Morgunblaðið - 02.03.2022, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 02.03.2022, Qupperneq 22
22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2022 Lengjubikar karla A-deild, riðill 2: Breiðablik – Fjölnir.................................. 4:2 Staðan: ÍA 3 2 0 1 8:4 6 Breiðablik 2 2 0 0 7:3 6 Stjarnan 2 1 1 0 4:2 4 KV 2 1 0 1 1:4 3 Þór 2 0 1 1 2:4 1 Fjölnir 3 0 0 3 3:8 0 Lengjubikar kvenna A-deild, riðill 2: Valur – Þróttur R. .................................... 6:0 Staðan: Valur 1 1 0 0 6:0 3 Þór/KA 1 1 0 0 3:0 3 Fylkir 1 1 0 0 2:1 3 Afturelding 0 0 0 0 : 0 Keflavík 1 0 0 1 0:3 0 Þróttur R. 2 0 0 2 1:8 0 England Burnley – Leicester................................. 0:2 - Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með Burnley vegna meiðsla. Staða efstu liða: Manch. City 27 21 3 3 64:17 66 Liverpool 26 18 6 2 70:20 60 Chelsea 25 14 8 3 49:18 50 Manch. Utd 27 13 8 6 44:34 47 West Ham 27 13 6 8 46:34 45 Arsenal 24 14 3 7 38:27 45 Bikarkeppnin, 16-liða úrslit: Peterborough– Manchester City............ 0:2 Crystal Palace – Stoke............................. 2:1 Middlesbrough – Tottenham................... 1:0 Ítalía Bikarinn, undanúrslit, fyrri leikur: AC Milan – Inter Mílanó ......................... 0:0 Ungverjaland Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: Honvéd – Ferencváros............................ 0:1 - Viðar Ari Jónsson lék fyrri hálfleikinn með Honvéd. Mexíkó Club América – Mazatlan ....................... 3:0 - Andrea Rán Hauksdóttir sat allan tím- ann á varamannabekk Club América. 4.$--3795.$ Grill 66-deild karla Valur U – Selfoss U.............................. 35:34 Evrópudeild karla B-riðill: Cocks – Lemgo..................................... 29:29 - Bjarki Már Elísson skoraði 2 mörk fyrir Lemgo. GOG – Benfica ..................................... 39:38 - Viktor Gísli Hallgrímsson varði 6 skot í marki GOG og var með 27% markvörslu. _ GOG 15, Benfica 13, Nantes 11, Lemgo 10, Medvedi 2, Cocks 1. C-riðill: Gorenje – Aix ....................................... 33:32 - Kristján Örn Kristjánsson skoraði 9 mörk fyrir Aix. Magdeburg – Sävehof......................... 31:25 - Ómar Ingi Magnússon skoraði 2 mörk fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist- jánsson 2. _ Magdeburg 17, Sävehof 12, Nexe 10, La Rioja 7, Gorenje 7, Aix 1. D-riðill: Nimes – Kadetten................................ 33:33 - Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten. _ Nimes 12., Eurofarm Pellister 10, Sport- ing 9, Kadetten 9, AEK Aþena 8, Tatab- anya 6. Danmörk Mors – Kolding .................................... 31:28 - Ágúst Elí Björgvinsson kom aðeins við sögu í marki Kolding en varði ekki. Austurríki Bikarkeppnin, 16-liða úrslit: Alpla Hard – West Wien ..................... 26:25 - Hannes Jón Jónsson þjálfar Alpla Hard. %$.62)0-# Kristján Örn Kristjánsson, lands- liðsmaður í handknattleik, átti stór- leik þegar lið hans Aix frá Frakk- landi heimsótti Gorenje Velenje til Slóveníu í Evrópudeildinni. Slóvenska liðið hafði betur, 33:32, en Kristján Örn var marka- hæstur hjá franska liðinu með 9 mörk. Liðin leika í C-riðli og þar er þýska toppliðið Magdeburg einnig. Magdeburg vann sænska liðið Säve- hof 31:25 í Þýskalandi. Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon skoruðu tvö mörk hvor fyrir Magdeburg. Stórleikur hjá Kristjáni Erni Ljósmynd/Szilvia Micheller Markahæstur Kristján Örn Krist- jánsson var illviðráðanlegur. Burnley tókst ekki að koma sér af fallsvæðinu í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær þegar liðið fékk Leicester City í heimsókn. Burnley hafði fengið stig út úr síðustu þremur leikjum í deildinni og í gær var staðan 0:0 lengi vel. Leicester tókst að tryggja sér öll stigin með tveimur mörkum á loka- kaflanum frá James Maddison og Jamie Vardy. Burnley er í 18. sæti með 21 stig, aðeins stigi á eftir Everton en Jó- hann Berg Guðmundsson lék ekki með vegna meiðsla í kálfa. AFP Skoraði James Maddison skoraði fyrra mark Leicester City. Burnley er enn í fallsæti eftir tap EM 2022 Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Íslenska kvennalandsliðið í hand- knattleik mætir í dag því tyrkneska í afar mikilvægum leik í riðli 6 í ann- arri umferð undankeppni EM sem mun fara fram í Slóveníu, Norður- Makedóníu og Svartfjallalandi í nóv- ember á þessu ári. Til þessa hefur Ísland unnið Serbíu og tapað gegn Svíþjóð í riðlinum á meðan Tyrkland hefur tapað báðum sínum leikjum gegn sömu þjóðum. Fyrir fram telst íslenska liðið því sigurstranglegra en Tyrkir eru sýnd veiði en ekki gefin enda stóð liðið til að mynda vel í firnasterku liði Svía á heimavelli, sér í lagi í fyrri hálfleik, áður en Svíar unnu að lokum átta marka sigur. „Svíar eru með frá- bært lið og þær í Tyrklandi eru með nokkra virkilega góða leikmenn inn- anborðs. Þær eru með lið í uppbygg- ingu þannig að þetta verður mjög erfitt verkefni en sömuleiðis eigum við samt góðan möguleika. Við sáum höllina í gær, þetta er risahöll og mjög flott. Það eru spil- aðir meistaradeildarleikir í henni og það er búist við fjölda áhorfenda þannig að þetta er mjög erfiður úti- völlur heim að sækja. Tyrkirnir hafa svolítið verið að sækja í sig veðrið upp á síðkastið en við förum í alla leiki til þess að vinna og gera okkar besta. Við ætlum að halda áfram með okkar hluti og það vonandi skil- ar sér í sigri á morgun [í dag],“ sagði Sunna Jónsdóttir, einn leik- reyndasti leikmaður íslenska liðsins, í samtali við Morgunblaðið. Hún sagði það af og frá að Íslend- ingar færu að vanmeta Tyrki. „Ég held að við séum ekki í stöðu til þess að vanmeta eitt né neitt lið. Við er- um á ákveðinni vegferð með okkar lið og erum fyrst og fremst að hugsa um okkur sjálfar og það að bæta okkar leik, að bæta þá þætti sem við getum bætt og halda áfram með það sem við erum búnar að vera að gera vel. Við einbeitum okkur fyrst og fremst að okkur sjálfum en svo för- um við náttúrulega vel yfir andstæð- inginn samhliða því.“ Gleði og tilhlökkun Undirbúningur íslenska liðsins fyrir leikinn sem fer fram í Kast- amonu Merkez-höllinni í Kastamonu í Tyrklandi klukkan 16 í dag hefur verið með besta móti þrátt fyrir langt og strangt ferðalag. „Við erum bara ótrúlega spenntar. Við erum loksins komnar á leiðarenda og tók- um góða æfingu í gær [á mánudag]. Við erum búnar að koma okkur ágætlega fyrir hérna og erum fullar tilhlökkunar fyrir þetta verkefni. Ferðalagið gekk bara fínt, það var náttúrlega svolítið langt en við vor- um allar meðvitaðar um það. Við er- um komnar og það fer vel um okkur. Við vorum búnar að ná tveimur æf- ingum á Íslandi áður en við lögðum af stað, það var mjög kærkomið. Við erum búin að liggja yfir