Morgunblaðið - 02.03.2022, Síða 20

Morgunblaðið - 02.03.2022, Síða 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2022 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Horfurnar í peningamálum eru góð- ar ef þú ert til í að gefa eitthvað upp á bátinn í staðinn fyrir að þéna meira. Ekki láta undan þrýstingi um að gera eitthvað gegn vilja þín- um. 20. apríl - 20. maí + Naut Það getur tekið á að þurfa stöðugt að sýna einbeitni gagnvart öðrum. Mundu að það skilar oft bestum árangri að fara vel að fólki. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Samskipti við maka og nána vini hafa verið dálítið tvísýn að undanförnu. Vertu umfram allt sáttfús og heiðarlegur og þá mun allt enda vel. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú ert að velta fyrir þér leiðum til að fjárfesta til framtíðar. Skrifaðu bestu hug- myndirnar þínar niður og farðu eftir þeim. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Ef ástvinir bregðast ekki við þér af nægum áhuga, skaltu vera minna innan handar. Verkefni á heimilinu gætu krafist at- hygli þinnar og rétt að láta þau ekki sitja á hakanum. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Reyndu að halda tilfinningum frá allri ákvarðanatöku í dag og umfram allt skaltu ekki láta mál ná tilfinningalegu taki á þér. Hver er sinnar gæfu smiður. 23. sept. - 22. okt. k Vog Það er ekki létt að bera sig eftir því sem maður þráir ef maður veit ekki hvað maður vill. Efastu ekki um hæfileika þína. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Eyddu meiri tíma með fólki sem „nær þér“ og kemur þér til þess að hlæja. Þér gæti hlotnast gjöf í dag. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Stundum á maður að taka eitt- hvað til bragðs og stundum er best að gera ekki neitt. Búðu þig undir að svarið geti komið á óvart. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú ert að fást við verkefni sem krefst allrar þinnar athygli og heilmikilla vangaveltna. Farðu eftir innsæi þínu og láttu aðra alls ekki stjórna þér. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Það er ekki laust við að innblást- urinn hafi náð tökum á þér og þér líður hreinlega sem snillingi. Líklega er heimurinn að bregðast við segulmögnun þinni. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Sættu þig við orðinn hlut og láttu það vera að réttlæta málin eða afsaka þau fyrir sjálfum þér eða öðrum. ALLA FIMMTUDAGA KL. 19:00 Á MBL IS/BINGO. TAKTU ÞÁTT FRÍTT! 50 ára Þorsteinn Þórólfsson fæddist 2. mars 1972 í Reykjavík. „Ég hef búið alla mína hunds- og kattartíð á höfuðborgarsvæðinu.“ Þorsteinn, sem er alltaf kallaður Steini, flutti í Seljahverfið í Breiðholti árið 1977, þá fimm ára gamall og var alla grunnskólagönguna í Ölduselsskóla. „Síðustu 25 árin hef ég starf- að í Húsasmiðjunni og starfa núna sem verk- stjóri á þungavörulager í Kjalarvogi. Þrátt fyrir að hafa alist upp í Breiðholtinu er ég mikill Valsari og engin spurning að Valur og Liverpool eru málið!“ Áhugamál Þorsteins eru handbolti, fót- bolti, skíði og „bara alls konar skemmtilegir hlutir. Ég er t.d. í stuðningsmannasveit ís- lensku landsliðanna í handbolta og eltum við og styðjum landslið karla og kvenna á öllum stórmótum, hvar í heiminum sem mótin eru.“ FJÖLSKYLDA Eiginkona Þorsteins er María Dóróthea Jensdóttir bankastarfsmaður, f 19.5. 1971, og þau eiga dótturina Ísold Völu Þorsteinsdóttur, f. 21.3. 2002. For- eldrar Þorsteins eru Þórólfur Þorsteinsson, f. 9.6. 1953 (látinn), og Ingveldur Gísladóttir, f. 22.9. 