Morgunblaðið - 02.03.2022, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 02.03.2022, Qupperneq 15
UMRÆÐAN 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2022 Fyrir stuttu hélt Vegagerðin upplýs- ingafund um stöðu Samgöngusáttmálans. Þar kom fram í máli Bryndísar Friðriks- dóttur að stofnunin skoðar nú hvernig koma megi öllum framkvæmdum hans fyrir þannig að um- ferðin flæði áfram og ekki fari allt í hnút á höfuðborgarsvæðinu meðan á þeim stendur. Sagði Bryndís markmiðin vera flæði og öryggi og nefndi þar hlutina í réttri röð, því öryggi er ekkert slagorð uppi á vegg sem menn lesa tvisvar og gleyma svo. Öryggi er stöðugt í huga hönnuðar og athugað í hverju skrefi en meg- inmarkmið nýrrar hönnunar í vega- kerfinu er nær alltaf betra flæði. Truflun á flæði veldur samfélaginu ótrúlega miklum kostnaði sem leggst ofan á framkvæmdakostnað í félagslegum greiningum. Eitt helsta vandamálið í skipulagi þessa verks eru hinar miðjusettu sérakreinar þungu Borgarlínunnar. Til að koma þeim fyrir þarf að um- bylta öllu vegstæðinu með tilheyr- andi kostnaði og röskun á umferð- arflæði. Hagkvæmara er að leggja sérakreinarnar hægra megin þar sem umferð er þung og lofa umferð- inni að flæða áfram um veginn á meðan eins og kostur er. Þannig virkar létta Borgarlínan. Þá línu má leggja á þremur til fimm árum fyrir um 20 milljarða króna í stað þess að eyða að lágmarki 60 milljörðum eða meir í þá þungu og taka í það 10 ár. Létta Borgarlínan gerir sama gagn og sú þunga í að halda uppi umferð- arflæðinu en er auk þess sveigjan- legri og það getur komið sér vel á framkvæmdatímanum. Samkvæmt umferðarfræðunum velur fólk sér yfirleitt þann ferða- máta sem tekur stystan tíma. Þar sem völ er á almenningssam- göngum sem ganga á sérbrautum, hvort sem er lest eða strætó þá tefst umferðarflæði bíla ekki meir en svo að ferð með þeim tekur sama tíma dyra á milli eins og með al- menningssamgöngum. Þegar tafir verða meiri en það taka fleiri strætó svo tafir minnka. Þetta er ótvíræð reynsla erlendis en virðist enn koma sumum á óvart þó þessi regla hafi fyrst verið viðruð árið 1962. Reglan heitir nú „Downs-Thomp- son-paradox“. Tökum Hafnarfjörð sem dæmi. Hafnfirðingurinn hoppar upp í bíl sinn að morgni og eftir nokkrar taf- ir á akstri innanbæjar kemst hann á sæmilegum hraða að Kópavogslæk en þangað getur biðröðin náð frá Kringlunni. Strætó lendir í sömu töfum svo ekki borgar sig að taka hann. Hvað mundi nú gerast ef við snöruðum upp akreinum fyrir létta Borgarlínu frá Hafnarfirði til Reykjavíkur og létum vagnana ganga „nonstop“ þar á milli, fram úr allri bílaþvögunni. Bara sparn- aðurinn í vegaframkvæmdum mið- að við þungu línuna gerir kleift að kaupa þá vagna sem bæta þarf við svo þessar ferðir geti orðið tíðar og fleiri Hafnfirðingar myndu hoppa upp í strætó í stað einkabílsins. Nokkurra mánaða framkvæmda- tafir myndu þá aðeins valda þeim tímabundinni aukningu á farþega- fjölda strætó sem mæta má með auknum fjölda ferða. Almenningssamgöngur á sérleið- um með forgang á snjallljósum tefj- ast ekki af annarri umferð. Því setja þær þak á tafir í bílaumferð. Það þarf ekki miðjusettar sér- akreinar til og heldur ekki þá þétt- ingu byggðar og lóðabrask sem þarf til að réttlæta hinn mikla kostnað sem þungu Borgarlínunni fylgir. Frá upphafi hefur Borgarlín- málið einkennst af röngum áherslum. Settir eru í forgrunn hlutir eins og miðju- settar sérakreinar, upphækkaðir bið- stöðvarpallar undir glæsilegum gler- hýsum, tveggja liða risastórir vagnar með níðþungar rafhlöður á þakinu, svo þungir að þeir þurfa nærri jafn dýra undirbyggingu og lestarteinar og annað í þeim dúr. Hin raun- hæfu markmið eins