Morgunblaðið - 23.03.2022, Síða 12

Morgunblaðið - 23.03.2022, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. MARS 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Runólfur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Fé- lags íslenskra bif- reiðaeigenda, FÍB, var viðmælandi Eggerts Skúlasonar í Dagmálum í gær. Þar voru umferðarmál á höfuð- borgarsvæðinu meðal umræðu- efna og benti Runólfur á að oft væri viðhorfið öfugsnúið. Hann hefði til að mynda heyrt það frá borgarfulltrúa að tafir vegna umferðarljósa á Miklubraut við Tónabæ gamla væru jákvæðar, enda væri með því hægt á um- ferðinni. Þar með væru send skilaboð sem borgarfulltrúinn taldi bersýnilega jákvæð, nefni- lega að fólk kæmist ekki greið- lega leiðar sinnar ef það æki um á eigin bíl. Þessi fjandskapur í garð þeirra sem aka um á eigin bílum hefur verið viðvarandi í höfuð- borginni árum saman, eða allan þann tíma sem vinstri flokkarnir hafa ráðið þar ríkjum. Svipuð viðhorf má raunar merkja hjá stöku manni utan þessara flokka, en það er sem betur fer fátítt. Hluti af þessu viðhorfi til einkabílsins er að leggja beri á hann sérstakan skatt til að standa undir kostnaði við borg- arlínu. Nú er það svo að bifreiða- eigendur á höfuðborgarsvæðinu hafa lengi greitt háa skatta, líkt og fram kom í viðtalinu við for- mann FÍB, svo ekki er á bæt- andi. Sérstakur skattur vegna framkvæmdar á borð við borg- arlínu, sem hefur ekki síst þann tilgang að þrengja götur og tefja þar með umferð, er vitaskuld fráleit hugmynd. Og þá breytir engu þó að skatturinn sé settur í huggulegri búning og kallaður flýtigjald eða þrengslagjald, eins og Runólfur segir að reynt hafi verið í Svíþjóð en verið hafnað af dóm- stólum. Skattar eru skattar og eðli þeirra breytist ekki við að bera nafnið gjöld. Í kosningabaráttunni vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík lagði Kjartan Magn- ússon áherslu á andstöðu sína við borgarlínuna og borgarlínu- skattinn undir slagorðinu Borgarlínuskatt? – Nei takk. Kjartan minnti á að vinstri meirihlutinn hefði nýlega sam- þykkt að kaupa skemmu til nið- urrifs fyrir tæpan hálfan milljarð króna til að rýma fyrir borgar- línunni svokölluðu. Hann benti líka á borgarlínan væri dýr, kostnaðurinn næmi í það minnsta 100 milljörðum króna, og að auk þess vissi enginn hver rekstrarkostnaðurinn yrði. Hann sagði ótækt að skattgreið- endur yrðu látnir fjármagna slíkt verkefni og nefndi að nær „væri að styðja betur við núver- andi strætisvagnakerfi, sem er stórlega vannýtt en má svo sann- arlega bæta“. Afar mikilvægt er fyrir þróun höfuðborgarsvæðisins – og pyngju skattgreiðenda – að horf- ið verði frá þeim óraunsæju hug- myndum sem meirihlutinn í borginni hefur fylgt í samgöngu- málum. Framboð á höfuðborgar- svæðinu þurfa að hafna öllum hugmyndum sem þrengja að um- ferð, hafa í för með sér óhóflegan kostnað og fela í sér stórkostlega nýja skatta á bifreiðaeigendur. Um þetta ættu allir flokkar sem ekki eru mjög langt til vinstri að geta sameinast. Kjósendur, sem einnig eru skatt- greiðendur, þurfa að gæta að sér fyrir kosningar} Er þrengslagjald eða flýtigjald ekki skattur? Augu alls heims- ins beinast nú að Úkraínu og þeim stríðsátökum sem þar eiga sér stað með tilheyrandi hörmungum fyrir almenning. En stríðið hefur mismikla þýðingu fyrir ólíkar þjóðir og er þá ná- lægðin við átakasvæðin ekki endilega ráðandi þáttur. Taí- vanar eru þeir sem fylgjast af hvað mestum áhuga með þróun mála og sömuleiðis fyrrverandi landar þeirra á meginlandinu. Taívan hefur lengi búið við þá ógn að kommúnistastjórnin í Peking kynni að taka þá ákvörð- un, líkt og Pútín á dögunum, að ráðast inn í landið enda lítur hún svo á að Taívan sé óaðskiljan- legur hluti Kína, líkt og Pútín hefur reynt að halda fram um Úkraínu. Kínverjar og Taívanar fylgjast grannt með því hvernig Úkraínu tekst að verjast of- ureflinu en ekki síð- ur hver viðbrögð annarra