1952. Þorsteinn Þórólfsson viðurkenningar fyrir skrif sín, meðal annars hefur hún hlotið Blóðdrop- ann, íslensku glæpasagnaverðlaunin, tvisvar og verið tilnefnd til hinna virtu bresku glæpasagnaverðlauna Rýtingsins. varp. Hún var í höfundateymi þátt- anna Kötlu sem sýndir voru á Netflix í fyrra og nú í mars kemur á Storytel fléttuþáttaröðin Hundrað óhöpp Hemingways sem Lilja er höfundur að. Lilja hefur hlotið margháttaðar L ilja Sigurðardóttir fædd- ist 2. mars 1972 á Akra- nesi og ólst þar upp til fimm ára aldurs. Þá flutti fjölskyldan til Sví- þjóðar og dvaldi þar með annan fót- inn næstu tvö ár en settist svo að í Reykjavík þar sem Lilja hóf grunn- skólagöngu sína í Austurbæjarskól- anum. Það var hins vegar ekki lang- vinn búseta því árið 1980 pakkaði fjölskyldan saman og flutti til Mexíkó og voru þau búsett þar næstu árin, fyrst í Mexíkóborg og síðan á Kyrra- hafsströnd Oaxaca. Þar var lífið að sögn Lilju tóm paradís og þau börnin fóru hvorki í skó né yfirhafnir fyrr en þau fluttu aftur til Íslands þar sem heldur kalsalegra líf tók við. Skólaganga Lilju var því fjölþjóða og unglingastigið tók hún svo að hluta á Íslandi og að hluta til á Spáni. Lilja lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum við Hamrahlíð, síðar einka- ritaraprófi frá Tile Hill College í Cov- entry á Englandi og BA-prófi í uppeldis- og menntunarfræði frá Há- skóla Íslands. Lilja starfaði áður sem sjálfstætt starfandi sérfræðingur í menntamálum og ritstjóri fagefnis fyrir leikskóla en undanfarinn áratug hefur hún verið rithöfundur í fullu starfi. Fyrsta bók Lilju, glæpasagan Spor, kom út hjá Bjarti árið 2009 og í kjölfarið kom skáldsagan Fyrirgefn- ing árið 2010. Fyrsta leikrit Lilju, Stóru börnin, var sviðsett af leik- félaginu Lab-Loki veturinn 2013- 2014 við miklar vinsældir, en Lilja hlaut Grímuna, íslensku sviðs- listaverðlaunin, fyrir leikritið. Spennusagan Gildran kom út hjá Forlaginu árið 2015 og á eftir fylgdi Netið árið 2016 og Búrið árið 2017. Þessi þríleikur hefur notið alþjóð- legrar hylli og eru sjónvarpsþættir byggðir á sögunum nú í undirbún- ingi. Pólitíska spennusagan Svik kom út árið 2018 og síðan kvað við nýjan tón þegar Lilja sendi frá sér bókina Helköld sól árið 2019 og var það fyrsta bókin í nýjum bókaflokki sem þegar telur tvær aðrar; Blóðrauðan sjó sem kom út 2020 og Náhvíta jörð sem kom út í fyrra. Lilja hefur einnig skrifað þætti fyrir sjónvarp og út- „Ég er sjálf alæta á bækur en glæpasögur eiga sérstakan sess í hjarta mér, þar sem þær gefa tegund lestraránægju sem annars konar bókmenntir gefa ekki og skoða gjarn- an huldar hliðar samfélagsins og mannskepnunnar. Svo að þess vegna sló ég til þegar auglýst var glæpa- sögukeppni árið 2008 og það varð byrjunin á þessu öllu. Sem sagt hálft í hvoru heppni en hálft í hvoru ástríða fyrir þessu skemmtilega frásagn- arformi. Það eru til svo margar teg- undir glæpasagna en ég myndi flokka mínar bækur sem spennusög- ur með smá dassi af mexíkanskri telenóvellu. Þá á ég við hraðan frásagnarmáta og að teygja mörk þess trúverðuga.“ Lilja er að byrja á nýrri skáldsögu sem væntanlega kemur út á haust- dögum. „Hún er sú fjórða í bókaröð- inni sem ég hef verið að skrifa og án þess að gefa of mikið upp þá koma fyrir í henni dularfullir leyniþjón- ustumenn, barn með skyggnigáfu og við fáum loksins að vita meira um for- Lilja Sigurðardóttir rithöfundur – 50 ára Mexíkóævintýrið Fjölskyldan saman á Mexíkóárunum, en Sigurður tók myndina og Lilja er sú stutta enda yngst. Fortíð Lady Gúgúlú skýrist Hjónin Lilja og Margrét Pála halda upp á afmælið með góðri máltíð. Ljósmynd/Gunnlöð Rithöfundurinn Lilja er með nýja bók í vinnslu sem kemur út í haust. Til hamingju með daginn Selfoss Brynjar Páll Böðvarsson fæddist 10. júní 2021 kl. 17.05. Hann vó 3.126 g og var 52 cm langur. For- eldrar hans eru Böðvar Ingi Sigurðs- son og Guðjörg Hulda Stefnisdóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.