og flæði og öryggi hafa fallið í skuggann. Þetta hefur leitt af sér ranga markmiðssetningu. Hagsmunir fólksins víkja fyrir hagsmunum Borgarlínu. Þétting byggðar skal auka hagkvæmni Borgarlínu í stað þess að vera gerð á eigin forsendum með mannleg sjónarmið í fyrirrúmi. Hönnun strætókerfisins sem sjá skal um þekjuna þannig að íbúar fjær Borg- arlínu komist til hennar fellur í skuggann og uppbygging biðskýla, sem strætónotendur sakna þó mest, mætir afgangi. Borgarlína er í hug- um manna eitt, strætó eitthvað allt annað en í raun er þetta eitt og sama fólkflutningskerfið og þarf að skipuleggja sem slíkt. Hér á undan var Hafnarfjörður tekinn sem dæmi, en létt Borgar- lína þangað getur þjónað bæði Garðabæ á Kópavogi á sama hátt, bara þarf að bæta við vögnum. Ein til tvær mínútur milli vagna sem aka á sérakrein er engin goðgá ef þess er gætt að þeir komist hver fram hjá öðrum á biðstöðvum. En Borgarlínan leysir ekki umferðar- tafirnar, hún setur aðeins þak á þær. Með því að leggja áherslu á hraðferðir lækkar það þak og fleiri nota almenningssamgöngur. Það kostar fleiri vagna sem hægt er að kaupa fyrir sparnaðinn af að hafna þungu Borgarlínunni en byggja þá léttu. Sparnaðurinn af minni um- ferðartöfum, sem kemur fram í fé- lagslegum greiningum, borgar fleiri bílstjóra. Ef til vill þarf allt það fé sem Samgöngusáttmálinn kveður á um til að bæta umferðina á höfuðborg- arsvæðinu, en það þarf að nýtast vel. Vegagerðin kemur að því máli með rétt markmið, flæði og öryggi. Vonandi fær hún að klára málið undir því fororði. Samgöngusáttmálinn í höndum Vegagerðarinnar Eftir Elías Elíasson » Almenningssam- göngur á sérleiðum með forgang á snjall- ljósum tefjast ekki af annarri umferð. Elías Elíasson Höfundur er verkfræðingur. eliasbe@simnet.is Allt byrjar þetta með litlu brúnu shea hnetunni... Síðan bætast við sjálfbærar aðferðir, hreinar formúlur og sanngjarnir viðskiptahættir sem að lokum umbreytast í okkar klassíska og sívinsæla Shea handáburð sem nærir, mýkir og verndar hendurnar. Og nú kemur hann í 95% endurunnum og endurvinnanlegum álumbúðum. BYRJUNIN Á EINHVERJU STÓRKOSTLEGU Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is Stundum er fólk svo illa haldið af stjórnsemi að það heldur að það sé í stjórninni með Guði almáttugum. Oft leið- ist hrædda stjórn- sama fólkið út í stjórnmál eða fjöl- miðla. Stjórnmálafólk og fjölmiðlafólk hefur svipað heilkenni og á það oftast sameiginlegt að ágirn- ast áhrif. Stjórnsemi eða ótti er þeirra drifkraftur og valdataflið oftast byggt á frumstæðum og ágjörnum hvötum. Ég er þakk- látur ýmsu fjölmiðlafólki þótt ég sé ekkert endilega sammála því. Hvar værum við t.d. án Egils Helga og Illuga Jökuls? Þeir alla vega bjóða upp á vitsmunalega umræðu og ekki er vanþörf á þar sem meginþorri fjölmiðlafólks er illa haldinn af greindarskorti og elur því oft á þröngsýni og ótta. Sagt er að „Guð“ tali við okkur í gegnum innsæið en allt of margir rugla saman óttanum og innsæinu. Til að rækta teng- inguna við innsæið þarf því að vera í góðu jafnvægi og hugsa vel um andlega næringu. Þröngsýni og einhliða umræða er því aldrei af hinu góða. Óttinn stýrir mannfólkinu og þeir sem ala á ótta hafa þess vegna áhrif á þá sem eru óttaslegnari. Þess vegna fara kosningar oft svona illa og umræðan í fjöl- miðlum er svona ferköntuð og heimsk. Uppáhaldsmantran mín eru tvö orð: Sleppum og treystum. Sleppum óttanum og treystum framvindunni. Sumarið nálgast. Snorri Ásmundsson » Allt of margir rugla saman óttanum og innsæinu. Snorri Ásmundsson Höfundur er myndlistarmaður. snorri.asmundsson@gmail.com Stjórnsemi er ótti Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.