mynd- skeiðum af þeim en svo erum við auðvitað fyrst og fremst að hugsa um okkur sjálfar, að halda áfram með það sem við erum að vinna með og byggja á og vonandi skilar það einhverju,“ sagði Sunna. Spurð hvernig ástandið á leik- mannahópnum væri sagði hún ekk- ert alvarlegt ama að neinum. „Nei, það er ótrúlega gott ástand á öllum. Það er mikil gleði og tilhlökkun inn- anborðs og það er alltaf gaman að vera með þessum hópi. Auðvitað er alltaf eitthvað smá og smá en við er- um með frábært teymi og góða sjúkraþjálfara sem hjálpa okkur þannig að við erum í virkilega góð- um höndum,“ sagði Sunna að lokum í samtali við Morgunblaðið. Barátta um EM-sæti við Serba? Eftir leikinn við Tyrki í dag er fram undan annar leikur gegn lið- inu, heimaleikur í undankeppninni, sem fer fram á Ásvöllum næstkom- andi sunnudag. Svíþjóð er í sér- flokki í riðlinum og bendir allt til þess að liðið fari með sigur af hólmi í honum. Fari svo að Ísland vinni báða leik- ina gegn Tyrkjum stendur liðið frammi fyrir harðri baráttu við Serbíu um annað sæti riðils 6, sem gefur sæti á EM. Þar sem Ísland vann Serbíu á Ásvöllum í október síðastliðnum gætu Íslendingar og Serbar því mæst í hreinum úrslita- leik um annað sætið ytra 23. apríl. Erfitt verkefni en möguleik- arnir góðir Ljósmynd/Robert Spasovski Reynsla Sunna Jónsdóttir er á meðal reynslumestu leikmanna Íslands. Í nú- verandi leikmannahópi er hún fjórða leikjahæst með 63 A-landsleiki. - Mikilvægur leikur í undankeppninni - Undirbúningur hefur gengið vel B-deildarliðið Middlesbrough er komið í 8-liða úrslit ensku bikar- keppninnar í knattspyrnu, FA Cup, á kostnað úrvalsdeildarliðsins Tott- enham Hotspur. Tottenham hefur leikið vel í úr- valsdeildinni að undanförnu en ekki er spurt að því í bikarkeppn- inni rótgrónu. Markalaust var eftir 90 mínútur í Middlesbrough og því þurfti að grípa til framlengingar. Mark var skorað í framlengingunni og það gerði fyrirliðinn Josh Cob- urn fyrir Middlesbrough á 107. mínútu. Ensku meistararnir í Manchester City fengu að hafa fyrir hlutunum gegn Peterborough sem er í botn- sæti b-deildarinnar. City tókst þó að vinna 2:0 en liðið braut ekki ís- inn fyrr en eftir klukkutíma leik. Riyad Mahrez og Jack Grealish skoruðu mörkin á 60. og 67. mín. Crystal Palace er einnig komið áfram í 8-liða úrslitin eftir 2:1-sigur gegn b-deildarliði Stoke City. Cheikhou Koyaté og Jairo Riede- wald skoruðu en sigurmark Riede- wald kom á 82. mínútu. Josh Ty- mon skoraði fyrir Stoke. Tottenham Hotspur er úr leik í ensku bikarkeppninni AFP Bikarinn Eric Dier, leikmaður Tottenham, leynir ekki vonbrigðum sínum í Middlesbrough í gærkvöldi þar sem úrvalsdeildarliðið féll úr keppni. Zach Johnson hefur verið ráðinn liðsstjóri bandaríska liðsins í keppninni um Ryder-bikarinn í golfi þegar keppt verður haustið 2023. Bandaríkjamenn unnu stór- sigur á Evrópu síðasta haust á heimavelli en næsta keppni verður í Róm. Er það í fyrsta skipti sem keppnin um Ryder-bikarinn fer til Ítalíu. Ekki hefur verið tilkynnt hver muni stýra evrópska liðinu. Zach Johnson er 46 ára gamall og lék fyrst með bandaríska liðinu í keppninni árið 2006 en einnig 2010, 2012, 2014 og 2016. Hann hefur verið einn aðstoðarmanna liðs- stjóra Bandaríkjanna í tveimur síð- ustu keppnum. sport@mbl.is Johnson nýr liðsstjóri

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.