þjóða eru og er þar einkum horft til Bandaríkj- anna. Hvorir tveggja velta fyrir sér hvaða líkur séu á að Banda- ríkin blandi sér með beinum hætti inn í slík stríðsátök enda hefði það mikil áhrif á úrslitin. Ekki er að efa að Taívanar hafa þegar sannfærst enn frekar um að þeir verði að geta staðið á eigin fótum en geti ekki treyst á hernaðaraðstoð, nema mögulega vopnasendingar, komi til inn- rásar. Á sama tíma kann að vera að kínverskum stjórnvöldum lít- ist ekki á meint mannfall í röðum Rússa og þann mikla kostnað sem stríðið hefur í för með sér fyrir þá. Þetta gæti haft þau áhrif að þeir teldu rétt að láta tímann vinna með sér enn um sinn. Hvaða ályktanir draga Kínverjar af innrás Rússa?} Úkraína og Taívan Í sland á sér langa sögu um endurheimt vistkerfa, en lengi vel var áskorunin að stöðva eyðingu gróðurs og jarð- vegs. Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst áratuginn 2021-2030 áratug endur- heimtar vistkerfa. Um allan heim er kallað eftir verndun og endurheimt vistkerfa í þágu fólks og náttúru. Markmiðið er að stöðva hnignun vistkerfa og endurheimta þau sem þegar eru röskuð. Þá er átt við vistkerfi bæði á landi og í hafi, eins og náttúruskóga, vot- lendi, borgarvistkerfi og sjávarvistkerfi. Lítil áhersla hefur hingað til verið á endurheimt sjávarvistkerfa, því vil ég breyta. Heilbrigð vistkerfi, til sjós eða lands eru grundvöllur þess að bæta lífskjör fólks, vinna gegn lofts- lagsbreytingum og stöðva hrun líffræðilegrar fjölbreytni. Endurheimt birkiskóga og votlendis hefur aukist Samkvæmt tillögu að landgræðsluáætlun, sem nú er til meðferðar í matvælaráðuneytinu, er áhersla á tvö markmið fyrir stöðvun jarðvegseyðingar og endurheimt vistkerfa. Annars vegar að þrefalda endurheimt birki- skóga og hins vegar að þrefalda í heild umfang endur- heimtarverkefna fyrir árið 2030 miðað við meðaltal ár- anna 2015-2017. Endurheimt votlendis er ein af lykilaðgerðum í loftslagsmálum og jafnframt fyrir vernd líffræðilegrar fjölbreytni. Aðgerðum sem Ísland hefur skuldbundið sig til. Endurheimt votlendis hefur aukist undanfarin ár og er áætlað að hún muni aukast enn meira á komandi árum. Fram kemur í stöðuskýrslu að- gerðaáætlunar í loftslagsmálum frá sept- ember 2021 að umfang endurheimtar vot- lendis tífaldaðist á milli áranna 2018 og 2020. Nýtum tækifærin og græðum landið Ísland mun auka aðgerðir enn frekar á þessu sviði á þessum áratug endurheimtar vistkerfa. Tæplega 1/3 af yfirborði Íslands er með minna en 20% gróðurþekju. Því til við- bótar er talsvert eða mikið rof á ríflega 1/3 landsins. Því er verkefnið afar stórt og til þess að árangur náist þurfa margir að koma að því, almenningur, hið opinbera og fyrir- tæki. Á landinu eru því mikil tækifæri til að bæta ástand vistkerfa, auka kolefnisbindingu og stöðva eyðingu jarðvegs og að því er þegar unnið. Stór hluti landgræðslustarfsins fer fram í samstarfsverkefnum Landgræðsl- unnar, Bændur græða landið og Landbótasjóði, þar sem einstaklingar, félagasamtök og sveitarfélög eru styrkt til að vinna að landgræðslu. Alls eru um 600 þátttakendur í Bændur græða landið. Á árinu 2021 var úthlutað úr Landbótasjóði rúmlega 90 milljónum til 96 verkefna. Mikil tækifæri felast í kolefnisbindingu og stöðvun los- unar frá landi með aukinni útbreiðslu birkis og víðikjarrs og er markmið Íslands innan Bonn-áskorunar að þre- falda þekju birkiskóga landsins, úr 1,5% í 5%. Tækifærin má nýta í auknu samstarfi við bændur og sveitarfélög um stefnumörkun varðandi endurheimt landgæða, okkur öllum til heilla. svandis.svavarsdottir@mar.is Svandís Svavarsdóttir Pistill Ákall um endurheimt vistkerfa Höfundur er matvælaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ó byggð víðerni eru einkenn- andi fyrir umtalsverðan hluta íslensks landslags. Á það meðal annars við um stór landsvæði á miðhálendinu,“ segir í ágripi af skýrslu sem Wild- land Research Institute (WRi) gerði fyrir Náttúruverndarsamtök Ís- lands, Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi, Skrauta náttúruverndar- samtök og Unga umhverfissinna. Sérfræð- ingar Leeds- háskóla önnuðust kortlagninguna undir forystu dr. Stephens Car- vers, forstöðu- manns WRi. Hann kynnti skýrsluna í sal Þjóð- minjasafnsins í gær. