Morgunblaðið - 23.03.2022, Side 6

Morgunblaðið - 23.03.2022, Side 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2022 Frá tilnefningarnefnd vegna aðalfundar Haga hf. 2022 Aðalfundur Haga hf., kt. 670203-2120, verður haldinn miðvikudag- inn 1. júní 2022. Þeim hluthöfum sem vilja eiga fund með tilnefningarnefnd eða koma skilaboðum á framfæri við nefndina í aðdraganda aðalfundar 2022 er bent á að hafa samband við tilnefningarnefnd eigi síðar en 13. apríl nk. á netfangið tilnefningarnefnd@hagar.is. Þeim sem vilja gefa kost á sér til setu í stjórn Haga hf. er bent á að tilkynna það skriflega til tilnefningarnefndar Haga hf. eigi síðar en 22. apríl 2022 á netfangið tilnefningarnefnd@hagar.is. Nauðsynlegt er að frambjóðendur notist við framboðseyðublað sem finna má á vefsíðu Haga en þar þarf meðal annars að upplýsa um bakgrunn og hæfi frambjóðanda, auk þess að gera grein fyrir hvernig frambjóð- andi uppfyllir skilyrði sáttar Haga hf. við Samkeppniseftirlitið frá september 2018. Auk framboðseyðublaðs má á heimasíðu Haga finna nánari upplýs- ingar um viðmið tilnefningarnefndar við mat á frambjóðendum. Sjá hér: www.hagar.is/fjarfestar/hluthafafundir/. Tillögur tilnefningarnefndar um frambjóðendur til stjórnar verða tilkynntar þann 10. maí nk. Tilnefningarnefnd Haga hf. Fjallað er um líftölur íslenskra fálka í nýlegri grein í vísindatímaritinu PeerJ eftir vistfræðingana Frédéric Barraquand og Ólaf K. Nielsen. Greint er frá þessu á heimasíðu Náttúrufræðistofnunar og segir þar að þetta sé í fyrsta sinn sem mat er lagt á lífslíkur fálka hér á landi en rannsóknirnar byggðust á merk- ingum og endurheimtum merktra fugla. Niðurstöður sýna að lífslíkur full- orðinna fálka voru að meðaltali 83% en 40% hjá ungum fuglum. Mikill breytileiki er í því hvað fuglarnir verða gamlir, þeir sem lengst lifa verða um það bil 15 ára gamlir en reiknaður meðallífaldur er einungis um átta ár. Þetta skýrist mögulega af tíðum dauðsföllum af mannavöld- um en t.d. var fjórðungur röntgen- myndaðra fálkahræja með högl í sér. Lífslíkur ungra fugla eru um helm- ingi lægri en lífslíkur fullorðinna fugla og það kom á óvart í rannsókn- inni að lífslíkur ungra fálka virðast hvorki tengjast veðri né þéttleika rjúpunnar, segir á heimasíðu Nátt- úrufræðistofnunar. Þar er rakið að fálkinn er ránfugl, sem á heimkynni á norðurhjaranum hringinn í kringum pólinn. Á liðnum öldum voru fálkar fluttir út frá Ís- landi til meginlands Evrópu, og jafn- vel lengra. Ytra voru fálkarnir tamd- ir og aðalsmenn og konungar notuðu þá til fuglaveiða. Tölur frá 18. öld um útflutta fálka frá Íslandi sýna að fálkastofninn reis og hneig og stofn- sveiflan tók um 10 ár. Stofnsveiflur fálka og rjúpu Rannsóknir á Norðausturlandi frá 1981 til dagsins í dag sýna að fálka- stofninn sveiflast enn. Stofnsveiflur fálka og rjúpu eru nátengdar og fálkinn er einn af þeim náttúrulegu þáttum sem móta stofnsveiflu rjúp- unnar. Þrátt fyrir þessa vitneskju voru grunnþættir eins og lífslíkur fálka óþekktir, ekki aðeins á Íslandi held- ur öllu útbreiðslusvæðinu, segir í út- drætti um rannsóknina. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Veisla Fálkamóðir matar þrjá sísvanga unga sína á hreiðri á Norðurlandi. Elstu fálkar verða um 15 ára gamlir - Lífslíkur ungra fugla virðast hvorki tengjast veðri né þéttleika rjúpunnar Alls bjuggu 376.248 á Íslandi hinn 1. janúar síðastliðinn. Íbúum landsins hafði fjölgað um 7.456 frá því í árs- byrjun 2021, eða um 2%. Alls voru 193.095 karlar og 183.153 konur bú- settar á landinu í upphafi ársins og fjölgaði körlum um 2,1% árið 2021 en konum um 1,9%, að því er fram kem- ur í yfirliti Hagstofu Íslands. Þar kemur einnig fram að hlutfalls- leg fólksfjölgun var mest á Suður- landi. