Morgunblaðið - 02.03.2022, Qupperneq 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
Undirbúningi sýningar Úkraínu á
Feneyjatvíæringnum í myndlist hef-
ur verið hætt tímabundið í kjölfar
innrásar Rússa í Úkraínu en til stóð
að halda sýningu á verkum Pavlos
Makovs í skála landsins í Feneyjum.
Á vef The Art Newspaper kemur
fram að einum sýningarstjóra úkra-
ínska skálans, Mariu Lanko, hefði
tekist að flytja verk Makovs í aftur-
sæti bifreiðar sinnar frá Úkraínu til
Póllands. Enn þykir þó óvíst hvort
úkraínska sýningin verði opnuð þeg-
ar tvíæringurinn hefst, 23. apríl, því
starfsmenn hafa þurft að leggja niður
vinnu vegna innrásarinnar.
Fulltrúar Rússa höfðu einnig verk-
ið valdir til að setja upp sýningu í
veglegum skála landsins en hætt hef-
ur verið við sýninguna vegna innrás-
arinnar. Myndlistarmennirnir Alex-
andra Sukhareva og Kirill
Savtsénkov og sýningastjórinn Rai-
mundas Malašauskas áttu að vera
fulltrúar Rússlands en sögðu á
sunnudag að þau sæju sér það ekki
lengur fært, í ljósi ástandsins í Úkra-
ínu. Virðist enginn koma í þeirra stað
enda krefst sýningin mikils und-
irbúnings. Verður skáli Rússa því
lokaður að þessu sinni á tvíæringnum
og mögulega skáli Úkraínu líka.
Í Moskvu hefur stórum
myndlistarmiðstöðvum einnig verið
lokað. Í fréttum hefur komið fram að
sýningunni á verkum Ragnar Kjart-
anssonar í hinni nýju menningar-
miðstöð GES-2 hafi verið hætt við
innrásina í Úkraínu en hún er í eigu
milljarðamæringsins Leonid Mikhel-
son sem er sagður náinn Pútín. Þá
var dyrum Garage samtíma-
listasafnsins lokað en það stofnaði
Dasha Zhukova, fyrrum eiginkona
auðkýfingsins Romans Abramovich.
Í yfirlýsingu stjórnenda Garage segir
að þar sé öllu sýningarhaldi hætt þar
til bundinn hafi verið endi á þann
„mannlega og pólitíska harmleik sem
eigi sér stað í Úkraínu“.
Ljósmynd/Andrew Butko
Úkraínumaður Myndlistarmaður-
inn Pavlo Makov á að sýna í Fen-
eyjum en ekki er víst að svo verði.
Tvísýnt með þátttöku
Úkraínu í Feneyjum
Elena Kovalskaya, forstjóri Vsevo-
lod Meyerhold-leikhússins og
menningarmiðstöðvarinnar í
Moskvu, sem er ríkisstofnun, hef-
ur sagt af sér vegna innrásar
Rússa í Úkraínu. Skrifaði hún í
Facebook-færslu á dögunum að
hún segði af sér í mótmælaskyni.
„Það er ómögulegt að starfa fyrir
morðingja og þiggja af honum
launagreiðslur,“ skrifaði Koval-
skaya og er m.a. fjallað um það á
vef Business Insider og Broadway
World. Segist hún ætla að ljúka
þeim verkefnum sem hún hafi
hrint í framkvæmd en þó með
sjálfboðavinnu.
Á vef leikhússins birtist einnig
yfirlýsing þess efnis að ómögulegt
væri að þegja yfir árásinni á
Úkraínu. „Við segjum nei við
stríði,“ segir í yfirlýsingunni og er
Kovalskaya þakkað fyrir það hug-
rekki sem hún hafi sýnt með
ákvörðun sinni.
Hugrökk Elena Kovalskaya.
Ekki hægt að þiggja laun af morðingja
Í Metroplitan-óperuhúsinu í New
York er sýningahald smám saman
að færast í fyrra horf, eftir að lokað
hafði verið í meira en ár vegna far-
aldursins. Stjórnendur hafa jafn-
framt reynt að bregðast við kröfum
um aukna fjölbreytni og fyrsta
verkefni vetrarins var fyrsta óper-
an sem sýnd er þar eftir svart tón-
skáld, Fire Shut Up in My Bones,
eftir djassleikarann kunna Terence
Blanchard. Um helgina var svo
frumsýnd ný glæsileg uppfærsla á
Don Carlosi eftir Verdi, og sungin
með upphaflegum frönskum texta,
ekki þeim ítalska eins og vant er.
AFP
Sjónarspil Eric Owens syngur titilhlutverkið í nýrri uppfærslu á Don Carlosi í Metropolitan-óperuhúsinu.
Ævintýri Reynt er að höfða til sem flestra með uppfærslum í Metropolitan.
Sungið núna
á frönsku
Spænsk-íslenska listamannatvíeykið
Libia Castro & Ólafur Ólafsson
verða gestir Morgunkorns um mynd-
list í dag, miðvikudag, kl. 9. Morgun-
fundurinn fer fram í Hafnarhúsi og
þar verður sjónum beint að verkum
og starfi tvíeykisins. Fyrir um ári
hlutu þau Íslensku myndlistar-
verðlaunin 2021 fyrir verkið Í leit að
töfrum – Tillaga að nýrri stjórnar-
skrá fyrir lýðveldið Ísland. Listasafn
Reykjavíkur stendur fyrir viðburðadagskránni Morg-
unkorn um myndlist sem fer fram fyrsta miðvikudag
hvers mánaðar.
Morgunkorn með tvíeyki
Libia Castro
Hanna Dóra Sturludóttir mezzósópr-
an og Snorri Sigfús Birgisson píanó-
leikari munu flytja vögguvísur á há-
degistónleikum í dag, miðvikudaginn
2. mars, kl. 12:15. Þá heldur tónleika-
röðin Tónlistarnæring í sal Tónlistar-
skóla Garðabæjar áfram eftir stutt
heimsfaraldurshlé. Listrænn stjórn-
andi hennar er Ólöf Breiðfjörð. Á tón-
leikum Hönnu Dóru og Snorra Sig-
fúsar verða á dagskrá vögguvísur og
sönglög um drauma en yfirskrift
þeirra er Hádegisdraumar. Lögin sem þau flytja eru eft-
ir Wagner, Grieg, Fauré, Pál Ísólfsson og Snorra Sigfús.
Vögguvísur í hádeginu
Hanna Dóra
Sturludóttir