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, ávarpaði fundinn auk fleiri ræðumanna. Í skýrslunni segir að það að standa vörð um og viðhalda óbyggð- um víðernum sé efst á lista útfærðra markmiða Rammasamnings Sam- einuðu þjóðanna um líffræðilegan fjölbreytileika fyrir árið 2030. Þá er minnt á að víðernaskrá Evrópusam- bandsins frá 2013 sýndi að tæplega 43% af „villtustu“ víðernum Evrópu var að finna á Íslandi. Víðernagæði voru greind fyrir miðhálendi Íslands. Greiningin var notuð til að skilgreina alls 17 víð- ernasvæði sem standast skilgrein- ingu Alþjóðanáttúruverndar- sambandsins (IUCN) á óbyggðum víðernum (flokkur lb). Einnig skil- greiningu Wild Europe fyrir víðerni, en hún útfærir og lagar fyrrnefndu skilgreininguna að Evrópu. „Þetta er sagt með þeim fyrirvara að tekið sé á beit og utanvegaakstri á snjó og ís á svæðunum sem skýrslan til- greinir,“ segir í ágripi. Víðernasvæðin ná samtals til um 47% af miðhálendinu, eins og það er skilgreint í skýrslunni, eða 55.400 ferkílómetra. Einnig þriggja víð- ernasvæða utan miðhálendisins. Þar af eru 19.500 ferkílómetrar þjóð- lendur og 8.970 ferkílómetrar í einkaeign. Skýrsluhöfundar segja að til grundvallar rannsóknunum sé beitt alþjóðlega viðurkenndri að- ferðafræði með hárri upplausn og byggt á bestu fáanlegum gögnum frá innlendum og alþjóðlegum stofn- unum. Við víðernagreininguna voru gerð líkön byggð á þremur megin- þáttum sem áhrif hafa á víðernagæði á Íslandi. Fyrst fjarlægð frá vél- knúnum aðgangi, mæld sem göngu- tími frá vegum sem opnir eru al- menningi. Í öðru lagi sjónræn áhrif frá mannlegum vegsummerkjum, mæld sem fjöldi og umfang mann- virkja sem sjást, eins og vegir, bygg- ingar, loftlínumöstur og fleira. Í þriðja lagi náttúrulegt yfirbragð lands. Það var mælt sem hlutfall mismunandi gróðurþekju og teg- unda landnotkunar. „Með því að leggja þessa þrjá eiginleika víðernasvæða saman í eitt og sama kortið sést breytileiki víð- ernagæða allt frá minnstu til mestu víðernanna. Tölfræðilegum aðferð- um er síðan beitt til að greina dreif- ingu víðernagildanna á öllu miðhá- lendinu og skipta því upp í víðerna- svæði með víðernaleiðbeiningar verndarflokks lb hjá IUCN og skil- greiningu Wild Europe að leiðar- ljósi,“ segir í ágripinu. Svæðunum var skipt í þrennt. Það er ósnortnustu kjarnasvæðin, svo jaðarsvæði víðernanna og loks hjúpinn þar á milli. „Kjarnasvæðin eru mest jöklar og aðliggjandi svæði auk nokkurra stórra svæða utan jökla sem samanstanda af afskekktu eldfjallalandslagi og víðfeðmum sléttum með ferkvatnslindum sem eru einkennandi fyrir landslag miðhálendisins.“ Úr þessari greiningu komu 17 víðernasvæði. Af þeim eru 14 innan miðhálendisins, eins og það er skil- greint, og þrjú utan þess. Alls eru þetta 28.470 ferkílómetrar af víð- ernasvæðum. Þar af eru 26.404 fer- kílómetrar innan miðhálendisins og 2.066 ferkílómetrar utan þess. Í skýrslunni segir að nákvæmni greininganna sé mun meiri en tíðk- ast hefur hér og aðferðin við víð- ernakortlagningu þróaðri en áður. Víðerni Íslands skil- greind nákvæmlega Keflavík og Látraströnd Heljardalsfjöll Smjörfjöll Langjökull Fjallabak Mýrdalsjökull og Eyjafjallajökull Trölladyngja Dimmifjallgarður Nýjabæjarfjall Bleiksmýrardalur Ódáðahraun Askja í Dyngjufjöllum Hofsjökull og Þjórsárver Fljótsdalsheiði Tröllaskagi Náttfaravíkur og Kinnarfjöll Ríki Vatnajökuls Áhugaverð svæði á miðhálendinu Óbyggð víðernissvæði Svæði semmögulega falla í II. flokkH ei m ild :W ild la n d R es ea rc h In st it u te Óbyggð víðerni Stephen Carver

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.