þrátt fyrir hetjulega vörn er því miður líklegt að Kænu- garður falli í hendur rússneska hers- ins á komandi dögum, sem verða skelfilegir, ekki síst fyrir almenna borgara. Eftir sundurlyndi hafa Vesturlönd borið gæfu til þess að þétta raðirnar og standa saman eftir innrásina. Sú samstaða má ekki rofna. Víðtækar efnahagslegar refsiaðgerðir skipta miklu en við verðum einnig að tryggja Úkraínumönnum vopn og landflótta fólki skjól til lengri eða skemmri tíma. Eftir standa lygar og blekkingar Pútíns, sem verður stöðugt einangr- aðri í samfélagi þjóða. Rússneskur al- menningur á betra skilið en að búa við einræði og ógnarstjórn Pútíns og skó- sveina hans. Um leið og við Íslend- ingar, líkt og öll Vesturlönd, stöndum með frjálsi Úkraínu, eigum við einnig að taka okkur stöðu með frjálsu og lýðræðislegu Rússlandi. Eftir Óla Björn Kárason » Við eigum að styrkja samvinnu ríkja NATO. Stjórnmála- flokkar komast ekki hjá því að endurskoða stefnu um samvinnu frjálsra þjóða í varnarbandalagi. Óli Björn Kárason Höfundur er formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Gjörbreytt heimsmynd

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.