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 4.354 fleiri 1. janúar 2022 en fyrir ári. Það jafngildir 1,8% fjölgun íbúa á einu ári en fjölgunin nam 3,3% á Suður- landi. Á Suðurnesjum var fólksfjölg- un 3,2%. Minnst fjölgun varð á Norð- urlandi vestra en þar fjölgaði einungis um fimm einstaklinga eða 0,07%. Reykjavík var sem fyrr fjölmenn- asta sveitarfélagið með 135.688 íbúa í fyrra en Árneshreppur á Ströndum það fámennasta með 42 íbúa. Í samantekt Hagstofunnar kemur fram að árið 2021 fækkaði íbúum í 18 af 69 sveitarfélögum landsins og var fækkunin hlutfallslega mest í Eyja- og Miklaholtshreppi (14,2%). Þegar horft er til ellefu stærstu sveitarfélag- anna með 5.000 íbúa eða fleiri fjölgaði hlutfallslega mest í Garðabæ (4,3%), Reykjanesbæ (3,8%) og Sveitarfé- laginu Árborg (3,7%). Minnst fjölgun í Hafnarfirði Fjölgun var einnig yfir landsmeð- altali í Mosfellsbæ (3,5%), Fjarða- byggð (2,5%) og á Akureyri (2,2%) en fjölgun var undir landsmeðaltal á Akranesi (1,9%), Reykjavík (1,8%), Kópavogi (1,7%) og Múlaþingi (0,7%). Af 11 stærstu sveitarfélögunum fjölg- aði minnst í Hafnarfirði (0,3%). 3,8 4,0 4,3 4,7 5,1 6,2 6,3 6,7 7,0 7,3 7,4 7,4 7,8 8,9 19,7 Sveitarfélögmeðmestu hlutfallslegu fjölgun íbúa 2021 til 2022 15 sveitarfélög með mesta fjölgun (%) Heimild: Hagstofa Íslands Reykja- nesbær Rangár- þing ytra Garðabær Ölfus Fljótsdals- hreppur Hval- fjarðar- sveit Vestur- byggð Grímsnes- og Grafn- ingshr. Súðavík Dalabyggð Mýrdals- hreppur Hvera- gerði Hörgár- sveit Tjörnes- hreppur Helgafells- sveit 19.676 20.416 1.740 1.810 17.693 18.445 2.369 2.481 98 103 647 687 1.064 1.131 492 525 201 215 620 665 758 814 2.778 2.984 653 704 56 61 66 79 Mannfjöldi 2021 og 2022: Mannfjöldi á Íslandi var 368.792 1. janúar 2021 og 376.248 1. janúar 2022 Sem savarar til fjölgunar um 2,0% Íbúum fjölgaði um 2% - Landsmönnum heldur áfram að fjölga milli ára - Körlum fjölgaði meira en konum í fyrra - Mest fjölgar á Suðurlandi Morgunblaðið/Ingó Rólófjör Íbúum landsins fjölgaði um tæplega 7.500 á milli ára. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Maður hefði haldið að svona gerði fólk ekki á leikskólum en þarna er einhver sem vildi vera leiðinlegur,“ segir Halldóra Guðmundsdóttir, leikskólastjóri á Dvergasteini við Seljaveg í Vesturbæ Reykjavíkur. Óskemmtileg sjón blasti við starfsfólki og börnum á leikskól- anum í gærmorgun. Fjólubláu spreyi hafði verið sprautað á hús- næði leikskólans, leiktæki og leik- föng. Rótað hafði verið í dóta- skúrum. „Það var búið að skrifa „dick“ á slökkviliðsbílinn okkar. Þarna var ekki verið að fá útrás fyr- ir listræna hæfileika, þetta var bara gert til að subba út,“ segir Halldóra. Spreybrúsarnir voru skildir eftir á vettvangi og Halldóra hafði sam- band við lögreglu vegna málsins. Hún beið þess síðdegis í gær að heyra frá nágrönnum um það hvort einhver hefði séð til skemmdar- varganna. Þá kvaðst hún vonast til þess að starfsmenn borgarinnar myndu þrífa krotið af hið fyrsta. „Börnin tóku auðvitað eftir þessu um leið. Þau voru ofboðslega hneyksluð og leið yfir þessu. Því er mikilvægt að þetta verði hreinsað af sem fyrst.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Skemmdarverk Slökkviliðsbíll á leikskólanum fékk ekki að vera í friði. Börnin ofboðslega hneyksluð og leið - Skemmdarverk unnin á leikskóla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.