Morgunblaðið - 23.03.2022, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2022
Veittar verða alls 6,3 milljónir króna
í ár úr Húsafriðunarsjóði til endur-
bóta á Húsavíkurkirkju, skv. lista yf-
ir úthlutanir úr sjóðnum sem Minja-
stofnun Íslands birti í gær. Veittir
voru 242 styrkir. Úthlutað var 300
milljónum króna, en sótt var um ríf-
lega 1,2 milljarða króna. Veittir eru
styrkir til tuga friðlýstra kirkna víða
um landið og meðal þeirra sem mest
fá eru kirkjurnar á Grund í Eyja-
firði, Eyri við Seyðisfjörð í Ísafjarð-
ardúpi, Holtastöðum í Langadal í
Austur-Húnavatnssýslu og Krossi í
Austur-Landeyjum. Þá eru veittar
4,5 millj. kr. til endurbóta á kirkj-
unni á Silfrastöðum í Blönduhlíð í
Skagafirði. Hún var tekin af grunni
sl. haust til viðgerða á Sauðárkróki
sem taka nokkur ár.
Segja má að öðru leyti að fjöl-
breytni sé ráðandi í þeim verkefnum
sem styrki fengu úr Húsafriðunar-
sjóði að þessu sinni. 8,6 millj. kr. fara
til endurbóta á Norræna húsinu í
Reykavík og þá er einnig stutt við
endurbætur á Hljómskálanum. Þá
er veitt fé til endurbóta á barna-
skólahúsinu á Seyðisfirði og 4,0
millj. kr. fara til uppbyggingar á
Laxabakka, veiðihúsi við Sogið í
Grímsnesi. Sú bygging er í torfbæj-
arstíl og er nú að hrunin komin, sem
mörgum hefur runnið til rifja. Alls
1,6 millj. kr. fara í Fífilbrekku á
Reykjum í Ölfusi, þar sem er víð-
frægt sumarhús Jónasar Jónssonar
frá Hriflu, sem nú er friðlýst bygg-
ing. sbs@mbl.is
Hljómskáli, kirkjur og veiðihús
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Laxabakki Víðfrægt hús á bökkum Sogsins í Grímsnesi sem nú stendur til
að endurgera, meðal annars með góðum tilstyrk Húsafriðunarsjóðs.
- 242 húsastyrkir - 6,3 milljónir til Húsavíkurkirkju
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Útlit er fyrir algjöra endurnýjun í
sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverja-
hrepps, en enginn af þeim fimm sem
nú eiga þar sæti gefur kost á sér til
endurkjörs við kosningar í vor.
„Auðvitað er bagalegt að enginn ætli
að halda áfram. Alltaf er hætta á að
mikilvæg þekking glatist með slíku,
en þeim mun mikilvægara er þá að
halda í starfsfólkið sem heldur dag-
legri starfsemi gangandi,“ segir
Björgvin Skafti Bjarnason oddviti.
Hann var fyrst kjörinn í sveitar-
stjórn Skeiðahrepps árið 1990.
Skeiðin voru svo sameinuð Gnúp-
verjahreppi í eitt sveitarfélag fyrir
tólf árum.
Störfin fjölbreytt
og íbúar þakklátir
„Ég fór fyrst í sveitarstjórnarmál
fyrir 32 árum. Tók mér pásu í tvö
kjörtímabil, átta ár, en kom svo inn í
þetta síðar. Störfin eru fjölbreytt og
íbúarnir þakklátir. Hefði því gjarnan
viljað halda áfram, nema hvað veik-
indi og persónulegar aðstæður ráða
því að nú verð ég að segja stopp,“
segir oddvitinn. Hin fjögur í hrepps-
nefndinni hætta hvert á sínum for-
sendum.
Íbúar í Skeiða- og Gnúpverja-
hreppi í dag eru um 590 og fer held-
ur fjölgandi. Sveitarfélagið nær yfir
Skeiðin í Árnessýslu og svæðið upp
með vestanverðri Þjórsá og þar inn
á öræfi. Margvísleg uppbygging er í
sveitarfélaginu um þessar mundir.
Má þar meðal annars nefna að fram
undan er bygging tuga starfs-
mannaíbúða við Árnes, þar sem
starfsfólk ferðaþjónustu fær sama-
stað. Þá er líklegt að framkvæmdir
við byggingu Hvammsvirkjunar í
Þjórsá hefjist á næstu misserum.
Á líðandi kjörtímabili hafa Afl til
uppbyggingar og Gróska átt hvort
sinn fulltrúann í sveitarstjórn
Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Fram-
boðið Okkar sveit hefur átt þrjá full-
trúa. Þeir eru Björgvin Skafti odd-
viti, Einar Bjarnason verkfræðingur
og Matthías Bjarnason, sem var
kjörinn aðeins nokkrum dögum eftir
að hann varð átján ára og kjör-
gengur þar með.
Yngstur á útleið
Matthías, yngsti sveitarstjórnar-
maður landsins, flytur úr sveitinni í
vor og segir að fyrir sig sé sjálfhætt.
„Ef ég væri ekki á förum finnst mér
þó ekki ósennilegt að ég hefði haldið
áfram, því sveitarstjórnarmál eru
áhugaverð. Mér finnst ég líka þar
hafa fengið tækifæri til að koma
ýmsu góðu leiðar, svo sem fyrir
íþróttastarfið hér í uppsveitunum,“
segir Matthías, sem verður 22ja ára
nú í vor.
„Já, ég ætla ekkert að draga úr
ungu fólki að gefa kost á sér til sam-
félagslegra starfa. Þegar og ef fólk
hefur skoðanir á því hvernig hlutum
skuli háttað í nærsamfélaginu er um
að gera að setja þær fram. Ef mál
eru skynsamlega sett fram og vel
rökstudd næst yfirleitt árangur; sér-
staklega í litlu málunum sem þó hafa
mikil áhrif á daglegt líf.“
Allir í hreppsnefnd
ætla að hætta í vor
- Breytingar í Skeiða- og Gnúpverja-
hreppi - Unga fólkið gefi kost á sér
Björgvin Skafti
Bjarnason
Matthías
Bjarnason
2022 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
Peysur • Bolir • Blússur
Túnikur • Kjólar • Jakkar
Ný sending af vestum
í nokkrum litum
VORVÖRUR
Við erum flutt á
Smiðjuveg 1
allt að 70%
Smiðjuvegur 1, Kópavogur, sími 419 7300, sportval.is
Frábær opnunarti
lboð