Morgunblaðið - 23.03.2022, Side 1

Morgunblaðið - 23.03.2022, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 3. M A R S 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 69. tölublað . 110. árgangur . verkogvit.is Velkomin á stórsýninguna Verk og vit Laugardalshöll 24.–27. mars Allt það nýjasta í íslenskum byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum BÆTT ÞJÓNUSTA MEÐ SJÁLFS- AFGREIÐSLU NÝTT PÓLSK- ÍSLENSKT SKÁLDVERK DEILIR ÍBÚÐ MEÐ FIMM LIÐSFÉLÖGUM EWA MARCINEK 24 MARÍA I CELTIC 23VIÐSKIPTAMOGGINN Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir liljahrund@mbl.is „Það eru engar góðar fréttir í stríði,“ segir Óskar Hallgrímsson, ljósmynd- ari og íbúi í Kænugarði í Úkraínu. Landher Rússa hefur undanfarna daga og vikur átt á brattann að sækja í Úkraínu, en flugskeytum hefur haldið áfram að rigna yfir borgina, þó að þau séu í flestum tilvikum skotin niður af her Úkraínu. Hrottaleg vinnubrögð „Rússar eru að tapa þessu stríði en á móti kemur að þeir eru nánast ein- göngu farnir að skjóta á borgaraleg skotmörk og farnir að beita hrottaleg- um vinnubrögðum,“ segir Óskar. „Þeir henda handsprengjum inn í hús, safna saman bílum og ráðast síðan á þá. Þeir fóru og skutu á elliheimili og drápu 56 eldri borgara. Þessir hlutir eru að ger- ast út um allt land. Sorgin og reiðin er farin að taka á. Það eru komnar fjölda- grafir fyrir börn í Maríupol því þeir hafa verið að ráðast á barnaspítala. Ég get haldið áfram endalaust að lista upp þessa stríðsglæpi,“ segir Óskar. Úkraínski herinn er vel vopnum bú- inn að sögn Óskars og sömuleiðis tölu- vert betur búinn en sá rússneski þegar kemur að fatnaði og fæði. Rússneskir hermenn hafi jafnvel brugðið á það ráð að stela skófatnaði af úkraínskum her- mönnum þar sem búnaður þeirra síð- arnefndu sé mun betri en þeirra. Þá séu úkraínskir hermenn töluvert betur hvíldir en þeir rússnesku. „Þeir eru búnir að vera í þessu stríði í átta ár og þeir eru mjög góðir í að vera í þessu stríði,“ segir Óskar og bætir við: „Hinum megin er allt hrunið, það er engin yfirstjórn yfir rússneska hern- um, hún er öll fallin. Allar samskipta- línur hafa hrunið og þeir þurfa að treysta á farsíma. Þeir hafa þurft að ræna öllum mat og eru ekki með elds- neyti. Það er svo margt sem er að svo að landherinn er eitthvað sem fólk hef- ur engar áhyggjur af.“ „Engar góðar fréttir í stríði“ - Landhersveitir Rússa hafa átt á brattann að sækja - Skjóta flugskeytum af miklum þunga - „Rússar eru að tapa,“ segir Óskar Hallgrímsson frá Kænugarði Morgunblaðið/Óskar Hallgrímsson Leifar Svona litu íbúðir út eftir sprenginguna og eld í kjölfarið. Morgunblaðið/Óskar Hallgrímsson Leit Eldra fólk að taka saman eigur sínar í íbúðabyggingu sem varð fyrir sprengingu fyrir þremur dögum. Ein hlið byggingarinnar er horfin. MVilja efnismeiri viðræður »11 _ „Ferðaþjónustan er að fara á flug og það er mikill áhugi á landinu,“ segir Ninna Hafliðadóttir, mark- aðs- og upplýsingastjóri lúxushót- elsins The Reykjavík Edition við Hörpu. Hótelið auglýsir um þessar mundir eftir 34 nýjum starfsmönn- um, mörgum í stjórnunarstöður. Bókunarstaða þess er sögð góð og bráðlega verða öll herbergi tekin í notkun. Þá verður opnaður veit- ingastaður á þakverönd og nætur- klúbbur á hótelinu. »2 Morgunblaðið/Eggert Edition Allt fer á fullt á hótelinu í sumar. Lúxushótelið fjölgar fólki og fer á fullt „Við ætlum á hvalveiðar í sumar,“ segir Kristján Loftsson, fram- kvæmdastjóri Hvals hf. Hann reikn- ar með að veiðarnar hefjist í júní og standi fram í september eftir því sem veður leyfir. Reiknað er með að um 150 manns starfi á hvalveiðiskip- unum, í hvalstöðinni í Hvalfirði og í vinnslu fyrirtækisins í Hafnarfirði. Þar er hluti afurðanna unninn. Kristján metur markaðshorfur betri nú en undanfarin ár. Hann segir að Hvalur hf. hafi lent í langri togstreitu við Matvæla- stofnun (MAST) vegna hvalstöðv- arinnar í Hvalfirði. Það sé aðal- ástæða þess að ekki hafi verið haldið til hvalveiða eftir 2018 fyrr en nú. Hvalur hf. fékk ótímabundið leyfi til vinnslu hvalaafurða 2021. »4 Morgunblaðið/Kristinn Hvalfjörður Væntanlega verða stór- hveli skorin í hvalstöðinni í sumar. Langreyð- ur veidd í sumar - 150 starfsmenn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.